Innlent

Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag

Það ræðst í dag hvort lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni, sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á alvarlegri líkamsárás í húsi við Hringbraut í gærdag.

Lögregla gefur ekki upp hvort hann hafi játað aðild að málinu. Hinum slasaða, sem var meðvitundarlaus og með mikla áverka þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×