Lokaðist inni á milli tveggja flóða úr Óshlíð 8. febrúar 2008 12:01 Frá Óshlíð. Úr myndasafni. MYND/Brynjar Gauti
Ökumaður bíls lokaðist inni á milli tveggja flóða sem féllu á veginn um Óshlíð um hádegisbil. Að sögn lögreglunnar á Ísafiði varð honum ekki meint af og er hann nú kominn til Bolungarvíkur. Veginum á Óshlíð hefur verið lokað og óvíst er hvenær hann verður opnaður aftur. Þá var veginum um Súðavíkurhllíð lokað nú í hádeginu eftir að snjóflóð féll þar á veginn. Snjóflóðahættuna má rekja til snjókomunnar síðustu daga og snöggrar hlýnunar í dag. „Það er búin að vera snjósveifla og svo blotnar í þessu og þá fer það af stað," sagði lögreglumaður á Ísafirði sem Vísir ræddi við. Þá kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar að spáð sé vonskuveðri seinna í dag og í nótt. Úrkoman verði þónokkur, sérstaklega sunnanlands, en það muni hríða um stund á flestum fjallvegum áður en það nær að blotna. Fólk er beðið um að sýna aðgát og athuga með veður áður en lagt er af stað í ferðir.Enn er ófært um Hellisheiði en hálka er í Þrengslunum. Flughálka er frá Hvammi undir Eyjafjöllum að Vík. Á Vesturlandi er skafrenningur og hálka á Holtavörðuheiði. Ófært er um Bröttubrekku og stórhríð. Á Snæfellsnesi er snjóþekja og éljagangur á Vatnaleið en snjóþekja og skafrenningur á Fróðárheiði. Ófært er á Skógarströnd en unnið er að mokstri. Þæfingsfærð og flughálka er í uppsveitum Borgarfjarðar.Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á öllum leiðum ásamt skafrenningi á stöku stað. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Lágheiði er ófær. Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófær.
Mest lesið Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira