Innlent

Gögn styðja ekki Vilhjálm segir Ríkisendurskoðun



Ríkisendurskoðun telur sig hafa fengið óyggjandi upplýsingar og gögn sem hreki fullyrðingar Vilhjálms Bjarnasonar um að þýski bankinn Hauch & Afhauser hafi ekki getað átt hlut í Búnaðarbankanum í gegnum Eglu.

Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands hefur fullyrt að hann hafi undir höndum gögn sem sanni að það hafi verið útilokað að þýski bankinn hafi átt helmingshlut í Eglu, en aðild bankans var ein af forsendunum fyrir því að S-hópurinn svokallaði, sem Egla var hluti af, fékk að kaupa Búnaðarbankann árið 2003.

Vilhjálmur afhenti ríkisendurskoðanda þessi gögn og heyrði uppá stofnunina að leggja á það mat hvort aðild þýska bankans hafi verið yfirvarp - eða að hann hafi verið einskonar leppur í einkavæðingarferlinu. Þetta mat er birt í dag í formi svars tiil fjárlaganefndar þingsins.

Það er ekki mikið fjallað um málið í svari Ríkisendurskoðunar en vísað í skjöl sem stofnunin hefur aflað sér, meðal annars fjölda gagna frá Eglu. Eins er vísað til svars frá þýska bankanum um færslu á þessum eignarhlut í bækur félagsins og staðfestingar þar um hjá þýsku endurskoðunarfirma bankans. Tilgreint er jafnframt að þýski bankinn hafi ekki talið þörf á því að tilgreina þessi kaup til þýska fjármálaeftirlitsins þar sem lagaskylda hafi ekki kallað á slíkt.



Einnig var leitað álits Stefáns Svavarssonar, löggilts endurskoðanda og dósents við Háskólann í Reykjavík um það hvort lesa mætti útúr reikningsskilum þýska bankans að hann hafi EKKI fjárfest í Eglu. Niðurstaða Stefáns er að reikningsskilin sýni það ekki - en heldur ekki að vísu að bankinn hafi í reynd eignast þennan hlut.



Ríkisendurskoðun telur litla ástæðu til að reifa málið ofaní kjölinn en vísar til fylgiskjala og kemst þeirri niðurstöðu að: "....ekkert nýtt hafi verið lagt fram í málinu, sem stutt geti hinar víðtæku ályktanir, er Vilhjálmur hefur dregið af gögnum þeim, sem hann hefur lagt fram og þeim óformlegu upplýsingum, sem hann kveðst búa yfir. Þvert á móti þykja liggja fyrir óyggjandi upplýsingar og gögn um hið gagnstæða".





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×