Fleiri fréttir Fíkniefnahundar fundu hass á heilbrigðsstofnun í borginni Fíkniefnaleitarhundar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa enn og aftur sannað gildi sitt undanfarna daga. 8.2.2008 13:56 Picasso verkum stolið úr sýningarsal Tveimur málverkum eftir Pablo Picasso var stolið af svissneskri listasýningu á verkum meistarans á miðvikudag. Verkunum var stolið eftir lokun sýningarsalarins í bænum Pfaeffikon í Zurich. 8.2.2008 13:54 Fáir óku of hratt yfir ein stærstu gatnamót landsins Brot 51 ökumanns var myndað þegar þeir óku yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar til norðurs frá miðvikudegi til föstudags. 8.2.2008 13:40 Brunuðu frá snjóflóðum á Óshlíð Vegagerðin hefur lokað þremur vegum á Vestfjörðum eftir að snjóflóð hafa fallið á þá. 8.2.2008 13:19 Funduðu um útvistun á skráningu sjúkraskráa Fulltrúar læknaritara áttu í morgun fund með forstöðumönnum Landspítalans þar sem rætt var um útvistun á störfum læknaritara á sjúkrahúsinu. 8.2.2008 13:12 Umfangsmikilli leit að íslenskum pilti ekki haldið áfram í dag Leit að 18 ára íslenskum pilti á Jótlandi í Danmörku hefur enn engan árangur borið. Umfangsmikilli leit með leitarhundum og þyrlu á svæði umhverfis bíl hans verður ekki haldið áfram í dag. 8.2.2008 12:27 Telur olíudóm fordæmisgefandi fyrir önnur skaðabótamál Dómur Hæstaréttar í máli Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum er fordæmisgefandi varðandi önnur skaðabótamál gegn félögunum. Þetta er mat lögmanns Reykjavíkurborgar. 8.2.2008 12:13 Steinþór vill starfsfrið Stjórendur Sláturfélags Suðurlands vilja að friður skapist innan sölu- og markaðsdeildar og segja fréttir Vísis af starfsmannamálum hjá Sláturfélaginu orðum auknar og beinlínis rangar. 8.2.2008 12:07 Lokaðist inni á milli tveggja flóða úr Óshlíð Ökumaður bíls lokaðist inni á milli tveggja flóða sem féllu á veginn um Óshlíð um hádegisbil. Að sögn lögreglunnar á Ísafiði varð honum ekki meint af og er hann nú kominn til Bolungarvíkur. 8.2.2008 12:01 Smyglfarþegar gasflutningabíls á sjúkrahúsi Átta manns eru á sjúkrahúsi með snert af gaseitrun eftir að þeir fundust í tanki gasflutningabíls frá Þýskalandi í suðurausturhluta London. Laumufarþegarnir uppgötvuðust þegar bílstjórinn stöðvaði á Harrow Manorway í Bexley til að athuga farminn. 8.2.2008 12:00 Aðstoðarlandlæknir segir meþadon einungis notað við fráhvörfum Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að meþadon sé ekki notað sem verkjalyf í fangelsum hér á landi. Það sé hins vegar mikið notað í flestum fangelsum til að fást við fráhvörfseinkenni ef sjúklingur hefur verið í fíkniefnaneyslu. 8.2.2008 11:53 Fyrrverandi framsóknarkona aðstoðar Ólaf Friðrik Ólöf Guðný Valdimarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ólafs Friðriks Magnússonar borgarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 8.2.2008 11:36 Á rétt á bótum vegna vinnuslyss Héraðsdómur Reykjavíkur komst að því í dag að starfsmaður Myllunnar ætti rétt á skaðabótum vegna slyss sem hann varð fyrir í vinnu sinni. 8.2.2008 11:33 Samhæfingarmiðstöðin virkjuð um miðjan dag vegna vonskuveðurs Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð verður virkjuð klukkan fjögur í dag vegna vonskuveðurs sem gengur yfir landið síðdegis og fram á nótt. 8.2.2008 11:13 Al Kaída áformar hryðjuverk í Þýskalandi Hryðjuverkasamtökin Al Kaída áforma hryðjuverk í Þýskalandi samkvæmt frétt þýska dagblaðsins Die Welt í dag. Blaðið vitnar í þýska aðstoðarinnanríkisráðherrann August Hanning. 8.2.2008 11:09 Eigendafundur hjá Orkuveitunni eftir viku Fulltrúi Akraneskaupstaðar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur segir að nær hefði verið að láta óháða nefnd fara yfir REI-málið í stað þess að stýrihópur á vegum borgarinnar gerði það. Fyrirhugaður er eigendafundur í Orkuveitunni eftir viku þar sem reiknað er með að málefni REI verði tekin upp. 8.2.2008 10:57 Sarkozy blæs nýju lífi í úthverfi Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti er að leggja lokahönd á áætlun um að blása nýju lífi í úthverfi sem aðallega eru byggð innflytjendum. Meðal áforma er betri menntun og atvinnumöguleikar, sérstaklega fyrir ungt fólk. 8.2.2008 10:51 Rektor Háskóla Íslands flutti erindi um loftlagsmál Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flutti í dag erindi á alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsmál á vegum tækni- og vísindastofnunarinnar TERI í Indlandi. 8.2.2008 10:43 Byssumaður banaði fimm í ráðhúsi St. Louis Byssumaður skaut fimm manns til bana í ráðhúsi St. Louis í Bandaríkjunum og særði fjóra, þar á meðal borgarstjórann, áður en lögregla skaut hann banaskoti. Byssumaðurinn var þekktur fyrir að hafa óbeit á borgarfulltrúum og embættismönnum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum lögreglu réðist byssumaðurinn inn á fund í ráðhúsinu og öskraði „Skjótið borgarstjórann!" 8.2.2008 10:17 Enn miklar raskanir á flugsamgöngum Farþegar sem fljúga áttu með Iceland Express í gærmorgun frá Kaupmannahöfn bíða þess enn að vélin fari á loft. Matthías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að haldið sé í strangar öryggiskröfur og að ekki sé farið í loft ef flugöryggi sé ógnað. 8.2.2008 10:16 Fartölvum sem stolið var í FSu komið til skila Fartölvur sem stolið var úr Fjölbrautaskóla Suðurlands komu í leitirnar eftir að athugulir menn lásu um þjófnaðinn í héraðsblöðunum á Selfossi. 8.2.2008 10:11 Umferð um Þrengslin gengur vel Umferð um Þrengslin gengur vel en Hellisheiðin er enn lokuð. Að sögn lögreglunnar á Selfossi eru snjómosktursbílar byrjaðir að moka heiðina en ekki liggur fyrir hvenær hún verður opnum. 8.2.2008 10:01 Röskva sigraði í kosningum SHÍ 8.2.2008 08:42 Varað við stormi í dag 8.2.2008 08:29 McCain biðlar til íhaldssamra repúblikana 8.2.2008 08:24 Sprengja banaði Bhutto 8.2.2008 08:16 Réðist að flugmönnum 8.2.2008 08:09 Vill styrkja Food & fun Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar mælir með að bærinn styrki matarhátíðin Fóður og fjör sem haldin verður m.a. á veitingastaðnum Við Pollinn um 50.000 krónur. Rúmlega tugur veitingastaða ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerðar auk þess sem hvert landsvæði ætlar að kynna það sem er að vetrarlagi. Á undanförnum árum hefur matarhátíðin Food & fun í Reykjavík áunnið sér veglegan sess í borgarlífinu í febrúar og nú vilja veitingastaðir úti á landi bjóða upp á spennandi matseðil í stórbrotinni íslenskri náttúru á þessum tíma árs. "Atvinnumálanefnd telur um áhugavert verkefni að ræða sem kynnir Ísafjarðarbæ með jákvæðum hætti. Mikilvægt er að verkefnið nái fótfestu þannig að sem flestir veitingastaðir geti tekið þátt í framtíðinni“, segir í bókun atvinnumálanefndar. 7.2.2008 10:19 Hörmulegt atvik „Þetta var hörmulegt atvik, en ég á eftir að sjá skýrslur sem teknar voru í málinu og fyrr tjái ég mig ekki um það," segir Margrét Frímannsdóttir, settur forstöðumaður fangelsisins á Litla Hrauni, aðspurð um þann atburð þegar fangi lést í klefa sínum í fangelsinu. Í fréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld var greint frá því að maðurinn hafi látist af völdum meþadon eitrunar, en meþadon er mjög sterkt verkjalyf. 7.2.2008 21:23 Búið að opna Grindavíkurveg. Grindavíkurvegur er opinn á ný eftir að björgunarsveitarmönnum tókst að draga veghefil sem stóð fastur þvert yfir veginn. Björgunarsveitar menn hafa haft í nógu að snúast á Suðurnesjum í dag og er áætlað að þeir hafi komið 400 til 500 bílum til aðstoðar í dag í Reykjanesbæ einum. 7.2.2008 22:42 Vinstri-grænir ánægðir með REI skýrsluna og þakka Svandísi vel unnin störf Félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði í Reykjavík eru ánægðir með skýrslu stýrihópsins sem fjallaði um REI málið. Á félagsfundi sem haldinn var fyrr í kvöld var eftirfarandi ályktun samþykkt: 7.2.2008 22:26 Mikil ófærð og almenningssamgöngur úr skorðum Mikil ófærð er nú víða um land og veður vont. Vegir eru víða lokaðir og samgöngur hafa farið úr skorðum. Rútuferðir á milli Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar hafa verið aflagðar sem og strætisvagnaferðir í Reykjanesbæ. 7.2.2008 21:06 Segir REI málið hafa veikt stöðu sína Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri vissi ekki af beinni aðkomu FL-group við gerð þjónustusamnings milli Orkuveitunnar og REI. Hann segir REI málið hafa veikt stöðu sína í borgarstjórn en telur sér stætt á að halda áfram þar sem hann hafi ekki brotið af sér. 7.2.2008 20:57 Farþegar strandaglópar í Leifsstöð frá því í morgun Farþegar sem fljúga áttu með Iceland Express í morgun til Kaupmannahafnar og London bíða enn eftir að farið verði á loft. Tvívegis hafa farþegarnir farið út í vél en jafnoft hefur verið hætt við flugtak. Á meðan hafa vélar frá Icelandair flogið til og frá landinu. Forstjóri Iceland Express segir það skýrast af mismunandi öryggiskröfum og ólíkum flugvélum. 7.2.2008 20:42 Bar umboð sitt undir borgarlögmann áður en farið var í viðræður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi og tilvonandi borgarstjóri í Reykjavík segist hafa borið umboð sitt í REI málinu svokallaða undir borgarlögmann áður en hann fór í málið. „Ég fékk úr þessu skorið og það hefði ekki hvarflað að mér að gera þetta án þess að vera með umboð," sagði Vilhjálmur í Kastljósi Ríkisútvarpsins fyrir stundu. 7.2.2008 20:21 Fjölskyldu gert að fara af kirkjujörð Illa heiðrar kirkjan minningu séra Péturs í Laufási með því að neyða fjölskyldu hans burt af jörðinni, segir kona í Grýtubakkahreppi í opnu bréfi til biskups. 97% sóknarbarna vilja að fjölskylda hans fái áfram að búa á Laufási en kirkjan segist verða að fara að reglum. 7.2.2008 18:54 Fanginn lést úr meþadon eitrun Fanginn sem lést á Litla Hrauni í september síðastliðnum lést ekki af eðlilegum ástæðum eins og í fyrstu var talið heldur úr meþadoneitrun. Meþadonið fékk hann hjá afleysingalækni fangelsinsins. Fjölskylda fangans hyggst stefna ríkinu. 7.2.2008 18:30 Kjaraviðræður töfðust vegna veðurs Kjaraviðræður á milli Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar halda áfram á laugardag. Þær töfðust nokkuð í dag vegna veðurs. 7.2.2008 17:44 SBK hættir að keyra vegna veðurs Fyrirtækið SBK, sem sér um strætisvagnaferðir í Reykjanesbæ er hætt akstri í dag vegna veðurs. Fulltrúi fyrirtækisins segir að blindbylur sé nú í bænum og ekkert vit í því að reyna að halda áfram akstri. Hann biður foreldra að huga að börnum sínum ef þau hafa ætlað heim í strætó. 7.2.2008 17:42 Mitt Romney hættur Mitt Romney hefur nú staðfest þann orðróm að hann sé hættur við að sækast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum fyrir komandi forsetakostningar. Þetta kom fram í ræðu sem Romney hélt nú rétt í þessu. 7.2.2008 17:20 Ekkert athugavert við aðkomu FL Group Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs FL Group, segir að félagið telji ekkert athugavert við aðkomu FL Group eða Geysis Green Energy í samningaviðræðum sínum við Reykjavik Energy Invest og Orkuveitu Reykjavikur eins og gefið sé til kynna í skýrslu stýrihóps Svandísar Svavarsdóttur. 7.2.2008 17:01 Sex ára fangelsi fyrir að skjóta á eiginkonuna Hæstiréttur dæmdi í dag Ólaf Þór Guðmundsson í sex ára fangelsi fyrir að skjóta að eiginkonu sinni með haglabyssu á heimili þeirra á Vestfjörðum síðastliðið sumar. 7.2.2008 16:49 Höfuðlaust lík fannst í London Höfuðlaust lík manns fannst bakvið verslun í norðvesturhluta Lundúna í gær. Fyrstu rannsóknir benda til að höfuðið hafi verið tekið af eftir að maðurinn dó samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. 7.2.2008 16:34 Ólafur Friðrik: Sigur fyrir Reykjavíkurborg Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri fagnar niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli borgarinnar gegn olíufélögunum. Í tilkynningu frá borginni kemur fram að Ólafur telji niðurstöðuna sigur fyrir Reykjavíkurborg. 7.2.2008 16:33 Móður ungs fíkils ekki sagt frá unglingadeild SÁÁ 7.2.2008 16:27 Sjá næstu 50 fréttir
Fíkniefnahundar fundu hass á heilbrigðsstofnun í borginni Fíkniefnaleitarhundar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa enn og aftur sannað gildi sitt undanfarna daga. 8.2.2008 13:56
Picasso verkum stolið úr sýningarsal Tveimur málverkum eftir Pablo Picasso var stolið af svissneskri listasýningu á verkum meistarans á miðvikudag. Verkunum var stolið eftir lokun sýningarsalarins í bænum Pfaeffikon í Zurich. 8.2.2008 13:54
Fáir óku of hratt yfir ein stærstu gatnamót landsins Brot 51 ökumanns var myndað þegar þeir óku yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar til norðurs frá miðvikudegi til föstudags. 8.2.2008 13:40
Brunuðu frá snjóflóðum á Óshlíð Vegagerðin hefur lokað þremur vegum á Vestfjörðum eftir að snjóflóð hafa fallið á þá. 8.2.2008 13:19
Funduðu um útvistun á skráningu sjúkraskráa Fulltrúar læknaritara áttu í morgun fund með forstöðumönnum Landspítalans þar sem rætt var um útvistun á störfum læknaritara á sjúkrahúsinu. 8.2.2008 13:12
Umfangsmikilli leit að íslenskum pilti ekki haldið áfram í dag Leit að 18 ára íslenskum pilti á Jótlandi í Danmörku hefur enn engan árangur borið. Umfangsmikilli leit með leitarhundum og þyrlu á svæði umhverfis bíl hans verður ekki haldið áfram í dag. 8.2.2008 12:27
Telur olíudóm fordæmisgefandi fyrir önnur skaðabótamál Dómur Hæstaréttar í máli Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum er fordæmisgefandi varðandi önnur skaðabótamál gegn félögunum. Þetta er mat lögmanns Reykjavíkurborgar. 8.2.2008 12:13
Steinþór vill starfsfrið Stjórendur Sláturfélags Suðurlands vilja að friður skapist innan sölu- og markaðsdeildar og segja fréttir Vísis af starfsmannamálum hjá Sláturfélaginu orðum auknar og beinlínis rangar. 8.2.2008 12:07
Lokaðist inni á milli tveggja flóða úr Óshlíð Ökumaður bíls lokaðist inni á milli tveggja flóða sem féllu á veginn um Óshlíð um hádegisbil. Að sögn lögreglunnar á Ísafiði varð honum ekki meint af og er hann nú kominn til Bolungarvíkur. 8.2.2008 12:01
Smyglfarþegar gasflutningabíls á sjúkrahúsi Átta manns eru á sjúkrahúsi með snert af gaseitrun eftir að þeir fundust í tanki gasflutningabíls frá Þýskalandi í suðurausturhluta London. Laumufarþegarnir uppgötvuðust þegar bílstjórinn stöðvaði á Harrow Manorway í Bexley til að athuga farminn. 8.2.2008 12:00
Aðstoðarlandlæknir segir meþadon einungis notað við fráhvörfum Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að meþadon sé ekki notað sem verkjalyf í fangelsum hér á landi. Það sé hins vegar mikið notað í flestum fangelsum til að fást við fráhvörfseinkenni ef sjúklingur hefur verið í fíkniefnaneyslu. 8.2.2008 11:53
Fyrrverandi framsóknarkona aðstoðar Ólaf Friðrik Ólöf Guðný Valdimarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ólafs Friðriks Magnússonar borgarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 8.2.2008 11:36
Á rétt á bótum vegna vinnuslyss Héraðsdómur Reykjavíkur komst að því í dag að starfsmaður Myllunnar ætti rétt á skaðabótum vegna slyss sem hann varð fyrir í vinnu sinni. 8.2.2008 11:33
Samhæfingarmiðstöðin virkjuð um miðjan dag vegna vonskuveðurs Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð verður virkjuð klukkan fjögur í dag vegna vonskuveðurs sem gengur yfir landið síðdegis og fram á nótt. 8.2.2008 11:13
Al Kaída áformar hryðjuverk í Þýskalandi Hryðjuverkasamtökin Al Kaída áforma hryðjuverk í Þýskalandi samkvæmt frétt þýska dagblaðsins Die Welt í dag. Blaðið vitnar í þýska aðstoðarinnanríkisráðherrann August Hanning. 8.2.2008 11:09
Eigendafundur hjá Orkuveitunni eftir viku Fulltrúi Akraneskaupstaðar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur segir að nær hefði verið að láta óháða nefnd fara yfir REI-málið í stað þess að stýrihópur á vegum borgarinnar gerði það. Fyrirhugaður er eigendafundur í Orkuveitunni eftir viku þar sem reiknað er með að málefni REI verði tekin upp. 8.2.2008 10:57
Sarkozy blæs nýju lífi í úthverfi Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti er að leggja lokahönd á áætlun um að blása nýju lífi í úthverfi sem aðallega eru byggð innflytjendum. Meðal áforma er betri menntun og atvinnumöguleikar, sérstaklega fyrir ungt fólk. 8.2.2008 10:51
Rektor Háskóla Íslands flutti erindi um loftlagsmál Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flutti í dag erindi á alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsmál á vegum tækni- og vísindastofnunarinnar TERI í Indlandi. 8.2.2008 10:43
Byssumaður banaði fimm í ráðhúsi St. Louis Byssumaður skaut fimm manns til bana í ráðhúsi St. Louis í Bandaríkjunum og særði fjóra, þar á meðal borgarstjórann, áður en lögregla skaut hann banaskoti. Byssumaðurinn var þekktur fyrir að hafa óbeit á borgarfulltrúum og embættismönnum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum lögreglu réðist byssumaðurinn inn á fund í ráðhúsinu og öskraði „Skjótið borgarstjórann!" 8.2.2008 10:17
