Annað setuverkfall í næstu viku 29. mars 2006 18:36
Einungis grunnþörfum heimilisfólks var sinnt á átta dvalarheimilum aldraðra í dag vegna setuverkfalls ófaglærðra starfsmanna. Annað setuverkfall hefur verið boðað í næstu viku sem standa á í tvo sólarhringa. Setuverkfallið hófst á miðnætti og stendur til miðnættis í kvöld en með aðgerðunum er starfsfólk að mótmæla launakjörum sínum. Dvalarheimilin sem um ræðir eru Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði, Grund, Vífilsstaðir, Víðines, Sunnuhlíð, Skógarbær og Dvalarheimilið Ás í Hveragerði. Á annað þúsund manns dvelja á þessum heimilum en um það bil 900 starfsmenn taka þátt í aðgerðunum. Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, talsmanns starfsmanna á Hrafnistu í Reykjavík, aðstoðuðu þeir gamla fólkið ekki við að klæða sig í morgun eins og venjan er, en fylgja þeim þó á salerni og sjá til þess að þau fái að borða. Enginn þvottur hefur verið þveginn á heimilunum í dag, né hafa gólf verið skúruð. Álfheiður segir heimilisfólkið hafa verið afar jákvætt í garð aðgerðanna og það sýni þeim skilning. Aðspurð hvort einhver viðbrögð hafi borst frá stjórnvöldum segir Álfheiður svo ekki vera. Á fundi starfsmanna í dag var ákveðið að grípa að nýju til setuverkfalls í næstu viku, og þá í tvo sólarhringa, frá og með miðnætti á fimmtudag, ef ekkert hefur þokast í málunum. Ekki hefur náðst í heilbrigðisráðherra í dag vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira