Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KB banki bakhjarl Listahátíðar KB banki undirritaði í dag samstarfssamning við Listahátíð í Reykjavík til næstu þriggja ára. Í samningnum felst að bankinn verður fjárhagslegur bakhjarl hátíðarinnar. Samningurinn er í raun framlenging á samstarfi Listahátíðar og KB banka, þar sem bankinn hefur verið bakhjarl hátíðarinnar um nokkurra ára skeið. 12.5.2006 15:08
Slökkvistarfi lokið við Hvaleyrarvatn Ræktarland Lækjarskóla við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði er illa farið eftir sinubruna sem kom upp á ræktunarsvæði Skógræktar Hafnarfjarðar fyrr í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um brunann klukkan eitt í dag og barðist við eldinn í um klukkustund en hann hafði læst sig í tré á svæðinu. 12.5.2006 15:01
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur slökkt sinueld við Hvaleyrarvatn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði rétt í þessu að slökkva mikinn sinueld við Hvaleyrarvatn. Allt titækt lið var kallað út enda logaði mikið. Trjágróður var í hættu en eldurinn ógnaði ekki byggingum. Ekki er vitað um tildrög þess að eldurinn kviknaði. 12.5.2006 13:58
Mikill sinubruni við Hvaleyrarvatn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst þessa stundina við mikinn sinueld við Hvaleyrarvatn. Allt titækt lið er á staðnum og logar mikið. Samkvæmt heimildum NFS er trjágróður í hættu. Ekki er vitað um tildrög þess að eldurinn kviknaði. Við segjum nánar frá þessu eftir því sem upplýsingar berast. 12.5.2006 13:47
Í mótmælahug eftir lestur Draumalandsins Tveir ungir starfsmenn Landspítalans urðu svo heillaðir við lestur bókarinnar Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason að þeir ákváðu að standa fyrir mótmælum á Austurvelli. Þeir hafa sent skilaboð á fjölda fólks og vilja að fólk sýni innihaldi bókarinnar viðbrögð í verki. 12.5.2006 13:45
Stór sinueldur við Hvaleyrarvatn Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins var kallað út um eitt leitið vegna sinubruna við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu er hér um stór bruna að ræða, en nánari upplýsingar verða birtar á Vísir og NFS um leið og þær berst. 12.5.2006 13:32
Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi hefur lokið háskólanámi í samanburði við önnur hátekjulönd að því er lesa má úr niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar á frumkvöðlastarfsemi sem kynntar voru í morgun. Þá eru karlar tvöfalt líklegri en konur til að stunda slíka starfsemi. 12.5.2006 13:17
Flúið undan eldgosi í Indónesíu Beita hefur þurft fortölum til þess að fá fólk til að flýja undan eldgosi í Merapi-fjalli á Indónesíu. Óttast er að eldský grandi þeim sem ekki koma sér undan, eins og gerðist í síðasta eldgosi árið 1994. Þúsundir hafast nú þegar við í flóttamannaskýlum en margir hafa þráast við að yfirgefa heimili sín, ef ekki er kostur að taka búféð með, en það er oft eina viðurværi fjölskyldna í héraðinu. 12.5.2006 13:00
Ahmadinejad segist hvergi banginn við árásir Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans segir Írana ekki vera hrædda við árásir Bandaríkjamanna og telur ólíklegt að Vesturveldin láti til skarar skríða og ráðist á Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins. 12.5.2006 12:45
Góður gangur í viðræðum SFR og svæðisskrifstofa Góður gangur er í viðræðum SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og forsvarsmanna svæðiskrifstofa um málefni fatlaðra. Jafnvel er búist við að samningar náist um helgina og þannig verði hægt að afstýra setuverkföllum á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða. 12.5.2006 12:30
