Vilja starfsmenn Blackwater fyrir dóm 8. október 2007 13:09 Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill að Blackwater-menn verði dregnir til ábrygðar vegna morðanna í síðasta mánuði. MYND/AP
Írösk stjórnvöld hafa krafist þess að vopnaðir starfsmenn verktakafyrirtækisins Blackwater verði dregnir fyrir dóm vegna morða á sautján almennum borgurum í Bagdad í síðasta mánuði. Opinber rannsókn sýni að þeir hafi ekki verið að svara árás þegar þeir hafi skotið á fólkið. Tuttugu og þrír særðust í skotárásinni þann sextánda síðasta mánaðar. Í fyrstu var sagt að ellefu hefðu týnt lífi en nú hefur rannsókn íraskra yfirvalda leitt í ljós að sex til viðbótar hefðu fallið fyrir byssukúlum Blackwater-manna. Fyrirtækið er með margar milljóna dala samninga við bandarísk stjórnvöld og falið að gæta sendifúlltrúa og háttsettra erlendra gesta í Írak. Ný skýrsla þingnefndar hefur gagnrýnt starfsemi og rekstur Blackwater, sem og annarra verktakafyrirtækja í Írak, en vopnaðir starfsmenn þeirra eru sagðir vel á annað hundrað þúsund í landinu. Þeir hafa tekið að sér ýmis verk sem áður voru á könnu hermanna. Rannsókn íraskra yfirvalda er einnig sögð sýna að ekki hafi verið skotið á liðsmenn Blackwater áður ein þeir hafi hleypt af - en þeir hafa fullyrt að skothríð þeirra hafi verið svar við árás.Það var Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, sem skipaði nefndina sem nú hefur skilað niðurstöðu sinni. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur falið bandarísku alríkislögreglunni, FBI, að rannsaka atburðinn.Írakar eru æfir og vilja að Blackwater-menn verði sóttir til saka. Írösk stjórnvöld krefjast þess nú líka og munu lög hafa verið undirbúin sem færa verktaka í Írak undir þarlend lög. Vopnaðir verðir sem ráðnir hafa verið af bandarískum yfirvöldum í Írak njóta friðhelgi og er ekki hægt að lögsækja þá samkvæmt samkomulagi sem Írakar og Bandaríkjamenn gerðu með sér árið 2003. Þessu vilja írösk yfirvöld nú breyta.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Sjá meira