Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh í dag Aðalmeðferð er í dag í máli Þorsteins Kragh og Jakobs Van Hinte í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru sakaðir um að standa að einu stærsta smygli á eiturlyfjum til landsins í sögunni en Van Hinte var stöðvaður í ferjunni Norrænu í júní 2008 með um 190 kíló af hassi, eitt kíló af kókaíni og eitt og hálft kíló af maríjúana, vandlega falið í bíl sínum. 23.2.2009 09:07
Hákarlsárásum fækkar í kreppunni Það er óhætt að halda því fram að þrengingar í hagkerfum heimsins komi víða fram, svo víða að jafnvel árásum hákarla á fólk hefur fækkað umtalsvert og hafa skráðar árásir ekki verið færri í hálfan áratug en þær voru í fyrra en þá voru þær 59 miðað við 71 árið 2007. 23.2.2009 08:14
Nýjasta tilraun Browns ber merki um örvæntingu Fimm hundruð milljarða punda björgunarpakki til handa breskum bönkum er nýjasta útspil breska forsætisráðherrans Gordons Brown og talar dagblaðið Telegraph um örvæntingarfulla tilraun til að bjarga hagkerfinu, en það greinir frá því að Brown muni kynna þessa björgunaráætlun sína í þessari viku. 23.2.2009 08:09
Sluppu úr fangelsi með aðstoð þyrlu Tveimur hættulegum stórglæpamönnum tókst að flýja úr fangelsi í Aþenu, höfuðborg Grikklands, í gær með því að láta þyrlu sækja sig á þak fangelsisins. Þetta er í annað sinn sem mönnunum tekst að flýja úr fangavist með aðstoð þyrlu. Annar mannanna er Grikki en hinn er Albani. Hlutu þeir dóma sína meðal annars fyrir vopnuð rán og mannrán. 23.2.2009 07:24
Hettuklæddir menn skutu á hús Vítisengla Tveir óþekktir byssumenn, íklæddir hettupeysum, skutu nokkrum skotum að klúbbhúsnæði vélhjólasamtakanna Vítisengla í Kaupmannahöfn í gærdag. 23.2.2009 07:21
Sumarvinnuvefur lítur dagsins ljós Tveir Vestmannaeyingar hafa opnað vefinn sumarvinna.is þar sem fólk getur skráð sig með tilheyrandi upplýsingum sér að kostnaðarlausu og fyrirtæki geta auglýst eftir fólki. 23.2.2009 07:12
Hvarf á braut þegar þjófavarnakerfi glumdi Brotist var inn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í nótt og fór þjófavarnakerfi í gang. Við það virðist sem styggð hafi komið að þjófnum því hann hvarf á braut og er ófundinn. 23.2.2009 07:10
Gulldeplan fjarlægist Gulldeplan virðist vera að fjarlægjast landið óðfluga og eru nú fjögur skip komin hátt í 200 mílur suðvestur af landinu að elta hana. Það er á Reykjaneshrygg, þar sem karfavertíðin hefst með vorinu. 23.2.2009 07:08
Dekkjum og felgum stolið undan bíl Öllum dekkjum og þar með felgum var stolið í nótt undan bíl sem stóð á bílasölu í Hálsahverfinu í Reykjavík og bíllinn skilinn eftir á búkkum. Þjófarnir komust undan og er ekki vitað hverjir þeir eru. 23.2.2009 07:06
Allsherjaratkvæðagreiðsla hefst hjá VR í dag Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í VR um framboð til formanns, stjórnarmanna í einstaklingskjöri og lista til stjórnar og trúnaðarráðs hefst á hádegi og lýkur 11. mars. 23.2.2009 07:02
Kjartan opnar kosningaskrifstofu í bílskúrnum Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðismanna á Suðurlandi, fer óhefðbundnar leiðir í komandi prófkjöri þar sem hann býður sig fram í annað sæti. Hann hefur opnað kosningaskrifstofu í bílskúrnum heima hjá sér. 23.2.2009 06:45
Fyrrum leiðtogi Sniglanna í fangelsi Hæstiréttur hefur dæmt Ásmund Jespersen, fyrrverandi varaformann vélhjólaklúbbsins Sniglanna, í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir stórhættulegan ofsaakstur. Ásmundur flúði lögreglu ásamt félaga sínum á ríflega tvöföldum hámarkshraða á Suðurlandsvegi sumarið 2007. 23.2.2009 06:15
Hér verði einn þjóðarbanki Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segist ekki hafa stífar skoðanir á eignarhaldi útlendinga á íslenskum bönkum. Hann gerir þó þá kröfu að hér verði einn banki í eigu þjóðarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í viðtali við Fréttablaðið á laugardag að réttast væri að erlendir kröfuhafar eignuðust hlut í íslensku bönkunum. 23.2.2009 06:00
Stakk með hnífi í andlit Maður um tvítugt hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 23.2.2009 06:00
Þyngsta dómi sögunnar áfrýjað Karlmaður sem dæmdur var í desember í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir gróf kynferðisbrot, til margra ára, gegn stjúpdóttur sinni, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Gert er ráð fyrir að dómur þar gangi ekki fyrr en í haust, að því er Fréttablaðinu hefur verið tjáð. 23.2.2009 05:45
Ljón á vegi Rauða ljónsins á Nesinu Þrír af fjórum samflokksmanna Jónmundar Guðmarssonar, bæjarstjóra Seltjarnarness, í bæjarstjórn greiddu atkvæði gegn tillögu hans um að veita Rauða ljóninu rekstrarleyfi á Eiðistorgi þar í bæ. 23.2.2009 05:00
Harðbannað að taka ljósmyndir Ferðamenn í Bretlandi þurfa að gæta sín sérstaklega framvegis að taka ekki ljósmyndir af lögregluþjónum, sem þeir kynnu að rekast á á förnum vegi. 23.2.2009 05:00
Varnarmálastofnun kannski lögð niður Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir málefni Varnarmálastofnunar vera til rækilegrar skoðunar. Til greina kemur að leggja hana niður. 23.2.2009 04:45
Grásleppunetin fóru á haugana „Það er undarlegt ef menn telja sig geta hent verðmætum,“ segir Þórður Vormsson, fyrrum grásleppusjómaður. Hann krefur nú sveitarstjórn Voga á Vatnsleysuströnd um 82 þúsund þar sem bærinn fleygði 41 grásleppuneti hans þegar hreinsunarátak fór fram síðsumars. Netin voru í körum utan við atvinnuhúsnæði á staðnum. 23.2.2009 04:30
Sólheimajökull geldur afhroð „Sólheimajökull var í haust 134 metrum styttri en árið áður og hefur aldrei frá því mælingar hófust 1930 beðið annað eins afhroð á einu ári,“ segir Oddur Sigurðsson í Fréttabréfi Jöklarannsóknarfélags Íslands. 23.2.2009 04:00
Allir leggja gott til Sigmundar „Ég held að þetta sé misskilningur og víst er að hann á engum að mæta nema vinum, að minnsta kosti í þeim hópi Samfylkingarinnar sem ég tilheyri. Þar hefur enginn maður nema gott til hans lagt,“ segir Össur Skarphéðinsson. Sigmundur Davíð Gunnlaugssonar, formaður Framsóknarflokksins, hefur sakað Samfylkinguna um rógsherferð gegn sér. 23.2.2009 03:45
Ræddu mögulegt samstarf Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser, sem vill kaupa útgáfufélag Morgunblaðsins, fundaði með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stærsta hluthafa 365 miðla, og forstjóra félagsins í gær. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi á sviði prentunar og dreifingar. 23.2.2009 03:30
Lengsta rennibraut landsins Framkvæmdir standa nú yfir við nýja sundlaug á Álftanesi, en skóflustunga var tekin af henni í desember árið 2007. Reiknað er með að hún opni í vor. Framkvæmdir voru vel á veg komnar þegar efnahagskreppan skall á, en Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Álftaness, segir að ekki hafi verið um annað að ræða en að halda þeim áfram. 23.2.2009 03:00
Vilja refsiaðgerðir fyrir skattaskjólin Herða þarf reglur og eftirlit með fjármálakerfi heimsins, þar með talið vogunarsjóðum, og með þeim fjárfestum sem þar starfa, að mati leiðtoga nokkurra helstu Evrópuríkja, sem funduðu í Berlín í gær. 23.2.2009 03:00
