Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Loftsteinn gæti búið yfir vísbendingum um fæðingu sólkerfisins Fágæt tegund loftsteins gæti búið yfir vísbendingum um þau skilyrði sem orsökuðu sköpun sólkerfisins fyrir 4,5 milljörðum ára. Steinninn gæti einnig gefið svör um þær efnasamsetningar sem gerðu líf á jörðinni mögulegt. 25.6.2008 12:54
Yngri heilabilunarsjúklingar látnir bíða dauðans í geymslu Íslenska heilbrigðiskerfið gerir vart ráð fyrir að fólk undir 65 ára aldri greinist með heilabilunarsjúkdóm. Sérhæfð úrræði eru af skornum skammti og yfirleitt er sjúklingum einfaldlega komið fyrir á hjúkrunarheimilum með mun eldra fólki þar sem ekkert er ýtt undir andlega virkni. 25.6.2008 12:45
Níu hundruð skógareldar í Kaliforníu Slökkviliðsmenn í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum berjast nú við nærri níu hundruð skógarelda sem kviknuðu í þrumuveðri um síðustu helgi. 25.6.2008 12:43
Afríkuleiðtogar funda um ástandið í Simbabve Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku koma saman í Svasílandi í dag til að ræða ástandið í Simbabve. Forsætisráðherra Kenía varar við þjóðarmorðum þar, svipuðum þeim sem framin voru í Rúanda fyrir fjórtán árum, ef alþjóðasamfélagið grípi ekki þegar í taumana. 25.6.2008 12:21
Ísraelar loka landamærum að Gaza Ísraelar lokuðu í morgun landamærum sínum að Gaza-svæðinu. Það er svar við flugskeytaárás herskárra Palestínumanna þaðan á Suður-Ísrael í gær. Ísraelsmenn segja það gróft brot á vopnahlésskilmálum. 25.6.2008 12:16
Engin lausn í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða Engin lausn virðist vera í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða. Búist er við miklum röskunum á áætlunarflugi þegar verkfallsaðgerðir hefjast á föstudaginn. 25.6.2008 12:08
Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum ekki töpuð Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum er ekki töpuð, segir Sigþrúður Jónsdóttir, íbúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hún segir fleiri landeigendur íhuga málaferli gegn Landsvirkjun eftir að hreppsnefndin ákvað einróma í fyrrakvöld að setja tvær af þremur fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá inn á aðalskipulag. 25.6.2008 12:02
Fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu Efla þarf Ferðamálastofu sem opna og greiðfæra gátt fyrir aðkomu ríkisins að ferðaþjónustu og fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu. 25.6.2008 11:39
Franskar herþotur æra Keflvíkinga Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað til bæjarfélagsins vegna hávaða frá Mirage þotum franska flughersins sem nú sér um loftrýmiseftirlit yfir landinu. Bæjarbúar segja að hávaðinn í vélunum sé mun meiri en hann var þegar Bandaríkjamenn voru hér á sínum tíma með sínar herþotur. Ekki hefur borið á kvörtunum hjá utanríkisráðuneytinu. 25.6.2008 11:28
Vill ekki skapa vangaveltur um forstjórastöðu LSH Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-sjúkrahússins í Noregi, segir að hún vilji ekki skapa vangaveltur varðandi sig og forstjórastöðu LSH. Hulda hefur verið nefnd sem hugsanlegur forstjóri. 25.6.2008 11:28
Segja flugumferðarstjóra ekki vinna mikla yfirvinnu Flugstoðir ohf. hafna þeim fullyrðingum formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra að vinna þeirra sé keyrð á yfirvinnu. Eins og fram hefur komið hafa flugumferðarstjórar boðað til 20 vinnustöðvana frá og með föstudeginum og vilja með því knýja á um nýjan kjarasamning. 25.6.2008 11:25
Mál séra Gunnars sent saksóknara í dag Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn sinni á meintum kynferðisbrotum séra Gunnars Björnssonar, sóknarprests á Selfossi, og verður málið sent ríkissaksóknara í dag. Þetta staðfesti Elís Kjartansson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi, við Vísi. 25.6.2008 10:59
Brugðist verði við flóðahættu í Bretlandi eins og hryðjuverkavá Flóðahætta í Bretlandi eykst og stjórnvöld verða að bregðast við því með fyrirbyggjandi aðgerðum líkt og gert er með faraldra og hryðjuverk. 25.6.2008 10:34
