Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geir H. Haarde situr fund utanríkisráðherra Norður-Atlantshafsbandalagsins Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, situr nú óformlegan fund utanríkisráðherra Norður-Atlantshafsbandalagsins sem byrjaði í dag í Sofía í Búlgaríu og lýkur á morgun. 27.4.2006 16:21
Fundi í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna lokið Fundi í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna lauk fyrir um hálftíma í utanríkisráðuneytinu. Fyrir fundinn í dag vildu Albert Jónsson, sem fer fyrir íslensku samninganefndinni, og Carol van Voorst, sendiherra, sem fer fyrir þeirri bandarísku, ekkert tjá sig um gang mála. 27.4.2006 15:56
Fundi samninganefnda lokið Fundi í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna lauk fyrir um hálftíma í utanríkisráðuneytinu. Yfirlýsingu beggja aðila er að vænta nú að fundi loknum. 27.4.2006 15:47
Úrskurði dómara áfrýjað Lögmaður Jóns Geralds Sullenbergers ætlar að áfrýja til Hæstaréttar, þeim úrskurði Arngríms Ísbergs héraðsdómara frá því fyrr í dag, að hann sé hæfur til að dæma í þeim nítján ákæruliðum sem ákært hefur verið í á nýjan leik í Baugsmálinu. Lögmaður Jóns Geralds krafðist þess í morgun að dómarinn viki sæti, þar sem hann hefði lýst þeirri skoðun sinni í fyrri meðförum málsins, að Jón Gerald væri ótrúverðugt vitni. 27.4.2006 15:37
Sex milljónir til æskulýðsmála Menntamálaráðherra hefur samþykkt úthlutun tæpra sex milljóna króna úr Æskulýðssjóði. Hæstan styrk, 650 þúsund krónur, fær Landssamband æskulýðsfélaga vegna undirbúnings landsverkefnisins "Enginn eins engum til meins". 27.4.2006 14:36
Fimmti maðurinn í gæsluvarðhald Fimmti maðurinn í stóra fíkniefnamálinu, þar sem mikið magn af fíkniefnum voru falin í bensíntank bifreiðar var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag, til tveggja vikna. Samkvæmt heimildum NFS er maðurinn Íslendingur, en fyrir sitja 3 Íslendingar og einn Hollendingur í gæsluvarðhaldi. 27.4.2006 14:31
David Zell ráðinn til Glitnis í London David Zell hefur verið ráðinn yfirmaður lánastarfsemi og sambankalána í útibúi Glitnis í London og hóf hann störf síðastliðinn mánudag. David verður einnig staðgengill framkvæmdastjóra útibúsins. 27.4.2006 13:49
Sturla Böðvarsson segir Dag B. Eggertsson fara með rangt mál Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík, fara með rangt mál þegar hann segir það fyrsta kost samgöngunefndar að leggja Sundabraut um jarðgöng undir Kleppsvík. Vegagerðin hafi ekki verið því sammála að tekið hafi verið af skarið með að jarðgöng undir Kleppsvík séu fyrsti kostur. 27.4.2006 13:44
Ræðst í dag hvort til setuverkfalls kemur Það ræðst á fundi klukkan fjögur í dag hvort ófaglærðir starfsmenn á tólf dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorninu fara í vikulangt setuverkfall og hvort til fjöldauppsagna komi. Eins og greint hefur verið frá í fréttum slitnaði upp úr kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu í fyrradag en í kjölfarið ákváðu fyrirtækin að koma til móts við kröfur starfsmanna um launahækkanir en á lengri tíma en starfsmenn vildu. 27.4.2006 13:37
Ríkisstjórnin vanvirti rétt almennings Ríkissstjórn Íslands vanvirti rétt almennings þegar hún ákvað að hefja framkvæmdir við álverið í Reyðarfirði án þess að skýrsla um mat á umhverfisáhrifum lægi fyrir. Þetta segir Árni Finnson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Hann segir frummatsskýrslu Alcoa koma allt of seint og augljóst að fyrirtækið hafi beðið álitshnekki hjá þjóðinni. 27.4.2006 13:33
Krefst endurskoðunar á frumvarpi um Kjararáð Alþýðusamband Íslands krefst þess að frumvarpinu um Kjararáð verði breytt og feluleiknum um kjör þingmanna hætt. Að sögn Ingibjargar R. Guðmundsdóttur, varaforseta sambandsins leggur sambandið áherslu á að þingheimur taki gagnrýni sambandsins til greina. 27.4.2006 13:23
Herinn birtir áætlun um brottför Varnarliðið hefur sent frá sér áætlun um hvernig staðið verði að samdrætti í þjónustu við varnarliðsmenn og lokun þjónustustofnana. Samkvæmt henni munu sjö þjónustustöðvar loka strax í maímánuði og fimm í júní. Í maí mun t.d. 27.4.2006 11:54
Baugsmál þingfest í héraðsdómi í morgun Arngrímur Ísberg dómari í Baugsmálinu ætlar að úrskurða klukkan þrjú í dag um hæfi sitt til þess að fjalla um ákæruliðina nítján sem hefur verið endurákært í. Það var Jón Gerald Sullenberger sem fór fram á að dómarinn viki sæti við þingfestingu málsins í dag. 27.4.2006 11:39
Skaftá er óðum að komast í sitt fyrra horf Skaftá er óðum að komast í sitt fyrra horf eftir hlaupið sem hófts þann 21. þessa mánaðar. Rennsli í Eldvatni við Ása er nú komið niður í 66 rúmmetra á sekúndu en var þegar mest var 630 rúmmetrar á sekúndu. 27.4.2006 11:04
Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff boðið í afmæli Svíakonungs Karl Gústaf konungur Svíþjóðar hefur boðið forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni og forsetafrú Dorrit Moussaieff að taka þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi næstkomandi laugardag og sunnudag í tilefni af sextugsafmæli konungs. 27.4.2006 10:54
Sigurður Ó Helgason fyrsti forstjóri Flugleiða stefnir félaginu Sigurður Ó Helgason, sem var fyrsti forstjóri Flugleiða, telur að breytt launakerfi æðstu stjórnenda félagsins rýri eftirlaun sín stórlega og hefur stefnt félaginu til greiðslu. 27.4.2006 10:47
Íranar svara af fullum krafti, verði ráðist á landið Íranar munu svara af fullum krafti, verði ráðist á landið. Þetta sagði æðsti klerkur landsins í gær. Utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra en Bush Bandaríkjaforseti útilokar þó ekkert í þeim efnum. . 27.4.2006 10:40
Samkomulag um nýja ríkisstjórn í Ísrael Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn hafa náð samkomulagi um myndun ríkisstjórnar í Ísrael en þingkosningar voru haldnar í landinu 28. mars síðastliðinn. Stjórnarsáttmálinn verður undirritaður síðar í dag. Ehud Olmert verður að líkindum forsætisráðherra nýju stjórnarinnar. 27.4.2006 10:37
Skráðu fingraför nemenda Persónuvernd í Noregi hefur krafið framhaldsskóla í Osló skýringa á því að skólinn hafi sett upp fingrafaralesara þar sem nemendur þurftu að skrá sig inn og út úr skólanum. Skólayfirvöld segja það hafa aukið ábyrgðartilfinningu nemenda að fylgst væri með viðveru þeirra í skólanum með þessum hætti. 27.4.2006 10:15
Jack Straw segir ekki koma til greina að ráðast á Íran Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Íran vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Utanríkisráðherrann sagði Íran ekki vera Írak og að aldrei hefði komið til greina að ráðast á landið. 27.4.2006 10:00
Varaforseti Íraks hvetur Bandaríkjamenn til frekari baráttu Bandarískir hermenn felldu tólf uppreisnarmenn þegar þeir réðust inn í hús í nágrenni Baghdad, höfuðborgar Íraks í gær. Nýr varaforseti Íraks, Tariq al-Hashimi, hvatti Bandaríkjamenn til að beita frekara valdi til að binda endi á ofbeldisverk uppreisnarmanna. 27.4.2006 09:45
Stjórnarandstaðan í Hvíta-Rússlandi minntist Chernobyl Um tíu þúsund stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar komu saman í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, í gær til að minnast fórnarlamba Tsjernóbyl slyssins sem varð í kjarnorkuveri í Úkraínu fyrir 20 árum. Milinkevich, fyrrum forsetaframbjóðandi, segir stjórnina hrædda við andstæðinga sína, sem hafi birst í upprætingu mótmæla og lokun á aðaltorgi MInsk. 27.4.2006 09:30
Mannréttindasamtök segja pyntingar fanga mun víðtækari Mannréttindasamtökin Human Rights Watch, segja hundruð bandarískra hermanna hafa tekið þátt í að pynta og myrða fjölda fanga í Írak, Afganistan og í Guantanamo fangelsinu á Kúbu. 27.4.2006 09:15
Magnús aftur í stjórn Straums-Burðaráss Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, verður aftur varaformaður stjórnar Straums-Burðaráss. Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar í gærkvöldi. Stjórnin hafði fyrir fundinn ekki komið saman í nær tvo mánuði eða frá því að Magnús fékk ekki brautargengi áfram sem varaformaður stjórnarinnar á aðalfundi félagsins. 27.4.2006 09:00
Systir varaforseta Íraks myrt Systir hins nýja varaforseta Íraks, Tariq al-Hashimi, var myrt af óþekktum aðilum sem óku hjá er hún yfirgaf heimili sitt í morgun. Lífvörður hennar lést einnig í árásinni. Þá var bróðir hans skotinn til bana í bíl sínum í Sjíahverfi í austurhluta Bagdad fyrr í mánuðinum en fjölskylda hans eru Súnníar. 27.4.2006 08:46
Auknar bætur til fórnarlamba Chernobyl Viktor Jútsjenkó, forseti Úkraínu, minntist í gær fórnarlamba kjarnorkuslyssins og bauð fjölskyldum þeirra auknar bætur. Hversu miklar þær verða, sagði hann þó ekkert um. Minningarathöfnin var haldin nærri kjarnakljúfnum sem slysið varð í og hefur 26. apríl verið yfirlýstur sorgardagur í Úkraínu. 27.4.2006 08:45
Sofnaði undir stýri í Hvalfjarðargöngum Ung kona sofnaði undir stýri í Hvarfjarðargöngunum í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn skall utan í gangavegginn. Höggið var það mikið á bíllinn var óökufær eftir, og konan var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi, þar sem hún kenndi eymsla í hálsi. 27.4.2006 08:30
Hrein eign Íslendinga 10 milljónir króna á mann Hrein eign heimila í landinu umfram skuldir, nemur tæplega þrjú þúsund milljörðum króna að mati Greiningardeildar KB banka, og hefur aldrei verið hærra hlutfall af landsframleiðslu. Þetta þýðir að hrein eign á hvern Íslending nemur um tíu milljónum króna að meðaltali, sem vafalaust kemur mörgum þriggja til fjögurra manna fjölskyldum á óvart. 27.4.2006 08:15
Kaupmannahafnarháskóli yfirgefur miðbæinn Kaupmannahafnarháskóli hefur tilkynnt að skólinn muni nú yfirgefa sögufrægar og friðaðar byggingar skólans í miðborg Kaupmannahafnar, þar sem lögfræði, guðfræði og fleiri greinar hafa verið kenndar í 525 ár. 27.4.2006 08:00
Dagblöðin á Landsbókasafn Í tilefni af fimm ára afmæli Fréttablaðsins færði 365, útgefandi blaðsins, Landsbókasafni Íslands stærsta dagablaðasafn landsins að gjöf en Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður og Ari Edwald, forstjóri 365, skrifuðu undir samning þess efnis í gær. 27.4.2006 07:30
Byggði safn dagblaða upp Dagablaðasafnið sem 365 gaf Landsbókasafni Íslands var lengi vel í eigu Sveins R. Eyjólfssonar, fyrrverandi útgefanda Vísis. 27.4.2006 06:15
Útblástur frá álverinu innan marka Áhrif útblásturs frá álverinu á Reyðarfirði eru innan allra viðmiðunarmarka að því er fram kemur í frummatsskýrslu Alcoa Fjarðaráls sem kynnt var í gær. Umhverfisáhrif námuvinnslunnar á Ingólfsfjalli er óásættanleg að mati stjórnar Landverndar og hvetur hún sveitarstjórnir á Suðurlandi til að fara að áliti Skipulagsstofnunnar. 26.4.2006 23:00
Gáfu Landsbókasafninu dagblaðasafn Eitt stærsta dagblaðasafn landsins var afhent Landsbókasafninu í dag. Safnið er gjöf 365 miðla, en það hefur að geyma öll tölublöð af Vísi, Dagblaðinu, Þjóðviljanum, Tímanum og Morgunblaðinu frá síðustu öld. Safnið var áður í eigu Sveins R. Eyjólfssonar útgefanda og var óumdeilanlega stærsta og verðmætasta dagblaðasafn í einkaeigu. 26.4.2006 22:58
Námuvinnslu verði hætt í Ingólfsfjalli Umhverfisáhrif námuvinnslunnar á Ingólfsfjalli er óásættanleg að mati stjórnar Landverndar og hvetur hún sveitarstjórnir á Suðurlandi til að fara að áliti Skipulagsstofnunnar. Á heimasíðu Landverndar segir að Ingólfsfjall sé mikilvægt kennileiti á Suðurlandi og að fjallið hafi menningarlegt sögugildi þar sem það ber nafn fyrsta landnámsmanns Íslands. 26.4.2006 22:30
Eitt útkall vegna sinubruna Slökkvilið höfuðbrogarsvæðisins var kallað út um klukkan níu í kvöld vegna sinubruna við Garðaveg á Álftanesi. Einn slökkviliðsbíll fór á staðinn og náðu slökkviliðsmenn að slökkva eldinn áður en hann náði að breiðast frekar út. Talið er að sinueldurinn hafi verið kveiktur af mannavöldum. 26.4.2006 22:27
Mikill verðmunur í byggingavöruverslunum Mikill verðmunur er í byggingavöruverslunum landsins að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í gær. Mestur var verðmunurinn 70 prósent á ryðfríum skrúfum en minnstur á málningarlímbandi eða 4,4 prósent. Könnunin var gerð í verslunum Byko í Breiddinni og Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Skoðaðar voru 22 vörur til heimilisins eins og gasgrill, fjöltengi, garðáhöld, reykskynjari, ljósaperur, málningarvörur, skrúfur og pallaefni. 26.4.2006 22:27
Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa eru orðin sem forstjóri 365 miðla notar um þá fyrirætlan ráðamanna að koma fjölmiðlafrumvarpinu og frumvarpinu um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins í gegn fyrir þinglok. 26.4.2006 22:24
Segir sýndarmennsku einkenna mörg brúðkaup Biskup Íslands fjallaði um brúðkaup í Hollywood stíl í messu á prestastefnu í keflavíkurkirkju í gær. Hann hvatti presta og organista til að standa saman gegn afhelgun í kirkjum landsins. 26.4.2006 21:50
Snow næsti talsmaður Hvíta hússins Tony Snow, fréttamaður á Fox-sjónvarpsstöðinni bandarísku, verður næsti talsmaður Hvíta hússins. Hann tekur við starfi Scotts McClellan sem í síðustu viku var látinn taka pokann sinn. 26.4.2006 21:00
Umferðarslys í Hvalfjarðargöngunum Fólksbíll lenti utan í vegg í Hvalfjarðargögnunum á níunda tímanum í kvöld. Ökumaður, sem var einn í bílnum, var fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi en hann kenndi sér eymsla í baki og hálsi. Hvalfjarðargöngunum var lokað til norðurs vegna í tæpa klukkustund vegna árekstursins en búið er að opna fyrir umferð á ný. 26.4.2006 20:34
Mælir útgeislun geislavirkra efna Það lætur ekki mikið fyrir sér fara tækið, sem er eitt aðalverkfæri þeirra sem mæla geislun í umhverfinu. Gaiger teljari var fundinn upp fyrir um áttatíu árum. Teljarinn er notaður til að finna úran og önnur geislavirk efni í jarðveginum. 26.4.2006 20:21
Varar við innrás í Íran Ali Khamenei erkiklerkur í Íran varaði Bandaríkjamenn við að ráðast inn í landið í ræðu sem hann flutti á þingi íranskra verkamanna í dag. 26.4.2006 20:00
Íslendingafélag stofnað í Peking Íslendingafélag var stofnað í Peking í Kína í gær. Ríflega þrjátíu Íslendingar á öllum aldri búa í Peking og er stór hluti þeirra námsmenn. Tilgangur félagsins er meðal annars að halda utan um og efla félagsstarfsemi Íslending í Peking og nágrenni, auk þess að efla og rækta tengsl félagsmanna við Alþýðulýðveldið í Kína eftir því sem tök eru á. Stofnfundur félagsins var haldinn í sendiráði Íslands í Peking en þangað mættu fimmtán manns að því tilefni. 26.4.2006 19:17
Prestar taki upp blessunarform fyrir samkynhneigða Kenningarnefnd Þjóðkirkjunnar leggur til að tekin verði upp sérstök form á blessun staðfestrar samvistar samkynhneigðra para. Tillögur að blessunarformunum voru kynntar á prestastefnu og eru prestar hvattir til að nota þau á næsta ári til reynslu, eða þar til þjóðkirkjan tekur endanlega ákvörðun um hvort eða hvernig hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. 26.4.2006 19:15
Fangaflugið var umfangsmikið og kerfisbundið Sérkennilegar leiðir fangaflugvéla bandarísku leyniþjónustunnar CIA frá einni borg til annarrar voru á meðal þess sem vakti grunsemdir rannsóknarnefndar Evrópuþingsins. Nefndin skilaði bráðabirgðaskýrslu sinni í dag þar sem því er haldið fram að CIA hafi flogið rúmlega þúsund sinnum í gegnum lofthelgi ESB síðan 2001 án þess að gera grein fyrir ferðum sínum. 26.4.2006 19:00