Fleiri fréttir

Ríkisstjórnin taki af skarið um samráð

Allar forsendur kjarasamninga eru farnar út og suður, segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands. Hann segir verkalýðshreyfinguna tilbúna að leggja sitt af mörkum til að lágmarka skaðann og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki af skarið.

„Er Davíð Oddsson ekki hættur í stjórnmálum?“

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir Davíð Oddsson ekki hafa rætt hugmyndir um þjóðstjórn við sig. Hann segist sjálfur hafa sett fram hugmyndir um þjóðarsátt fyrir ári síðan og muni ekki skorast undan ábyrgð verði leitað til hans með hugmyndina eins og hann setti hana fram.

Hugmyndir Davíðs um þjóðstjórn hafa enga þýðingu

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir ríkisstjórnina ekki sitja með hendur í skauti í því erfiða efnahagsástandi sem nú dynur á þjóðinni. Hann segir hugmyndir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um þjóðstjórn hugmyndir manns út í bæ sem ekki hafi þýðingu á hinum pólitíska vettvangi.

Skilríki Fosstes fundust í óbyggðum

Steve Fossett var vellauðugur ævintýramaður sem setti mörg heimsmet í flugi. Meðal annars flaug hann fyrstur manna á loftbelg umhverfis jörðina. Það var árið 2002.

Skaði í efnahagslífinu hefur áhrif á fíkniefnaneytendur

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segir það vitað mál að skaði í efnahagslífinu hafi áhrif á vímuefnaneyslu fólks. Hann segir það aðallega vera fíkla og yngsta fólkið sem dragi úr neyslunni þar sem sá hópur hefur úr minni peningum að spila. Hann býst því ekki við aukningu inni á Vogi til lengri tíma litið en óttast aukningu annarra geðrænna vandamála.

Enginn tilgangur með þjóðstjórn

„Við erum með ríkisstjórn sem er með mjög styrkan þingmeirihluta og ég sé ekki fyrir mér að þjóðstjórn geti skilað einhverju umfram þá stjórn sem situr í dag," segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur.

Hefur ekki rætt hugmyndir um þjóðstjórn

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna vill lítið tjá sig um hugmyndir Davíðs Oddssonar um að hér þurfi að koma á fót þjóðstjórn. Hann segir hugmyndirnar þó undirstrika að ástandið sé alvarlegt og ekki sé skrýtið að svoleiðis komi upp. Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því á forsíðu í morgun að Davíð hafi tvisvar viðrað þessa hugmynd sína undanfarið.

Stjórnvöld geta ekki setið með hendur í skauti

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir stjórnvöld ekki geta setið með hendur í skauti eins og ástandið í þjóðfélaginu sé nú. Forða verði fjölda fólks frá gjaldþroti sem nú blasi við.

Mikill samdráttur í nýskráningum bíla

Nýskráningar bíla á fyrstu níu mánuðum ársins reyndust nærri 11.900 og er það nærri þriðjungsfækkun frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar.

Farangur í óskilum um alla Evrópu

Bilun í tölvukerfi á Heathrow-flugvelli í London hefur leitt til þess að farangur nokkur þúsund farþega hefur ekki skilað sér á leiðarenda. Þetta hefur haft þær afleiðingar að þúsundir farþega um alla Evrópu finna ekki farangur sinn á áfangastað.

Obama með forystu í fimm lykilríkjum

Barack Obama forsetaframbjóðandi hefur sótt í sig veðrið og náð forystu í fimm lykilríkjum sem stjórnmálaskýrendur telja að geti ráðið úrslitum í kosningunum í nóvember.

Börn innflytjenda sein í danska skóla

Algengt er að börn innflytjenda í Danmörku skili sér seint og illa í skólann að afloknum sumarfríum. Í haust mættu 214 börn ekki fyrstu skóladagana af 13.500 sem sérstaklega var athugað með.

Síldveiðiskipin komin inn í norska lögsögu

Síldveiðiskipin, sem eru að veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum eru nú komin inn í norska lögsögu, samkvæmt samningum Íslands og Noregs, en veiðin er sáratreg.

Læknar hafa náð samkomulagi við ríkið

Samninganefnd Læknafélags Íslands og samninganefnd ríkisins komust að samkomulagi um nýjan kjarasamning síðdegis í dag. Skrifað var undir nýjan samning hjá ríkissáttasemjara fyrr í kvöld.

Orð Geirs eru brandari

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að orð Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, frá því í vor að botninum væri náð í efnahagskreppunni hljómi eins og brandari í dag.

