Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Konan laus Árásarkona sem gerði tilraun til að ræna leigubílstjóra í gær með loftbyssu var látin laus eftir yfirheyrslur. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort hún verður ákærð. 10.11.2005 15:05
Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin Alcan á Íslandi hf. hlýtur íslensku gæðaverðlaunin í ár . Halldór Ásgrímsson afhenti Rannveigu Rist, forstjóra Alcan, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í dag. Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straumsvík. 10.11.2005 14:59
Aukna þjónustu til sveitarfélaga Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér. 10.11.2005 14:43
Búist við sviptingum í íbúaþróun á þessu ári Búist er við að íbúum á Íslandi fjölgi tölvert á þessu ári umfram það sem verið hefur allmörg undanfarin ár. Þá flytja fleiri frá höfuðborgarsvæðinu en til þess í fyrsta sinn nærri 20 ár. 10.11.2005 13:57
Búist við 67 milljóna rekstarafgangi á næsta ári Búist er við að rekstarafgangur Mosfellsbæjar verði jákvæður um 67 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarráði í dag. Í tilkynningu frá Mosfellsbæ segir að gert sé ráð fyrir að heildartekjur verði 2,9 milljarðar en launakostnaður 1,5 milljarður, þar af renna 1,2 milljarður til fræðslu-, íþrótta- og tómstundamála. 10.11.2005 13:30
Fuglaflensa greinist í Kúveit Fuglaflensa hefur greinst í Kúveit, en þetta er í fyrsta sinn sem veikin finnst í ríki við Persaflóa. Flensan greindist Í tveimur fuglum í landinu og hefur þegar verið gripið til ráðstafana og þeim slátrað. Ekki liggur fyrir hvort fuglarnir voru sýktir af hinum banvæna H5N1-stofni sem borist getur í menn eða hvernig þeir sýktust. 10.11.2005 13:15
Stofna lúxusdagheimili í Danmörku Lúxusdagheimili fyrir börn hinna frægu og ríku munu að líkindum taka til starfa í Danmörku innan tíðar eftir að lögum um dagheimili þar í landi var breytt þannig að slíkur aðskilnaður verður mögulegur. 10.11.2005 13:00
Kona sem ógnaði leigubílstjóra enn í haldi Rúmlega þrítug kona er enn í haldi lögreglu, eftir að hún var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi þegar hún ógnaði leigubílstjóra með eftirlíkingu af skambyssu. Hún hafði boðið bílstjóranum blíðu sína en þegar hann þáði ekki boðið dró hún upp byssuna. 10.11.2005 12:45
Neyðarðagerðir virðast skila árangri Þriðju nóttina í röð dró úr óeirðum í Frakklandi. Neyðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar virðast ætla að skila tilætluðum árangri og þær falla vel í kramið hjá almenningi. 10.11.2005 12:30
Krónan lækkaði áfram í morgun Gengisvísitala krónunnar veiktist um eitt prósent í gær og fór í 102,8 stig. Hún hélt áfram að lækka í morgun, en aðeins lítils háttar. Eiríkur Guðnason, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir að lækkunin eigi ekki að koma neinum á óvart. Um litla breytingu sé að ræða en krónan hafi verið mjög sterk undanfarið. 10.11.2005 12:15
Vill slíta samstarfi við Sharon Amir Peretz, nýkjörinn formaður Verkamannaflokksins í Ísrael, vill slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Likud-flokk Ariels Sharons, forsætisráðherra landins. Hann mun hitta Sharon á sunnudag þar sem þeir ræða hvort kosningum í landinu verði flýtt vegna þessa. 10.11.2005 12:02
Al-Qaida lýsir yfir ábyrgð á árásum í Amman Hryðjuverkasamtökin al-Qaida segjast bera ábyrgð á þrem sjálfsmorðsárásum í Jórdaníu í gærkvöldi, sem urðu minnst 57 manns að bana. Landamærum landsins hefur verið lokað og víðtæk leit stendur yfir af mönnum sem tengjast árásunum. 10.11.2005 11:30
Þúsundir mótmæltu kosninganiðurstöðum í Bakú Þúsundir manna gengu um götur í Bakú, höfuðborg Aserbaídjans, í gær til að mótmæla niðurstöðum þingkosninga á sunnudag. Þar fór flokkur Ilhams Alijevs forseta, sem farið hefur með völdin, með sigur af hólmi en stjórnarandstæðingar segja að svindlað hafi verið í kosningunum. 10.11.2005 11:15
Vill banna landeigendum að selja skotveiðiheimild Fuglavinurinn, sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Halldór Blöndal vill gera þær breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum, að landeigendum verði bannað að selja skotveiðimönnum heimild til að skjóta fugla á landareignum sínum. 10.11.2005 11:15
Miller hættir hjá New York Times Judith Miller, blaðakona New York Times sem sat í fangelsi í nærri þrjá mánuði í sumar fyrir að neita að gefa upp heimildarmann sinn í lekamálinu svokallaða, er hætt störfum hjá blaðinu. Ástæður þess eru margvíslegar að sögn hennar sjálfrar en hún hefur sætt nokkurri gagnrýnni frá starfsfélögum sínum vegna ákvörðunarinnar um að greina frá því hver heimildarmaðurinn væri. 10.11.2005 11:00
Verðbólga lækkar í fyrsta sinn í fimm mánuði Vísitala neysluverðs í nóvember 2005 lækkaði um 0,16 prósent frá fyrra mánuði og mælist nú 248 stig. Ef ekki er tekið tillit til húsnæðis er vísitalan 231,5 stig og lækkaði hún um 0,43 prósent milli mánaða. Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist því nú 4,2 prósent og lækkaði um 0,4 prósentustig á milli mánaða, en fimm mánuðir eru síðan verðbólga hér á landi lækkaði síðast. 10.11.2005 10:48
Icelandair Cargo fjölgar ferðum verulega Icelandair Cargo fjölgar verulega ferðum með fraktflugvélum til og frá Íslandi í vetur. Alls fjölgar fraktflugi úr átta í ellefu til Liege í Belgíu en Liege er orðin helsti innflutningsflugvöllur fyrir Ísland í Evrópu. 10.11.2005 10:45
Líklega prófkjör hjá VG á Akureyri Akureyrarfélag Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun að öllum líkindum efna til prófkjörs til að raða í fjögur efstu sæti framboðslista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Tillaga þess efnis verður rædd á fundi í félaginu næsta mánudag og er talið líklegt að hún verði samþykkt. 10.11.2005 10:30
Lögbannskrafa Jónínu tekin fyrir í morgun Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum tengdum Baugsmálinu var tekin fyrir í Héraðsdómi í morgun. Ákveðið var að aðalmeðferð í málinu verði 29. nóvember næstkomandi. 10.11.2005 10:17
Sakar stjórnvöld um skilningsleysi Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, gagnrýnir stjórnvöld harkalega fyrir skilningsleysi á stöðu útflutningsgreina og segir hátt gengi íslensku krónunnar hafa smám saman verið að draga tennurnar úr útflutningsgreinunum og ferðaþjónustunni án þess að nokkuð sé gert. Þetta segir hann í Morgunblaðinu í dag. 10.11.2005 10:15
Stefnir í sigur Johnson-Sirleaf í Líberíu Útlit er fyrir að Ellen Johnson-Sirleaf verði næsti forseti Líberíu, en þegar tveir þriðju atkvæða hafa verið talin hefur hún fengið 56 prósent atkvæða en andstæðingur hennar, fyrrverandi knattspyrnumaðurinn George Weah, 44 prósent. 10.11.2005 10:00
Jóna Hrönn nýr prestur í Garðasókn Séra Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur verður nýr prestur í Garðaprestakalli. Að þessu komst valnefnd í prestakallinu á fundi Í gærkvöld. Sjö umsækjendur voru um embættið, þar á meðal séra Hans Markús Hafsteinsson, fyrrverandi prestur í Garðasókn, sem færður var til í starfi eftir deilur innan safnaðarins. 10.11.2005 09:58
Ráðherra taki þátt í málefnalegri umræðu um stúdentspróf Ungliðar í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á Akureyri eru andvígir styttingu náms til stúdentsprófs og skora á menntamálaráðherra að taka þátt í málefnalegri og samfélagslegri umræðu um skerðingu náms til stúdentsprófs og samræmd stúdentspróf í stað þess að hunsa nemendur og koma sér undan umræðu líkt og gerst hafi í Menntaskólanum á Akureyri á þriðjudaginn. 10.11.2005 09:45
Ekkert þokast í máli Arons Pálma Ekkert hefur þokast í máli Arons Pálma Ágústssonar frá því náðunarbeiðni hans var hafnað í byrjun október. Utanríkisráðuneytið kveðst ekki sjá sér fært að aðhafast í málinu en það segja forsvarsmenn RJF-hópsins vonbrigði enda hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera málið pólitískt. Aron gefst þó ekki upp. 10.11.2005 09:30
Tvær rúður á bílaleigu sprengdar Tvær rúður í afgreiðsluhúsi Bílaleigu Flugleiða við Akureyrarflugvöll voru sprengdar með heimatilbúnum sprengjum í nótt. Sprengjurnar virðast hafa verið límdar á rúðurnar og síðan sprengdar. Ekkert bendir til þess að sprengjuvargarnir hafi stolið neinu og eru þeir ófundnir. 10.11.2005 09:15
17 aftökur í Texas 17 aftökur hafa farið fram í Texas-ríki það sem af er þessu ári. Texas er það ríki í Bandaríkjum Norður-Ameríku sem flestar aftökur dauðadæmdra fanga fara fram. 353 manneskjur hafa verið dæmdar til dauða í ríkinu frá því að aftökur voru leyfðar þar á nýjan leik árið 1982. 38 fylki í Bandaríkjunum heimila dauðarefsingu. 10.11.2005 09:07
Ráðherra svaraði ekki kærunum Íbúar í Grafarvogi eru afar ósáttir við úrskurð umhverfisráðherra varðandi mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingu við Gufunes. Fjórar kærur voru lagðar fram í málinu og segir fulltrúi íbúa að ráðherra hafi engan veginn svarað kærunum. 10.11.2005 09:00
Stigagangur fylltist af reyk Stigagangur í fjölbýlishúsi við Fannafell í Reykjavík fylltist af reyk í nótt og höfðu margir íbúar í húsinu samband við slökkivliðið, sem sendi allt tiltækt lið af stað. Þegar til kom voru upptök reyksins í potti, sem gleymst hafði á logandi eldavél, en húsráðandi var ekki heima. Engin eldur hafði kviknað og reykræsti slökkviliðið íbúðina og stigaganginn. 10.11.2005 09:00
Sædýrasafn svæft í nefnd Hvorki gengur né rekur að koma til framkvæmda þingsályktunartillögu um Sædýrasafn, sem samþykkt var á Alþingi í mars 2004. Magnús þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina harklega fyrir að hunsa vilja Alþingis með því að sinna ekki málinu. Samkvæmt tillögunni átti nefnd að skila skýrslu í mars á þessu ári en hefur engu skilað enn. Hann segir einnig að nú sé búið að breyta vinnuframlagi nefndarinnar í álitsgerð í stað skýrsluskila og það stangist á frumvarpið. 10.11.2005 08:45
Peres tapaði í leiðtogakjöri Verkamannaflokksins Shimon Peres tapaði óvænt í leiðtogakjöri verkamannaflokksins í Ísrael í nótt. Verkalýðsleiðtoginn Amir Peretz sigraði með rúmlega tveggja prósenta mun og mun því leiða flokkinn í næstu þingkosningum í Ísrael. 10.11.2005 08:30
Gengisvísitala veiktist um eitt prósent í gær Gengisvísitala krónunnar veiktist um eitt prósent í gær og fór í 102,8 stig. Eiríkur Guðnason, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir að lækkunin eigi ekki að koma neinum á óvart. Um litla breytingu sé að ræða en krónan hafi verið mjög sterk undanfarið. 10.11.2005 08:15
Jarðvegur erfiður til gangagerðar Jarðgöng til Vestmannaeyja verða æ fjarlægari eftir því sem berglagsrannsóknum vindur fram. Fram kemur á vef Eyjafrétta að forrannsóknir sýni að setlög við Heimaey séu laus í sér. Bergmyndun er einnig óregluleg og fjölbreytt sem þýðir að göngin þyrftu að liggja tvöhundruð metra undir hafsbotni á fimm kílómetra kafla. Jarðfræðilegar aðstæður eru mjög frábrugðnar og erfiðari en til dæmis í Hvalfirði, á Fljótsdalshéraði. 10.11.2005 08:00
Dregur úr óeirðum í Frakklandi Enn dró úr óeirðum í Frakklandi í nótt, í kjölfar stórhertra aðgerða lögreglu um allt land. Í 38 hverfum, borgum og bæjum nýtti lögregla sér heimildir til að setja á útgöngubann eða beita öðrum neyðaraðgerðum til að sporna við óeirðunum. Alls voru 155 manns handteknir í nótt og kveikt var í um 300 bílum, sem er nærri helmingi minna en nóttina á undan. 10.11.2005 07:45
Mannskæð árás á veitingastað í Bagdad Meira en tuttugu létust og minnst fimmtán særðust í sjálfsmorðsárás á veitingastað í Bagdad, höfuðborg Íraks á sjöunda tímanum í morgun. Sprengingin var gríðarlega öflug og heyrðist í margra kílómetra fjarlægð frá árásarstaðnum. 10.11.2005 07:36
Slapp vel þegar sementsbíll valt Ökumaður sementsflutningabíls slapp ótrúlega lítið meiddur þegar fjörutíu og fjögurra tonna bíllinn og tengivagn ultu langt út af þjóðveginum skammt frá Egilsstöðum í gær. Ökumannshúsið hafnaði ofan í skurði en ella hefði það kramist undan tengivagninum. 10.11.2005 07:30
Al-Qaida talið bera ábyrgð á árásum í Amman Flest bendir til að al-Qaida beri ábyrgð á þrem sjálfsmorðsárásum í Jórdaníu í gærkvöldi, sem urðu minnst 57 manns að bana. Um þrjú hundruð manns eru sárir eftir árásirnar, sem voru gerðar á þrem hótelum í Amman, höfuðborg Jórdaníu, með stuttu millibili. 10.11.2005 07:15
Kostar ekkert í lyftur og frí skíðakennsla Skíðaáhugamenn á Norðurlandi una hag sínum hið besta um þessar mundir. Þar er skíðafærið víða gott og á Siglufirði er frítt í lyftur meðan Skagfirðingar bjóða uppá fría skíðakennslu. 10.11.2005 07:15
Of fáir læknanemar í geðlækningum barna "Of lítil nýliðun hjá barna- og unglingageðlæknum er óheillavænleg þróun og getur ógnað starfsemi Barna- og unglingageðdeildar Landsspítalans til framtíðar ef ekkert verður að gert," segir Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir Barna- og unglingageðdeildar. 10.11.2005 07:00
Reyndi að ræna leigubílstjóra með loftbyssu Leigubílstjóri er ómeiddur eftir að gerð var tilraun til þess að ræna hann um klukkan hálf átta í kvöld. Árásarmaðurinn, ung kona sem bar á sér loftbyssu, var handsömuð af lögreglu á staðnum. 9.11.2005 22:22
Íbúar íhuga skaðabótamál gegn borginni Íbúar að Skúlagötu 32-34 hafa ákveðið að kæra byggingu stúdentagarða á svokölluðum Barónsreit og byggingu þriggja 15 hæða turna við Skúlagötu. Formaður húsfélags útilokar ekki að íbúar muni fara í skaðabótamál ef grundvöllur reynist fyrir skaðabótamáli. 9.11.2005 21:25
Jórdanía: Sjálfsmorðsárásir á þremur hótelum Sprengja sprakk á þriðja hótelinu á skömmum tíma í Amman, höfuðborg Jórdaníu, fyrir skemmstu. Þriðja hótelið er Days Inn hótelið en áður hafði verið tilkynnt um sprengingar á hótelunum Radisson SAS og Grand Hyatt en öll hótelin eru vinsæl á meðal vestrænna ferðamanna. 9.11.2005 20:48
Forseti Kína í opinberri heimsókn í Bretlandi Hu Jintao, forseti Kína spásseraði um sali breska þingsins í dag og ræddi við breska ráðamenn, en hann er í opinberri heimsókn í Bretlandi. Mannréttindafrömuðir tóku honum ekki jafnvel heldur mótmæltu og veifuðu tíbetskum fánum. 9.11.2005 20:07
Lengsta samfellda flug farþegaþotu Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sendu í morgun vél af gerðinni 777 í loftið frá Hong Kong og hún á ekki að lenda fyrr en á morgun, eftir tuttugu og þriggja tíma flug. Leiðin liggur frá Hong Kong yfir Bandaríkin til Evrópu, en vélin á að lenda á Heathrow í fyrramálið. Ef þetta tekst er um að ræða lengsta samfellda flug farþegaþotu, bæði mælt í tíma og kílómetrum. 9.11.2005 20:01
Fimm hið minnsta látnir í tveimur sprengingum í Jórdaníu Að minnsta kosti fimm eru látnir og fjörutíu særðir eftir að sprengjur sprungu á tveimur hótelum í Amman, höfuðbog Jórdaníu, fyrir stundu. Önnur sprengjan, sú fyrri að því er virðist, sprakk á Radisson-hótelinu sem er vinsælt á meðal ísraelskra ferðamanna. 9.11.2005 20:01
Venus Express skotið á loft Það tókst vel til í morgun þegar geimflauginni Venus Express var skotið á loft. Þar með hófst könnunarferð til Venusar, næsta nágranna jarðarinnar. Vísindamenn vonast til að verða margs vísari um hlýnun jarðar en hundrað sextíu og einn dag tekur fyrir flaugina að komast á áfangastað. 9.11.2005 19:59