Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gæsluvarðhaldskrafa lögð fram yfir Hringbrautarmanninum Lögreglan er nú að leggja fram kröfu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir manninum sem handtekinn fyrir líkamsárás í gær. 8.10.2007 14:32
Indónesi lést úr fuglaflensu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfesti í dag að indónesísk kona frá Pekan Baru-borg á Súmötru hefði látist úr fuglaflensu. Alheimsfaraldur H5N1 fuglaflensustofninum kom upp árið 2003 í Asíu. Síðan þá hafa að minnsta kosti 202 látist úr vírusnum banvæna, þar á meðal fjöldi barna og ungmenna. 8.10.2007 14:31
Síðasti kafbáturinn fundinn Kafarar hafa fundið flakið af síðasta kafbátnum sem Þjóðverjar sendu til Noregs í síðari heimsstyrjöldinni. Það var rétt undir lok stríðsins og talið er að Horden í Noregi hafi verið áfangastaður bátsins. Breskar Mosquito sprengjuflugvélar sökktu honum austan við dönsku eyna Læsö. 8.10.2007 14:29
Engin ný tilfelli af e.coli Engin ný tilfelli af E.coli bakteríusýkingu hafa komið upp en fimm hafa greinst með sýkinguna. Bakterían er mjög skæð og afar sjaldgæft er að hún greinist hér á landi. 8.10.2007 14:17
Ragnar Hall flytur mál Svandísar Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður hefur tekið að sér að flytja mál Svandísar Svavarsdóttur, fulltrúa Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna eigendafundar Orkuveitunnar þar sem tilkynnt var um samruna Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy. 8.10.2007 14:09
Vilja björgunarþyrlu á Hornafirði Bæjarstjórn Hornafjarðar vill að björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Hornafirði. Bæjarstjórnin segir að Hornafjarðarflugvöllur sé mikilvægur hlekkur í björgunar- og öryggisþjónustu í landinu. 8.10.2007 13:57
Kreppuástand meðal sjófuglategunda í Norðurhöfum Kreppuástand ríkir meðal nokkurra sjófuglategunda á víðáttumiklu svæði í Norðurhöfum, þar meðal hjá fýl, ritu, kríu, langvíu og lunda. 8.10.2007 13:47
Ein og hálf milljón flutt frá strandhéruðum Kína Alls hefur tæp hálf önnur milljón Kínverja flúið eða verið flutt frá strandhéruðum landsins eftir að fellibylurinn Krosa gekk þar yfir í gærdag. 8.10.2007 13:24
Langþreyttir á manneklu, álagi og lágum launum Aðaltrúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum segir þá orðna langþreytta vegna manneklu, álags og lágra launa. Hún segir launastefnu hins opinbera í hjúkrunar- og umönnunarstörfum út í hött. 8.10.2007 13:15
Vilja starfsmenn Blackwater fyrir dóm Írösk stjórnvöld hafa krafist þess að vopnaðir starfsmenn verktakafyrirtækisins Blackwater verði dregnir fyrir dóm vegna morða á sautján almennum borgurum í Bagdad í síðasta mánuði. Opinber rannsókn sýni að þeir hafi ekki verið að svara árás þegar þeir hafi skotið á fólkið. 8.10.2007 13:09
Byrgisstúlka vinnur sjálfboðavinnu í sunnudagaskóla Ólöf Ósk Erlendsdóttir, sem vakti athygli í fyrravetur, þegar hún sakaði Guðmund Jónsson í Byrginu um níðingsverk, starfar nú í sjálfboðavinnu í sunnudagaskóla í Grafarvogskirkju. 8.10.2007 12:51
Ringo Starr kemur á morgun Ringo Starr og Olivia Harrison koma til landsins á morgun til að vera viðstödd tendrun friðarsúlunnar. Þau munu þó stoppa stutt hér á landi og fara heim að athöfn lokinni. Enn er ekki útilokað að Paul McCartney sjái sér fært að mæta. 8.10.2007 12:14
Fundur sjálfstæðismanna hafinn Fundur borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna hófst í ráðhúsi Reykjavíkur fyrir skemmstu. Á fundinum munu flokksmenn reyna að leita sátta í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. 8.10.2007 12:13
Litháar gripnir við búðarhnupl í gær Öryggisverðir gripu þrjá Litháa, sem voru að hnupla í Hagkaupum í Smáralind í gær, en tveir til viðbótar sluppu. 8.10.2007 12:05
Orkuveitan selji hluti í REI upp að því marki sem hún setti í fyrirtækið Björn Ingi Hrafnsson ,formaður borgarráðs, vill að Orkuveita Reykjavíkur selji hluti í Reykjavik Energy Invest upp að því marki sem hún setti upphaflega í fyrirtækið. Hann segir að einnig sé ljóst að setja þurfi lög um aðskilnað veitustarfsemi frá samkeppnismarkaði. 8.10.2007 12:01
Horfur á slagviðri þegar friðarsúlan verður tendruð Búast má við að það verði lágskýjað, hvasst og jafnvel rigning annað kvöld þegar Yoko Ono tendrar friðarsúluna í Viðey með formlegum hætti. 8.10.2007 11:52
Vinnukrani rakst á Höfðabakkabrú Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan ellefu í morgun eftir að vinnukrani á vörubifreið rakst á Höfðabakkabrú. Svo virðist sem ökumaður vörubifreiðarinnar hafi ekki áttað sig á því að kraninn var enn uppi. 8.10.2007 11:47
Blaðið verður 24 stundir Nafni Blaðsins verður breytt frá og með morgundeginum og mun það framvegis heita 24 stundir. Fram kemur í tilkynningu frá Árvakri, sem rekur blaðið, að þetta sé hluti af sókn á dagblaðamarkaði sem hófst í sumar og verður nú fram haldið undir nýju nafni og með því að gera efni blaðsins enn aðgengilegra og skemmtilegra. 8.10.2007 11:34
Staðfest að Ringo og Olivia komi Nú hefur verið staðfest að Ringo Starr og Olivia Harrison ekkja Georgs Harrison munu koma til landsins og verða viðstödd í Viðey þegar friðarsúla Yoko Ono verður formlega tekin í notkun á morgun. Hinsvegar hefur Paul McCartney afboðað komu sína. 8.10.2007 11:30
RES semur við bandarískann háskóla um samvinnu Forsvarsmenn RES Orkuskólans á Akureyri undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu við tækniháskólann Colorado School of Mines í Bandaríkjunum um rannsóknir og kennslu í auðlinda- og orkumálum. 8.10.2007 11:15
Réttarrannsókn á láti Díönu prinsessu Meira en 10 árum eftir að Díana prinsessa lést í bílslysi í París hefur réttarrannsókn loks hafist á því hvað gerðist kvöldið örlagaríka þegar hún og ástmaður hennar Dodi Al Fayed létust. 8.10.2007 11:15
Vilja afnema einokun ÁTVR Lagt er til að einokun ÁTVR í sölu léttvíns og bjórs verði afnumin í frumvarpi sem sautján þingmenn úr þremur flokkum standa á bak við. Þetta er í fimmta skiptið sem frumvarpið er lagt fram á Alþingi. 8.10.2007 11:10
Ástsjúkur páfugl skemmir Lexus Breskur aðalsmaður heldur því fram að páfugl hafi valdið skemmdum upp á hálfa milljón króna á Lexus-bíl sínum með því að reyna að hafa kynmök við bílinn. Baróninn sir Benjamin Slade krafði tryggingarfélag sitt um bætur fyrir skaðann með þessari útskýringu á skemmdunum. 8.10.2007 11:07
Sakfelldur fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun karlmann um tvítugt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn með um mánaðarmillibili. 8.10.2007 10:47
Melahverfi kemur út úr skápnum Í síðustu viku voru merkingar við Melahverfi í Hvalfjarðarsveit endurbættar. Sumir þekkja Melahverfið betur undir nafninu Hagamelur. Segja má að Melahverfið hafi verið hálfgert leynihverfi, því það var mjög illa merkt. Farið var fram á bættar merkingar við Vegagerðina og nú eru þær komnar upp. Greint er frá þessu á vefsíðu sveitarinnar 8.10.2007 10:36
Lést eftir líkamsárás Maðurinn sem fannst illa leikinn í íbúð sinni við Hringbraut í Reykjavík í gærdag er látinn. Hann lést af sárum sínum í nótt. 8.10.2007 10:19
Verslun í eigu íslensks verðbréfafyrirtækis hlýtur verðlaun í Lundúnum Verslunin Duchamp Store við Regent Street í Lundúnum, sem er að stórum hluta í eigu íslensks verðbréfafyrirtækis, var útnefnd „besta litla verslunin í London" á verðlaunahátíðinni Retail Interior Awards í Lundúnum í síðustu viku. 8.10.2007 10:16
Kaupþing rannsakað í kjölfar Carnegie-málsins Hið svokallaða Carnegie mál í Svíþjóð teygir nú anga sína um öll Norðurlöndin. Sænska fjármálaeftirlitið hefur hafið rannsókn á átta öðrum norrænum bönkum þar á meðal Kaupþing banka. Hinir bankarnir eru HQ Bank, Kaupthing Bank, Erik Penser Fondkommission, SEB, Swedbank, Öhman og Handelsbanken. Þetta kemur fram í blaðinu Wall Street Journal í morgun. 8.10.2007 10:08
Vilja þingmenn með í baráttu gegn Guantánamo og leynifangelsum Íslandsdeild Amnesty International hefur sent öllum þingmönnum landsins bréf þar sem þeir eru hvattir til að skrifa undir áætlun samtakanna um að binda enda á ólöglegt varðhald í hinu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum. 8.10.2007 09:47
Segist vita hver myrti Politkovskaju Ritstjóri á rússneska blaðinu Novaja Gazeta segist vita hver drap rússnesku blaðakonuna Önnu Politkovskaju. Í gær var nákvæmlega eitt ár frá því að Politkovskaja var myrt fyrir utan heimili sitt í Moskvu. 8.10.2007 09:34
Minkur í Eyjabát Sprelllifandi minkur sást um borð í fiskiskipinu Stíganda VE í Vestmannaeyjahöfn á laugardag, en eyjamenn hafa til þessa prísað sig sæla að vera lausir við þann vágest. 8.10.2007 08:34
Fjallagórillur í stríðsátökum í Kongó Uppreisnarmenn í Kongó hafa nú tekið yfir svæði í austurhluta landsins þar sem helmingur af fjallagórillum heimsins búa. Górillurnar eru í töluverðri útrýmingarhættu og hafa umhverfissinnar miklar áhyggjur af þróun mála. 8.10.2007 08:11
Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Það ræðst í dag hvort lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni, sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á alvarlegri líkamsárás í húsi við Hringbraut í gærdag. 8.10.2007 08:05
Sjálfstæðismenn funda í dag Borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins koma saman til fundar í dag til að ræða aðild Orkuveitu Reykjavíkur að sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og verður jafnvel boðað til blaðamannafundar að honum loknum. 8.10.2007 08:00
Öryggismál í skoðun eftir skemmdarverk á Monet Öryggismál á frönskum söfnum er nú til endurskoðunnar þar í landi eftir að þekkt verk á þeim hafa ítrekað verið skemmd eða þeim stolið. Síðasta dæmið um skemmdarverk á þekktu klassísku málverki átti sér stað á Musee d' Orsay safninu í gærmorgun. 8.10.2007 07:55
Interpol leitar til almennings Alþjóðalögreglan Interpol hefur sett í gang alþjóðlegt átak til að hafa upp á manni sem grunaður er að hafa sett myndir á netið sem sýna hann nauðga ungum drengjum. 8.10.2007 07:35
Líklega ekki kosningar fyrr en eftir tvö ár Forsætisráðherra Breta liggur undir ámæli andstæðinga sinna fyrir að boða ekki til þingkosninga á þessu ári líkt og hann hafði gefið í skyn. 7.10.2007 18:50
Í lífshættu eftir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri liggur lífshættulega slasaður á gjörgæsludeild eftir líkamsárás sem hann varð fyrir á heimili sínu í vesturbæ Reykjavíkur. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins sem enn er í rannsókn. 7.10.2007 18:27
Yoko og Sean Lennon komin, Ringo er á leiðinni Yoko Ono er komin til landsins til að tendra friðarsúluna í Viðey sem mun lýsa upp íslenskan næturhimin í minningu John Lennon. Sean, sonur þeirra hjóna, er einnig í Reykjavík. Mikið umstang var í Viðey í dag þegar langferðarbílar voru fluttir þangað út. Trymbillinn Ringo er hins vegar ekki enn mættur en von á honum um eða eftir helgina. 7.10.2007 18:09
24 slösuðust í sprengingu 24 slösuðust þegar mikil gassprenging varð í íbúð í Harlem hverfi New York borgar í gær. 7.10.2007 15:09
Formannsskipti í UJ Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, sem nú stendur yfir í Reykjavíl mun nýr formaður formlega taka við völdum. Við formennskunni tekur Anna Pála Sverrisdóttir en Magnús Már Guðmundsson hefur verið formaður undanfarin ár. 7.10.2007 14:36
Drykkjuleikur kemur Bretaprins í bobba Harry Bretaprins er aftur kominn í fréttirnar á Englandi eftir að myndir sem sýna hann sjúga vodka í nefið birtust í fjölmiðlum. 7.10.2007 14:05
Slysagildra í Salahverfi Í Salahverfi í Kópavogi er ekkert sem varar fólk við vatni sem fyllir undirgöng undir Fífuhvammsveg. Mikið vatn hefur safnast þar fyrir í rigningunum að undanförnu og er nú svo komið að ekki er hægt að komast þarna í gegn. Því verður fólk að fara yfir veginn. Börn hafa talsvert sótt í að leika sér í og við göngin sem sjást illa frá veginum. 7.10.2007 12:35
Aðsóknarmet í sundlaugina í Bolungarvík Fjöldi gesta í sundlaugina í Bolungarvík hefur aldrei verið meiri en undanfarna daga. Um síðustu helgi sóttu um 400 manns sundlaugina heim sem er aðsóknarmet. 7.10.2007 12:31
Bjarni græðir tæpa milljón á hvern starfsmann OR Hluturinn sem Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, fékk að kaupa í dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, á genginu 1,28, er nú metinn af REI á 1082 milljónir. 7.10.2007 10:56