Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Má vera aðili að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að því að fyrrverandi kennslukona við Landakotsskóla hafi átt rétt á því að vera aðili að B-deild Lífeyrisssjóðs starfsmanna ríkisins eftir að skólanum var breytt í sjálfseignarstofnun. 21.2.2008 14:25
Æðstu embættismenn hafa flúið borgina Frá árinu 2002 hafa verið starfandi sex borgarstjórar, fjórir skipulagsstjórar, þrír sviðsstjórar framkvæmdasviðs (áður borgarverkfræðings og umhverfis- og tæknisviðs), fjórir borgarlögmenn og þrír fjármálastjórar hjá Reykjavíkurborg. Að auki hafa orðið sviðsstjóraskipti á velferðarsviði, menntasviði, leikskólasviði og umhverfissviði. 21.2.2008 14:08
Hundrað milljónir króna í þróunarverkefni í ferðaþjónustu Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 100 milljónum króna af fé Byggðaáætlunar á árunum 2007 - 2009 til þriggja þróunarverkefna í ferðaþjónustu. 21.2.2008 13:48
Flugvél skráð í Bandaríkjunum og var á leið til Skotlands Vélin sem Landhelgisgæslan leitar nú að fyrir austan land eftir að hún fór í sjóinn er skráð í Bandaríkjunum. Hún er af gerðinni Piper PA28 og var með einn mann innanborðs. 21.2.2008 13:26
Bretar biðjast afsökunar á fangaflugi CIA David Miliband utanríkisráðherra Breta viðurkenndi á breska þinginu í dag að tvö fangaflug CIA með grunaða hryðjuverkamenn hefðu lent í á bresku svæði árið 2002. Í báðum tilfellum lentu vélarnar á Diego Garcia eynni á bresku yfirráðasvæði í Indlandshafi. 21.2.2008 13:10
Milljónir fylgdust með tunglmyrkva Á Stjörnufræðivefnum segir að tunglmyrkvar eigi sér stað þegar tunglið gengur inn í skugga jarðar á sama tíma og jörðin er stödd á milli sólar og tungls. 21.2.2008 13:00
Engar ákvarðanir um að draga úr gjaldtöku á eldsneyti Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að engar ákvarðanir hafi teknar um minnka gjaldtöku á eldsneyti í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu. Hann hefur efasemdir um að hækkandi olíuverð skili ríkissjóði auknum tekjum. 21.2.2008 12:59
Reyna að komast yfir kreditkortanúmer Lögreglan á Eskifirði varar við óprúttnum aðilum sem reynt hafa að svíkja fé af fólki með því að komast yfir kreditkortanúmer þess. 21.2.2008 12:46
Gísli Marteinn: Treysti á að Össur svari fyrir bloggið Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, ætlar ekki að tjá sig um skrif Össurar Skarphéðinssonar á bloggsíðu sinni. Þar vandaði Össur Gísla ekki kveðjurnar og bar pistillinn yfirskriftina „Sjálfseyðing ungstirnis“. 21.2.2008 12:27
Lélegasta loðnuvertíð í aldarfjórðung Lélegustu loðnuvertíð í aldarfjórðung lýkur nú í hádeginu, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra, að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar. 21.2.2008 12:18
Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar segir upp en klárar sín mál Einar Örn Thorlacius sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar hefur sagt starfi sínu lausu. Einar segir í samtali við Vísi að uppsögnin sé gerði í góðu og hann muni klára sín mál hjá sveitarfélaginu áður en nýr sveitarstjóri tekur við embættinu. 21.2.2008 12:13
Neyðarástand vegna flóða í Ekvador Yfirvöld í Ekvador hafa lýst yfir neyðarástandi í öllu landinu eftir að hellirigningar orsökuðu flóð og aurskriður víða um landið. Að minnsta kosti þrír hafa látist í flóðunum síðasta mánuð og þúsundir flúið heimili sín. 21.2.2008 12:09
Skoðun á lestarsamgöngum vísað til umhverfisráðs Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að vísa tillögu minnihluta borgarstjórnar um að skoða möguleika á lestarsamgöngum í Reykjavík til umsagnar í umhverfis- og samgönguráði. Í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, kemur fram að búist sé við að borgarráð afgreiði tillöguna eftir viku og í framhaldinu verður hún tekin fyrir í borgarstjórn. 21.2.2008 12:02
Flugvél í sjóinn fyrir austan land Allt tiltækt lið Landhelgisgæslunnar er nú á leið austur fyrir land þar sem talið er að flugvél hafi farið í sjóinn. 21.2.2008 11:58
Ólympíumót æskunnar 2010 í Singapúr Alþjóða ólympíunefndin tilkynnti í dag að fyrsta Ólympíumót æskunnar yrði haldið í Singapúr árið 2010. Nýju leikarnir eru hannaðir til að auka áhuga á Ólympíuleikum meðal unglinga. Singapúr hafði betur í baráttunni við Moskvu, sem var eini aðri keppandinn um að halda leikana. 21.2.2008 11:44
Óskandi að forsætisráðherra gæti sungið erfiðleika burt Forsætisráðherra segir stjórnvöld ekki munu láta neitt tækifæri ganga úr greipum til að leiðrétta rangfærslur um íslenskt efnahagslíf og segir mikilvægt að stjórnvöld og fjármálalífið standi saman að því að berjast fyrir hagsmunum Íslands. 21.2.2008 11:18
Kallað eftir hærra áfengisverði í Bretlandi Samtök lækna á Bretlandi hafa kallað eftir hærri sköttum á áfengi og banni við tilboðum á áfengum drykkjum til að berjast gegn óhóflegri áfengisdrykkju um helgar. Á fréttavef Sky segir að samtökin þrýsti nú á ríkisstjórnina að breyta lögum til að tryggja ábyrg verð á alkahóli. 21.2.2008 10:44
Tekið tillit til loðnumála við endurskoðun mótvægisaðgerða Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að það þurfi að taka tillit til þess við endurskoðun mótvægisaðgerða ef ekki finnst meiri loðna við landið á þessari vertíð. 21.2.2008 10:34
Framkoma Birkis fyrir neðan allar hellur Júlíus Þór Júlíusson, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn, segir framkomu þingmannsins Birkis Jóns Jónssonar fyrir neðan allar hellur en Birkir Jón sagði á Vísi í gær að hann hygðist berjast fyrir lögleiðingu pókers. 21.2.2008 10:34
Össur bloggar eins og götustrákur Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra skrifar á vefinn sinn eins og hann sé götustrákur, að mati Birgis Ármannssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 21.2.2008 10:19
Útlit fyrir yfirburðasigur Medvedevs í Rússlandi Útlit er fyrir að Dimítrí Medved sigri með yfirburðum í rússensku forsetakosningunum sem fram fara 4. mars næstkomandi. 21.2.2008 10:18
Stúlka sem sást í Montpellier var ekki Madeleine Franska lögreglan segir að stúlka sem sást á veitingastað nálægt frönsku borginni Montpellier hafi ekki verið Madeleine McCann. Hollenskur ferðamaður hélt því fram að hann hefði séð stúlkuna í fylgd karlmanns. Lögregla tók myndir úr öryggismyndavélum veitingastaðarins til rannsóknar. 21.2.2008 10:11
Skýrsla Breiðavíkurnefndar kynnt á morgun Nefnd sem forsætisráðherra skipaði í apríl í fyrra til að fara yfir starfsemi Breiðavíkurheimilisins á árunum 1952-1979 skilaði forsætisráðherra skýrslu sinni um síðustu mánaðamót og verður hún kynnt á morgun. 21.2.2008 09:58
Horta á batavegi Jose Ramos Horta, forseti Austur-Timor, er nú á batavegi eftir banatilræðið fyrr í mánuðinum. 21.2.2008 09:21
Kaupmáttur eykst lítillega Launavísitalan reyndist um 331 stig í nýliðnum janúar og hækkaði um 1,3 prósent frá fyrri mánuði samkvæmt útreikningi Hagstofunnar. 21.2.2008 09:10
Segist hafa njósnað um hreyfingu Kasparovs fyrir FSB Rússneskur karlmaður, sem staddur er í Danmörku, heldur því fram að hann hafi starfað fyrir rússnesku leyniþjónustuna FSB og hafi haft það hlutverk að komast inn í stjórnmálahreyfingu Garrís Kasparpov, fyrrverandi heimsmeistara í skák. 21.2.2008 08:57
Enginn lögreglubíll á Hólmavík í tíu daga Bæjarstjórn Strandabyggðar telur algerlega óviðunandi að enginn lögreglubíll skuli hafa verið á Hólmavík í tíu daga þegar eini lögreglubíllinn þar var sendur til viðgerðar og viðhalds. 21.2.2008 08:45
Harður árekstur við Þorlákshafnarveg Tveir bílar lentu í hörðum árekstri á mótum Eyrarbakka- og Þorlákshafnarvega um miðnætti en engan í bílunum sakaði. 21.2.2008 08:33
Bandarískir hermenn sakaðir um tvær nauðganir á Okinawa Vandræðagangur bandaríska herliðsins á japönsku eyjunni Okinawa heldur áfram og nú hefur annar hermaður verið ásakaður um nauðgun og er það annað tilvikið í þessari viku. 21.2.2008 08:21
Ítalskir vísindamenn finna G-blettinn Ítalskir vísindamenn segja að hægt sé að finna hinn dularfulla G-blett á konum með því að nota hátíðni-hljóðbylgjur. 21.2.2008 08:16
McCain átti í ástarsambandi við unga konu Bandaríska stórblaðið The New York Times greinir frá því í dag að John McCain hafi átt í ástarsambandi við unga konu fyrir átta árum síðan. 21.2.2008 08:15
Obama með afgerandi forskot á Clinton Samkvæmt nýrri skoðanakönnun hefur Barak Obama nú afgerandi forskot á Hillary Clinton á landsvísu í Bandaríkjunum. 21.2.2008 08:13
Kveikt í tveimur skólum í Danmörku í nótt Kveikt var í tveimur skólum í Danmörku í nótt og er annar þeirra brunninn nær til grunna. 21.2.2008 08:10
Upplýsingum stolið um risastórt olíusvæði við Brasilíu Trúnaðarupplýsingum hefur verið stolið frá brasilíska olíurisanum Petrobras en þær fjalla um risavaxið olíusvæði sem nýlega fannst undan ströndum landsins. 21.2.2008 07:18
Litlu munaði að stór flutningabíll steyptist niður brekku Minstu munaði að stór flutningabíll með tengivagni færi útaf í Bakkaselsbrekku við Öxnadalsheiði um miðnætti, og steyptist niður mikinn bratta. 21.2.2008 07:15
Loðnuveiðar stöðvast á hádegi Loðnuveiðar verða stöðvaðar á hádegi, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins , að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar. 21.2.2008 07:14
Eldflaugaskotið að njósnagervihnettinum heppnaðist Eldflaugaskotið að stjórnlausum njósnagervihnetti heppnaðist í nótt að sögn bandaríska flotans. Eldflauginni var skotið frá herskipi sem staðsett var vestur af Hawai-eyjum. 21.2.2008 07:12
Fara fram á þunga dóma yfir brennuvörgum í Danmörku Lögregluyfirvöld í Danmörku hyggjast fara fram á það að þau ungmenni sem staðið hafa fyrir íkveikjum í landinu undanfarin kvöld fái þunga refsingu, jafnvel margra ára fangelsi. 20.2.2008 23:31
Styður Vilhjálm en er til í að verða borgarstjóri „Ég gef kost á mér að sjálfsögðu,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir í viðtali við Ísland í dag nú fyrir stundu. Þar sagðist hún ekki skorast undan yrði til hennar leitað sem borgarstjóri. Hún sagðist styðja Vilhjálm sem oddvita borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. 20.2.2008 19:14
Skrifstofustjóri þingflokks Framsóknar til varnar Birki Jóni „Birkir hvorki hýsti mótið eða hefur af því atvinnu, svo tilgangur fréttarinnar er í sjálfu sér hulin ráðgáta. Ekki man ég eftir að menn hafi setið fyrir utan Vinabæ í Skipholtinu og skrifað fréttir um þá sem stunda fjárhættuspilið bingó þar á sunnudagskvöldum,“ skrifar Helga Sigrún Harðardóttir, skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, á heimasíðu sína. 20.2.2008 23:25
Gætu þurft að fresta því að skjóta niður njósnahnött vegna veðurs Bandarísk hermálayfirvöld gætu þurft að fresta því að skjóta niður njósnahnött sem stefnir til jarðar vegna veðurs 20.2.2008 23:12
Spyr hvort ríkið muni leita bóta vegna verðsamráðs olíufélaganna Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri – grænna, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til fjármálaráðherra um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við verðsamráði olíufélaganna. 20.2.2008 22:41
Afklæddu og misþyrmdu miðaldra manni Tveir piltar réðust að manni á Hornafirði aðfararnótt laugardags. Létu þeir hann meðal annars afklæðast en árásin stóð yfir í á þriðju klukkustund. Fórnarlambið þekkti árársarmennina. 20.2.2008 19:38
Hrafn Gunnlaugsson vill Dubai-skipulag í Vatnsmýrina Það skortir dirfsku í tillögum um framtíðarskipulag Vatnsmýrar, segir Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri, sem hvetur menn til að byggja þar glæsileg háhýsi í anda Dubai, en ekki litla kassa og alla eins. 20.2.2008 19:09
Kampavín teygað sem aldrei fyrr Landsmenn hafa teygað kampavín sem aldrei fyrr í góðæri undanfarinna ára. Kampavínssala jókst um rösklega áttatíu prósent milli áranna 2003 og 2006. 20.2.2008 18:54