Vilja stofna Efnahagsstofnun

Vinstri grænir vilja að stofnuð verði Efnahagsstofnun og mun þingflokkur flokksins leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi.

Haft í hótunum við starfsfólk Glitnis

Viðskiptavinir Glitnis höfðu í hótunum við starfsmenn í útibúum bankans í dag. Flestir sýndu þó stillingu, en fjöldi fólks hreyfði innistæður sínar í sjóðum og á reikningum.

Reyna að koma í veg fyrir þjóðnýtingu

Forsvarsmenn Glitnis reyna nú allt hvað þeir geta til að komast hjá þjóðnýtingu bankans. Hluthafafundur verður í næstu viku. Stjórnarmaður í Glitni segir að Seðlabankinn geti ekki einn staðið fyrir þessari aðgerð heldur þurfi allt fjármálalífið að koma að því að finna lausn fyrir íslenskt efnahagslíf.

Davíð þyrfti að verða 202 sentímetra hár.

Lengja þyrfti Davíð Oddsson um 24 sentímetra ef hæð hans ætti að samsvara gengisvísitölu krónunnar í dag. Fyrir tveimur vikum jafngilti vísitalan hæð seðlabankastjórans í sentímetrum.

Fjárlögin kynnt - Erfiðar tímar framundan

Það eru erfiðir tímar framundan sagði fjármálaráðherra þegar hann kynnti fjárlögin í dag. Gert er ráð fyrir samdrætti á næsta ári og tæpum 60 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóð. Framkvæmdum við Sundabraut og Hátæknisjúkrahús hefur verið frestað.

Semja um að borga bara vexti

Dæmi eru um að afborganir á tuttugu milljón króna myntkörfuláni hafi hækkað um rúmar áttatíuþúsund krónur á tveimur árum. Forstöðumaður hjá fjárfestingarbanka segir marga semja um að borga bara vexti lánanna á meðan að krónan er svo veik.

Forseti ASÍ: Ástandið er skelfilegt

Ástandið er svo skelfilegt að tala mætti um neyðarástand, segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands, um hrikalegt gengisfall krónunnar síðustu sólarhringa.

Metnaðarleysi meirihluta borgarstjórnar

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu harma metnaðarleysi meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í leiksskólamálum sem endurspeglast í ákvörðun þeirra um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi.

Barbie hvað?

Leikföng barna eru margvísleg. Og litast af umhverfinu. Þessi litla stúlka í Írak leikur sér með það sem hún kannski sér mest. Leikfangaútgáfu af hríðskotariffli.

45 teknir í Vesturbænum í dag

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Neshaga í vesturbæ Reykjavíkur í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt við Melaskóla.

Samtök iðnaðarins: Talið skýrt og markið stefnu

Stjórn Samtaka iðnaðarins segir brýnt að tryggt eðlilegt flæði gjaldeyris á markaði með öllum tiltækum ráðum. ,,Það er nauðsynlegt til þess að koma fjármagni inn á uppþornaðan íslenskan lánamarkað. Seðlabankar um allan heim keppast við að smyrja hjól atvinnulífsins með lausafé. Það ætti íslenski Seðlabankinn líka að gera," segir í tilkynningu.

La Coste tímabilið í Texas

Krókódílum til nokkurrar armæðu er nú veiðitímabil þeirra í Anahuac í Texas. Í þeim hluta ríkisins er veiðitímabilið aðeins tuttugu dagar.

Jórunn í Strætó

Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, var kjörin nýr stjórnarformaður Strætó bs. á síðasta stjórnarfundi byggðasamlagsins. Jórunn tekur við af Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarfulltrúa í Kópavogi, sem lét af formennsku eftir að hafa gegnt embættinu frá júlí 2006.

Hjólabátur bilaði fyrir utan Vík

Björgunarsveitin Víkverji í Vík var kölluð út klukkan háflfjögur í dag þegar skrúfa bilaði í hjólabát Dyrhólaferða sem var á siglingu fyrir utan Vík.

Þorsteinn stendur við orð sín í Kastljósi

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi það hvort samþykki stærstu hluthafa í Glitni hafi verið fengið áður en Seðlabankinn boðaði til blaðamannafundar þar sem tilkynnt var um yfirtöku ríkisins á 75 prósenta hlut í bankanum. Þorsteinn sagði í Kastljósi í gær að ekki hafi verið fengið samþykki stærstu hluthafa áður en boðað var til fundarins en Seðlabankinn vísaði þessu á bug í tilkynningu fyrr í dag.

Sjá næstu 50 fréttir