Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maddie var á lífi á ströndinni Einkaspæjari sem McCann-hjónin réðu til að leita að dóttur sinni Madeleine McCann telur sig hafa fundið erfðaefni úr henni á ströndinni nálægt sumarleyfisdvalarstað McCann-fjölskyldunnar í Portúgal. 7.10.2007 09:11
Stuðlabergið tískufyrirbrigði? Þrjú þúsund tonna stuðlabergsklæðning sem þekja mun menningarhúsið á Akureyri hefur vakið mikla athygli. Svo gæti farið að stuðlabergið yrði að tískufyrirbrigði. 6.10.2007 18:45
Skítur og viðbjóður á flugvellinum Frárennslislagnirnar á Reykjavíkurflugvelli hafa verið stíflaðar frá því í febrúar með tilheyrandi sóðaskap og óþægindum.Enginn kannast við að bera ábyrgð á lögnunum. 6.10.2007 18:45
Milljónatjón verður úr sögunni Tugmilljónatjón verður árlega þegar ökumenn dæla röngu eldsneyti á bíla sína. Þetta tjón getur heyrt sögunni til því fram er komin ný lausn sem á að tryggja að ekki er lengur hægt að dæla röngu eldsneyti á bílinn. 6.10.2007 18:41
ÖBÍ fagnar stefnu stjórnvalda Á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands sem lauk í dag var einróma samþykkt ályktun þar sem stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðakerfinu er fagnað. ÖBÍ leggur áherslu á að skipulagt verði eitt nýtt og betra almannatryggingakerfi fyrir alla landsmenn. 6.10.2007 16:03
Selja lykil að lífi Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar til styrktar geðsjúkum og aðstandendum þeirra, Lykill að lífi, stendur nú sem hæst. Um þúsund fótgönguliðar úr Kiwanisklúbbum um land allt ganga í hús, ásamt fjölmörgum aðstoðarmönnum sem leggja þeim lið við sölu K-lykilsins. 6.10.2007 14:21
Dómsmálaráðherra: Dapurlegt tímanna tákn að Alfreð skuli verja sjálfstæðismenn í OR Björn Bjarnason dómsmálaráðherra heldur áfram að fjalla um málefni Orkuveitu Reukjavíkur og Reykjavík Energy Invest á bloggi sínu. Í gærkvöld skrifaði hann að í ljósi þess sem á undan er gengið og gagnrýni sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur á Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformann OR, hefði verið dapurlegt að horfa á hann í Kastljósi og verja stjórnahætti núverandi meirihluta. 6.10.2007 13:50
Musharraf hlaut yfirburðakosningu Pervez Musharraf forseti Pakistan vann yfirburðasigur í forsetakosningum sem fram fóru í dag. Búist hafði verið við því að Musharraf yrði fyrir valinu en hæstiréttur landsins segir mögulegt að framboð hans sé ekki löglegt. 6.10.2007 12:38
Hafa áhyggjur af örlögum mótmælenda í Búrma Fyrrverandi fangar herstjórnarinnar í Búrma hafa lýst yfir miklum áhyggjum af örlögum mótmælenda sem hnepptir hafa verið í varðhald í mestu mótmælum í landinu í áratugi. 6.10.2007 12:31
Tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun Tilkynnt var um að eldur væri laus í gömlu húsi við Búðarstíg á Eyrarbakka laust eftir klukkan 16:00 í gær. Sjúkraflutningamenn voru fyrstir á staðinn og voru húsráðandi og gestir komnir út. 6.10.2007 11:40
Fimm létust í sprengjutilræði Einn bandarískur hermaður og fjórir óbreyttir borgarar létu lífið í Afganistan í morgun þegar bílasprengja sprakk á veginum til flugvallarins í Kabúl á sex ára afmæli innrásar Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra inn í landið. Einn þeirra sem lést var tilræðismaðurinn sjálfur. Tilræðinu var beint að bandarískri hersveit sem ber ábyrgð á þjálfun afganskra her- og lögreglumanna. 6.10.2007 11:23
Rafmagnslaust á Húsavík Rafmagnslaust er á Húsavík sem stendur. Rarik vinnur að viðgerðum en vitlaust veður er í bænum, norðanátt og slydda. Einn viðmælandi Vísis á Húsavík lýsti yfir áhyggjum af því að ekki næðist útvarp á svæðinu en svo virðist sem útvarpssendingar Ríkisútvarpsins liggi niðri í rafmagnsleysinu. 6.10.2007 11:02
Jón forseti Fundur Alþjóðsamtaka lækna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn kaus í dag Jón Snædal lækni til þess að gegna embætti forseta samtakanna. Jón er 58. forseti samtakanna og fyrsti Íslendingurinn sem gegnir starfinu. Jón hefur verið varaformaður Læknafélags Íslands og formaður siðanefndar Alþjóðasamtaka lækna. 6.10.2007 10:10
Vilhjálmur óttast um öryggi sitt Vilhjálmur Bretaprins er áhyggjufullur um öryggi sitt eftir að hann og kærasta hans Kate Middleton voru hundelt af paparazzi ljósmyndurum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu konungsfjölskyldunnar var parið elt þar sem þau voru í bíl á leið af næturklúbbi í London. Myndir af þeim voru síðan birtar í the London Evening Standard. 6.10.2007 10:10
Vatnstjón í vesturbæ Reykjavíkur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að fjölbýlihúsi í vesturbæ Reykjavíkur laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði gleymst að skrúfa fyrir krana í eldhúsi íbúðar á þriðju hæð með þeim afleiðingum að vatn lak niður á hæðina fyrir neðan. 6.10.2007 10:09
Vilja viðræður við mótmælendur í Búrma Leiðtogar á vesturlöndum hafa dreyft uppkasti að yfirlýsingu innan Sameinuðu þjóðanna þar sem ofbeldi og kúgun herstjórnarinnar í Búrma gegn mótmælendum í landinu er fordæmd. Bandaríkin Frakkland og Bretland hafa farið fram á að viðræður við leiðtoga mótmælendanna hefjist tafarlaust. 6.10.2007 10:08
Forsetakosningar í Pakistan Forsetakosningar fara fram í Pakistan í dag. Það eru þingmenn fjögurra héraðsþinga og báðar deildir þjóðþingsins sem kjósa forsetann í leynilegri kosningu. Búist er við að núverandi forseti Pervez Musharraf verði fyrir valinu. Hæstiréttur landsins segir hins vegar að ekki sé ljóst hvort Musharraf hafi lagalegan rétt til að bjóða sig fram á sama tíma og hann er herforingi. 6.10.2007 10:06
Tekinn tvisvar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður var tvisvar í nótt stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á Akranesi stöðvaði manninn fyrst laust fyrir miðnætti í gær. 6.10.2007 10:04
Nítján teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsverð ölvun var í miðbæ Reykjavíkur og nokkuð um pústra að sögn lögreglu. 6.10.2007 10:01
Tvær bílveltur á Ísafirði Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði í nótt. Klukkan hálfþrjú fór fólksbíll útaf veginum í Hnífdal með þrjá farþega, allt ungmenni, innanborðs. Öll þrjú voru flutt á sjúkrahús með minniháttar meiðsli. 6.10.2007 09:34
Ísafjarðarbær samþykkir nýtt stjórnskipulag Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær nýtt stjórnskipulag fyrir Ísafjarðarbæ. Hinu nýja stjórnskipulagi er ætlað að bæta þjónustu og auka skilvirkni. 5.10.2007 21:23
Dagar veiðisamfélagsins taldir? Bakkfirðingar spyrja sig hvort dagar íslensks veiðisamfélags séu taldir. Þeim sýnist eina mótvægisaðgerð stjórnvalda verða sú að íbúarnir skiptist á um að mála rafmagnsskúr. 5.10.2007 20:28
Borgarstjóri klagaður Fréttastofa Sjónvarps greindi frá því í fréttum sínum í kvöld að allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins nema Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hafi gengið á fund formanns flokksins, Geirs H. Haarde og varaformanns, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur til þess að greina þeim frá óánægju sinni með vinnubrögð Vilhjálms við sameiningu REI og GGE. 5.10.2007 19:06
Eru einkarekin fangelsi hagkvæm? Dómsmálaráðherra hyggst skoða það í fullri alvöru hvort einkarekstur sé hagkvæmur kostur til að koma nýju fangelsi á höfuðborgarsvæðinu á laggirnar. 5.10.2007 18:45
Ofvirkniaukandi E-efnablanda Neytendasamtökin hvetja neytendur til að sneiða hjá matvælum sem innihalda blöndu af litarefnum og rotvarnarefni sem nýleg bresk rannsókn bendir til að auki ofvirkni barna. 5.10.2007 18:45
Villi ekki rúinn trausti Borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, Júlíus Vífill Ingvarsson, gagnrýnir harðlega aðdraganda samruna orkuútrásarrisanna en segir það fjarri sanni að borgarstjóri sé rúinn trausti flokkssystkina sinna. Viðskiptaráðherra segir að tryggja þurfi með lögum að einkaaðilar geti ekki eignast meirihluta í almannaveitum eða auðlindirnar sjálfar. 5.10.2007 18:30
Þýfi Litháana átti að nota til að fjármagna fíkniefnasölu Þýfi fimmtán Litháa, sem nú hafa verið handteknir fyrir umfangsmikinn búðaþjófnað, var að öllum líkindum gjaldmiðill í fíkniefnaviðskiptum og áttu fíkniefnin að fara á markað hér. Öryggisvörður varð fyrir líkamsárás þegar hann reyndi að stöðva tvo þeirra við iðju þeirra. 5.10.2007 18:03
Lettarnir aldrei starfsmenn GT verktaka Gt verktakar, sem nýverið voru kærðir fyrir að hafa ekki staðið rétt að launagreiðslum til 13 lettneskra verkamanna sem voru á þeirra vegum að vinna við aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunnar, segja að umræddir verkamenn séu ekki, og hafi aldrei verið starfsmenn fyrirtækisins. 5.10.2007 17:37
Miklar umferðartafir á Miklubraut Umferðarslys varð við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir skömmu sem hefur valdið miklum töfum við gatnamótin. Engin slys urðu á fólki en olía lak á götuna. 5.10.2007 17:22
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna fundar um helgina Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna mun hittast um helgina til að ræða þá stöðu sem upp er komin í tengslum við sameingunu REI við Geysir Green Energy. Samkvæmt heimildum Vísis eru allir borgarfulltrúar flokksins ósáttir við störf borgarstjóra innan stjórnar OR. 5.10.2007 17:05
Hálf milljón í reiðufé fannst við húsleit Hálf milljón króna í reiðufé var meðal þess sem lögreglan fann í húsleit í borginni í tengslum við handtöku á litháísku þjófagengi fyrr í vikunni. 5.10.2007 16:50
Sverðtígur með veikt bit Þótt sverðtígurinn hafi óneitanlega verið vel tenntur hafa rannsóknir leitt í ljós að bit hans var veikt. Krafturinn í biti sverðtígursins var ekki nema þriðjungur þess sem ljón hefur. Notast var við nýjustu tölvuteiknitækni til að áætla kraftinn í biti sverðtígursins. 5.10.2007 16:50
Geimkapphlaup milli þriggja Asíuþjóða Ómannað geimkönnunarfar frá japönsku geimferðarstofnuninni komst í morgun á sporbraut umhverfis tunglið. Eru Japanir því fyrsta Asíuþjóðin sem tekst að koma geimfari á braut umhverfis tunglið. Þrjár Asíuþjóðir keppa nú um að sigra geiminn. 5.10.2007 16:28
Ákvarðanir stjórnar REI þola illa dagsljósið „Ljóst er að ýmsar þær ákvarðanir sem teknar voru af þriggja manna stjórn Reykjavík Energy Invest án nokkurrar aðkomu minnihlutans eða stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur þola illa dagsljósið og opinbera umræðu. Fullkanna þarf heimildir stjórnarinnar til að skammta sjálfri sér laun, gera kaupréttarsamninga við starfsmenn og tímabundna ráðgjafa og selja hluti úr fyrirtækinu án samþykkis stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur," segir Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn. 5.10.2007 16:04
Bætur vegna vinnuslyss Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrirtækið Stjörnuna, sem rekur Subway, til þess að greiða starfsmanni fyrirtækisins rúma eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna vinnuslyss. 5.10.2007 15:52
Peter Greenway kemur til Íslands Leikstjórinn og listamaðurinn Peter Greenaway hlýtur heiðursverðlaun fyrir ævistarf í þágu kvikmyndaleikstjórnar á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Af tilefni verðlaunaafhendingarinnar mun Greenaway halda fyrirlestur og svara spurningum laugardaginn 6. október kl. 17:30 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis. 5.10.2007 15:37
Ég er afi minn og hálfbróðir föður míns Sjötíu og tveggja ára gamall Breti hyggst gefa tengdadóttur sinni sæði svo hún og sonur hans geti eignast barn. 5.10.2007 15:31
Hátt hlutfall kvikasilfurs í stórurriða í Þingvallavatni Umhverfisstofnun tók nýlega þátt í norrænu verkefni þar sem mælt var magn kvikasilfurs í urriða til að kanna áhrif umhverfis á upptöku þess í fiski. Sýni voru tekin af urriða í Elliðavatni, Mývatni, Stóra-Fossvatni og Þingvallavatni. Magn kvikasilfurs var yfirleitt lágt ef undan er skilinn stórurriði í Þingvallavatni. 5.10.2007 15:22
Tugir manna láta lífið í bátaslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 33 drukknuðu og átta slösuðust alvarlega þegar tveir bátar rákust saman á Dole-Kaina fljóti í norðvestur hluta Nígeríu í morgun. Annar báturinn var hlaðinn eldfimum vökvum og sprungu bátarnir í loft upp við áreksturinn. 5.10.2007 15:04
Milljarðamæringar fá að rífa hús á Nesinu Útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson, sem er aðaleigandi Brims, og Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri FL Group, hafa báðir fengið leyfi til að rífa einbýlishús sem þeir keyptu á Setljarnarnesi og byggja risastórar glæsivillur í þeirra stað. 5.10.2007 14:56
Samsuða á borð við REI gengur ekki upp Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ekkert hæft í því að sjálfstæðismenn í borginni hyggist í dag ákveða hvernig bregðast skuli við ákvörðun Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar varðandi samruna REI og Geysir Green Energy. Fréttavefurinn dv.is greinir frá þessu í dag. „Það er bara tóm vitleysa,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi. Hann er hins vegar efins um að borgin eigi að taka þátt í verfefnum á borð við REI. 5.10.2007 14:42
Goldfinger með skemmtanaleyfi þrátt fyrir lögbrot Lögreglan hefur ekki gripið til sérstakra aðgerða vegna súlustaðarins Goldfingers í Kópavogi þrátt fyrir að starfsmenn staðarins hafi orðið uppvísir að lögbrotum. Hjá sýslumannsembættinu í Kópavogi og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fengust þær upplýsingar ekki væri búið að afturkalla skemmtanaleyfi staðarins. 5.10.2007 14:29
Björgunarskólinn þrítugur Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar var stofnaður þann 30. september árið 1977 og varð því þrítugur sl. sunnudag. Til að fagna þessum áfanga hefur formönnum eininga félagsins og öðrum velunnurum skólans verið boðið til veislu í höfðuðstöðvum félagsins í Skógarhlíð 14 í dag og hefst hún kl. 17.00. 5.10.2007 14:18
Einfalda reglur stjórnsýslunnar á næstu tveimur árum Ráðuneytin hyggjast á næstu tveimur árum einfalda reglur sem þau starfa eftir með það fyrir augum að auðvelda almenningi og fyrirtækjum samskipti við hið opinbera. 5.10.2007 14:15
Stálu hundruðum áfengisflaskna sem átti að farga Þrír karlar og ein kona voru Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikinn áfengisþjófnað sem stóð á árunum 2002-2005. Tollvörður sem einnig var ákærður í málinu var hins vegar sýknaður fyrir aðild að því. 5.10.2007 13:46