Innlent

Í lífshættu eftir líkamsárás

Karlmaður á fimmtugsaldri liggur lífshættulega slasaður á gjörgæsludeild eftir líkamsárás sem hann varð fyrir á heimili sínu í vesturbæ Reykjavíkur. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins sem enn er í rannsókn.

Maðurinn sem er á fimmtugsaldri er mjög alvarlega slasaður og er í lífshættu. Hann er með alvarlega áverka á höfði og liggur nú meðvitundarlaus á gjörgæsludeild.

Það var um klukkan hálf tvö í dag sem komið var að manninum þar sem hann lá rænulaus í blóði sínu. Það var kunningi mannsins sem kom að honum og gerði lögreglu viðvart. Strax var ljóst hve alvarleg árásin var en í fyrstu var ekki vitað hvenær hún átti sér stað né hver árásarmaðurinn var. Rannsóknardeild lögreglunnar var kölluð til og þegar fréttastofa kom á vettvang var hún enn að störfum.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, sagði í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir að fljótlega eftir að rannsókn hófst hafi kunninginn verið handtekinn grunaður um verknaðinn. Hann hefur enn ekki verið yfirheyrður þar sem færa þurfti hann í blóðprufu. Þá sagði Friðrik Smári ekki vera viss um hvenær yfirheyrslur gætu hafist, það færi eftir ástandi hins grunaða. Á morgun verður tekin ákvörðun um það hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×