Innlent

Vilja afnema einokun ÁTVR

Aðeins ÁTVR verður heimilt að selja sterkt áfengi samkvæmt frumvarpinu.
Aðeins ÁTVR verður heimilt að selja sterkt áfengi samkvæmt frumvarpinu. MYND/GVA

Lagt er til að einokun ÁTVR í sölu léttvíns og bjórs verði afnumin í frumvarpi sem sautján þingmenn úr þremur flokkum standa á bak við. Þetta er í fimmta skiptið sem frumvarpið er lagt fram á Alþingi.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að smásölum verði gert heimilt að selja áfengi sem er minna 22 prósent af styrk. ÁTVR mun hins vegar áfram hafa einkaleyfi í sölu sterks áfengis. Þá verður útsöluverð á léttvíni og bjór gefið frjálst en tekið fram að bannað sé að selja áfengi undir kostnaðarverði. Eiga lögin að öðlast gildi 1. júlí á næsta ári.

Alls standa 17 þingmenn úr Framsóknarflokk, Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu að frumvarpinu. Þar á meðal Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnarsson, Birkir J. Jónsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.

Frumvarpið hefur fjórum sinnum áður verið lagt fram á Alþingi í sömu mynd. Þá var flutningsmaður frumvarpsins Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Lengst komst málið rétt fyrir kosningar í vor þegar meirihluti allsherjarnefnd Alþingis kláraði umfjöllun um það og lagði til að það yrði samþykkt. Aðeins fulltrúar Vinstri grænna í allsherjarnefnd lögðust gegn málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×