Erlent

Skoðunarferðir á slóðum Madeleine

MYND/AP
Íbúar í portúgalska bænum Praia da Luz eru bálreiðir yfir óforskömmuðum ferðamálafrömuðum þar í bæ. Bærinn komst í fréttirnar þegar Madeleine McCann hvarf þar í fyrra en málið vakti heimsathygli og gerir enn.

Nú stendur ferðamönnum til boða að fara í skoðunarferð þar sem helstu staðir sem taldir eru tengjast Madeleine eru heimsóttir.

Ferðirnar eru vinsælastar á meðal aldraðra Portúgala frá höfuðborginni Lissabon sem láta taka af sér myndir fyrir framan hótelið þar sem McCann-fjölskyldan dvaldi. Annar vinsæll viðkomustaður er kirkjan hvar foreldrar henn báðu fyrir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×