Innanlandsflug stöðvast í fjóra tíma á morgun 26. júní 2008 12:12
Innanlandsflug leggst af í fjórar klukkustundir í fyrramálið og millilandaflug gæti farið verulega úr skorðum vegna aðgerða flugumferðarstjóra. Röð aðgerða flugumferðarstjóra hefst klukkan sjö í fyrramálið og verður aðeins tveimur flugvélum á klukkustund hleypt í loftið frá þeim tíma til klukkan ellefu. Það er því ljóst að röskun verður á millilandaflugi sem getur orðið til þess að fólk missi af tengiflugi frá öðrum flugvöllum. Áhrifin verða hins vegar meira afgerandi varðandi innanlandsflugið því flugumferðarstjórar munu ekkert sinna því á tímabilinu frá klukkan 7 til 11. Samningaviðræður standa nú yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara, en engar viðræður hafa átt sér stað í deilunni undanfarnar tvær vikur. Aðgerðirnar munu fyrst um sinn ekki hafa áhrif á stjórnun alþjóðaflugsins um íslenska flugstjórnarsvæðið, þ.e.a.s. flug erlendra flugfélaga um svæðið mun ekki raskast. Flugumferðarstjórar hafa aftur á móti boðað að aðgerðirnar muni einnig ná til þessa flugs þegar kemur fram í næstu viku en ætla að láta Flugstoðir vita um þetta fyrir klukkan tvö á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 fara flugumferðarstjórar fram á launahækkanir sem eru umtalsvert meiri en þær sem nýlega hefur verið samið um á almennum vinnumarkaði en þeir segjast vilja minnka hjá sér yfirvinnu og vísa til skýrslu nefndar frá árinu 1997 þar að lútandi. Meðallaun flugumferðarstjóra með vaktaálagi og yfirvinnu eru nú sögð vera um 800 þúsund krónur á mánuði og byrjendalaun með yfirvinnu og öðrum þáttum um 400 þúsund krónur á mánuði.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira