Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dollarayfirlýsing forsætisráðherra kostuleg Geir Haarde forsætisráðherra útilokar ekki að taka upp bandaríkjadal á Íslandi. Hann sagði þetta í viðtali við erlenda fréttaveitu í gær. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir þetta kostulega yfirlýsingu frá forsætisráðherra. 26.6.2008 12:31
Tveggja mánaða skilorð fyrir að stela harðfiski Tuttugu og eins árs gamall karlmaður var í héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í harðfiskvinnslufyrirtækið Darra ehf. á Grenivík. Maðurinn játaði brotið skýlaust eins og segir í dómi. 26.6.2008 12:21
Refsiaðgerðum gegn N-Kóreu aflétt Bandarísk stjórnvöld ætla að taka Norður-Kóreu af lista sínum yfir ríki sem styðja hryðjuverkasamtök. Norður-Kóreumenn hafa afhent viðsemjendum ítarlega skýrslu um kjarnorkuáætlun sína. 26.6.2008 12:18
Innanlandsflug stöðvast í fjóra tíma á morgun Innanlandsflug leggst af í fjórar klukkustundir í fyrramálið og millilandaflug gæti farið verulega úr skorðum vegna aðgerða flugumferðarstjóra. 26.6.2008 12:12
Þórunn furðar sig á ályktun BÍ Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra furðar sig á því að Blaðamannafélag Íslands skuli saka hana um ritskoðun frétta og að félagið skuli álykta sérstaklega um myndatökur af hræi hvítabjarnar sem felldur var við bæinn Hraun á Skaga í síðustu viku. Blaðamannafélagið gagnrýndi yfirvöld í gær fyrir að takmarka aðgang fréttamanna að ísbjarnarhræinu og sagði það ekki í verkahring yfirvalda að ákveða hvað væri myndað og hvað sagt. 26.6.2008 12:01
Miltisbrandshræ í gámi í átta mánuði Ekki er mögulegt að brenna miltisbrandssmitaðar dýraleifar og jarðveg hér á landi enn sem komið er. Þetta segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir í samtali við Vísi. Leifar af dýrum sem fundust 2. nóvember í fyrra á svipuðum slóðum og beinin í Garðabæ í gær eru enn í geymslu. 26.6.2008 11:50
Vill skilgreina afleiðingar alnæmis sem hamfarir Alþjóða Rauði krossinn telur að skilgreina beri afleiðingar alnæmis víða í Afríku og Asíu sem hamfarir og því beri að bregðast við alnæmisfaraldrinum eins og náttúruhamförum. 26.6.2008 11:49
Óttast að verðbólga aukist frekar vegna veikningar krónunnar Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, segir nýjar verðbólgutölur ekki koma á óvart en segir stöðu efnahagsmála grafalvarlega. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því að verðbólgan eigi enn eftir aukast styrkist gengi krónunnar ekki á ný. 26.6.2008 11:29
Ægisíða lokuð eftir hádegi vegna malbikunar Ægisíða frá Nesvegi til austurs verður malbikuð í dag og verður hún af þeim sökum lokuð frá hádegi til klukkan níu í kvöld. 26.6.2008 11:22
Olíufélögin lækka bensínið Gunnar Karl Guðmundsson forstjóri Skeljungs segir fyrirtækið ekki ætla að elta uppi þá sem komu af stað tölvupósti þar sem fólk er hvatt til þess að sniðganga fyrirtækið. Hann segir bensínverð hér á landi hækka þegar það hækki erlendis og lækka þegar það lækki erlendis. Öll olíufélögin hafa lækkað verð hjá sér í morgun. 26.6.2008 11:00
15 manns létust af völdum sjálfsmorðssprengju í Írak Sjálfsmorðssprenging átti sér stað í morgun í bænum Garma í Írak. Fimmtán manns dóu af völdum sprengjunnar og aðrir sautján særðust. 26.6.2008 10:50
Viljayfirlýsing vegna álvers á Bakka framlengd Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnarinnar og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirrituð var í maí árið 2006 eins og segir í tilkynningu frá aðilunum þremur. 26.6.2008 10:35
Jarðvegur og bein úr Garðabæ verður brennt Lögregla hefur vaktað byggingarsvæði við Lækjarfit í Garðabæ þar sem dýrabein fundust við uppgröft í gær en grunur leikur á að þau séu sýkt af miltisbrandi. 26.6.2008 10:20
Engin skólpmengun mælst í Nauthólsvík Umhverfiseftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar segir að mengun í Skerjafirði og Nauthólsvík hafi verið undir umhverfismörkum undanfarin fjögur ár. 26.6.2008 10:08
Tafir á umferð á Vogavegi vegna framkvæmda Vegfarendur um Vogaveg mega búast við truflunum á umferð í dag og næstu daga vegna vinnu við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Vogavegar. Unnið er við tengingu nýrra gatnamóta við Vogaveg eins og segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. 26.6.2008 09:28
Verðbólgan 12,7 prósent í júní Verðbólga í júní mælist 12,7 prósent og hefur hækkað um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Þetta kom í ljós í dag þegar Hagstofan birti nýjar tölur yfir vísitölu neysluverðs en hún hækkaði um 0,9 prósent milli maí og júní. Fara þarf um 18 ár aftur í tímann til þess að finna viðlíka verðbólgutölur. 26.6.2008 09:02
Ronald Reagan-flugvöllur - George Bush-skólphreinsunarstöð Ekki er útilokað að George Bush Bandaríkjaforseta hlotnist sá heiður að fá skólphreinsunarstöð í San Francisco skírða í höfuðið á sér. 26.6.2008 08:18
Stjórnarformaður SAS styrkir norræna menningu Danski athafnamaðurinn og milljarðamæringurinn Fritz Schur ætlar að gefa hluta auðæfa sinna til norrænnar menningar. 26.6.2008 08:14
Umfangsmikil greiðslukortasvik á Starbucks-kaffihúsum Umfangsmikil greiðslukortasvik á nokkrum Starbucks kaffibörum í London teygja anga sína til Norðurlandanna. 26.6.2008 08:04
Rúmlega 300 handteknir í aðgerð gegn barnavændi Rúmlega 300 manns hafa verið handteknir í mjög umfangsmikilli fimm daga aðgerð bandarísku alríkislögreglunnar til höfuðs barnavændi. 26.6.2008 07:53
Engin ástæða til að umgangast hvali öðruvísi en önnur dýr Stefán Ásmundsson fulltrúi Íslands á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Chile segir að engin ástæða sé til að umgangast hvali öðruvísi en hver önnur dýr. 26.6.2008 07:15
Dýrabein rannsökuð áfram Rannsókn á dýrabeinum sem fundust í húsgrunni við Lyngholt í Garðabæ í gærkvöldi verður haldið áfram í dag. Grunur leikur á að þau séu smituð af miltisbrandi. 26.6.2008 07:10
Ölfusárbrú opin á ný eftir malbikunarframkvæmdir Ölfusárbrúnin var opnuð aftur fyrir 20 mínútum síðar og er nú opin fyrir umferð í báðar áttir. Brúnni var lokað á miðnætti í gærkvöldi vegna malbikunarframkvæmda sem þar stóðu yfir í nótt. Til stóð að brúin yrði opnuð aftur klukkan fimm í morgun en verklokin töfðust aðeins. Umferð um brúnna er nú í eðlilegu horfi að sögn lögreglunnar á Selfossi. 26.6.2008 07:07
Miltisbrandsaðgerðum frestað til morguns Lögreglan og slökkviliðið hefur frestað aðgerðum á lóðinni þar sem dýrabein fundust í Garðabænum til morguns. Grunur lék á um að miltisbrandur kynni að leynast í beinunum. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir litla hættu á ferðum. 25.6.2008 21:07
Dæmdur fyrir að drepa eiginkonu og níu mánaða dóttur Bretinn Neil Entwistle hefur verið dæmdur í lífsstíðarfangelsi fyrir að drepa konu sín og níu mánaða gamalt barn. Hann var skuldum vafinn og kynferðislega ófullnægður vikurnar fyrir morðið. 25.6.2008 21:58
Fann gullin kaleik á hafsbotni Fjársjóðir finnast enn! Kafarinn og fjársjóðsleitarmaðurinn Michael DeMar fann kaleik úr gulli grafinn á hafsbotni nærri Flórída. Kaleikurinn er ómetanlegur og er talinn vera úr skipinu spænsku galeiðunni Santa Margarita sem sökk í stormi árið 1622. 25.6.2008 22:43
Bilun í gervihnetti Basel að kenna "Nei, þetta var ekkert stress. Maður er ýmsu vanur," sagði Pétur Guðmundsson útsendingarstjóri hjá Rúv nokkrum mínútum eftir að leik Þýskalands og Tyrklands lauk með sigri Þjóðverja. Á hápunkti leiksins datt gervihnötturinn út og milljónir áhorfenda horfðu á auðan skjá. 25.6.2008 20:44
Miltisbrandur í Garðabæ - íbúar með lokaða glugga Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan rannsakar nú dýrabein sem fundust í húsgrunni í Garðabæ. Grunur leikur á miltisbrandssmiti. Íbúi undrast samskiptaleysi af hálfu lögreglunnar. Hann hefur gluggana lokaða til vonar og vara. 25.6.2008 20:15
Fresta ákvörðun um Droplaugarstaði Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum í dag að fresta ákvörðun um hvort bjóða eigi út rekstur á hjúkrunarhemilinu Droplaugarstöðum. Minnihlutinn í ráðinu sakar meirihlutann um að halda stofnuninni í fjársvelti. 25.6.2008 19:30
Gruna Olís ekki um bensínstríð Gunnar Karl Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skeljungs, segir tölvupóst þar sem fólk er hvatt til að sniðganga N1 og Shell fullan af rangfærslum. Hann grunar Olís ekki að standa á bak við hugsanlegt bensínstríð. 25.6.2008 19:16
Áfangasigur - segir lögfræðingur systursona Fischer "Það má segja að þetta sé áfangasigur," segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursona Bobby Fischer. Hæstiréttur ómerkti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað kröfum systursonanna um að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta. 25.6.2008 18:03
Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. 25.6.2008 16:55
Kjartan: Mun athuga hvort ekki megi koma upp skjólbelti strax í Nauthólsvík Uppbygging í Nauthólsvík er í sífelldri skoðun segir Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, en forstöðumaður svæðisins hefur gagnrýnt stöðnun þess. 25.6.2008 16:46
SVÞ vilja aðildarviðræður við ESB Samtök verslunar og þjónustu hvetja íslensk stjórnvöld til að lýsa yfir vilja til að undirbúa viðræður að aðild að Evrópusambandinu. Samtökin vilja að samhliða aðildarviðræðum fari fram ,,ítarlegar, hlutlausar og fordómalausar umræður á opinberum vettvangi um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu," eins og segir í tilkynningu frá SVÞ. 25.6.2008 16:36
Ísraelski lögreglumaðurinn framdi ekki sjálfsmorð samkvæmt fjölskyldu hans Fjölskylda hins ísraelska lögreglumanns, sem skaut sig við kveðjuathöfn franska forsetans Nicolas Sarkozy í Ísrael í gær, segir ekki koma til greina að hann hafi framið sjálfsmorð. Raid Asaad Raid Ghanan hafi verið hamingjusamur og góðhjartaður sem hafði enga ástæðu til þess að fremja sjálfsmorð. 25.6.2008 16:17
Kaþólskur prestur hjálpar syrgjandi Pólverjum „Þeir hafa ekki fengið áfallahjálp en kaþólski presturinn í Keflavík hefur rætt við þá,“ segir Sveinn Ingvar Hilmarsson, vinnuveitandi og leigusali Pólverjanna, sem syrgja nú landa sinn sem lést eftir að hafa fengið höfuðáverka í híbýlum mannanna við Frakkastíg fyrir rúmum tveimur vikum. 25.6.2008 16:15
45 daga fangelsi fyrir bílþjófnað Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt 24 ára karlmann í 45 daga fangelsi fyrir bílstuld. 25.6.2008 15:44
Bætur vegna Exxon Valdez slyssins lækkaðar Hæstiréttur Bandaríkjanna lækki í dag þær bætur sem olíufélagið Exxon Mobil þarf að greiða vegna olíuslyss sem varð undan ströndum Alska árið 1989 þegar risaolíuflutningaskipið Exxoon Valdez strandaði. 25.6.2008 15:20
Tsvangirai vill samningaviðræður Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn og stjórnarandstöðuleiðtoginn Morgan Tsvangirai ávarpaði fréttamannafund í dag og kallaði eftir pólitískum samningaviðræðum svo Simbabve fengi að hlú að sárum sínum. 25.6.2008 15:08
Borga 2,6 prósent af heildarkostnaði ráðherrabíla Ráðherrar greiða 2,6 prósent af heildarkostnaði við rekstur ráðherrabifreiða. Ráðherrar greiða skatt af bifreiðahlunnindum sínum og er samanlagur kostnaður þeirra rúmar 2,2 milljónir á ári. Á árunum 1998 til 2003 var meðalkostnaður á ári við rekstur bílanna 82,3 milljónir. 25.6.2008 15:03
Ingibjörg Sólrún í Damaskus að ræða friðarmál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði í dag í Damaskus með sýrlenskum ráðamönnum um stöðu mála í Mið-Austurlöndum og málefni Íraks og Íran. Heimsóknin tengist áherslum ráðherra á málefni Mið-Austurlanda og nauðsyn þess að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs eins og segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. 25.6.2008 14:51
Dauðarefsing ekki heimiluð yfir þeim sem nauðga börnum Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu í dag að ríki landsins gætu ekki beitt dauðarefsingu sem hegningu fyrir nauðgunarbrot gegn börnum. 25.6.2008 14:48
Ákvörðun um Droplaugarstaði frestað Velferðarráð Reykjavíkur ákvað á aukafundi sínum nú fyrir stundu að fresta ákvörðun um tillögu varðandi rekstrarform hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða við Snorrabraut fram í ágúst. 25.6.2008 14:36
Kartöflur betri fyrir loftslagið en hrísgrjón Borðaðu kartöflur í stað hrísgrjóna ef þú vilt vinna gegn loftslagsbreytingum. Þetta ráð kemur frá Moniku Pearson hjá sænsku matvælastofnuninni en hún hélt fyrirlestur um málið á námstefnu í Växjö í dag. 25.6.2008 14:27
BÍ sakar stjórnvöld um tilraun til ritskoðunar í ísbjarnarmáli Blaðamannafélag Íslands harmar að yfirvöld skyldu hafa takmarkað aðgang fréttamanna að ísbjarnarhræinu við Hraun á Skaga í síðustu viku. 25.6.2008 14:01