Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lífeyrissjóðirnir neituðu Landsbankanum Landsbankinn reyndi skömmu fyrir hrun að fá lífeyrissjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga við bankann upp á 600 milljónir evra. Fjárhæðin hefði dugað bankanum til að verða við kröfu breska fjármálaeftirlitsins til að taka Icesave í flýtimeðferð. 11.2.2009 18:29
Grétar Mar nýr þingflokksformaður Á fundi þingflokks Frjálslynda flokksins sem haldinn var í dag var Grétar Mar Jónsson, alþingismaður Suðurkjördæmis, kosinn formaður þingflokksins í stað Jóns Magnússonar sem sagði sig úr flokknum í fyrradag. Varaformaður var kjörinn Guðjón Arnar Kristjánsson. 11.2.2009 17:49
Vara við brostnum forsendum fjárhagsáætlunar Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar í velferðarráði vöruðu við brostnum forsendum fjárhagsáætlunar borgarinnar í bókun á fundi ráðsins í dag. 11.2.2009 17:40
Íslendingar leiða alþjóðlega rannsókn á sviði gervigreindar Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur verið úthlutað tveggja milljóna Evra styrk úr sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins að andvirði um 300 milljónir íslenskra króna til gervigreindarrannsókna. Fram kemur í tilkynningu að styrkurinn er sá langhæsti sem veittur hefur verið íslenskum aðilum til rannsókna í tölvunarfræðum og jafnframt hæsti rannsóknarstyrkur sem veittur hefur verið vísindamönnum við HR. 11.2.2009 17:24
Lúðrarnir komnir á skilorð Sturla Jónsson vörubílstjóri og mótmælandi var boðaður í skýrslutöku eftir að hann beitti gaslúðrum fyrir utan Seðlabankann í morgun. Var honum tjáð að þeytingin væri brot á lögreglusamþykkt sem snéri að látum á almannafæri. Hann segir að lúðrarnir séu nú komnir á skilorð, sjálfur ætlar hann þó að halda áfram mótmælum. 11.2.2009 17:11
Auðveldara að verða forseti Íslands en formaður VR Lúðvík Lúðvíksson sem ætlar að bjóða sig fram til formanns VR segir að nú sé búið að setja saman lista sem skilað verði inn í fyrramálið. Hann segir núverandi formann og trúnaðarráð eiga von á alvöru mótframboði en einfaldara sé að bjóða sig fram til forseta Íslands en til formanns í VR. Hann gagnrýnir hversu knappur tími sé til kosninga. Þær fara fram 23.febrúar. 11.2.2009 16:55
Eldri borgarar í efra Breiðholtið Reykjavíkurborg og Félag eldri borgara, með Margréti Margeirsdóttur, í forsvari, undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup borgarinnar á 12 þjónustuíbúðum í væntanlegu fjölbýlishúsi í efra Breiðholti af Félagi eldi borgara í Reykjavík. 11.2.2009 16:47
Steingrímur: Felst á afsagnir Vals og Magnúsar Steingrímur J. Sigfússon segir að boðað verði til hluthafafundar hjá Nýja Glitni og Nýja Kaupþingi svo fljótt sem auðið er til þess að fylla þau skörð sem stjórnarformennirnir Valur Valsson og Magnús Gunnarsson skilja eftir sig með afsögnum sínum. Þeir tilkynntu Steingrími í dag að þeir stæðu við afsagnir sínar þrátt fyrir að ráðherrann hefði beðið þá um að sitja fram að aðlfundum bankanna sem ráðgert er að halda í apríl. 11.2.2009 16:34
Meirihluti þingmanna samþykkur hvalveiðum áfram Alls hafa 36 þingmenn skrifað undir þingsályktunartillögu um að veiðum á hrefnu og langreyði hér við land skuli haldið áfram. 11.2.2009 16:11
Átta stiga frost í Bláfjöllum Opið er í Bláfjöllum og fjöldi manns á svæðinu en frostið er nokkuð, eða um átta gráður. 11.2.2009 16:11
Ástralar fengu samúðarkveðju forseta Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag ríkisstjóra Ástralíu Quentin Bryce og stjórnvöldum landsins samúðarkveðjur vegna skógareldanna sem geisað hafa þar en fjöldi Ástrala hefur látið lífið og þúsundir misst heimili sín. 11.2.2009 15:56
Verða ekki við beiðni fjármálaráðherra Valur Valsson og Magnús Gunnarsson stjórnarformenn Nýja Glitnis og Nýja Kaupþings ætla ekki að verða við beiðni fjármálaráðherra og sitja áfram. Þetta kemur fram í bréfi sem þeir sendu fjármálaráðherra í dag. Þeir þakka traust Steingríms en telja mikilvægt að eyða allri óvissu um stjórn bankanna sem fyrst. Í ljósi þess telja þeir rétt að víkja til hliðar og skapa með því svigrúm til mannabreytinga. 11.2.2009 15:41
Ökufantur bar við minnisleysi þegar hann ók á par Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingar í tvö ár frá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Maðurinn var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum þunglyndis- og svefnlyfja auk áfengis, yfir á öfugan vegarhelming við Straum við Bröndukvísl, þar sem hann ók beint framan á bifreið pars sem þar átti leið hjá. 11.2.2009 15:23
Bergþór sækist eftir öðru sæti í Norðvestur-kjördæmi Bergþór Ólason, fyrrverandi aðstoðarmaður samgönguráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Bergþór tilkynnti þessa ákvörðun sína á kjördæmisráðsþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í Borgarnesi sl. laugardag. 11.2.2009 15:15
Gróflega snúið út úr ummælum forsetans Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að snúið hafi verið út úr orðum forseta Íslands í þýskum fjölmiðlum. Forsetinn hafi ekki farið út fyrir valdsvið sitt enda hafi hann skýrt það mál sitt mjög vel. Rætt var um ummæli forseta á Alþingi í dag en Björgvin sagði forsetann hafa staðið sig framúrskarandi vel og þvert á móti hafi verið snúið gróflega út úr ummælum hans. 11.2.2009 14:00
Björgvin formaður efnahags- og skattanefndar Við upphaf þingfundar í dag var tilkynnt um hvaða þingmenn hafa tekið við formennsku og varaformennsku í fastanefndum Alþingis. Formennsku í efnahags- og skattanefnd mun Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra gegna en Árni Þór Sigurðsson verður varaformaður. 11.2.2009 13:39
Ólafur Jóhannesson stefnir á toppsætið hjá VG Ólafur Sveinn Jóhannesson, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.–2. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. 11.2.2009 13:09
Hundaræktandi á Dalsmynni sigrar í meiðyrðamáli Húsfreyjan á hundaræktunarbúinu Dalsmynni, Ásta Sigurðardóttir, sigraði meiðyrðamál gegn Hrafnhildi Jónu Þórisdóttur, en ummælin höfðu verið skrifuð á bloggsíðu í umsjá Hrafnhildar. Um er að ræða fjögur ummæli af sjö sem voru dæmd ómerk. 11.2.2009 13:09
Uppgjör fanga leiddi til íkveikju Aðstandendur fanga á Litla Hrauni reyndu að fá upplýsingar um fanga fram til þrjú um nóttina að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra, en hann gagnrýnir fréttaflutning dv.is harðlega. Þar var sagt frá því að kveikt hefði verið eldur í fjórum fangaklefum og að uppreisnástand ríkti á Litla Hrauni. Þetta segir Páll alrangt, einn fangi hafi kveikt í ruslafötu og eldurinn slökktur stuttu síðar. Ástæðan var uppgjör tveggja fanga. 11.2.2009 12:49
Eiríkur hættir - Davíð einn eftir Eiríkur Guðnason einn þriggja bankastjóra Seðlabankans stefnir að því að láta af embætti bankastjóra þann 1.júní næstkomandi. Áður hefur Ingimundur Friðriksson gefið út að hann hyggist láta af embætti. Davíð Oddsson ætlar hinsvegar að sitja áfram. 11.2.2009 12:40
Rússar íhuga að aðstoða NATO Rússar eru að íhuga að leggja NATO til flutningavélar til þess að flytja hergögn og vistir til Afganistans. Samband Bandaríkjanna og Rússlands hefur verið stirt undanfarin misseri, svo ekki sé meira sagt. Barack Obama hefur sagt að það sé meðal þess sem hann vilji breyta. Rússar virðast vera nokkuð á sömu línu. 11.2.2009 12:21
