Segir Ögmund vilja koma höggi á sig 23. febrúar 2009 23:14 Guðlaugur Þór Þórðarson segir að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra einbeiti sér að því að koma höggi á sig. „
Það er ljóst að núverandi heilbrigðisráðherra einbeitir sér fyrst og fremst að því að koma höggi á undirritaðan í stað þess að hugsa um heilbrigðismál, enda málaflokkurinn flókinn og erfiður og ýmsar aðgerðir sem nú eru nauðsynlegar lítt fallnar til vinsælda," segir Guðlaugur Þór Þórðarson á vefsíðu sinni. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því í kvöld að heilbrigðisráðuneytið hafi keypt sérfræðiaðstoð fyrir 24 milljónir á þeim tíma sem Guðlaugur var ráðherra. „Þetta er önnur atlagan sem Ögmundur gerir að mér og mínum störfum á aðeins tveimur dögum. Það er alþekkt að ráðuneyti, sveitastjórnir og fyrirtæki leita sér ráðgjafar, bæði til nálgast sérfræðiþekkingu og einnig vegna mikilla anna. Af augljósum ástæðum var það gert í heilbrigðisráðuneytinu eins og annar staðar," segir Guðlaugur. Guðlaugur segir að óvenju mikið hafi verið um forföll í ráðuneytinu síðustu misseri. Ráðuneytisstjóri hafi verið í veikindaleyfi í fjölda mánaða auk þess sem staðfengill ráðuneytisstjóra sem og forstöðumaður lögfræðiðsviðs hafi verið í árslöngu námsleyfi. Þá hafi einn sérfræðingur ráðuneytisins í heilsustefnu verið lengi frá vegna veikinda á sama tíma og annar hafi verið í fæðingarorlofi. „Þessi forföll juku mjög á sérfræðiþörf ekki síst í ljósi þess að stór verkefni voru mörg í ráðuneytinu. Þær tölur sem nú hafa verið birtar eru með virðisaukaskatti og lætur heildartalan því nærri að vera 20 milljónir á þessu 20 mánaða tímabili. Sú upphæð er innan við 3% af heildarrekstrarkostnaði ráðuneytisins sem ber ábyrgð á rekstri heilbrigðisstofnana á Íslandi, en þær velta samtals 120 milljörðum króna á árinu 2009," segir Guðlaugur Þór á vefsíðu sinni.
Mest lesið Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira