Flutningsgámur fær ekki leyfi sem íbúðarhúsnæði 27. mars 2008 13:08 „
Ef íbúar húsnæðis telja að þeir búi við heilsuspillandi aðstæður geta þeir snúið sér til Heilbrigðiseftirlitsins og óskað eftir skoðun á húsnæðinu," segir Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri Hollustuhátta hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með íbúðarhúsnæði en öll híbýli sem ætluð eru til íbúðar þurfa samþykki byggingafulltrúa. Flutningsgámur fær ekki leyfi sem íbúðarhúsnæði. Ef leyfi á að fást til að búa í gámi er um að ræða íbúðargám með leyfi byggingafulltrúa fyrir staðsetningu og þar sem gengist er undir skilmála um aðstöðu í og við gám. „Ef í ljós kemur að tiltekið húsnæði er heilsuspillandi og óíbúðarhæft getur Heilbrigðiseftirlitið bannað útleigu á því," segir Rósa og að slíku banni sé þá jafnan þinglýst. Hún segir að eftir að endurbætur á húsnæði hafi farið fram sé hægt að fara fram á úttekt heilbrigðisfulltrúa til að aflétta leigubanninu. „Ef húsnæðið þarfnast aftur á móti einungis viðgerðar, en telst ekki heilsuspillandi, skrifum við leigjanda eða húseiganda bréf og bendum á að endurbóta sé þörf." Rósa segir óheimilt að leigja út íbúðarhúsnæði sem ekki hefur verið samþykkt sem slíkt hjá byggingarfulltrúa. Heilbrigðisfulltrúar mega ekki fara inn í híbýli fólks nema að ósk íbúa eða að undangengnum dómsúrskurði eða í fylgd og að beiðni lögreglu. Slökkviliðið getur þó kallað til Heilbrigðiseftirlitið en þá eru fulltrúar húseigenda einnig á staðnum. „Við hjá Heilbrigðiseftirlitinu höfum ekki afskipti af fólki sem kýs að búa við lélegar aðstæður, hvort sem viðkomandi býr í gámi eða tjaldi nema það hafi sjálft samband við okkur, " segir Rósa. „Heilbrigðiseftirlitið hefur heldur engin úrræði til að koma fólki í viðunandi húsnæði en við getum staðfest að fólk búi við lélegar aðstæður ef óskað er eftir og það hjálpar vonandi þegar sótt er um félagslegt húsnæði hjá borginni, " segir hún. Heilbrigðiseftirlitið hefur einnig eftirlit með umgengni á lóðum og getur gert kröfur til lóðarhafa að þeir haldi lóðunum snyrtilegum og fari eftir settum reglum um umgengni og förgun úrgangs. Rósa segir að Heilbrigðiseftirlitið sé kallað til ef slæm umgengni veldur ónæði til dæmis vegna ólyktar. „Ef slíkt er til dæmis í fjöleignahúsum þarf húsfélagið að taka á málum en Heilbrigðiseftirlitið kemur þá til sögunnar sem óháður aðili sem getur staðfest ónæðið," segir hún.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn stefna á meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sjá meira