Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samið við hjartalækna til tæpra tveggja ára Samninganefnd heibrigðisráðherra og hjartalæknar hafa gert samning um þjónustu þeirra síðarnefndu sem sögðu sig af samningi fyrir liðlega tveimur árum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. 2.5.2008 22:32
Mánaðarfrestur geislafræðinga stendur Kristín Þórmundsdóttir, talsmaður geislafræðinga, segir ekkert ákveðið hafa komið út úr fundi geislafræðinga sem fram fór í dag. 2.5.2008 19:25
Í staðfesta samvist með fyrrum eiginkonu sinni Hjón í Cambridgeshire í Bretlandi létu ógilda hjónaband sitt, sem staðið hafði í rúm 30 ár, og bundust á ný í staðfestri samvist. 2.5.2008 21:05
Packard Sveins Björnssonar ekki til sýnis fyrir almenning Skilja má orðalag fréttar Vísis frá því í dag á þann veg að forsetabifreið Sveins Björnssonar verði til sýnis fyrir almenning á Bessastöðum á morgun. Var fréttin í samræmi við orðalag í fréttatilkynningu sem ritstjórninni barst. 2.5.2008 20:08
SÁÁ vantar 80 milljónir Á síðastliðnum tólf mánuðum hafa um áttatíu þúsund manns nýtt sér þjónustu göngudeildar SÁÁ í Efstaleiti. Þá voru skráðar um sjö þúsund heimsóknir á göngudeildina á Akureyri í fyrra. 2.5.2008 19:50
Myndir misfórust við fréttaflutning 1. maí Þau leiðu mistök urðu við fréttaflutning af ræðu Georgs Páls Skúlasonar, formanns Félags bókagerðarmanna, á Ingólfstorgi í gær, 1. maí 2.5.2008 18:21
ESB vill alþjóðlegt kosningaeftirlit í Simbabve Evrópusambandið fór fram á það í dag að heimilað yrði að senda alþjóðlega kosningaeftirlitsmenn til þess að fylgjast með seinni umferð forsetakosninganna í Simbabve. 2.5.2008 17:08
Hvítabjörninn Knútur er geðveikur Gæslumenn hvítabjarnarins Knúts segja að hann sé með geðbilun á háu stigi. Dýrageðlæknir hafi greint hann í janúar. 2.5.2008 17:05
Gasmaðurinn brást hárrétt við Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir lögreglumanninn sem æpti Gas!, Gas!, Gas! í mótmælunum við Rauðavatn hafa brugðist hárrétt við. Þegar Maze gasi er beitt ber að tilkynna það með hvössum og beittum hætti. 2.5.2008 16:47
Samningafundi BSRB og launanefndar ríkisins lokið Fyrsta formlega samningafundi BSRB og aðildarfélaga þess við launanefnd ríkisins lauk fyrir stundu hjá Sáttasemjara ríkisins. 2.5.2008 16:01
Segja verktaka hafa haldið ferju í gíslingu Farið er hörðum orðum um Vélsmiðju Orms og Víglundar, sem sá um stærstan hluta af endurbótum á Grímseyjarferjunni Sæfara, í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar um málið. 2.5.2008 15:50
Ístak byrjar á lokaframkvæmdum á Reykjanesbraut eftir helgi Ístak mun ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar á kafla frá Strandarheiði til Njarðvíkur fyrir 807 milljónir króna samkvæmt samningi sem undirritaður var í dag. 2.5.2008 15:23
Krúnukúgarinn fékk fimm ára fangelsisdóm Íslendingurinn Paul Aðalsteinsson öðru nafni Ian Strachan var í dag sakfelldur fyrir að hafa reynt að kúga 50 þúsund sterlingspund út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar. 2.5.2008 15:22
Helike lever - hurrah Þær gleðifregnir hafa borist frá Danmörku að tík hennar hátignar Margrétar Þórhildar drottningar muni lifa af bílslysið sem hún varð fyrir á dögunum. 2.5.2008 15:14
Forsetaembættið fær forsetabifreið Sveins Björnssonar Á morgun, laugardaginn 3. maí, mun Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands taka á móti forsetabifreið Sveins Björnssonar sem nýlega hefur verið endurgerð. 2.5.2008 14:58
