Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögðu þinghús undir sig Byssumenn á vegum Fatah-hreyfingarinnar og palestínskar lögreglusveitir tóku völdin í byggingum þings Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gasaströndinni um hádegisbilið í dag. Það varði þó í skamma stund. Vildu þeir vekja athylgi á andúð sinni á Hamas-samtökunum, sem unnu stórsigur í þingkosningum Palestínumanna í vikunni. 28.1.2006 14:04
Vill afnema bann á auglýsingum heilbrigðisstétta Varaformaður Samfylkingarinnar segir lög um bann við auglýsingum heilbirgðisstétta og heilbrigðisstofnana úrelt og vill að slíkar auglýsingar verði heimilaðar til þess að upplýsa almenning betur um heilbrigðisþjónustuna. Hann óttast ekki að óljós mörk verði milli upplýsingagjafar og mikils markaðsstarfs í geirum og segir bæði samkeppnislög og siðareglur félaga setja kvaðir á menn. 28.1.2006 14:00
14 lið í snjóskurðarkeppni 14 lið víðsvegar að úr heiminum komu saman í Colorado í Bandaríkjunum í vikunni til að taka þátt í snjóskurðarkeppni sem þar er haldin. Hvert keppnislið fékk 65 klukkustundir til að ljúka við listaverk sem er skorið úr 20 tonna snjóklumpi. 28.1.2006 14:00
LN heimilar sveitarfélögum að hækka laun leikskólakennara Launanefnd sveitarfélaganna ákvað á fundi sínum í morgun að heimila sveitarfélögum að hækka laun leikskólakennara með því að bæta við launaflokkum og eingreiðslum. Gildistími launaviðbótanna er frá upphafi þessa árs til 30. september þegar kjarasamningur Félags leikskólakennara við launanefndina rennur út. Það er því á herðum sveitarfélaganna sjálfra að ákveða hvort og þá hve mikið laun leikskólakennara hækka. 28.1.2006 13:37
130 einbýlishúsalóðir runnu út 130 einbýlishúsalóðir sem Reykjanesbær auglýsti í vikunni eingöngu til einstaklinga runnu út á tveimur dögum. Mikill uppgangur er í bæjarfélaginu og hefur lóðum fyrir vel á annað þúsund íbúðir verið úthlutað að undanförnu. 28.1.2006 13:15
Margrét Guðrún Gunnarsdóttir ekki lengur með í Idol Margrét Guðrún Gunnarsdóttir var send heim eftir harða keppni í Idol stjörnuleit í gærkvöld! Margrét söng lagið Rescue Me og hlaut flutningur hennar ekki náð hjá þjóðinni. 28.1.2006 12:38
350 búnir að kjósa í prófkjöri Framsóknar á hádegi Góð mæting hefur verið á kjörstað í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík í morgun og voru 350 manns búnir að kjósa á hádegi. Formaður kjörstjórnar segir þetta stóran dag í sögu flokksins en þetta er fyrsta prófkjör Framsóknarflokksins í borginni í sextán ár. 28.1.2006 12:30
20 ár frá Challenger slysinu 20 ár eru liðin frá því að geimskultan Challenger fórst með sjö áhafnarmeðlimum þegar tilraun til flugtaks mistókst. Sjö geimfarar fórust í slysinu og var geimferðum Bandaríkjamanna frestað um tíma vegna þess. 28.1.2006 12:09
Vopnahlé verður ekki virt Spenna magnast meðal Palestínumanna í kjölfar palestínsku þingkosninganna í vikunni. Leiðtogar Hamas-samtakanna, sigurvegara kosninganna, hafa hafnað óskum alþjóðasamfélagsins um að afvopnast og liðsmenn í Hersveit Al-Aqsa píslarvottanna segjast ekki ætla að virða vopnahlé og segja byssukúlum sínum verða beint gegn Ísraelsmönnum og liðsmönnum Fatah. 28.1.2006 12:04
Opið í Hlíðarfjalli í dag Opið er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag frá kl. 10-17. Skíðafærið er unnið harðfenni. Veðrið kl. 8 var nánast logn og 3. stiga hiti. Í tilkynningu frá starfsfólki í fjallinu segir að það sé ágætis snjór í Hlíðarfjalli þrátt fyrir hlýtt veðurfar undanfarna daga. Flestar lyftur séu í notkun. 28.1.2006 11:45
Velti bíl á Þorlákshafnarvegi Ung kona velti bíl sínum á Þorlákshafnarvegi norðan við Eyrarbakkaveg um klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hún meiddist þó ekki alvarlega en var flutt á slysadeild Landspítalans þar sem hún kvartaði undan verkjum í hálsi. Bíllinn sem konan ók er illa farinn og óökufær. 28.1.2006 11:30
Skipar starfshóp vegna nýrra framhaldsskóla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til að yfirfara og meta fýsileika þeirra kosta sem til staðar eru varðandi byggingu nýrra framhaldsskóla. Fram kemur á heimasíðu ráðuneytisins að starfshópurinn muni skoða sérstaklega kosti á höfuðborgarsvæðinu og við utanverðan Eyjafjörð. 28.1.2006 11:15
Segir áhrifahóp vilja ráða hver leiði lista Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að áhrifamikill hópur innan flokksins vilji ráða því hverjir leiði lista Framsóknarflokksins í Reykjavík og hafi beitt sér hart í þeim efnum fyrir prófkjör sem fram fer í dag. 28.1.2006 10:45
Siglfirðingar og Ólafsfirðingar kjósa um sameiningu Siglfirðingar og Ólafsfirðingar greiða um það atkvæði í dag hvort sameina beri sveitarfélögin, en íbúar beggja sveitarfélaga samþykktu tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð þann 8. október. Kjörstaðir voru opnaðir nú klukkan tíu og þeir verða opnir til klukkan átta í kvöld. 28.1.2006 10:30
Framsóknarmenn í Reykjavík ganga til prófkjörs Framsóknarmenn í Reykjavík velja í dag sex efstu fulltrúa sína á lista fyrir borgarstjórnarkosningar í vor með prófkjöri sem fram fer í anddyri Laugardalshallarinnar. Það hefst nú klukkan tíu og lýkur klukkan sex. 28.1.2006 10:00
Nýtt bóluefni gegn fuglaflensu Vísindamenn við Háskólann í Pittsburgh í Bandaríkjunum segja að þeim hafi tekist að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu sem hægt verði að búa til með hraði. Það bóluefni sem nú er notað er ræktað í frjóvguðum hænueggjum og því tekur framleiðslan margar mánuði. 28.1.2006 09:57
Þrír bankar hagnast yfir 100 milljarða Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári og hefur aldrei verið meiri. Samanlagður hagnaður þeirra þriggja stóru banka sem birt hafa afkomutölur sínar í fyrra nemur meira en hundrað milljörðum króna. 27.1.2006 23:45
Herra Ísland sviptur titlinum Ólafur Geir Jónsson hefur verið sviptur titlinum Herra Íslands en Ólafur var kosinn Herra Ísland árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Fegurðarsamkeppni Íslands sem slíkt er gert. 27.1.2006 23:30
90 prósent ferðamanna höfðu góða reynslu af Reykjavík Níu af hverjum tíu erlendu ferðamönnum sem heimsóttu Reykjavík á síðasta sumri voru höfðu góða reynslu af borginni. Þá er sama hlutfall af gestum menningarstofnana borgarinnar ánægður með starfsemi þeirra. Þetta sýna niðurstöður tveggja kannana sem kynntar voru í dag 27.1.2006 23:08
Kynferðisbrot gegn þroskaheftri stúlku Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í dag fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára þroskaheftri stúlku. Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir vinnubrögð og rannsókn lögreglu í málinu og segir hana hafa brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu. 27.1.2006 22:39
Biskup misskilur frumvarp Biskup Íslands virðist misskilja frumvarp ríkisstjórarinnar um réttarstöðu samkynhneigðra að því er varðar þann hluta þess sem fjallar um tæknifrjóvganir. Ef svo er ekki þá er ekki annað að sjá en að um útúrsnúning sé að ræða að sögn Ragnars Aðalsteinssonar, hæstarréttarlögmanns. 27.1.2006 22:37
Efnahagsuppbygging á Íslandi einna hröðust í heiminum Hagvöxtur hér á landi var rúmlega fimm prósent í fyrra, sem er nánast einsdæmi á Vesturlöndum. Hástökkvararnir í hagvexti eru hins vegar risarnir í Asíu, Kína, þar sem hagvöxturinn var níu prósent í fyrra, og Indland þar sem hagvöxturinn var rúm sjö prósent. Ísland er þannig í flokki þeirra landa þar sem efnahagsuppbygging hefur verið einna hröðust í heiminum. 27.1.2006 22:33
250 ára fæðingarafmæli Mozarts Bjöllum var hringt í kvöld í Salzburg í Austurríki þar sem fagnað var 250 ára fæðingarafmæli tónskáldsins Wolfgangs Amadeusar Mozarts. (LUM) Það má segja að Motzart æði hafi farið um heimsbyggðina í dag og fæðingarafmælinu fagnað í helstu borgum heims. Hátíðarhöldin voru þó mest í fæðingarbænum Salzburg. Þar komu fjölmargir tónlistarmenn saman og hylltu meistarann með því að leika hans frægustu verk. Mozart samdi rúmlega 600 tónverk fyrir andlát sitt en hann var aðeins 35 ára þegar hann hvarf yfir móðuna miklu. Hann samdi fyrstu simfóníu sína fyrir 10 ára afmæli sitt og fystu óperuna 12 ára. Hann átti stóran þátt í að breyta óperu-listinni í það sem við þekkjum í dag. 27.1.2006 22:23
Rau allur Johannes Rau, fyrrverandi forseti Þýskalands, lést í dag, 75 ára að aldri. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvert banamein hans var en Rau hafði verið heilsuveill síðustu ár. 27.1.2006 22:19
Umhverfismat gleymdist Borgin gleymdi umhverfismati fyrir bílastæðahús við tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem rísa á við Reykjavíkurhöfn. Öll viðvörunarljós loga, segja sjálfstæðismenn, og að ekki séu öll kurl komin til grafar enn. 27.1.2006 22:17
Hamas-liðar og stuðningsmenn Fatah berjast Til skotbardaga kom milli Hamas-liða og palestínskra öryggissveita á suður hluta Gasa-strandarinnar í kvöld. Fyrstu fréttir herma að þrír hafi særst í átökunum. Fulltrúar öryggissveitanna segj að Hamas-liðarnir hafi skotið á höfðustöðvar þeirra og þeir því svarað í sömu mynt. Fyrr í dag særðust þrír í átökum Hamas-liða og stuðningsmanna Fatah í Khan Younis. Gríðarleg spenna hefur myndast milli Hams-liða og stuðningsmanna Fatah eftir að hinir fyrrnefndu unnu meirihluta á palestínska þinginu í kosningum í fyrradag. 27.1.2006 22:13
Eldur í bílum Tveir eldsvoðar urðu í bílum í kvöld. Rétt fyrir klukkan 20 kviknaði í heyrúllu á vörubíl í Garðabæ. Bíllinn var að koma utan af landi með rúllur á pallinum og í vagni sem var í eftirdragi. Það kviknaði í rúllunni sem var næst bílstjórahúsinu og þurfti að hífa rúllurnar af bílnum til að slökkva eldinn. Þá kom upp eldur í bíl við Dugguvog um hálf tíu. Í hvorugu tilvikinu urðu meiðsl á fólki. 27.1.2006 22:06
Meiri áhætta að fara ekki í stóriðjuuppbyggingu Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir meiri áhættu tekna fyrir íslenskt efnahagslíf með því að fara ekki í stóriðjuuppbyggingu. Hann telur verkefnið vel viðráðanlegt út frá hagstjórn og að of mikið sé gert úr hættu sem því fylgi. Ný skoðanakönnun sýnir að 56 prósent þeirra sem afstöðu taka séu hlynnt frekari uppbyggingu áliðnaðar í landinu. 27.1.2006 22:01
Íbúðalánavextir muni standa í stað Viðskiptabankarnir skeyta engu um vaxtahækkanir Seðlabankans og almennir íbúðalánavextir standa í stað. Ef vextir hér verða of háir, sækja bankarnir einfaldlega peninga til útlanda, segir forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans. 27.1.2006 21:30
Álver á Norðurlandi eina glóran Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðarbyggðar, sagði í hádegisviðtalinu á NFS í dag að eina glóran sé að reisa álver á Norðurlandi. Álver í Fjarðarbyggð hafi breytt sveitarfélaginu frá því að vera samfélag í vörn í að vera samfélag í sókn. 27.1.2006 21:03
Mörg tækifæri ónýtt Greiðar samgöngur til þéttbýliskjarna Vesturlands hafa breytt framtíðarásjónu landshlutans. Sumir vilja meina að landshlutinn sé orðinn tvískiptur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Framtíð Vesturlands var rædd á ráðstefnu á Bifröst í dag. 27.1.2006 20:00
Hamas falin myndun ríkisstjórnar Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur falið Hamas-samtökunum að mynda nýja ríkisstjórn en þau unnu stórsigur í palestínsku þingkosningunum í fyrradag. Engin breyting hefur orðið á afstöðu leiðtoga Vesturveldanna til samtakanna. 27.1.2006 19:19
Biskup Íslands braut stjórnsýslulög Biskup Íslands braut stjórnsýslulög við ráðningarferli sendiráðsprestsins í Lundúnum. Tengdasonur hans hreppti stöðuna. 27.1.2006 19:01
Hagnaður Avion Group 2,6 milljarðar Heildartekjur Avion Group á fjárhagsárinu, sem var frá ársbyrjun til loka október 2005, námu rúmum 86 milljörðum króna. Rekstrargjöld voru rúmir 80 milljarðar og rekstrarhagnaður rúmir 3,7 milljarðar. Hagnaður félagsins á þessu tímabili nam rúmum 2,6 milljörðum. 27.1.2006 18:44
Landsbankinn hagnaðist um 25 milljarða í fyrra Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári, úr 12,7 milljörðum króna í 25 milljarða. Í afkomutilkynningu frá bankanum kemur enn fremur fram að hreinar vaxtatekjur hafi numið 22,9 milljörðum króna samanborið við 14,7 milljarð króna á árinu 2004 og jukust þær um 56 prósent. 27.1.2006 18:15
Níu létust í rútuslysi í Svíþjóð Í það minnsta níu manns biðu bana og tugir slösuðust í alvarlegu rútuslysi í Mið-Svíþjóð um hádegisleytið í dag. Fimmtíu farþegar voru um borð í rútunni sem virðist hafa runnið af ísilagðri hraðbrautinni á mikilli ferð. 27.1.2006 18:08
Öflugur jarðskjálfti austur af Indónesíu Öflugur jarðskjálfti sem mældist 7,7 á Richter varð í Banda-hafi, skammt austur af Indónesíu, nú laust fyrir klukkan 18. Ekki vitað hvort flóðbylgja hafi myndast af hans völdum. 27.1.2006 18:04
Ásgeir Sverrisson nýr ritstjóri Blaðsins Ásgeir Sverrisson hefur verið ráðinn ritstjóri Blaðsins og mun hefja störf 1. febrúar næstkomandi. Ásgeir hefur starfað á ritstjórn Morgunblaðsins í tæp 20 ár og verið fréttastjóri erlendra frétta á Morgunblaðinu frá árinu 2001. 27.1.2006 18:04
Þúsund hafa kosið utan kjörstaðar í prófkjöri framsóknarmanna Um þúsund manns hafa kosið utan kjörstaðar fyrir prófkjör framsóknarmanna í borginni sem fram fer á morgun. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla hefur staðið yfir frá því á mánudag en henni lauk nú klukkan fimm. 27.1.2006 17:57
11 milljarða króna pottur í Evrópulottóinu Lottó-æði virðist hafa gripið um sig í Evrópu nú þegar potturinn í Evrópulottóinu er jafnvirði rúmlega 11 milljarða íslenskra króna. Enginn hefur verið með allar tölur réttar í lottóinu síðan í nóvember í fyrra og því skal engan undra að vinningsupphæðin sé svona há nú. 27.1.2006 17:54
Segir skatta hafa lækkað umtalsvert frá 1994 Að sögn fjármálaráðuneytisins hafa skattar lækkað umtalsvert frá árinu 1994 og munu lækka enn frekar fram til ársins 2007 þegar allar ákvarðanir um skattalækkanir hafa tekið gildi. Þá segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að skattleysismörk á sama verðlagi séu nánast þau sömu og þau voru árið 1994 og að þau muni verða talsvert hærri árið 2007. 27.1.2006 17:49
Hundasirkus í Hong Kong 10 hæfileikaríkir japanskir hundar skemmtu áhorfendum í Hong Kong í dag í tilefni þess að ár hundsins gengur í garð á sunnudag samkvæmt kínverska tímatalinu. 27.1.2006 17:42
2 milljónir Sómala þurfa matvælaaðstoð Rúmlega tvær milljónir Sómala þurfa nauðsynlega á matvælaaðstoð að halda nú þegar vegna alvarlegra þurrka sem hafa herjað á landið. Sérfærðingar Sameinuðu þjóðanna segja uppskeruna í landinu nú ekki hafa verið jafn rýra í heilan áratug enda hefur ekki rignt í landinu síðastliðin þrjú regntímabil. 27.1.2006 17:33
Karl og kona úrskurðuð í viku gæsluvarðhald Karl og kona voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald í viku í tengslum við umsvifamikla kannabisræktun í atvinnuhúsnæði sem upp komst um í gær. Á þriðja hundrað kannabisplöntur fundust í húsnæðinu, sumar allt að tveggja metra háar, og einnig smáræði af hassi og amfetamíni. 27.1.2006 17:29
Osta- og smjörsalan fjarlægir osta úr verslunum Osta- og smjörsalan hefur innkallað í dag og fjarlægt þrjú vörunúmer úr verslunum vegna gerlagalla sem greindist í Búra og Havarti-ostum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfissviði borgarinnar. Þær vörutegundir sem um er að ræða eru vörnúmer 4011 Búri, vörunúmer 3905 Havarti 32% og vörunúmer 3915 Krydd-Havarti 32%. 27.1.2006 16:58