Innlent

Ritstjórnarmeðlimir hjá Læknablaðinu segja af sér

Fimm af sex ritstjórnarfulltrúum í ritstjórn Læknablaðsins sögðu í gær af sér vegna umdeildrar greinar sem birtist í blaðinu um afleysingarströf Kára Stefánssonar, forstjóra deCode, á taugadeild Landspítalans í sumar.

Greinina ritar Jóhann Tómasson læknir í septemberrit Læknablaðsins og ber hún titilinn "Nýi sloppur keisarans". Þar segir Jóhann meðal annars að afleysing Kára Stefánssonar hafi verið slíkt dómgreindarleysi og reginhneyskli að efast verði alvarlega um hæfi stjórnenda hins ríkisrekna heilbrigðiskerfis.

Þá segir Jóhann einnig að ferill Kára í verklegu og klínísku námi við læknadeild Háskóla Íslands og á kandídatsári hafi verið með endemum og um það geti her skólafélaga hans vitnað og fjöldi annarra, þar á meðal núverandi landlæknir. Kári hafi fengið lækningaleyfi með undanþágu í júní 1977 og að hann hafi ekki starfað sem læknir á Íslandi frá því ári.

Í ritstjórn Læknablaðsins sitja sex manns, fimm almennir ritstjórnarmeðlimir og svo ábyrgðarmaður. Eftir því sem fréttastofa kemst næst var það ábyrgðarmaðurinn, Vilhjálmur Rafnsson, sem ákvað að birta greinina en hinir fimm ritstjórnarmeðlimir lögðust gegn því vegna þessara hörðu ásakana í garð Kára og háttsettra manna í heilbrigðisgeiranum. Þegar Vilhjálmur varð svo ekki við beiðni þeirra um að beðist yrði afsökunar á greininni ákváðu ritstjórnarmeðlimirnir fimm að segja af sér.

Í samtali við fréttastofu í gærkvöld vildi Vilhjálmur Rafnsson lítið tjá sig um málið fyrr en hann hefði fengið formlega afsögn frá ritstjórnarmeðlimunum, en hún hefði ekki borist. Hann sagði þó að vinnureglur blaðsins kvæðu á um að það væri ábyrgðarmaður sem tæki endanlega ákvörðun um hvað birtist í blaðinu. Því snerist deilan ekki um það hvort hann hefði mátt taka ákvörðunina heldur að hann hefði tekið hana.

Útgefendur og eigendur Læknablaðsins eru Læknafélag Íslands og Læknafélag Reykjavíkur. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, sagðist í gærkvöld líkt og Vilhjálmur ekki hafa fengið formlega tilkynningu um afsögn stjórnarinnar og því vildi hann lítið tjá sig um málið. Aðspurður um næstu skref í málinu sagði Sigurbjörn að útgefendur myndu hittast á fundi á þriðjudaginn kemur og þá yrðu málin rædd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×