Bannað að vera með hunda í Heiðmörk Kvartanir hafa undanfarið borist Hundaeftirliti Reykjavíkur og stjórn hestamannafélagsins Fáks vegna lausagöngu hunda á svæði Fáks. Hundaeftirlitsmenn hafa rætt við hundaeigendur og bent þeim á að lausaganga hunda er bönnuð. 2.5.2008 14:46
Guðfríður Lilja hættir sem forseti Skáksambandsins Guðfríður Lilja Grétarsdóttir lætur af embætti forseta Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins sem fram fer á morgun. 2.5.2008 14:23
Grímseyjarferjan kostaði 533 milljónir króna Endanlegur kostnaður við Grímseyjarferju reyndist 533 milljónir króna sem ríflega þreföld sú upphæð sem fyrsta kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferjunni Sæfara. 2.5.2008 14:22
Kerstin Fritzl ekki hugað líf Læknar í Austurríki telja ólíklegt að Kerstin Fritzl lifi af veikindi sín. Hún hefur verið í dauðadái á sjúkrahúsi síðan hún var leyst úr kjallaraprísund föður síns. 2.5.2008 14:12
Mugabe tapaði en kjósa þarf aftur, segir kjörstjórn Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, bar sigurorð af Robert Mugabe forseta í forsetakosningum í lok mars. 2.5.2008 14:12
Sektaður fyrir að kýla mann í rútu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann til greiðslu hundrað þúsund króna í sekt fyrir að hafa slegið annan mann í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð undir augabrún og mar á augnloki og kinn. 2.5.2008 14:04
Frönsk flugsveit kemur til loftrýmiseftirlits við Ísland eftir helgi Fjórar Mirage 2000 orrustuflugvélar koma hingað til lands á mánudag til þess að sinna loftrýmiseftirliti í samræmi við samkomulag Atlantshafsbandalagsins og íslenskra stjórnvalda. 2.5.2008 13:44
Óvinsælasti Bandaríkjaforseti sögunnar George Bush hefur náð þeim áfanga að vera óvinsælasti forseti Bandaríkjanna síðan mælingar hófust. 2.5.2008 13:38
Byrgismálið það langumfangsmesta í sögu Héraðsdóms Suðurlands Sjö vikur eru síðan Byrgismálið svokallaða var dómtekið en dómsniðurstaða hefur hins vegar enn ekki fengist. Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari er með málið. 2.5.2008 13:35
Vel tekið á móti ólympíueldinum í Hong Kong Hlaupið var með ólympíueldinn í gegn Hong Kong í morgun. Mikil mótmæli hafa víða orðið í þeim tuttugu löndum þar sem hlaupið hefur verið með eldinn undanfarið en mótmælendurnir vilja berjast fyrir mannréttindum Tíbeta. 2.5.2008 13:15
Eiginkona Fritzl yfirheyrð í dag Austurríska lögreglan ætlar að yfirheyra eiginkonu Josef Fritzl til kanna hvort satt sé að hún hafi í raun og veru ekkert vitað um þann hrylling sem átti sér stað í kjallara þeirra hjóna. 2.5.2008 13:00
Gluggaverksmiðja skapar 20 störf á Keflavíkurflugvelli Ný álgluggaverksmiðja á Keflavíkurflugvelli skapar nærri tuttugu ný störf. Nokkrir tugir fyrirtækja eru komin með rekstur á gamla varnarsvæðinu. 2.5.2008 12:59
Aldrei gert jafnmikið á jafn skömmum tíma í velferðarmálum Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að aldrei hafi verið gert jafn mikið á jafn skömmum tíma til úrbóta í velferðarmálum og í tíð núverandi ríkisstjórnar. 2.5.2008 12:46
Ístak lýkur tvöföldun Reykjanesbrautar Vegagerðin hefur náð samkomulagi við Ístak um að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. 2.5.2008 12:42
Dómsmálaráðherra misskilur tollalögin Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir dómsmálaráðherra misskilja tollalögin þegar hann notar þau sem rök fyrir því að stía í sundur lög- og tollgæslu á Suðurnesjum. Skýrt sé kveðið á um það í lögunum að lögreglustjórar fari með tollstjórn. 2.5.2008 12:29
Versta útkoma Verkamannaflokksins í 40 ár Breski Verkamannaflokkurinn beið afhroð í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru þar í landi í gær. Flokkurinn hefur ekki fengið verri niðurstöðu í slíkum kosningum í yfir fjörtíu ár. 2.5.2008 12:16
Mannskæð árás nærri mosku í Jemen Sex eru látnir og 35 særðir hið minnsta erftir að sprengja sprakk nærri mosku í borginni Saada í Jemen. 2.5.2008 12:08
Fyrirtæki gæti hófs og aðhalds við verðlagningu Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. 2.5.2008 11:57
Farið inn í viðræður við stjórnendur LSH á byrjunarreit Fundur geislafræðinga á Landspítalanum og stjórnenda spítalans hefur verið boðaður klukkan eitt í dag en þar á að reyna að leysa deilu aðilanna um vaktafyrirkomulag geislafræðinganna. 2.5.2008 11:34
„Aldrei auðvelt að taka ákvörðun um ákæru“ Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segist ekki tjá sig um einstök mál við fjölmiðla. Í Fréttablaðinu í dag er hann sakaður um kaldlyndi af Helgu Jónsdóttur í lesendabréfi. Maður hennar var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hegningar- og umferðarlagabrot þrátt fyrir ítrekaðar óskir Helgu um að falla frá ákæru. 2.5.2008 11:33
Leiðrétting vegna fréttar af aðalmeðferð í Hringbrautarmáli Í frétt okkar á miðvikudag af manni sem ákærður er fyrir morð í fjölbýlishúsi við Hringbraut í október var ranghermt að hinn ákærði hefði sagst telja sig vita hver hefði verið að verki. 2.5.2008 11:16
Icelandair fjórða óstundvísasta flugfélag í Evrópu Icelandair er númer 26 í röðinni í stundvísi flugfélaga í Evrópu samkvæmt lista Samtaka evrópskra flugfélaga. 2.5.2008 10:48
Fyrsti samningafundur BSRB og ríkisins í dag Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og aðildarfélög þess halda í dag sinn fyrsta samningafund með ríkinu hjá ríkissáttasemjara. Fundurinn hefst klukkan tvö. 2.5.2008 10:44
Sportbíllinn á ofsahraða fyrr um kvöldið Ökumaður sportbílsins sem endaði á steinvegg við Rauðarárstíg um hálf tvö leytið í nótt hafði fyrr um kvöldið ekið á ofsahraða í miðbænum. Annar ökumaður varð vitni að akstrinum og tilkynnti til lögreglu. 2.5.2008 10:42
Félögum í BÍ fækkaði milli áranna 2006 og 2007 Félögum í Blaðamannfélagi Íslands fækkaði um tæplega 40 á milli áranna 2006 og 2007 samkvæmt tölum Hagstofunnar um fjölda félagsmanna í félögum fjölmiðlafólks og auglýsingahönnuða. 2.5.2008 10:37
Forsætisráðherra Ísraels yfirheyrður Ísraelska lögreglan yfirheyrði í dag Ehud Olmert, forsætisráðherra landsins, vegna gruns um spillingu. 2.5.2008 10:20
Fulltrúar Dalai Lama funda með Kínverjum á morgun Fulltrúar á vegum Dalai Lama, andlegs leiðtoga Tíbeta, funda á morgun með kínverskum leiðtogum um stöðu mála í Tíbet eftir óeirðir í héraðinu í mars. Frá þessu greindi útlagastjórn Tíbets í dag. 2.5.2008 10:15
Alþjóðlegir stöðumælaþjófar í miðborginni Rannsóknarlögreglumenn handtóku tvo erlenda menn á tvítugsaldri aðfaranótt fimmtudags. Lögreglan hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið eftir að hafa fengið upplýsingar um veru þeirra á landinu frá lögreglu– og tollayfirvöldum. 2.5.2008 10:02
Kviknakinn á Suðurlandsvegi Lögreglan á Selfossi stöðvaði í fyrrinótt erlenda konu sem reyndist vera ölvuð undir stýri. Eftir að búið var að taka úr henni blóðsýni og taka af henni skýrslu, hringdi hún í sambýlismann sinn af sama þjóðerni, og bað hann að sækja sig á lögreglustöðina. 2.5.2008 09:28
Skoðunarferðir á slóðum Madeleine Íbúar í portúgalska bænum Praia da Luz eru bálreiðir yfir óforskömmuðum ferðamálafrömuðum þar í bæ. Bærinn komst í fréttirnar þegar Madeileine McCann hvarf þar í fyrra en málið vakti heimsathygli og gerir enn. 2.5.2008 09:26