Hilton byggir 300 ný hótel í Asíu Hilton-hótelkeðjan hefur uppi áform um að byggja 300 ný hótel í Asíu á næstu tíu árum. Fyrir á Hilton 47 hótel í álfunni. 25.6.2008 09:21
Utanríksiráðherrar norrænu ríkjanna vilja lýðræði í Simbabve Utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi ástandið í Simbabve. 25.6.2008 09:19
Fjöldi talibana féll í loftárásum Hersveitir á vegum afganskra stjórnvalda og bandamanna í Afganistan felldu í nótt 35 talibana eftir að hópur talibana gerði árás á tvo bæi í austurhluta landsins, nærri landamærunum að Pakistan. Frá þessu greindi lögreglustjóri héraðsins í morgun. 25.6.2008 09:08
Rottum fjölgar í dönsku þéttbýli Rottum hefur fjölgað mjög á þéttbýlissvæðum Danmerkur eftir því sem segir í tilkynningu frá sambandi sveitarfélaga í Danmörku. 25.6.2008 09:05
Obama með töluvert forskot á McCain Forsetaframbjóðandi Demókrata, Barack Obama, hefur töluvert forskot á keppinaut sinn, repúblikanann John McCain, við upphaf kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum. 25.6.2008 09:01
Fjöldi milljónamæringa yfir 10 milljónir Fjöldi þeirra sem eiga eignir að verðmæti ein milljón dollara eða meira fór yfir 10 milljónir í fyrra. 25.6.2008 08:55
Ungverskri kirkjuklukku stolið Lögreglan í Ungverjalandi leitar nú að þjófum sem stálu 300 kg þungri koparklukku úr turni kirkjunnar í bænum Kadusnay. 25.6.2008 08:10
Nakta kúrekanum er heimilt að lögsækja M&M Nakta kúrekanum í New York-borg er heimilt að lögsækja framleiðanda M&M-sælgætisins vegna heimildalausrar notkunar vörumerkis. 25.6.2008 07:54
Veltu bíl á Suðurstrandarvegi Skömmu fyrir miðnættið í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um bílveltu á Suðurstrandarvegi rétt við Ísólfsskála. Þar höfðu ferðamenn velt bílaleigubíl sínum. Engin slys á fólki og komu farþegarnir sér sjálfir upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem þeir voru á leið í flug. 25.6.2008 07:47
Fjörutíu mál í dagbók lögreglu í nótt Mikill erill var hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins í nótt. Frá miðnætti og til klukkan sex í morgun eru 40 mál skráð í dagbók lögreglunnar. 25.6.2008 07:45
Umboðsmaður átelur Utanríkisráðuneytið Utanríkisráðuneytið vísaði til jafnréttislaga við skipu í stöðu embætti sendifulltrúa í utanríkisþjónustunni. Umboðsmaður Alþingis átelur Utanríkisþjónustuna fyrir það þar sem slíkt réði ekki úrslitum við stöðuveitinguna 24.6.2008 23:10
Agaviðurlög og gjaldþrot í nýjan Evrópu-gagnagrunn Persónuvernd telur ekki þörf á að breyta lögum um persónuvernd vegna þáttöku Íslands í nýjum gagnagrunni á vegum Evrópusambandsins. Í gagnagrunninum verðurmiðlað verður upplýsingum um fjárhagsstöðu einstaklings, hvort hann hafi lögleg starfsréttindi eða gerst brotlegur við lög. 24.6.2008 20:45
Keppt í puttaglímu í ölpunum Gömul þjóðaríþrótt í Bæjaralandi og Austurríki nýtur nú sívaxandi vinsælda. Víða eru haldin mót í puttaglímu og hörðustu keppendurnir fara í sérstakar æfingabúðir. 24.6.2008 23:28
Fær martraðir út af fótamissi Bandarísk kona missti báða fæturna þegar hún varð undir lest segist fá stanslausar martraðir og hroll í hvert skipti sem hún heyrir lest keyra framhjá. 24.6.2008 22:32
Skorið á hjólbarða - faraldur Skorið var á þrjá hjólbarða í Hafnarfirði í gær og sex í Keflavík. Svo virðist sem um faraldur sé að ræða. Kona sem Vísir ræddi við og býr í sömu götu og skorið var á sex bíla í Keflavík var í vinaheimasókn í Hafnarfirði þar sem skorið var gat á dekkið hennar. 24.6.2008 21:38
Snöruprófessor sagt upp störfum Svartur prófessor í Bandaríkjunum breyttist á einni nóttu úr píslarvætti í skúrk. Madonna Constantine komst í heimsfréttirnar þegar hún gekk fram á hengingarsnöru sem hengt hafði verið á dyr skrifstofu hennar. Nú hefur hún verið rekin fyrir ritstuld. 24.6.2008 19:26
Sex í haldi fyrir ólöglega skartgripasölu Lögreglan á Selfossi handtók fjóra karla og tvær konur fyrir ólöglega skartgripasölu. Skartgripasalarnir töldu fólki trú um að átján karata gull væri að ræða en svo var ekki. Glópagullinu var smyglað hingað til lands í bíl. 24.6.2008 17:32
Dæmdir fyrir þjófnað á sígarettum og peningum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo menn í fangelsi fyrir þjófnað. Þeim var gefið að sök að hafa stolið fjórum sígarettukartonum og 360 þúsund krónum úr verslun Olís að Esjugrund á Kjalarnesi. Annar mannana fór í heimildarleysi inn í verslunina með lyklum sem hinn lét honum í té. Sá sem fór inn í verslunina hafði að auki fengið upplýsingar um myndavéla- og öryggiskerfi fyrirtækisins svo hann ætti greiða leið inn í húsnæðið. 24.6.2008 16:28
Jónsmessuganga á Seltjarnarnesi í sól og blíðu Árleg Jónsmessuganga menningarnefndar Seltjarnarness var farin í gærkvöldi. Gengið var eftir Norðurströndinni og út að Gróttu með fyrrverandi bæjarstjóranum Sigurgeir Sigurðssyni. 24.6.2008 16:40
Metþátttaka í dorgveiðikeppni í Hafnarfirði Metþátttaka var í dag í dorgveiðikeppni leikjanámskeiðanna í Hafnarfiði þegar rúmlega 400 börn komu saman á höfninni. 24.6.2008 16:19
Alþjóðasamfélagið mun hafna endurkjöri Mugabes Alþjóðasamfélagið mun hafna öllum tilburðum Roberts Mugabe um að lýsa sjálfan sig sigurvegara í forsetakosningum sem fram eiga að fara í Simbabve á föstudag 24.6.2008 16:01
Loftþrýstingur yfir landinu veldur góða veðrinu Veðrið hefur verið óvenju hlýtt og gott það sem liðið er af sumri. Þó að Íslendingar hafi oft brennt sig á að vonast eftir að slík tíð haldi áfram þá ætti að vera ágætis líkur á áframhaldandi góðviðri samkvæmt Sigurði Þ. Ragnarssyni eða Sigga stormi, veðurfréttamanninum góðkunna. 24.6.2008 15:52
Þungt hljóð í flugfreyjum Um þriðjungi flugfreyja hjá Icelandair var sagt upp í morgun eftir því sem Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir. Alls var 138 flugfreyjum sagt upp í sparnaðaraðgerðum félagsins en að sögn Sigrúnar voru um 400 flugfreyjur fastráðnar fyrir uppsagnirnar. 24.6.2008 15:38
Tveir í fimm mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fimm mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fíkniefnabrot, umferðarlagabrot, þjófnað og hylmingu. 24.6.2008 15:24
Fær ekki bætur vegna orðaskaks í nágrannadeilum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af kröfu annars manns sem sakaði hann um ærumeiðingar eftir rifrildi. Mennirnir tveir bjuggu í sama húsi og höfðu átt í deilum, meðal annars vegna reykinga í og við húsið. 24.6.2008 15:08
Árekstur við Grindavíkurafleggjara Tveir bílar lentu í árekstri við Grindarvíkurafleggjara nú fyrir stundu. Þrír voru fluttir á slysadeild. 24.6.2008 15:00
Eigandi grafna hundsins fær hann aftur Eigandi hundsins sem fannst grafinn í hrauni við Kúagerði á laugardag fær hann afhentan síðar í dag og hefur því ekki lengur stöðu grunaðs manns. 24.6.2008 14:44
Vopnahlé í Gaza vanvirt Ísraelska lögreglan segir að Palestínumenn hafi skotið í það minnsta tveimur eldflaugum á ísraelska bæinn Sderot í dag. Ekkert manntjón hefur verið tilkynnt en ekki er lengra en í síðustu viku að samið var um vopnahlé á svæðinu. 24.6.2008 14:36
Segja verkföll flugumferðarstjóra aðför að ferðaþjónustu Ferðamálasamtök Íslands segja að yfirvofandi verkföll flugumferðarstjóra, sem hefjast á föstudag, séu aðför að ferðaþjónustunni í landinu. 24.6.2008 14:29
Ísraelskur hermaður svipti sig lífi við kveðjuathöfn Sarkozys Kveðjuathöfn á Ben Gurion flugvelli í Tel Aviv í Ísrael fékk skjótan endi fyrir stundu eftir að ísraelskur hermaður skaut sjálfan sig á vellinum. 24.6.2008 14:11
Varar við ruslskilaboðum í síma Í gær barst fjölda símnotenda hér á landi smáskilaboð þar sem þeim var tilkynnt að viðkomandi hefði unnið 170.000 evrur. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, varar fólk við gylliboðum og ruslsendingum í formi smáskilaboða. 24.6.2008 13:49
Þýskir ferðamenn í haldi sómalskra sjóræningja Sómalskir sjóræningjar hafa enn og aftur látið til skarar skríða, í þetta sinn gegn fjórum þýskum ferðamönnum sem voru á bát fyrir utan sjálfstjórnarsvæðið Puntland við Norður-Sómalíu. 24.6.2008 13:43