David Zell ráðinn til Glitnis í London 27. apríl 2006 13:49
David Zell hefur verið ráðinn yfirmaður lánastarfsemi og sambankalána í útibúi Glitnis í London og hóf hann störf síðastliðinn mánudag. David verður einnig staðgengill framkvæmdastjóra útibúsins, þetta kemur fram tilkynningu frá Glitni David Zell er með víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði í London og á meginlandi Evrópu. Hann hefur komið að umfangsmiklum endurfjármögnunarverkefnum, fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og fjármögnun fyrirtækjakaupa. Steinunn Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Glitnis í London, segir að ráðning Davids Zell sé liður í uppbyggingu Glitnis í Bretlandi til lengri tíma. „Ráðningin endurspeglar ásetning Glitnis um öfluga uppbyggingu á lánastarfsemi bankans og hún styrkir alhliða vöru- og þjónustuframboð bankans gagnvart lykilviðskiptavinum, ekki síst í alþjóðlegum matvælaiðnaði." Áður en David hóf störf hjá Glitni var hann framkvæmdastjóri hjá WestLB í London þar sem hann var yfir sambankalánum í Vestur-Evrópu og víðar. David þróaði sambankalánastarfsemi WestLB og leiddi stór verkefni fyrir viðskiptavini eins og Deutsche Bahn, Gazprom og TUI/Thompson Travel. Þess má geta að hjá WestLB hafði David yfirumsjón með sambankaláni Actavis en WestLB leiddi fjármögnun fyrirtækisins ásamt Glitni. Áður en David réðst til WestLB var hann framkvæmdastjóri lánastarfsemi Citigroup í 10 ár ásamt því að stýra sambankalánum í Þýskalandi, Sviss og á Ítalíu og fyrir heilbrigðisgeirann í Evrópu. Með ráðningu Davids Zell starfa 25 manns fyrir útibú Glitnis í London en þar af hafa þrír starfsmenn aðsetur á Kirkjusandi.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira