Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landið fýkur burt Moldrok ágerist nú með hverjum deginum ofan af Haukadalsheiði og hálendinu þar fyrir ofan, yfir Gullfoss- og Geysissvæðið og austanverðar Biskupstungur. Snjókoman, sem verið hefur á Norðurlandi, nær ekki suður á sunnanvert hálendið, svo þar skrælþornar jarðvegur og fýkur í minnsta vindi. Nokkur norðanstrekkingur hefur hinsvegar verið á svæðinu í nokkra daga og segja heimamenn að moldrokið nú sé með mesta móti, miðað við undanfarin ár, sem veit á mikinn uppblástur gróðurlendis 30.3.2006 13:15
Vilja að ríkið bjóði út eldsneyti Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir Ríkiskaup ekki vilja ræða við fyrirtækið um hugsanlegt útboð á eldsneytiskaupum fyrir ríkið. Hann segir undarlegt að ríkið vilji áfram eiga viðskipti við stóru olíufélögin í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leita réttar síns vegna meints ólöglegs samráðs þeirra. 30.3.2006 12:45
MS flytur og störfum fækkar Starfsmönnum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík mun fækka um fjörutíu á næstunni, þegar mjólkurpökkunin verður flutt austur á Selfoss í Mjólkurbú Flóamanna, að því er Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar tilkynnti á starfsmannafundi í morgun. 30.3.2006 12:28
Ráðherrar neita ábyrgð Hvorki heilbrigðisráðherra né fjármálaráðherra segjast bera ábyrgð á kjarasamningum við starfsfólk á hjúkrunarheimilum, sem fór í setuverkfall í gær. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í morgun að fjármálaráðherra gæti ekki hlaupist undan ábyrgð í þessu máli. 30.3.2006 11:57
Skemmdarverk í Vogum Þrjár rúður voru brotnar í nótt í flutningabíl sem flytja átti stóran tank frá Vogum á Vatnsleysuströnd til álversins á Grundartanga. Bíllinn hefur staðið ferðbúinn alla vikuna með tankinn en ekki getað lagt af stað vegna vinds. Skemmdarverkin koma sér mjög illa vegna þess að erfitt er að flytja bílinn til þess að láta laga rúðurnar. Málið er í rannsókn. 30.3.2006 10:24
Harma starfslok hjúkrunarforstjóra Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga harmar þær aðstæður sem leiddu til starfsloka hjúkrunarforstjóra Hrafnistuheimilanna og Sankti Jósefsspítala. Félagið skorar á stjórnvöld að gera sérstaka þjónustusamninga um rekstur öldrunarstofnana þar sem skýrt verði kveðið á um gæði og magn þjónustu, sem og þann mannafla sem þarf til að tryggja viðeigandi þjónustu. 30.3.2006 10:16
Alþjóðlegt skíðamót í Bláfjöllum Icelandair Cup mótaröðin hefur verið flutt frá Akureyri vegna veðurs um helgina og verður haldin í Bláfjöllum. Þar er nú nægur snjór til mótahalds en annars er ekki opið í lyfturnar fyrir almenna skíðamenn. Keppt verður í tveimur svigmótum í dag og einu í Kóngsgili á morgun. 30.3.2006 09:26
Til bjargar íslenskum ljóðum Nýhil hyggur á nútímahandritasöfnun til bjargar ljóðabókum sem grotna í kjöllurum landsmanna. Í fréttatilkynningu frá þeim er lýst eftir óseldum upplögum frá útgefendum sem eru búnir að leggja upp laupana eða bókum sem fólk hefur framleitt og selt á eigin vegum. Ljóðin og önnur list verða til sölu í fyrirhugaðri ljóða- og listabúð samtakanna sem opnar á næstu vikum. 30.3.2006 09:07
Stýrivextir hækkaðir um 75 punkta Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 75 punkta frá og með 4. apríl. Eftir hækkun verða stýrivextir bankans 11,5 prósent. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,75 prósentustig frá 1. apríl. 30.3.2006 09:03
Minna tóbak til unglinga Forvarnarnefnd Hafnarfjarðar kannaði í liðinni viku hversu margir sölustaðir seldu unglingum tóbak. Af 23 sölustöðum gátu tvær 15 ára tálbeitur keypt tóbak á 7 stöðum. Síðast þegar sambærileg könnun fór fram féllu 59% sölustaða á prófinu en rétt um 30% núna og því ljóst að kaupmenn eru að taka sig á. En betur má ef duga skal. . 30.3.2006 08:45
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Íran 30 daga frest Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur veitt Íran 30 daga frest til að sannfæra ráðið um að landið ætli ekki að hefja framleiðslu á kjarnavopnum. Öryggisráðið krafðist þess í fyrsta skipti í gær að Íranar falli frá þeim hluta kjarnorkuáætlunar sinnar sem geri þeim kleift að smíða kjarnorkuvopn. 30.3.2006 08:02
Hluti af starfsemi MS fer á Selfoss Búist er við að Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar tilkynni á starfsmannafundi klukkan níu, að verulegur hluti starfsseminnar verði fluttur austur á Selfoss í Mjólkurbú Flóamanna. 30.3.2006 08:00
Vonast til að friður myndi nást á milli Ísraela og Palestínumanna Ismail Haniya, nýsvarinn forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, sagðist í gær vonast til að friður myndi nást á milli Ísraela og Palestínumanna. 30.3.2006 07:58
Á hundrað níutíu og fjögurra kílómetra hraða Sportbíll mældist á hundrað níutíu og fjögurra kílómetra hraða á Vesturlandsvegi í nótt, en ökumaður virti stöðvunarmerki lögreglumanna að vettugi og hvarf þeim sýn á svip stundu, þótt þeir reyndu að veita honum eftirför. 30.3.2006 07:57
Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þá er Ísland með lægstu tíðni yfir ungbarnadauða í heiminum. 30.3.2006 07:56
Línuskipið Tjaldur tók niðri í Eyjafirði Línuskipið Tjaldur tók niðri innarlega í Eyjafirði snemma í morgun þegar skipið var að koma úr róðri og kallaði skipstjóri á aðstoð hafnsögubátsins á Akureyri. Hann náði skipinu strax út, sem sigldi fyrir eigin vélarafli til hafnar og verður botninn kannaður í dag. 30.3.2006 07:56
30 ára fangelsisvist fyrir að hafa ætlað að myrða George Bush Ahmud Omar Abu Ali, 25 ára maður frá Virginíu-fylki í Bandaríkjunum, var í gær dæmdur til 30 ára fangelsisvistar fyrir að hafa ætlað að myrða George Bush Bandaríkjaforseta með aðstoð al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna. 30.3.2006 07:54
Þrjátíu rútufarþegar létust og þrír slösuðust Um þrjátíu rútufarþegar létust og þrír slösuðust í Yunnan héraði í Kína í gærkvöld. Rútan steyptist ofan í 100 metra djúpan dal við borgina Zhaotong en alls var þrjátíu og einn maður innanborðs. Barn er meðal hinna slösuðu og liggur það í dái. Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins. 30.3.2006 07:54
Enginn mun njóta friðhelgi Enginn mun njóta friðhelgi sem ákærður hefur verið fyrir að fremja voðaverk fyrir herforingjastjórn Augusto Pinochet á árunum 1973-1990. Frá þessu greindi Michelle Bachelet, forseti Chile við vígsluathöfn minnisvarða um fórnarlömb Pinochet stjórnarinnar í gær. 30.3.2006 07:52
Charles Taylor fyrrverandi forseti Líberíu kominn til Sierra Leone Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, er kominn til Sierra Leone þar sem hann verður sóttur til saka fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. 30.3.2006 07:51
Þrjú innbort voru framin í söluturna Þrjú innbort voru framin í söluturna í austurborginni í nótt og meðal annars stolið tóbaki og skiptimynt. Lögreglan útilokar ekki að sömu menn hafi verið að verki í öllum tilvikum, en engin hefur enn verið handtekinn vegna innbrotanna. 30.3.2006 07:50
Eldur í Strikinu á Akureyri Nokkurt tjón varð á veitingastaðnum Strikinu á Akureyri, sem áður hét Fiðlarinn, þegar eldur kviknaði við grillið þar í gærkvöld. Staðurinn var þegar rýmdur og þurftu slökkviliðsmenn að rjúfa vegg til að komast að rótum eldsins, en eftir það gekk slökkvistarf vel. 30.3.2006 07:49
Mikið um sinuelda af mannavöldum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fjórum sinnum í kvöld vegna sinuelda sem kviknað höfðu af manna völdum. Sinueldarnir, sem kveiktir voru í Hafnarfirði og Breiðholti, voru allir smáeldar sem greiðlega gekk að slökkva. 29.3.2006 22:56
Eldur á veitingastaðnum Strikinu Slökkvilið Akureyrar var kallað út á níunda tímanum í kvöld vegna reyks sem lagði úr vegg í eldhúsi veitingastaðarins Strikið á Akureyri. Veitingastaðurinn var rýmdur sökum þessa en ekki reynist vera um mikinn eld að ræða og var engum hætta búin. Járnplötur voru rifnar frá veggnum og reyndust vera smávægilegar skemmdir í veggnum þar sem eldurinn hafði kviknað. 29.3.2006 22:49
Munur á ævilengd karla og kvenna minnkar enn Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þá er Ísland með lægstu tíðni yfir ungbarnadauða í heiminum. 29.3.2006 22:33
Óánægja með frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki samþykkt frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Óánægja er innan flokksins með hvernig staðið var að kynningu frumvarpsins en málið var rætt á þingflokksfundi nú undir kvöldið. 29.3.2006 22:20
Mómælendur ekki á því að gefast upp í París Brotnar rúður og málningarslettur úti um allt, voru það sem blasti við íbúum Parísar þegar þeir héldu til vinnu í morgun. Nærri fimm hundruð manns voru handteknir í miklum mótmælum í höfuðborginni í gær. 29.3.2006 22:17
Mikill áhugi fyrir listdansi hér á landi Það vantar ekki listdansáhugann hjá nemendum Stúdentadansflokksins sem samhliða dansnáminu stunda allir krefjandi háskólanám. Stúdentadansflokkurinn var stofnaður formlega 1. febrúar síðastliðinn en það er Margrét Anna Einarsdóttir sem á veg og vanda að stofnun hans. 29.3.2006 22:09
Aflaheimildir af norsk-íslenskri síld hækka um 35,22% Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hækka aflaheimildir af norsk-íslenskri síld um 35,22 prósent á þessu ári. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að í ljósi þess að ekkert bendi til þess að Norðmenn muni endurskoða ákvörðun sína um aflaheimildir í norsk-íslenskri síld árið 2006 hafi þessi ákvörðun verið tekin. 29.3.2006 20:21
Gögn styðja ekki Vilhjálm segir Ríkisendurskoðun Ríkisendurskoðun telur sig hafa fengið óyggjandi upplýsingar og gögn sem hreki fullyrðingar Vilhjálms Bjarnasonar um að þýski bankinn Hauck og Afhauser hafi ekki getað átt hlut í Búnaðarbankanum í gegnum Eglu. 29.3.2006 18:50
Landsbjörg í gæslueftirlit Landhelgisgæslan á í viðræðum við björgunarsveitir landsins um þátttöku þeirra í eftirliti á íslensku hafsvæði. Aðmíráll bandarísku strandgæslunnar hafði óvænt viðdvöl hér á landi í gær og ræddi við forstjóra gæslunnar um samstarf. 29.3.2006 18:45
Staðlausir stafir um að ekki mætti skilja grunnnetið frá Ráðamenn héldu fram staðlausum stöfum og tómri vitleysu þegar þeir sögðu nauðsynlegt að selja grunnnetið með þegar Landssíminn var einkavæddur. Þetta segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í ljósi viðræðna Símans og Orkuveitu Reykjavíkur um hugsanlega sölu grunnnetsins. 29.3.2006 18:45
Álver í Helguvík á fleygiferð Viðræður um að flýta smíði álvers í Helguvík eru komnar á fulla ferð með þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur. Það gerist þrátt fyrir andstöðu vinstri grænna í meirihlutasamstarfi í borgarstjórn Reykjavíkur. Verkalýðsfélög á Suðurnesjum skoruðu í dag á Orkuveituna að koma að verkefninu. Búist er við að það skýrist í næstu viku hver þáttur Orkuveitunnar geti orðið í rafmagnssölu til álversins. 29.3.2006 18:38
Annað setuverkfall í næstu viku Einungis grunnþörfum heimilisfólks var sinnt á átta dvalarheimilum aldraðra í dag vegna setuverkfalls ófaglærðra starfsmanna. Annað setuverkfall hefur verið boðað í næstu viku sem standa á í tvo sólarhringa. 29.3.2006 18:36
Níu ökumenn teknir fyrir hraðakstur Umferðarmál voru stærsti málaflokkur liðinnar viku hjá lögreglunni á Hvolsvelli líkt og endranær. Níu ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og tilkynnt var um tvær bílveltur. Ökumenn og farþegar sluppu með minniháttar meiðsl en bílarnir eru mikið skemmdir. 29.3.2006 18:34
Upplýsingablaða gefið út um Fjarðarbyggð Sveitafélagið Fjarðarbyggð hefur gefið úr sérstakt blað um sveitafélagið í rúmlega 60.000 eintökum. Í blaðinu er sagt frá þeirri uppbyggingu sem á sér stað í sveitafélaginu en í júní í sumar, þegar Mjóafjarðarhreppur, Austurbyggð og Fáskrúðsfjarðarhreppur sameinast undir nafninu Fjarðarbyggð, þá verður sveitafélagið fjölmennasta sveitafélagið á Austurlandi. 29.3.2006 18:27
Ófært á nokkrum stöðum á landinu Vegagerðin varar við ófærð á nokkrum stöðum á landinu. Ófært er yfir Klettsháls á Vestfjörðum en þar er stórhríð. Þá er komin stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og Eyrarfjalli í Ísafjarðardjúpi. Á Norður- og Austurlandi er víða éljagangur, skafrenningur og hálka en víða er leiðinlegt ferðaveður. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi á Austurlandi. 29.3.2006 18:19
Frumvarp um hlutafélagsvæðingu RÚV úr nefnd í dag Það kom til átaka í menntamálanefnd Alþingis í dag er meirihlutinn hafnaði kröfu minnihlutans um að ræða frumvarp um Ríkisútvarpið samhliða nýju fjölmiðlafrumvarpi. Málinu hefur verið vísað úr nefnd þrátt fyrir bullandi ágreining. Fulltrúi vinstri grænna segir nauðsynlegt að ræða málin í samhengi. 29.3.2006 17:58
Ótækt að fyrirtæki eigi aðgang að umheimi undir skoskum rottum Ótækt er að íslensk fjármálafyrirtæki og rannsóknarstofnanir eigi samband sitt við umheiminn undir rottugangi á skosku hálendi. Athugasemdir í þessum dúr komu fram á fyrirspurnartíma á Alþingi í dag þar sem samgönguráðherra var inntur eftir því hvernig hann hygðist bæta netsamband við útlönd í ljósi eilífra vandkvæða með Farice-sæstrenginn. 29.3.2006 17:56
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald vegna ráns í Mosfellsbæ Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa framið rán, í félagi við tvo aðra, í bensínafgreiðslustöð í Mosfellsbæ síðastliðið sunnudagskvöld. Maðurinn var einn þegar hann réðst til atlögu en hann er grunaður um að hafa numið á brott með sér á milli 50.000 til 60.000 krónur í reiðufé. Það er mat lögreglu að rannsóknarhagsmunir séu það ríkir á þessu stigi málsins og hinn grunaði geti torveldað rannsókn málsins fái hann að ganga laus á meðan á rannsókn stendur. Hinn grunaði skal því sæta gæsluvarðhaldi fram til 3. apríl næstkomandi. 29.3.2006 17:45
Samruni grunnneta til Samkeppnisstofnunar Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að hugsanlegur samruni eða samvinna Orkuveitu Reykjavíkur og Símans um grunnnet í jörðu hljóti að koma inn á borð Samkeppnisstofnunar ef af verður. 29.3.2006 17:30
Fallist á stækkun Hellisheiðarvirkjunnar Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða stækkun Hellisheiðarvirkjunnar með sjö skilyrðum. Úrskurður stofnunarinnar er samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og má finna í heild sinni á heimasíðu Skipulagsstofnuar; www. skipulag.is. Úrskurðinn má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur fram til 2. maí næstkomandi. 29.3.2006 17:21
Óskað eftir tilnefningum til jafnréttisverðlauna Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisverðlauna Reykjavíkurborgar sem veitt verða 1. maí næstkomandi en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert og vera hvatning þeim sem vinna ötullega að jafnréttismálum. 29.3.2006 17:13
Komum í Kvennaathvarfið fjölgaði á síðasta ári Komum í Kvennaathvarfið fjölgaði á síðasta ári miðað við fyrri ár. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2005. Þar kemur einnig fram að aukningin gefi til kynna að kynbundið ofbeldis sé enn stórt vandamál í samfélaginu og það fari ekki minnkandi. 29.3.2006 17:10
Gott að búa í Skagafirði Níu af hverjum tíu íbúum í Skagafirði eru ánægðir með að búa í Skagafirðinum. Þetta kemur fram í könnun sem IMG-Gallup vann fyrir sveitafélagið nýverið og var úrtakið 1200 manns. Íbúar eru almennt mjög ánægðir með þjónustu sveitafélagsins líkt og leik-, grunn- og framhaldsskóla. 29.3.2006 17:00