Annað innbrotið hjá úrsmiði á rúmum mánuði 27. mars 2008 10:37 Jón Hermannsson úrsmiður. MYND/Stöð 2
Þjófarnir sem brutust inn í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs í nótt komust á brott með úr fyrir um tvær milljónir króna að sögn Jóns Hermannssonar úrsmiðs. Þetta er í annað sinn á rúmum mánuði sem dýrmætum munum er stolið úr versluninni. „Þetta voru dýr úr af gerðinni Raymond Weil og Revue Homme og ég held að verðmæti þeirra nemi samtals um tveimur milljónum króna," sagði Jón Hermannsson þegar Vísir náði tali af honum í versluninni í morgun. Eins og fram hefur komið brutust tveir menn inn í verslun Hermanns Jónssonar við Ingólfstorg og höfðu á brott með sér á bilinu 20-30 úr. MYND/Stöð 2 Aðspurður segir Jón að dýrasta úrið hafi kostað um hálfa milljón króna. „Þeir hafa farið í tvo glugga og tæmt úr þeim og farið þannig í dýrustu úrin. Það náðust hins vegar góðar myndir af mönnunum í öryggismyndavél og svo það er vonandi tímaspursmál hvenær þeir nást," segir Jón. Aðeins er rúmur mánuður síðan þjófar voru síðast á ferð í versluninni, en þá höfðu þeir á brott með sér demanta fyrir á fimmtándu milljón króna að sögn Jóns. „Það var mikill hasar og þar vann lögreglan mikið stórvirki," segir Jón. Í frétt sem birtist á Vísi af málinu þann 24. febrúar kemur fram að sést hafi til manns að morgni þess dags úr eftirlitsmyndavél að brjóta rúðu í versluninni. Lögregla var með mannskap skammt frá og var hann þegar sendur á staðinn. Þegar vettvang var komið var maðurinn sem sést hafði til að setja inn á sig muni úr gluggaútstillingu verslunarinnar. Lögreglumenn gerðu sig líklega til að handtaka manninn en í sömu mund tók hann á rás, hljóp að Ráðhúsinu og inn á Suðurgötu þar sem bíll tók hann upp í. Honum var ekið á ofsahraða eftir Suðurgötu og fékk lögregla ábendingu um að bílnum hefði verið lagt í Skerjafirði. Þar voru tveir menn á þrítugsaldri gripnir á gangi með demantana í fórum sínum. Aðspurður segr Jón að verslunin sé ágætlega tryggð fyrir þjófnuðum sem þessum en hann vonast til að úraþjófarnir náist sem fyrst.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Fleiri fréttir Þögull sem gröfin en búist við löngum degi Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn stefna á meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sjá meira