Ríkisvaldið ræðst að eignaréttinum með siðlausum kröfum 23. febrúar 2009 18:27 „
Þjóðlendumálið er einn angi græðgisvæðingar sem á endanum leiddi mikla ógæfu yfir þjóðina. Ríkisvaldið réðst að sjálfum eignarréttinum, einum af hornsteinum samfélagsins með öfgafullum og siðlausum kröfum án þess að spyrja um afleiðingar og herkostnað. Landeigendur eru margir hverjir í sárum eftir þá viðureign." Þetta sagði Örn Bergsson, formaður Landssamtaka landeigenda, meðal annars í skýrslu stjórnar til aðalfundar samtakanna í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Örn minntist þess að núna væri liðinn réttur áratugur frá því fyrsta kröfugerð ríkisins í þjóðlendumálum var lögð fram, 1. mars 1999 í Árnessýslu. Landssamtök landeigenda voru stofnuð í ársbyrjun 2007 til að standa vörð um hagsmuni landeigenda í þjóðlendumálinu en á aðalfundinum núna var samþykkt að breyta lögum samtakanna til að auka verulega umboð þeirra til hagsmunagæslu landeigenda, meðal annars gagnvart stórfyrirtækjum, opinberum fyrirtækjum og stofnunum og aðilum á þeirra vegum. Fram kom í skýrslu formannsins að landeigendur sjálfir hefðu kallað eftir því að samtökin yrðu líka brjóstvörn þeirra til dæmis gagnvart Vegagerðinni, Landsvirkjun, Landsneti og RARIK og vegna annarra opinberra framkvæmda. Einnig gagnvart Alþingi og opinberri stjórnsýslu vegna laga og reglugerða þar sem til dæmis væri gengið á rétt landeigenda varðandi eignarnám hins opinbera og framkvæmd eignarnáms. Nú er búið að taka um það bil helming Íslands til umfjöllunar samkvæmt þjóðlendulögunum og kveðnir hafa verið upp 27 dómar í Hæstarétti varðandi þjóðlendur. Í máli margra manna á aðalfundinum kom fram, þar á meðal hjá lögmönnunum Friðbirni F. Garðarssyni og Ólafi Björnssyni, að lögð væri óeðlilega þung sönnunarbyrði á landeigendur í málarekstri vegna eignarréttar síns gagnvart ríkinu. Þar af leiðandi ríkti nú ákveðin réttaróvissa sem einungis yrði eytt með lagabreytingu. Í fréttatilkynningu frá Landeigendum gagnrýna þeir Óbyggðanefnd fyrir hönd stjórnvalda fyrir að úrskurða lögmönnum landeigenda mun lægri málsvarnarlaun en sem svarar raunverulegum kostnaði við málareksturinn, jafnvel innan við helming lögfræðikostnaðarins. Þessu mótmæltu landeigendur harðlega í bréfum til ríkisstjórnarinnar á árinu 2008 en forsætisráðherra og fjármálaráðherra vísuðu erindum þeirra á bug. Landeigendur Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit kærðu þá úrskurð Óbyggðarnefndar um málsvarnarlaun til umboðsmanns Alþingis og umboðsmaður komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður nefndarinnar um málskostnað Reykjahlíðar samrýmdist hvorki efniskröfum stjórnsýslulaga né þjóðlendulaga.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira