Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Asnalæti vegna skúrs í Dallas Það var heldur asnalegt mál sem tekið var fyrir í dómhúsi í Dallas í Texas í gær. Þar var asninn Buddy mættur í tengslum við deilur tveggja manna í borginni. Nágrannarnir John Cantrell og Gregory Shamoun deildu um skúr sem Shamoun er að byggja á lóð sinni. 19.4.2007 14:48
Noregur verði kolefnishlutlaust land árið 2050 Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og formaður norska Verkamannaflokksins, greindi frá því á landsfundi flokksins í dag stefnt yrði að því að Noregur yrði kolefnishlutlaust land árið 2050, fyrst allra landa. 19.4.2007 14:28
Knútur með 15 lífverði eftir líflátshótanir Hinn heimsfrægi húnn Knútur í dýragarðinum í Berlín sætir nú sérstakri gæslu eftir að honum bárust nýlega líflátshótanir. Eftir því sem fram kemur í þýska blaðinu bild barst dýragarðinum handskrifað bréf þar sem birninum er hótað en þýska lögreglan neitar að tjá sig meira um efni bréfsins. 19.4.2007 14:05
Dato fyrsta fórnarlambið í fríblaðastríðinu í Danmörku Tilkynnt var um það í dag að hætt yrði að gefa út danska fríblaðið Dato en blaðið rennur saman við annað slíkt, Urban. Fram kemur í dönskum miðlum að blaðið komi ekki oftar út . 19.4.2007 13:44
Samfylkingin upp á landsvísu en niður í Suðvesturkjördæmi Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi á landsvísu í nýrri könnun Capasent Gallups en Vinstri grænum fatast flugið og Framsókn tapar fylgi. Samfylkingin tapar hins vegar verulegu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Vinstri grænir koma í fyrsta skipti mönnum á þing í kjördæminu, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Stöð 2. 19.4.2007 13:25
Frambjóðendur í Frakklandi á lokaspretti kosningabaráttunnar Síðustu kosningafundirnir vegna forsetakosninganna í Frakklandi á sunnudag fara fram í dag og hjá helstu frambjóðendum liggur leiðin suður á bóginn. Allt útlit er fyrir spennandi kosningar en Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna, nýtur mest fylgis samkvæmt nýrri skoðanakönnun. 19.4.2007 13:24
Telur hundruð fugla hafa drepist vegna olíumengunar frá Muuga Talið er líklegt að hundruð fugla hafi drepist vegna olíumengunar frá Wilson Muga í Hvalsnesfjöru. Starfsmaður Náttúrustofu Reykjaness fann í gærmorgun fyrstu olíublautu fuglana og hann gagnrýnir að vöktun á lífríkinu hafi ekki verið á svæðinu meðan skipið var þar. 19.4.2007 13:00
Segja brunavarnir hafa verið í góðu lagi á Pravda Eigendur skemmtistaðarins Pravda, sem brann til kaldra kola í gær, segja brunavarnir í húsinu hafa verið í mjög góðu ásigkomulagi og allar viðeigandi varúðarrástafanir hafi verið til staðar. 19.4.2007 12:45
Maðurinn sem leitað var að heill á húfi Maðurinn sem leitað hefur verið að í Reykjavík frá því á tíunda tímanum í gærkvöldi er kominn í leitirnar, heill á húfi. 19.4.2007 12:40
Vill losna við fanga til að flýta endurbyggingu fangelsis Framkvæmdir við nýtt fangelsi eru að hefjast á Akureyri. Verktaki vill losna við fangana í önnur fangelsi til að geta flýtt verkinu en það er tormerkjum bundið þar öll fangahús eru yfirfull. 19.4.2007 12:30
Notuðu 300 loftkúta við reykköfun í gær Slökkviliðsmenn notuðu um 300 loftkúta við reykköfun í brunanum í miðbæ í gær, en það jafngildir loftnotkun í 10 og hálfan sólarhring. Þetta sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, í samtali við Stöð 2 nú í hádeginu. Hreinsunarstarf stendur nú yfir á staðnum þar sem Austurstræti 22 brann til kaldra kola. 19.4.2007 12:18
Myndband sýnir hversu truflaður byssumaður var Skotárásarmaðurinn í Virginíu sendi myndband til NBC sjónvarpstöðvarinnar sem hann útbjó að öllum líkindum milli árásanna tveggja. Þar líkir hann dauða sínum við píslardauða Jesú Krists. Skilaboð hans eru full af heift og á köflum reynist erfitt að skilja hvað hann er að segja. 19.4.2007 12:00
Tjón í fyrirtækjum á Vitastíg vegna heitavatnsflóðs Sjö manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir að þeir höfðu brennst á fæti þegar sjóðandi heitt vatn fossaði niður Vitastíg í gærkvöld. Tjón varð þegar sjóðandi vatn rann inní fyrirtæki og hús. 19.4.2007 11:49
Sumardeginum fyrsta fagnað víða um land Sumardagurinn fyrsti er í dag. Honum verður fagnað víða um land með skrúðgöngum og skemmtunum. Það ætti að gleðja landann að næturfrost var í nótt. Það ku vita á gott að sumar og vetur frjósi saman. 19.4.2007 11:30
Útflutningsverðlaun forsetans afhent í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands verða afhent að Bessastöðum í dag í nítjánda sinn. Verðlaunin eru veitt fyrir markvert framlag til eflingar á útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun íslensku þjóðarinnar. 19.4.2007 10:54
Fjölmenni á Andrésar Andar leikum fyrir norðan Fjöldi manna og barna verður á skíðum í Hlíðarfjalli í dag, sumardaginn fyrsta. Fjallið opnaði klukkan hálfátta í morgun í sól og blíðu og tíu stiga frosti. Andrésar Andar leikarnir voru settir í gærkvöldi og hefst keppni í dag. 19.4.2007 10:45
Robert Gates í Ísrael Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hitti Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á fundi í Jerúsalem í morgun. Á fundinum ræddu þeir þróun mála á svæðinu undanfarið. 19.4.2007 10:30
Vinstri - grænir fá tvo menn í SV-kjördæmi Vinstri - grænir fá tvo menn kjörna í Suðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Fréttstofu Stöðvar 2. Flokkurinn fékk engan mann kjörinn í kjördæminu í síðustu kosningum. 19.4.2007 10:30
Samfylkingin sækir í sig veðrið Samfylkingin sækir í sig veðrið og bætir við sig sex prósentustigum í könnun Capasent Gallups fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Samfylkingin fengi 24,1 prósent ef kosið yrði nú og er orðin stærri en Vinstri grænir sem tapa sex prósentustigum frá síðustu könnun og mælast nú með 19,1 prósent. 19.4.2007 10:15
Tíu slökkviliðsmenn á brunavakt í nótt Hópur tíu slökkviliðsmanna var á brunavakt í miðborg Reykjavíkur í alla nótt. Glæður leyndust víða í húsasamstæðunni á horni Lækjargötu og Austurstrætis þar sem stórbruninn varð í gærdag. 19.4.2007 09:50
Myndband fjöldamorðingjans í Virginíu birt Cho Seung-hui, maðurinn sem myrti 32 í Virginia Tech háskólanum á mánudag, sendi pakka til útvarpsstöðvar í New York og NBC-sjónvarpsstöðvarinnar á milli fyrri og seinni árasar sinnar. Í pakkanum voru myndir af honum með byssu og myndband þar sem hann flutti reiðilestur um rík ungmenni og nautnalíf þeirra. 19.4.2007 09:46
Leitað að manni í austurbænum Um 130 björgunarsveitarmenn leita nú Sveins Þrastar Þormóðssonar, en hann síðast á gangi skammt frá heimili sínu á Laugarásvegi upp úr hádegi í gær. Leitin hefur staðið yfir frá því á tíunda tímanum í gær. 19.4.2007 09:38
Sjö brenndu sig á heitu vatni í miðbænum Sjö manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir að þeir höfðu brennst á fæti þegar sjóðandi heitt vatn fossaði niður Vitastíg í gærkvöld. Lögregla fékk tilkynningu um málið um klukkan 21.40 og lokaði hún Laugavegi og Hverfisgötu til móts við Vitastíg. 19.4.2007 09:35
Elstu hús Reykjavíkur Á reitnum sem afmarkast af Pósthússtræti, Austurstræti, Lækjargötu og Skólabrú eru mörg sögufræg hús. Húsaröðin við Lækjargötu 2, Austurstræti 20 og 22 er ein elsta varðveitta götumynd borgarinnar og með helstu kennileitum bæjarins. 19.4.2007 09:00
Óljóst með endurbyggingu Eigendur húsanna sem brunnu segja ekki ljóst hvort húsin verið byggð upp í upprunalegri mynd. 19.4.2007 09:00
Gífurleg eyðilegging í stórbruna í miðbæ Reykjavíkur Tvö sögufræg hús urðu eldi að bráð í mesta bruna í Reykjavík í áratugi. Mikil mildi þykir að enginn slasaðist í eldsvoðanum. Allt tiltækt slökkvilið barðist við eldinn. Eldvarnir eru taldar hafa verið ófullnægjandi. 19.4.2007 09:00
Hefði verið hægt að koma í veg fyrir skotárásina? Vangaveltur eru um það hvort það hefði verið hægt að koma í veg fyrir skotárásirnar í Virginia Tech í Bandaríkjunum í gær. Cho Seung- Hui fór á geðspítala fyrir um tveimur árum síðan eftir að nokkrir kvennemendur innan skólans kvörtuðu undan honum. Einnig hafði prófessor innan skólans kvartað undan honum, en ekkert var aðhafst. 18.4.2007 22:21
Um 170 manns létust í Bagdad í dag. Um 170 manns létust í sprengjuárásum í Bagdad í dag. Eru þetta mannskæðustu sprengingar sem orðið hafa síðan Bandaríkjamenn byrjuðu að herða öryggi í borginni fyrir tveimur mánuðum síðan. Í einni árásinni fórust um 120 manns og aðrir 100 særðust þegar bílsprengja sprakk á markaðnum Sadriyah. Í febrúar síðastliðin sprakk sprengja á þessum sama markaði og varð þá 130 manns að bana. 18.4.2007 21:08
Andrésarandarleikarnir settir í kvöld Andrésarandarleikarnir verða settir í kvöld kl 20:30 í íþróttahöllinni á Akureyri. Um 700 keppendur á aldrinum 7-14 ára eru á svæðinu og má búast við fjörugum leikum. Keppnin sjálf hefst svo í fyrramálið kl 9:00. Lögreglan á Akureyri er við öllu viðbúin og hefur aukið við sig fólki í löggæslu vegna mikils fjölda fólks í bænum, en búist er við að um 3500-4000 manns. 18.4.2007 19:58
Biskup Íslands fulltrúi lútherskra kirkna í London Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, verður fulltrúi lútherskra kirkna við biskupsvígslu í London. Biskup Íslands hefur þegið boð Rowan Williams, erkibiskups af Kantaraborg um að vera fulltrúi lútherskra kirkna er tilheyra Porvoo samkomulaginu við biskupsvígslu í Southwark dómkirkju fimmtudaginn 19. apríl næstkomandi. Tilefnið er vígsla nýs biskups í Wolverhampton, sr. Clive Gregory. 18.4.2007 19:33
Færri á nagladekkjum í ár en í fyrra Um 42% bifreiða eru á nagladekkjum samkvæmt talningu sem gerð var 11. apríl. síðastliðinn. Þetta er um 2-3% lægri tala en hefur verið síðustu árin. Önnur talning verður gerð í næstu viku. Frá og með 15. apríl var óleyfilegt að vera á nöglum. 18.4.2007 19:14
Lýsir fjöldamorðunum sem hreinni aftöku Karlmaður sem lifði af árás fjöldamorðingjans í Virginíu lýsir því sem fram fór í kennslustofu skólans sem hreinni aftöku. Kennari við skólann segist ítrekað hafa varað skólayfirvöld við hegðun mannsins en ekkert mark hafi verið tekið á því. 18.4.2007 19:05
Stimpilgjöld verða felld niður Stimpilgjöld verða felld niður eins fljótt og þensla leyfir - sama hvaða flokkar komast til valda eftir kosningar. Allir stjórnmálaflokkar eru hlynntir afnámi stimpilgjalds. 18.4.2007 18:53
Unnur Svava sigrar í Raunveruleikum Landsbankans Unnur Svava sigraði í Raunveruleiknum Landsbankans í ár. En verðlaunin voru veitt í þriðja sinn í dag. 1.627 nemendur í 10. bekk tóku þátt í leiknum. Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur á netinu sem fræðir nemendur 10. bekkjar um ábyrga meðferð fjármuna og neytendamál. Í 18.4.2007 18:34
Framleiðsla hafin hjá Fjarðaáli á Reyðafirði Framleiðsla er hafin í Fjarðaáli, stærsta álveri á Íslandi. Fyrst um sinn verða aðeins fjörtíu ker keyrð í verksmiðjunni en búist er við að hún hafi náð fullum afköstum fyrir lok ársins. 18.4.2007 18:30
Farþegum hefur fjölgað um 150 prósent Farþegum sem fara um Egilsstaðaflugvöll hefur fjölgað um 150 prósent á undanförnum fjórum árum. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur fjölgunin verið 17 prósent. Hafnar eru framkvæmdir við stækkun flugstöðvarinnar á flugvellinum. 18.4.2007 18:30
Reykur tefur ekki flug frá Reykjavíkurflugvelli Reyk hefur laggt suður yfir miðbæ Reykjavíkur vegna brunans á Austurstræti og Lækjatorgi og í átt að Reykjavíkurflugvelli. Að sögn starfsmanna flugvallarins hefur reykurinn ekki haft nein áhrif á flugsamgöngur innanlands og von er á að flug verði í góðu lagi fram eftir kvöldi. 18.4.2007 17:58
Þakið á Austurstræti 22 er fallið Þakið af Austurstræti 22, húsinu sem skemmtistaðurinn Pravda er til húsa er féll um fimmleytið. Verið er að vinna af því að rífa niður það sem eftir er af þakinu. Ekki er gert ráð fyrir að slökkvistarf klárist fyrr en í kvöld. 18.4.2007 17:33
Flugvöllurinn er á góðum stað. Núverandi flugvöllur í Vatnsmýrinni er á góðum stað fyrir flugsamgöngur en flugvallarsvæðið er dýrmætt sem byggingarland. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samgönguráðherra og borgarstjóra. 18.4.2007 17:19
Slökkvistarf stendur langt fram á nótt Slökkviliði hefur tekist að stöðva útbreiðslu eldsins í Lækjargötu 2 en þar logaði mikill eldur fyrr í dag. Unnið er að því að rífa þakplötur af Austurstræti 20 og allt þakið af húsi númer 22. Búist er við að það taki tvo til þrjá tíma í viðbót að slökkva eldinn en að slökkvistarf muni standa langt fram á nótt. Slökkviliðsstjóri heldur fréttamannafund klukkan 18. 18.4.2007 16:46
Biskup Íslands fulltrúi lútherskra kirkna við biskupsvígslu í London Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, verður fulltrúi lútherskra kirkna við vígslu nýs biskups í Southwark dómkirkjunni í Englandi sem fram fer á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá biskupsstofu. 18.4.2007 16:45
Lögregla og slökkvilið hafi unnið af fumleysi og fagmennsku Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu er meðal þeirra sem fylgist með aðgerðum niðri í miðbæ þar sem hús á horni Austurstrætis og Lækjargötu brenna. Sagði hann í samtali við Stöð 2 slökkvilið og lögreglu hafa unnið sem einn maður af fumleysi og fagmennsku að málinu. 18.4.2007 16:36
Sæll, hún er hætt með þér Flestir kannast við það að hafa grátið eða valdið táraflóði við sambandsslit elskenda. Sumir bara treysta sér ekki til þess að horfast í augu við elskuna sína og segja að allt sé búið. Þýskur maður hefur tekið að sér að gera það, gegn 4000 króna greiðslu. 18.4.2007 16:29
Verður að endurreisa götumyndina sem fyrst Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist vilja byrja sem fyrst á því að endurreisa götumyndina í miðbænum eftir brunann á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Í samtali við Stöð 2 sagði Vilhjálmur lögreglu og slökkvilið hafa staðið sig vel í aðgerðunum. 18.4.2007 16:25
Sorgleg sjón fyrir miðbæinn „Þetta er mjög sorgleg sjón fyrir miðbæinn," segir Tómas Kristinsson, eigandi Café Óperu sem er á annarri hæð Lækjargötu 2 sem brennur nú í miðbænum. 18.4.2007 16:14