Í það minnsta 74 taldir af Að minnsta kosti 74 námaverkamenn voru í gær taldir af eftir að gassprenging varð í kolanámu í borginni Gujiao í norðurhluta Kína í gær. Öryggismál höfðu fram að slysinu verið í góðu lagi hjá námunni. Talið er að 436 námaverkamenn hafi verið í námunni þegar sprengingin varð. Í það minnsta 114 slösuðust í sprengingunni. Einhverjir lokuðust inni í námunni, en þeim hafði öllum verið bjargað í gærkvöldi. Ástand öryggismála í kínverskum námum hefur sætt harðri gagnrýni undanfarið og hafa kínversk stjórnvöld ítrekað lofað úrbótum.- bj 23.2.2009 03:00
Þingfundur hafinn Fundur er hafinn á Alþingi, en honum var frestað þrisvar sinnum í dag. Þingfundi sem átti að hefjast klukkan þrjú í dag var frestað um leið og hann hófst. Var það gert að ósk stjórnarflokkanna og sagði Guðbjartur 23.2.2009 03:00
Segir fólk í átthagafjötrum í borginni Nú í kreppunni hefur áhugi fólks á því að búa á landsbyggðinni stóraukist og nú þegar fjölgar ungu fólki í nokkrum byggðum þar sem slíku hefur ekki verið að fagna í áraraðir. 23.2.2009 03:00
Von úr ösku örvæntingar „Við rísum saman með von úr ösku örvæntingarinnar,“ sagði Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, þegar hann minntist fórnarlamba gríðarlegra skógarelda í landinu undanfarið. 23.2.2009 02:00
Birkir og Höskuldur takast á um sæti Valgerðar Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins og Höskuldur Þórhallsson þingmaður vilja báðir leiða framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Undanfarin ár hefur Valgerður Sverrisdóttir verið oddviti flokksins í kjördæminu en hún tilkynnti nýverið að hún sækist ekki eftir endurkjöri. 23.2.2009 10:59
„Þetta verður erfitt. Framtíðin er svört“ Viðskiptaráðherrann Gylfi Magnússon var í viðtali við þýska blaðið Welt am Sonntag í dag að efnahagsleg framtíð Íslands væri svört. Þegar blaðamaður blaðsins spyr hvernig í ósköpunum íslenska þjóðin ætli að borga 10 milljarða dollara lán sem ríkið hefur fengið undanfarið svarar Gylfi undankomulaust: „Það verður erfitt. Framtíðin er svört.“ 22.2.2009 22:00
Grænmetisumbúðir bannaðar af neytendastofu Neytendastofa hefur bannað fyrirtækinu sem rekur Íslenskt meðlæti hf að nota umbúðir sínar utan um fryst grænmeti óbreyttar. Íslenskt meðlæti selur útlenskt grænmeti með íslensku fánalitunum. Umbúðirnar eru villandi að mati Neytendastofu. 22.2.2009 20:44
Þingmenn evrópráðsins geta fengið eina milljón punda fyrir störf sín Þingmenn Evrópuráðsins þéna allt að eina milljón punda, sem þeir fá greitt frá skattgreiðendum í formi aukakostnaðar, yfir eitt kjörtímabil sem eru fimm ár. Þetta kemur fram á vef Telegraph í kvöld. Þetta kom í ljós eftir að 92 blaðsíðna skýrslu var lekið í fjölmiðla. Efni hennar fer vandlega yfir aukakostnað þingmannanna. 22.2.2009 20:10
Gríðarleg fjölgun erlendra fanga Fjöldi útlendra fanga, sem afplánar dóm eða situr í gæsluvarðhaldi hér á landi, hefur margfaldast á milli ára. Alls sátu 64 erlendir ríkisborgarar í íslenskum fangelsum á síðasta ári. 22.2.2009 19:38
Davíð burt von bráðar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra reiknar með að Alþingi samþykki lög um Seðlabanka Íslands í vikunni og að hún skipi um leið nýjan aðalbankastjóra og aðstoðarbankastjóra til bráðabirgða. Hún telur að núverandi bankastjórar Seðlabankans yfirgefi bankann innan fárra daga. 22.2.2009 18:52
Íslensk hjón segjast svikin Íslenskum hjónum, með fjögur ung börn, og feðgum var flogið heim frá Danmörku í gær á kostnað ríkisins eftir að hafa misst allt sitt í hendur Íslendings sem þau saka um að hafa vísvitandi nýtt sér neyð þeirra og haft af þeim aleiguna. Neyðin var slík að íslenska sendiráðið í Danmörku sendi þeim pening í vikunni til að börnin syltu ekki. 22.2.2009 18:40
Framsókn kynnir stjórnarflokkum eigin tillögur Forysta Framsóknarflokksins kynnti leiðtogum stjórnarflokkanna (LUM) nú síðdegis tillögur sínar í efnahagsmálum, sem þeir telja að hrynda þurfi í framkvæmd bæði fyrir og eftir kosningar. Framsóknarmenn höfðu fyrirhugað að kynna tillögurnar á fréttamannafundi í dag, en frestuðu þeim fundi til morguns vegna þess að þeir vildu fyrst kynna tillögur sínar fyrir stjórnarflokkunum. Tillögunum er bæði ætlað að styðja við aðgerðir ríkisstjórnarinnar og halda stjórnarflokkunum við efnið. 22.2.2009 18:58
Vísir sýnir beint frá rauða dreglinum í nótt Vísir sýnir beint frá rauða dreglinum fyrir framan Kodak leikhúsið í Hollywood í kvöld þar sem allar helstu kvikmyndastjörnur samtíðarinnar koma saman í tilefni Óskarsverðlaunanna. Hver stjarnan á fætur annari mætir á svæðið til þess að sýna sig og sjá aðra. Útsending hefst á miðnætti og henni lýkur klukkutíma síðar. 22.2.2009 15:28
Sómalskir sjóræningjar ræna grísku flutningaskipi Fréttamaður BBC, Jonah Fisher, sem er staddur í herskipi undan ströndum Sómalíu, segir á vef breska ríkisútvarpsins að sómalskir sjóræningjar hafi rænt enn einu skipinu. Um er að ræða flutningaskip í eigu Grikkja. Sjóræningjarnir eiga að hafa haft samband við breska herskipið þar sem þeir sögðu þeim að halda sig í burtu. 22.2.2009 10:57
Velti bílnum í götukappakstri Ungur ökumaður velti bílnum sínum á Stapabraut í Innri Njarðvík í gærkvöldi en ástæðan var sú að hann var í kappakstri við annan ökuþór, sem var á svipuðum aldri, en þeir eru rétt tæplega tvítugir. 22.2.2009 09:58
Atli Gíslason: Fangar eru kórdrengir miðað við auðmenn „Ég á nöfnin á þessum fjörtíu, fimmtíu mönnum sem við erum að tala um," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna spurður út í ummæli sín í Silfri Egils fyrr í dag þar sem hann talaði um að bankarnir á landinu þyrftu að setja auðmenn á válista. 22.2.2009 16:56
Útskrifuð af gjörgæslu eftir tunnuslys Önnur kvennanna sem lenti í alvarlegu vinnuslysi í Þykkvabæ fyrir helgi, verður útskrifuð af gjörgæslu í dag. Hin konan er enn haldið sofandi en hún er í öndunarvél. Samkvæmt vakthafandi lækni er ástand hennar stöðugt. 22.2.2009 13:38
Hestur aflífaður eftir árekstur Ökumaður fólksbíls ók á hross við Landveg nærri Hellu um miðnætti í gær. Hesturinn slasaðist illa og þurfti að aflífa hann á staðnum. 22.2.2009 11:33
Skíðasvæðið á Siglufirði opið Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá klukkan ellefu til fimm. Það er fimm stiga frost í fjallinu, norðvestan átt auk þess sem það er smá éljagangur. Þó er nóg um snjó og færi almennt gott samkvæmt forsvarsmönnum skíðasvæðisins. 22.2.2009 10:18
Tugir fastir í brennandi námugöngum Yfir 70 kolanámumenn fórust í sprengingu í Sjangsi héraði í Kína í morgun. Níutíu og sex til viðbótar eru í námunni. 22.2.2009 09:54
Sex innbrot í nótt Alls voru sex innbrot framinn á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt lögreglunni er fleira en gengur og gerist. Í einu tilvikinu var rúða brotinn á veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Þjófurinn fór svo inn um gluggann og tæmdi sjóðsvél. Þá var einnig farið inn í heimahús í Kópavogi í nótt og tölvuturn tekinn ófrjálsri hendi. 22.2.2009 09:37