Dæmi um að fólk vilji borga með íbúðum sínum Fasteignasalar þekkja dæmi þess að fólk vilji borga með íbúðum sínum til að losna við skuldirnar. Ekki er þó vitað til þess að slíkir samningar hafi gengið í gegn. 11.2.2009 12:16
Bankastjórarnir bera ábyrgðina á hruninu Bankastjórar og eigendur gömlu bankanna geta ekki vikið sér undan því að þeir, og þeir einir, bera ábyrgð á því hvernig fór fyrir bönkunum, segir Mats Josefsson, sérfræðingur ríkisstjórnarinnar við endurreisn fjármálakerfisins. Hann segir ríkisstjórnina þurfa að koma með ákveðnari hætti að rekstri nýju bankanna og að stjórnendur þeirra þurfi að átta sig á breyttum aðstæðum. 11.2.2009 12:13
Lögreglan leitar að Rolls Royce Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að Rolls Royce bifreið sem stolið var í Hafnarfirði en tilkynnt var um nytjastuldinn í síðasta mánuði. Eigandi bílsins var erlendis í nokkrar vikur en þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar hann kom til baka. 11.2.2009 11:31
Endurreisnarnefndin kynnir skýrslu sína Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birti fyrstu skýrslu sína á fundi með blaðamönnum sem haldin var í mogun í Þjóðmenningarhúsinu. Mats Josefsson, sænskur bankasérfræðingur sem leiðir nefndina, kynnti vinnu hennar, áherslur og þau verkefni sem fram undan eru. Jafnframt var lögð fram starfsáætlun nefndarinnar og grein gerð fyrir þeim þáttum sem hún vinnur að. 11.2.2009 10:55
Of mikil læti í Sturlu vörubílstjóra Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir að einum mótmælanda við Seðlabankann hafi verið kynnt lögreglusamþykkt reykjavíkurborgar vegna hávaða sem hann myndaði með mikilli lúðraþeytingu. Um er að ræða Sturlu Jónsson vörubílstjóra sem mótmælt hefur með mjög stórum gaslúðri síðustu daga. Um tuttugu manns mótmæla við Seðlabankann að sögn yfirlögregluþjóns. 11.2.2009 10:27
Ragna ræður Ásu sem aðstoðarmann Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Rögnu Árnadóttur dóms- og kirkjumálaráðherra. 11.2.2009 10:19
Gúggla verður að glöggva og Facebook verður vinabók Málfræðingurinn Baldur Jónsson, sem situr í tölvuorðanefnd, hefur lagt til íslenskar þýðingar á orðunum Facebook, sem þúsundir Íslendinga nota, og einnig orðinu að gúggla, sem er dregið af leitar síðunni Google. Í grein sem Baldur skrifar í Morgunblaðið í dag leggur hann, og tölvuorðanefndin til, að íslenska þýðingin á Facebook, verði vinabók. 11.2.2009 10:12
112-dagurinn er í dag Dagur neyðarnúmersins,112-dagurinn er haldinn um allt land í dag. Að þessu sinni leggja samstarfsaðilarnir áherslu á að vekja athygli grunnskólabarna á því víðtæka öryggis- og velferðarneti sem þau hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið ef eitthvað bjátar á. 11.2.2009 10:11
Hefur ekki trú á boðuðum breytingum á stjórnarskrá Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist aðspurður ekki hafa mikla trú á boðuðum stjórnarskrárbreytingum ríkisstjórnarinnar og fyrirhuguðu stjórnlagaþingi. Hann hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í fimm liðum varðandi málið. 11.2.2009 09:47
Mjótt á munum í Ísrael Leiðtogar tveggja stærstu flokkanna á ísraelska þinginu, Knesset, hafa lýst yfir sigri í þingkosningunum sem fram fóru í Ísrael í gær. Búið er að telja þorra atkvæða og eins og staðan er núna hefur miðjuflokkur Tzipi Livni, Kadima, 28 þingsæti en hið hægrisinnaða Likudbandalag 27 þingsæti. 11.2.2009 09:20
Réttarhöldum yfir bloggara í Kína frestað um óákveðinn tíma Réttarhöldum yfir kínverskum bloggara hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að bandarísk stjórnvöld fóru þess á leit að fulltrúi þeirra yrði viðstaddur réttarhöldin. 11.2.2009 07:56
Vopna- og fíkniefnabirgðir hjá Vítisenglum Skotvopn, táragas og fíkniefni er meðal þess sem fundist hefur í umsvifamikilli húsleit dönsku lögreglunnar hjá nokkrum útibúum vélhjólasamtakanna Vítisengla í Danmörku. 11.2.2009 07:31
Ók upp að Capitol Hill með riffil Lögreglan í Washington handtók síðdegis í gær mann á sjötugsaldri sem ók upp að þinghúsinu á Capitol Hill með riffil í bílnum og sagðist vera með sendingu til Baracks Obama forseta. 11.2.2009 07:29
Fimmtungur íbúa Marysville talinn af í kjarreldum Talið er að um fimmtungur íbúa þorpsins Marysville í Viktoríufylki í Ástralíu hafi látist af völdum kjarrelda sem enn brenna þar stjórnlaust. Tala látinna á öllu svæðinu er nú komin yfir 180 en sterkar vindhviður, sem glæða eldana, torvelda allt slökkvistarf. 11.2.2009 07:24
Bankabjörgun Bandaríkjanna ónóg Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að fyrri bankabjörgunaráætlun stjórnvalda þar í landi hafi engan vegin nægt til að rétta bankakerfið við. 11.2.2009 07:19
Síld mokveiðist við Norður-Noreg Gríðarleg síldveiði er nú við Norður-Noreg og segja sjómenn að annað eins hafi ekki gerst í áratugi. Dæmi eru um að skipin séu að fá allt upp í þúsund tonn í einu kasti og hefst vart undan að vinna síldina í landi. 11.2.2009 07:15
Innbrot í söngskóla og verslun Brotist var inn í söngskóla við Snorrabraut í nótt og hafði þjófurinn þar einhverja peninga upp úr krafsinu. Einnig var brotist inn í verslun í bakhúsi við Laugaveg og peningaskúffa úr sjóðsvél tekin í heilu lagi, með einhverjum fjármunum í. Þjófurinn, eða þjófarnir, eru ófundnir. 11.2.2009 07:14
Kafari hætt kominn við Reykjanes Kafari komst í hann krappan þegar hann ætlaði að stíga á land en straumur hreif hann og bar frá landi, út af Garði á Reykjanesi í gærkvöldi. 11.2.2009 07:12
Slökkvilið kallað að húsnæði Odda Fjölmennt slökkvilið var sent að prentsmiðjunni Odda við Höfðabakka í Reykjavík í nótt eftir að eldvarnarkerfi nam reyk í húsinu og sendi boð um það til slökkviliðsins. 11.2.2009 07:09
Sumarbústaður stórskemmdur eftir innbrot Sumarbústaður í Vaðneslandi í Grímsnesi er stórskemmdur, ef ekki ónýtur, eftir að innbrotsþjófur skildi bústaðinn eftir opinn, þannig að vatnsleiðslur frostsprungu og vatn flæddi um allt. 11.2.2009 07:04
Selt ríkisland verður ekki síðar þjóðlenda Ríkið getur ekki selt jarðir og síðar tekið þær aftur sem þjóðlendur, segir í dómi í máli Orkuveitunnar sem stefndi ríkinu vegna landadeilu á Hellisheiði. Annar úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendur á svæðinu var hins vegar staðfestur. 11.2.2009 05:30
Segir mjólkina hollari og kýrnar kátari Hyggst reisa sláturhús, fjárhús og hænsnabú og hefja lífrænan búskap. Bóndi sem það hefur gert í áratugi segir afurðina hollari og kýrnar fari leiðar sinnar „skellihlæjandi“. Ráðunautur segir Íslendinga eftirbáta annarra þjóða í þessari þróun. 11.2.2009 04:30
Búið að slökkva eld á Litla-Hrauni Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að búið sé að slökkva eld sem kom upp í fangaklefa fyrr í kvöld. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta klefann. Ekki var um mikinn reyk að ræða. Hún segir að hvorki fanga né starfsfólk hafi sakað vegna málsins. Eldsupptök eru að óljós, að sögn Margrétar. 10.2.2009 21:52
Kadimaflokkur Livni í forystu Kadima, núverandi stjórnarflokkur Ísrael, er með nauma forystu samkvæmt útgönguspám en þingkosningar fóru fram í Ísrael í dag. 130 þingmenn sitja á Knesset, ísraelska þinginu, og er Kadima flokknum undir forystu Tzipi Livni, utanríkisráðherra, spáð 28 til 30 þingsætum. 10.2.2009 22:14