Órökstuddar dylgjur landlæknis Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir landlæknir tengsl milli helstu lyfjainnflytjenda á landinu og tveggja keðja í smásölu lyfja vera ástæðu fyrir háu lyfjaverði hér á landi. Þessi fullyrðing er alfarið röng segir í tilkynningu frá Frumtaki - samtökum framleiðenda frumlyfja. 12.5.2006 12:27
Viðbúnaðarstig lækkað í Svíþjóð Engin fuglaflensa reyndist í hænsnabúi í Orsa í Svíþjóð, þar sem grunur lék á að hún hefði komið upp í alifuglum. Yfirvöld í Svíþjóð hyggjast nú að draga úr viðbúnaði vegna fuglaflensu þannig að alifuglar megi aftur dvelja utandyra. 12.5.2006 12:15
Boeing 757 á Reykjavíkurflugvelli í morgun Heldur óalgeng sjón var á Reykjavíkurflugvelli í morgun en þar var á ferðinni þota af gerðinni Boeing 757. Vélinni var ætlað að flytja gesti Landsvirkjunar austur á land þar sem þeir verða viðstaddir þegar hornsteinn verður lagður að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar 12.5.2006 12:15
Landsflug efni ekki gefin loforð Lúðvík Bergvinsson forseti bæjarstjórnar í Vestamannaeyjum sagði á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi að Landsflug ætlaði ekki að efna gefin loforð um að taka í notkun 32. sæta Dornier til Eyja þann 15. maí næstkomandi. 12.5.2006 12:12
ÖBÍ segir úrskurð stórsigur þrátt fyrir frávísun aðalkröfu Öryrkjabandalagið segir að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur vegna samkomulags við öryrkja fyrir þremur árum sé stórsigur fyrir bandalagið. Dómurinn vísar frá aðalkröfu öryrkja en samþykkir varakröfuna, um að dómurinn muni úrskurða um greiðsluskyldu stjórnvalda vegna samkomulagsins. 12.5.2006 12:07
Samfylkingin í Kópavogi svarar Gusturum Samfylkingin í Kópavog hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna athugasemdar Hestamannafélagsins Gusts sem birtist í fjölmiðlum í morgun. Vegna samþykktar sem gerð var á félagsfundi Hestamannafélagsins Gusts 11. maí síðastliðinn er nauðsynlegt að ítreka eftirfarandi. 12.5.2006 11:48
Gott uppgjör hjá Actavis Actavis skilaði góðu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi sem var talsvert yfir væntingum en hagnaður eftir skatta til hluthafa Actavis nam 31,3 m.evrum en spá KB Banka var upp á 25 m. evrur og spár annarra fjármálafyrirtækja hljóðuðu upp á 19-20 m. evrur. 12.5.2006 11:20
Villta Västerås Tveir menn réðust með sjálfvirk skotvopn inn í héraðsdóm í Västerås í Svíþjóð í morgun og frelsuðu þar mann sem var fyrir rétti. Mennirnir hleyptu ekki af, heldur höfðu sig á brott um leið með sakborninginn. Maðurinn var ákærður fyrir að vera höfuðpaur stórs fíkniefnahrings, en sjö aðrir eru ákærðir vegna málsins. 12.5.2006 10:49
Clinton í Kaupmannahöfn Fjöldi fólks beið í gær í marga klukkutíma fyrir framan Hotel d´angleterre við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn í von um að berja augum Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. 12.5.2006 10:15
Allir með fleiri en eitt hlutverk Pönk, dans, list og leikur mætast með nýstárlegum hætti í sýningunni Við erum Öll Marlene Dietrich FOR. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur erlendis en í tilefni listahátíðar verða sýndar þrjár sýningar hér á landi. 12.5.2006 10:00
Hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland Einn af forystumönnum al-Qaida samtakanna hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland í nýju myndbandi sem birt var á Netinu í gær. Líbýumaðurinn Mohammed Hassan, sem slapp úr einu af fangelsum Bandaríkjanna í Afganistan í fyrra, hvetur til hefnda fyrir Múhameðsteikningarnar sem birtar voru á síðasta ári. 12.5.2006 10:00
Gustarar samþykkja flutningana Á fjölmennum félagsfundi hestamannafélagsins Gusts í gærkveldi samþykktu félagsmenn samninga þá er gerðir hafa verið við Kópavogsbæ um flutning hesthúsahverfis félagsins frá Glaðheimum á Kjóavelli. 12.5.2006 09:50
Talsverður erill hjá lögreglu vegna ölvunar Talsverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar fólks vítt og breytt um borgina. Hins vegar var rólegt á ölstofunum í miðborginni. Lögregla varð að taka nokkra ólátaseggi úr umferð og gista þeir nú fangageymslur. 12.5.2006 09:45
Listahátíð sett í dag Listahátíð Reykjavíkur verður sett í dag við stóra athöfn í Borgarleikhúsinu. Á setningarhátíðinni kemur fram margt stærstu listamanna sem þátt taka í listahátíð þessu sinni. Hátíðin stendur til annars júní. 12.5.2006 09:30
Prestur dæmdur fyrir að myrða nunnu Bandarískur prestur var í gær dæmdur í 15 ára til lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nunnu árið 1980. Gerald Robinson hafði lengi unnið með Margaret Ann Pahl en hún var stungin til bana alls 31 sinni. 12.5.2006 09:15
Grunur um fuglaflensu í hænum í Svíþjóð Grunur leikur á að hænur í Svíþjóð séu smitaðar af fuglaflensu. Búið er að einangra bú nærri Orsa í Svíþjóð og hafa fuglar sem sýnt hafa flensueinkenni verið aflífaðir. Sýni hafa verið send til greiningar hjá embætti yfirdýralæknis. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur leikur á að alifuglar hafi sýkst af fuglaflensu í Svíþjóð. 12.5.2006 09:00
Bandaríkjamenn hafna beinum samskiptum við Írana Bandaríkjastjórn hafnar öllum beinum samskiptum við yfirvöld í Íran og segir Írana hafa ýmsa möguleika til að komast í samband við yfirvöld vilji þau nýta sér þá. 12.5.2006 08:45
Upprættu mikla kókaínframleiðslu Fíkniefnalögreglan í Kólumbíu réðst í gær til atlögu á kókaínframleiðslufyrirtæki þar sem hvorki meira né minna en þrjú tonn af kókaíni eru framleidd í hverjum mánuði. 12.5.2006 08:30
Segir norræn fyrirtæki þjónusta sjóræningjatogara Færeyskur skipstjóri á frystitogara, sem er að karfaveiðum á Reykjaneshrygg, segir í viðtali við færeyska blaðið Sosialurinn, að íslensk, norsk og færeysk fyrirtæki þjónusti svonefnda sjóræningjatogara á svæðinu, sem stundi þar veiðar án veiðiheimilda og rýri þannig afkomu þeirra sem fari að fjölþjóðlegum samþykktum um veiðarnar. 12.5.2006 08:15
Tvö og hálft ár fyrir fíkniefnabrot og frelsissviptingu Axel Karl Gíslason var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot og að nema sautján ára pilt af vinnustað sínum. Þann pilt neyddi Axel Karl til að taka pening út úr hraðbanka og láta sig hafa. 12.5.2006 08:00
Baugur hafi selt hlut sinn í Marks og Spencer Baugur hefur selt hlut sinn í bresku verslanakeðjunni Marks og Spencer fyrir 33 milljarða króna, að sögn vefútgáfu The Daily Telegraph. 12.5.2006 07:55
Hugmyndir um kaup Fly Me á Sterling Hugmyndir eru uppi um að sænska lággjaldaflugfélagið Fly Me kaupi Sterling flugfélagið sem er í eigu FL Group og jafnvel norska flugfélagið Norwegian. Ager Hansen, sem er næststærsti hluthafi í Fly Me, segir í viðtali við Finansavisen að Finnair komi líka til greina, en það á lágjaldaflugfélagið Fly Nordic. 12.5.2006 07:45
Bush neitar að tjá sig um hleranir Bandaríkjaforseti neitar að tjá sig um staðhæfingar bandarískra fjölmiðla þess efnis að Bandaríkjastjórn hafi safnað upplýsingum um símtöl tuga milljóna Bandaríkjamanna frá árinu 2001. Dagblaðið USA Today staðhæfir að þrjú stærstu símafyrirtæki landsins hafi afhent yfirvöldum upplýsingar um símtöl fólksins. 12.5.2006 07:30
Boðað til neyðarfundar með Tamíltígrum vegna árásar Yfirstjórn friðargæslunnar á Sri Lanka hefur boðað til neyðarfundar með uppreisnarmönnum Tamíltígra. Friðargæslan sakar tígrana um gróf brot á vopnahléssamkomulaginu frá 2002, nú síðast í gær, með sjálfsmorðsárás á herskip í sem leiddi til dauða 57 manns, að sögn yfirvalda. 12.5.2006 07:24
Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn hóf útsendingar í Bandaríkjunum í dag. Þetta er fyrsta stöð sinnar tegundar en markhópurinn er börn yngri en tveggja ára. 11.5.2006 23:30
Hundrað lóðum úthlutað Um eitt hundrað lóðum fyrir atvinnuhúsnæði var úthlutað í Hafnarfirðinum í dag. Hafnarfjörður stækkar nú óðum. Lóðirnar eru á nýjum svæðum, Hellnahrauni, Selhrauni og á miðsvæði Valla. 11.5.2006 23:19
Valdamenn spila fótbolta Það voru valdamiklir menn sem spörkuðu á milli sín knetti til styrktar góðu málefni í Vín í Austurríki í dag. Þá var efnt til góðgerðarleiks í knattspyrnu þar sem sjö evrópskir forsætisráðherrar og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, létu ljós sitt skína. 11.5.2006 23:15
Börn mótmæltu við höfuðstöðvar SÞ á Gaza Tugir palestínskra barna reistu tjald fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu í dag til þess að mótmæla því sem þau kalla efnahagslegt umsátur um palestínskt land. 11.5.2006 23:00
Ásatrúarmenn yfir þúsund talsins Ásatrúarmenn eru í fyrsta sinn síðan í heiðnum sið orðnir fleiri en þúsund talsins á Íslandi. Félagafjöldinn í Ásatrúarfélaginu hefur tífaldast síðustu fimmtán árin. 11.5.2006 22:45
Breska leyniþjónustan þekkti árásarmennina Tveir þeirra fjögurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Lundúnir í fyrra voru undir takmörkuðu eftirliti fyrir árásirnar auk þess sem breska leyniþjónustan hafði hlerað síma þess þriðja. Þetta kemur fram í skýrslu þingnefndar um árásirnar sem birt var í dag. 11.5.2006 22:45
Sautján ára í tveggja og hálfs árs fangelsi Atli Karl Gíslason var í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot og að nema sautján ára pilt af vinnustað sínum. Þann pilt neyddi Atli Karl til að taka pening út úr hraðbanka og láta sig hafa. 11.5.2006 22:43
Kona og barn myrt í Antwerpen Svo virðist sem kynnþáttafordómar hafi ráðið ferð þegar 18 ára piltur varð svartri konu og barni í hennar gæslu að bana í miðborg Antwerpen í Belgíu í dag. 11.5.2006 22:25
Fornleifar og nýjasta tækni Landnámssýningin Reykjvík 871 +/- 2 verður opnuð formlega á morgun í tilefni Listahátíðar Reykjavíkur. Óhætt er að segja að á sýningunni mætist tímarnir tvennir en fornleifum frá víkingaöld er teflt saman við nýjustu margmiðlunartæknina með góðum árangri. 11.5.2006 22:14
Virkjun formælt í hornsteininum Skilaboð frá andstæðingum Kárahnjúkavirkjunar verða í hornsteininum sem lagður verður að stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Landsvirkjun ákvað þetta eftir að forseti Íslands hafði milligöngu um að koma beiðni andstæðinga virkjunarinnar á framfæri. 11.5.2006 22:08
Norrænir friðargæslumenn í hættu Vopnahlé, sem norrænir eftirlitsmenn fylgjast með á Sri Lanka, er í uppnámi eftir bardaga á sjó og landi í dag. Talið er að minnst 45 hafi fallið. Íslenskur upplýsingafulltrúi norrænu eftirlitssveitanna segir að tveir norrænir eftirlitsmenn hafi verið í hættu, en þá hafi ekki sakað. 11.5.2006 19:45