Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugfært til Bandaríkjanna Flugvél Icelandair lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli til Bandaríkjanna síðdegis í gær. Hún flutti og sótti farþega sem áttu pantað flug milli landanna á sunnudag en því hafði verið aflýst vegna óveðurs. 24.1.2005 00:01
Viðbúnaðarstig fyrir vestan Viðbúnaðarstigi vegna hláku sem eykur hættu á snjóflóðum hefur verið lýst yfir í byggðum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Fylgst er með ástandinu. 24.1.2005 00:01
Halldór neitar ásökunum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið. 24.1.2005 00:01
Kostaboð verslana standast ekki Svo virðist sem auglýst kostaboð raftækjaverslana eigi ekki ávallt við rök að styðjast. Í auglýsingabæklingi ELKO, sem datt inn á borð landsmanna í byrjun árs, má finna verðupplýsingar sem hreinlega standast ekki. 24.1.2005 00:01
Gígarnir í Eyjum skemmdir Unnar hafa verið skemmdir á gosgígunum í Vestmannaeyjum með skurðgröfu. Gígarnir mynduðust í gosinu árið 1973 og eru á náttúruminjaskrá. Ráðist var í þessar óvæntu framkvæmdir á 31 árs afmæli gossins. 24.1.2005 00:01
Mannskaðaveður í V-Evrópu og BNA Mannskaðavetrarveður hefur gengið yfir bæði Vestur-Evrópu og Bandaríkin síðustu daga. Grenjandi stórhríð, hálasvell og snjóflóð hafa teppt samgöngur og gert mörgum gramt í geði. 24.1.2005 00:01
Bandarískir hermenn á nálum Gríðarleg spenna liggur í loftinu í Írak nú þegar aðeins sex dagar eru í þingkosningar. Bandarískir hermenn í landinu eru á nálum því að árásir andspyrnumanna eru eins og rigningin: maður veit aldrei hvar hún lendir. Þetta segir sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðarson sem er á ferð með bandaríska hernum í Írak. 24.1.2005 00:01
Vilja breyta lögum um eftirlaun Forsætisráðherra vill breyta lögum um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins þannig að ekki verði lengur unnt að starfa á fullum launum og þiggja um leið eftirlaun. Guðmundur Árni Stefánsson, eini stjórnarandstæðingurinn sem studdi eftirlaunafrumvarpið, er sammála þessu. 24.1.2005 00:01
Fresta afhendingu olíuyfirlits Starfsfólk Essó neitaði í liðinni viku viðskiptavinum sínum um yfirlit yfir viðskipti þeirra við félagið undanfarin ár. Töluvert var um að fólk óskaði eftir upplýsingunum eftir að Neytendasamtökin hvöttu almenning til að afhenda samtökunum nótur vegna olíukaupa. Það var gert vegna fyrirhugaðrar skaðabótakröfu sem rekin verður fyrir dómstólum. 24.1.2005 00:01
Vilja selja refaveiðileyfi Hugmyndir eru um það í Skagafirði að selja skotveiðimönnum leyfi til refaveiða í sveitinni. Jón Garðarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, kynnti þessar hugmyndir á fundi nefndarinnar í liðinni viku. 24.1.2005 00:01
Nýbyggingar í undirbúningi Engilbert Runólfsson, eigandi verktakafyrirtækisins Stafna á milli, hefur keypt fjölda húsa frá horni Laugavegs, niður Frakkastíg og niður á Hverfisgötu. Þar ætlar fyrirtækið að reisa fimmtán þúsund fermetra nýbyggingu sem í verða bæði íbúðir og verslunarhúsnæði, en sex þúsund fermetrar fara undir bílageymslu. 24.1.2005 00:01
Eldur í vél Eldur kom upp við húsnæði Ísafoldarprentsmiðjunnar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem er með slökkvistöð í grennd við prentsmiðjuna, náði að slökkva eldinn áður en hann breiddist út. 24.1.2005 00:01
Lögbann á starfsmenn Fjórum af fimm fyrrverandi starfsmönnum SÍF sem sögðu upp störfum fyrir áramót og stofnuðu eigið fisksölufyrirtæki hefur verið meinað að starfa fyrir nýja félagið eða taka á nokkurn annan hátt í starfsemi félagsins til 30. júní. 24.1.2005 00:01