Enn miklar raskanir á flugsamgöngum Farþegar sem fljúga áttu með Iceland Express í gærmorgun frá Kaupmannahöfn bíða þess enn að vélin fari á loft. Matthías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að haldið sé í strangar öryggiskröfur og að ekki sé farið í loft ef flugöryggi sé ógnað. 8.2.2008 10:16
Fartölvum sem stolið var í FSu komið til skila Fartölvur sem stolið var úr Fjölbrautaskóla Suðurlands komu í leitirnar eftir að athugulir menn lásu um þjófnaðinn í héraðsblöðunum á Selfossi. 8.2.2008 10:11
Umferð um Þrengslin gengur vel Umferð um Þrengslin gengur vel en Hellisheiðin er enn lokuð. Að sögn lögreglunnar á Selfossi eru snjómosktursbílar byrjaðir að moka heiðina en ekki liggur fyrir hvenær hún verður opnum. 8.2.2008 10:01
Vill styrkja Food & fun Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar mælir með að bærinn styrki matarhátíðin Fóður og fjör sem haldin verður m.a. á veitingastaðnum Við Pollinn um 50.000 krónur. Rúmlega tugur veitingastaða ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerðar auk þess sem hvert landsvæði ætlar að kynna það sem er að vetrarlagi. Á undanförnum árum hefur matarhátíðin Food & fun í Reykjavík áunnið sér veglegan sess í borgarlífinu í febrúar og nú vilja veitingastaðir úti á landi bjóða upp á spennandi matseðil í stórbrotinni íslenskri náttúru á þessum tíma árs. "Atvinnumálanefnd telur um áhugavert verkefni að ræða sem kynnir Ísafjarðarbæ með jákvæðum hætti. Mikilvægt er að verkefnið nái fótfestu þannig að sem flestir veitingastaðir geti tekið þátt í framtíðinni“, segir í bókun atvinnumálanefndar. 7.2.2008 10:19
Hörmulegt atvik „Þetta var hörmulegt atvik, en ég á eftir að sjá skýrslur sem teknar voru í málinu og fyrr tjái ég mig ekki um það," segir Margrét Frímannsdóttir, settur forstöðumaður fangelsisins á Litla Hrauni, aðspurð um þann atburð þegar fangi lést í klefa sínum í fangelsinu. Í fréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld var greint frá því að maðurinn hafi látist af völdum meþadon eitrunar, en meþadon er mjög sterkt verkjalyf. 7.2.2008 21:23
Búið að opna Grindavíkurveg. Grindavíkurvegur er opinn á ný eftir að björgunarsveitarmönnum tókst að draga veghefil sem stóð fastur þvert yfir veginn. Björgunarsveitar menn hafa haft í nógu að snúast á Suðurnesjum í dag og er áætlað að þeir hafi komið 400 til 500 bílum til aðstoðar í dag í Reykjanesbæ einum. 7.2.2008 22:42
Vinstri-grænir ánægðir með REI skýrsluna og þakka Svandísi vel unnin störf Félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði í Reykjavík eru ánægðir með skýrslu stýrihópsins sem fjallaði um REI málið. Á félagsfundi sem haldinn var fyrr í kvöld var eftirfarandi ályktun samþykkt: 7.2.2008 22:26
Mikil ófærð og almenningssamgöngur úr skorðum Mikil ófærð er nú víða um land og veður vont. Vegir eru víða lokaðir og samgöngur hafa farið úr skorðum. Rútuferðir á milli Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar hafa verið aflagðar sem og strætisvagnaferðir í Reykjanesbæ. 7.2.2008 21:06
Segir REI málið hafa veikt stöðu sína Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri vissi ekki af beinni aðkomu FL-group við gerð þjónustusamnings milli Orkuveitunnar og REI. Hann segir REI málið hafa veikt stöðu sína í borgarstjórn en telur sér stætt á að halda áfram þar sem hann hafi ekki brotið af sér. 7.2.2008 20:57
