Erlent

Þokast í samkomulagsátt

Palestínska sjónvarpið hafði eftir Mamhoud Abbas, forseta Palestínu, nú í dag að hann væri mjög nálægt því að semja við uppreisnarhópa í landinu um að hætta árásum á Ísraela. Fréttir hafa borist af því að vopnahléssamkomalag væri í sjónmáli en talsmenn Abbas hafa neitað að tjá sig um málið hingað til. Hins vegar segir palestínska sjónvarpið að í viðtali sem sent verður út nú klukkan hálfsex staðfesti Abbas að ekki verði langt að bíða þar til samið verði við skæruliða- og hryðjuverkahópa um vopnahlé.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×