Kjarabætur stóðu ekki til Forsætisráðherra segir að mönnum hafi sést yfir þann möguleika að fyrrverandi ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Hann segir ástæðu til að taka málið til athugunar. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Hús rýmd Fjögur hús voru rýmd á Bíldudal seint í gærkvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Patreksfirði segir að húsin séu við Gilsbakkagil og gripið hafi verið til þessa af öryggisástæðum. 24.1.2005 00:01
DNA-próf til að sanna skyldleika Hælisleitendum í Danmörku verður gert skylt að undirgangast DNA-próf til að sanna skyldleika við börn sem þeir flytja með sér, verði hugmynd danska þjóðarflokksins að veruleika. Samkvæmt stikkprufum sem eru gerðar í dag eru börn flutt til landsins með öðrum en líffræðilegum foreldrum sínum í þriðja hvert skipti. 24.1.2005 00:01
Krefst 94 milljóna af Arngrími Arngrími Jóhannssyni, stjórnarformanni Atlanta, hefur verið stefnt af eiganda Scandinavian Historic Flight vegna vanefnda á samningi. Stefnufjárhæðin nemur tæplega 94 milljónum króna. 24.1.2005 00:01
Borgarfulltrúar leiti sér sálfræðihjálpar Formaður bæjarráðs Kópavogs segir að vegna minnimáttarkenndar gagnvart Kópavogi ættu borgarfulltrúar R-listans kannski að leita sér sálfræðihjálpar. Reykjavíkurborg meinar Kópavogi að leggja vatnsleiðslu um land sitt. Iðnaðarráðuneytið er með málið til skoðunar. </font /></b /> 23.1.2005 00:01
Sagður hafa samið við skæruliða Ísraelsk stjórnvöld segja Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, hafa náð vopnahléssamkomulagi við skæruliða- og hryðjuverkahreyfingar Palestínumanna. Talsmenn samtakanna harðneita þessu og segjast ekki útiloka neinar aðgerðir fyrr en Ísraelsmenn hætti sjálfir hernaðaraðgerðum sínum. Talsmaður Abbas neitaði að tjá sig um málið. 23.1.2005 00:01
Gripinn við þjófnað á næturklúbb Tæplega fertugur maður var staðinn að verki þegar hann reyndi að hnupla úr peningakassa á næturklúbbnum Casino í Keflavík í nótt. Að sögn lögreglu kom starfsfólk að manninum fyrir innan barborð og var hann þá búinn að opna peningakassa og taka úr honum 4500 krónur. Maðurinn var tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu. 23.1.2005 00:01
Óku fram á sofandi mann Lögreglan í Keflavík ók í nótt fram á mann sem lá steinsofandi úti á götu. Maðurinn lá sofandi á Kirkjuvegi í Keflavík og var orðinn kaldur. Þegar reynt var að vekja hann kom í ljós að hann var ofurölvi og gat vart mælt sökum ölvunar. Lögregla hlúði að honum og flutti hann í hlýja fangageymslu þar sem hans beið mýkri svefnstaður. 23.1.2005 00:01
Herferð gegn þingkosningum í Írak Abu Musab al-Zarqawi lýsti í nótt yfir stríði á hendur íröksku þingkosningunum sem fara fram eftir viku. Hótunin kom fram á hljóðupptöku sem birt var á íslamskri vefsíðu, en upptakan er sögð af ávarpi al-Zarqawis. Þar sagði hann að strítt yrði gegn lýðræði og hverjum þeim sem reyndi að koma því á fót. 23.1.2005 00:01
Segir að árás á Íran væri mistök Árás á Íran væri mikil mistök. Þetta segir utanríkisráðherra Írans. Á fréttamannafundi í Teheran kvaðst hann jafnframt telja líkurnar á slíkri árás afar litlar nema að einhverjum væri mikið í mun að gera hernaðarleg mistök. 23.1.2005 00:01
Jeppi valt í Svínahrauni Ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir þegar jeppi valt út af þjóðveginum í Svínahrauni laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Jeppinn valt skammt ofan Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna, ekki fjarri skiltinu þar sem ökumenn eru minntir á fjölda látinna í umferðarslysum. Talið er að hálka hafi átt þátt í því að ökumaður missti stjórn á jeppanum. 23.1.2005 00:01
Féll af flutningabíl og slasaðist Rúmlega fertugur maður slasaðist í vinnuslysi við fiskvinnslufyrirtækið Vísi í Grindavík síðdegis í gær. Maðurinn féll af flutningabíl þegar verið var að færa farm til á bílnum. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík þar sem gert var að sárum hans en hann hafði hlotið skurð í andliti, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík. 23.1.2005 00:01
Vopnahléssamkomulag liggur fyrir Vopnahléssamkomulag liggur fyrir milli palestínskra yfirvalda og skæruliðasamtaka á sjálfsstjórnarsvæðunum. Allir hlutaðeigandi neita þó fregnunum en talið er að betur horfi fyrir botni Miðjarðarhafs en í langan tíma. 23.1.2005 00:01
Segjast ekki ráðast á Íran Hyggi Bandaríkjamenn á innrás í Íran gætu þeir þurft að ráðast einir inn í landið. Bretar ætla sér ekki að taka þátt í hernaði gegn landinu en vilja semja við Írana um kjarnorkuvopnáætlun landsins. 23.1.2005 00:01
Ný leyniþjónusta undir Rumsfeld Nýrri leyniþjónustu hefur verið komið á fót innan bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Bandarísk lög eru þar túlkuð með nýjum hætti til að veita Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra völd til að skipa fyrir um leyniaðgerðir erlendis. 23.1.2005 00:01
Júsjenko sver embættiseið Viktor Júsjenko sór í morgun embættiseið sem forseti Úkraínu eftir langan aðdraganda. Mikil hátíðarhöld verða í Kænugarði af þessu tilefni, einkum á Sjálfstæðistorginu þar sem mótmælendur héldu til vikum saman til að knýja fram nýjar kosningar vegna kosningasvika í forsetakosningum á síðasta ári. 23.1.2005 00:01
Óttast að neyðarfé sé sóað Á Srí Lanka aukast áhyggjur af því að neyðarhjálp í formi fjár sé sóað í dularfull verkefni og í vasa spilltra stjórnmála- og embættismanna. Stjórnvöld í Kólombó vilja sem minnst segja um hvernig fénu er varið og halda samtökum og héraðsstjórnum fjarri þeirri ákvarðanatöku. 23.1.2005 00:01
Stjórnarandstaðan á villigötum Fréttir um að listi hinna staðföstu þjóða sé ekki lengur til undirstrikar á hvaða villigötum stjórnarandstaðan er í Íraksmálinu, að mati Sólveigar Pétursdóttur, formanns utanríkismálanefndar Alþingis. Hún segir stjórnarliða aldrei hafa efast um að rétt hafi verið staðið að ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak. 23.1.2005 00:01
Stormviðvörun á Vestfjörðum Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun fyrir Vestfirði. Spáð er ört hlýnandi veðri á landinu samfara úrkomu og má búast við að snjóflóðahætta geti skapast. Í Reykjavík er búist við asahláku. 23.1.2005 00:01
Aðför Fréttablaðsins að Halldóri Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að Fréttablaðið sé í herferð gegn Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins. Páll vísar þar til umfjöllunar Fréttablaðsins um aðdraganda Íraksstríðsins og veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða. 23.1.2005 00:01
Meirihluti samþykki stuðning Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur samþykkt að flytja á Alþingi frumvarp til breytingar á stjórnarskrá Íslands sem hefur í för með sér að ríkisstjórn á hverjum tíma verði óheimilt að lýsa yfir aðild að eða stuðningi við stríðsaðgerðir nema með samþykki meirihluta Alþingis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrsta flutningsmanni frumvarpsins, Helga Hjörvar. 23.1.2005 00:01
Brenndu átta þorp í Darfur-héraði Uppreisnarmenn réðust á og brenndu átta þorp í Darfur-héraði í Súdan í gær. Haft er eftir yfirmanni í her landsins að tugir hafi fallið í árásunum en uppreisnarmennirnir létu einnig greipar sópa í þorpunum. 23.1.2005 00:01
Funda um ferðaþjónustuvanda Forystumenn í ferðamálum í Asíu hittast í dag til þess að reyna að endurskipuleggja ferðaþjónustu í Suðaustur-Asíu í kjölfar hamfaranna annan dag jóla. Eftir að myndir af hamfarasvæðunum birtust í sjónvarpi um allan heim hafa fjölmargir hætt við ferðalög þangað og jafnvel á staði í Asíu sem eru hvergi nærri flóðasvæðunum. 23.1.2005 00:01
Létust í snjóflóðum í Austurríki Þrír erlendir skíðamenn hafa látist og eins er saknað eftir að tvö snjóflóð féllu í Austurríki um helgina. Tveir hinna látnu voru kanadískir ríkisborgarar en með þeim í för var Bandaríkjamaður sem enn er leitað í St. Anton í Týról. Þá lést þýsk-bandarískur snjóbrettamaður í snjóflóði sem féll í Vorarlberg í vesturhluta Austurríkis í gær. 23.1.2005 00:01
Framsóknarmenn í ójafnvægi "Mig undrar að Framsóknarmenn skuli kalla fréttaskrif Fréttablaðsins aðför að forsætisráðherra. Blaðið hefur ekki gert annað en segja fréttir af umræðunni dagana sem Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ákváðu stuðning Íslendinga við innrásina í Írak," sagði Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri á Fréttablaðinu, um fullyrðingar Páls Magnússonar, aðstoðarmanns iðnaðarráðherra, um að Fréttablaðið væri með aðför að Halldóri Ágrímssyni forsætisráðherra. 23.1.2005 00:01
Þokast í samkomulagsátt Palestínska sjónvarpið hafði eftir Mamhoud Abbas, forseta Palestínu, nú í dag að hann væri mjög nálægt því að semja við uppreisnarhópa í landinu um að hætta árásum á Ísraela. Fréttir hafa borist af því að vopnahléssamkomalag væri í sjónmáli en talsmenn Abbas hafa neitað að tjá sig um málið hingað til. 23.1.2005 00:01
Tveir gripnir í áhlaupi lögreglu Lögregla í Þýskalandi handtók tvo menn sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Írak. Þeir voru gripnir í áhlaupi lögreglu á hús í borginni Mainz og er annar þeirra talinn vera háttsettur innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida. 23.1.2005 00:01
Deiluaðilar funda í Finnlandi Fulltrúar indónesískra stjórnvalda og uppreisnarmanna í Aceh-héraði munu hittast á fundi í Finnlandi í lok næstu viku til þess að reyna að binda enda á þriggja áratuga blóðuga baráttu á Súmötru. Það voru samtök sem Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, er í forsvari fyrir sem áttu frumkvæðið að fundinum og mun Ahtisaari sjálfur reyna að miðla málum. 23.1.2005 00:01
Ofsaveður í Bandaríkjunum Ofsaveður olli því að fella varð niður hundruð flugferða í Bandaríkjunum í dag og umferð á vegum gekk bæði hægt og illa. Stormviðvaranir voru í gildi frá Wisconson til Nýja-Englands og víða kyngdi niður allt að hálfum metra af snjó. Í stórum hluta Norðausturríkjanna var allt í lamasessi og í Miðvesturríkjunum var ástandið litlu skárra. 23.1.2005 00:01
Brunagildran reist án leyfis Ef húsið þar sem eldur varð laus á athafnasvæði Hringrásar hefði verið byggt eftir venjulegum leiðum hefði ekki þurft að fara eins og fór, segir brunamálastjóri. Lyftarahleðsla hefði verið í sérstöku brunahólfi. </font /></b /> 23.1.2005 00:01
Sérkennilegar kveðjur Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur segir lögnámsbeiðni Kópavogs vera ótímabæra og ummæli Gunnars I. Birgissonar sérkennilega kveðju. Bæjarráðsmaður í Kópavogi segir ummæli Gunnars fordómafull og afturhaldssöm.</font /></b /> 23.1.2005 00:01
Deilt um stuðningsyfirlýsingu "Mönnum finnst að Gylfi sé að taka að sér umboð sem hann ekki hefur og það sé ómaklegt," segir Árni Guðmundsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og félagi í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar. 23.1.2005 00:01