Fleiri fréttir

Rán í Kringlunni

Unglingspiltur rændi fartölvu í verslun BT í Kringlunni fyrir rúmri klukkustundu með því að klippa með skærum á öryggislínu er tölvan var fest með.

Sr. Bolli Þórir Gústavsson látinn

Séra Bolli Þórir Gústavsson vígslubiskup er látinn 72 ára að aldri. Hann fæddist á Akureyri 17. nóvember árið 1935, sonur hjónanna Gústavs Elí Berg Jónassonar rafvirkjameistara og Hlínar Jónsdóttur húsfreyju.

Spurningar ítarlegar til að fá sem bestar skýringar

Umboðsmaður Alþingis segir í fyrirspurnarbréf sínu til Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, að ítarlegar spurningar séu settar fram til þess að gefa ráðherra sem best tækifæri til að senda skýringar sínar og þar með verði lagður sem bestur grunnur að athugun umboðsmanns.

Franskur raðmorðingi þegir í réttarsalnum

Frakkinn Michel Fourniret, sem grunaður er um að hafa myrt og misnotað sjö stúlkur og konur í Frakklandi og Belgíu á árunum 1987 – 2003, neitaði að tjá sig um málið við dómara í dag yrði réttarsalurinn ekki ruddur.

Vörubílstjórar teppa umferð í Ártúnsbrekku

Löng vörubílaröð liggur frá Grensásvegi til bensínstöðvar N1 í Ártúnsbrekku á leiðinni út úr bænum og eru miklar umferðartafir af þessum sökum. Vörubílstjórar sem eru óánægðir með hátt olíugjald og háar sektir Vegagerðarinnar ákváðu að teppa umferð í brekkunni með því að leggja bílum sínum á veginn.

Lestarkönnunartillaga samþykkt í fjarveru borgarstjóra

Borgarráð sameinaðist í dag um tillögu þar sem ákveðið var að kanna fýsileika þess að koma á lestarsamgöngum milli miðborgar Reykjavíkur og Keflavíkur annars vegar og léttlestarsamgöngur innan Reykjavíkur hins vegar.

Borgin kaupir hús í Breiðholti undir skólastarf

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að festa kaup á húsi að Kleifarseli 18 í Seljahverfi í Breiðholti sem nota á undir frístundaheimili á vegum ÍTR og starfsemi heilsdagsskóla fyrir fötluð börn.

Var Ingólfur Arnarson til?

Voru Ingólfur Arnarson og hans fólk yfirleitt til? er meðal spurninga sem Helgi Þorláksson sagnfræðingur hyggst varpa fram og ræða í fyrirlestri sínum um Reykvíkinga á 9. og 10. öld sem haldinn verður á landnámssýningunni í Aðalstræti nk. þriðjudag sem hluti af fyrirlestraröð er senn lýkur um fornleifar í Reykjavík og lífið á landnámsöld.

Flutningsgámur fær ekki leyfi sem íbúðarhúsnæði

„Ef íbúar húsnæðis telja að þeir búi við heilsuspillandi aðstæður geta þeir snúið sér til Heilbrigðiseftirlitsins og óskað eftir skoðun á húsnæðinu,“ segir Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri Hollustuhátta hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

Foreldrar fylgist með börnum í verslunum

Framkvæmdastjóri Forvarnarhússins segir mestu hættuna á slysum í rúllustigum skapast þegar foreldrar skilji börn sín eftir án eftirlits í verslunum.

Verulega dregur úr íbúðalánum

Verulega hefur dregið úr nýjum íbúðalánum síðustu mánuði en enn er mikill áhugi fyrir gengisbundnum lánum. Þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta undanfarin ár hefur ekki dregið úr yfirdráttarlánum heimila.

Munkarnir höfðu aðra sögu að segja

Tilraun kínverskra stjórnvalda til að sýna erlendum fréttamönnum fram á að sátt ríkti nú í Tíbet fór illilega út um þúfur í morgun.

Svör ráðherra lýsa sérkennilegri afstöðu til menntunar

Svör Árna Mathiesen til umboðsmanns Alþingis lýsa heldur sérkennilegri afstöðu fjármálaráðherra til menntunar, rannsókna og háskólakennslu á 21. öld, segir Pétur Dam Leifsson, einn af umsækjendum um stöðu héraðsdómara á Norðurlandi.

Óánægðir tollverðir funda

Um 55 tollverðir á Keflavíkurflugvelli ætla að hittast í kvöld og fara yfir stöðu mála. Mikill kurr er í hópnum eftir að dómsmálaráðuneytið viðraði hugmyndir þess efnis að aðskilja lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum.

Heldur fund um skipulagsmál í Hafnarfirði

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, doktorsnemi í skipulagsfræðum doktorsnemi í skipulagsfræðum við Oxfordháskóla í Bretlandi heldur fyrirlestur um skipulagsmál í Hafnarfirði í Bæjarbíói klukkan 20:00 í kvöld.

Nýr vítamíngagnabanki opnaður

Vítamín og steinefni eru nauðsynleg fyrir vöxt og viðhald heilbrigðs líkama, eftir því sem fram kemur á nýjum fræðslubanka Lýðheilsustofnunar og Matvælastofnunar sem opnaður hefur verið á veraldarvefnum.

Söfnun hafin til handa Bylgju

„Ég veit varla hvernig ég á að vera, þetta er alveg ótrúlegt," segir Bylgja Hafþórsdóttir sem missti heimili sitt eftir að í því kom upp myglusveppur og rífa þurfti húsið.

Eftirlýstur maður handtekinn

Tomasz Krzysztof Jagiela sem lögreglan lýsti eftir í gær í tengslum við ofbeldismálið í Keilufelli var handtekinn í Keflavík í morgun.

Mjólkurlítrinn hækkar í hundrað krónur

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækki 1. apríl um 14,6 prósent. Þetta þýðir að mjólkurlítrinn hækkar að líkindum í hundrað krónur.

Máluðu yfir veggjakrot í miðbænum

Samtök sem kalla sig Góðverkasamtökin betri bær fóru á stjá í nótt og máluðu yfir allt veggjakrot á hvítum flötum niður Laugaveginn. Til þess notuðu samtökin hvíta málningu.

Annað innbrotið hjá úrsmiði á rúmum mánuði

Þjófarnir sem brutust inn í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs í nótt komust á brott með úr fyrir um tvær milljónir króna að sögn Jóns Hermannssonar úrsmiðs. Þetta er í annað sinn á rúmum mánuði sem dýrmætum munum er stolið úr versluninni.

Obama og Bush eru frændur

Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru núverandi forseti Bandaríkjanna, George Bush, og hugsanlegur verðandi forseti, Barack Obama, skyldir.

Meintir handrukkarar látnir lausir

Lögreglan á Akranesi lét tvo menn lausa undir kvöld í gær, eftir ítarlegar yfirheyrslur vegna húsbrots, sem þeir frömdu í bænum í fyrrakvöld.

Álasundshúsið í ljósum logum

Það gætu liðið margir dagar þangað til eldurinn í fjölbýlishúsinu, sem hrundi í Álasundi í Noregi í gærmorgun, slokknar.

Mjólk hækkar á næstunni

Búast má við að mjólk og mjólkurafurðir hækki talsvert á næstunni eftir að Verðlagsnefnd búvara samþykkti á fundi sínum í gær hækkun til framleiðenda.

Franskur raðmorðingi fyrir rétt

Réttarhöld hefjast í dag yfir franska raðmorðingjanum Michel Fourniret vegna morðs á sjö ungum konum í Frakklandi og Belgíu.

Sjá næstu 50 fréttir