Farþegar strandaglópar í Leifsstöð frá því í morgun Farþegar sem fljúga áttu með Iceland Express í morgun til Kaupmannahafnar og London bíða enn eftir að farið verði á loft. Tvívegis hafa farþegarnir farið út í vél en jafnoft hefur verið hætt við flugtak. Á meðan hafa vélar frá Icelandair flogið til og frá landinu. Forstjóri Iceland Express segir það skýrast af mismunandi öryggiskröfum og ólíkum flugvélum. 7.2.2008 20:42
Bar umboð sitt undir borgarlögmann áður en farið var í viðræður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi og tilvonandi borgarstjóri í Reykjavík segist hafa borið umboð sitt í REI málinu svokallaða undir borgarlögmann áður en hann fór í málið. „Ég fékk úr þessu skorið og það hefði ekki hvarflað að mér að gera þetta án þess að vera með umboð," sagði Vilhjálmur í Kastljósi Ríkisútvarpsins fyrir stundu. 7.2.2008 20:21
Fjölskyldu gert að fara af kirkjujörð Illa heiðrar kirkjan minningu séra Péturs í Laufási með því að neyða fjölskyldu hans burt af jörðinni, segir kona í Grýtubakkahreppi í opnu bréfi til biskups. 97% sóknarbarna vilja að fjölskylda hans fái áfram að búa á Laufási en kirkjan segist verða að fara að reglum. 7.2.2008 18:54
Fanginn lést úr meþadon eitrun Fanginn sem lést á Litla Hrauni í september síðastliðnum lést ekki af eðlilegum ástæðum eins og í fyrstu var talið heldur úr meþadoneitrun. Meþadonið fékk hann hjá afleysingalækni fangelsinsins. Fjölskylda fangans hyggst stefna ríkinu. 7.2.2008 18:30
Kjaraviðræður töfðust vegna veðurs Kjaraviðræður á milli Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar halda áfram á laugardag. Þær töfðust nokkuð í dag vegna veðurs. 7.2.2008 17:44
SBK hættir að keyra vegna veðurs Fyrirtækið SBK, sem sér um strætisvagnaferðir í Reykjanesbæ er hætt akstri í dag vegna veðurs. Fulltrúi fyrirtækisins segir að blindbylur sé nú í bænum og ekkert vit í því að reyna að halda áfram akstri. Hann biður foreldra að huga að börnum sínum ef þau hafa ætlað heim í strætó. 7.2.2008 17:42
Mitt Romney hættur Mitt Romney hefur nú staðfest þann orðróm að hann sé hættur við að sækast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum fyrir komandi forsetakostningar. Þetta kom fram í ræðu sem Romney hélt nú rétt í þessu. 7.2.2008 17:20
Ekkert athugavert við aðkomu FL Group Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs FL Group, segir að félagið telji ekkert athugavert við aðkomu FL Group eða Geysis Green Energy í samningaviðræðum sínum við Reykjavik Energy Invest og Orkuveitu Reykjavikur eins og gefið sé til kynna í skýrslu stýrihóps Svandísar Svavarsdóttur. 7.2.2008 17:01
Sex ára fangelsi fyrir að skjóta á eiginkonuna Hæstiréttur dæmdi í dag Ólaf Þór Guðmundsson í sex ára fangelsi fyrir að skjóta að eiginkonu sinni með haglabyssu á heimili þeirra á Vestfjörðum síðastliðið sumar. 7.2.2008 16:49
Höfuðlaust lík fannst í London Höfuðlaust lík manns fannst bakvið verslun í norðvesturhluta Lundúna í gær. Fyrstu rannsóknir benda til að höfuðið hafi verið tekið af eftir að maðurinn dó samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. 7.2.2008 16:34
Ólafur Friðrik: Sigur fyrir Reykjavíkurborg Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri fagnar niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli borgarinnar gegn olíufélögunum. Í tilkynningu frá borginni kemur fram að Ólafur telji niðurstöðuna sigur fyrir Reykjavíkurborg. 7.2.2008 16:33