Tekið tillit til loðnumála við endurskoðun mótvægisaðgerða 21. febrúar 2008 10:34
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að það þurfi að taka tillit til þess við endurskoðun mótvægisaðgerða ef ekki finnst meiri loðna við landið á þessari vertíð. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, spurði ráðherra hvort ríkisstjórnin hefði endurskoðað áform sín varðandi mótvægisaðgerðir eins og boðað hafði verið. Vísaði hann jafnframt til nýjustu tíðinda um að loðnuveiðar yrðu stöðvaðar á hádegi í ljósi þess að Hafrannsóknarstofnun hefði ekki fundið hana í nægilegu magni. Spurði hann jafnframt hvort til stæði að efna til þverpólitísks samstarfs um þessa hluti. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði að þjóðinni hefðu borist mikil ótíðindi í gær varðandi loðnuna en hann teldi að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefði tekið þá einu ákvörðun sem hægt var að taka á grundvelli ráðlegginga Hafrannsóknarstofnunar. „Öll vonum við loðnuveiðum sé ekki lokið á þessari vertíð," sagði Geir og benti á að það væri ekki útilokað að loðna fyndist í veiðanlegu magni á næstunni. Þá benti hann enn fremur á að loðnan væri dyntóttur fiskur og ekki í fyrsta sinn sem þetta gerðist. Sagði Geir aðalatriðið að vakta miðin og fylgjast með hvort loðnan færi að gefa sig. Forsætisráðherra sagði hins vegar að ef ekki fyndist meiri loðna á þessari vertíð þýddi það gjörbreyttar aðstæður víða í landinu á þeim stöðum sem hafa reitt sig öðrum fremur á loðnuveiðar. Þá sagði hann hinar almennu mótvægisaðgerðir vegna skerðingar á þorskkvóta vera að koma til framkvæmda en ef þetta þunga högg vegna loðnuveiðibannsins yrði að veruleika þyrfti að taka það inn í myndina við endurskoðun mótvægisaðgerða.
Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Fleiri fréttir Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Sjá meira