Erlent

Ofsaveður í Bandaríkjunum

Ofsaveður olli því að fella varð niður hundruð flugferða í Bandaríkjunum í dag og umferð á vegum gekk bæði hægt og illa. Stormviðvaranir voru í gildi frá Wisconson til Nýja-Englands og víða kyngdi niður allt að hálfum metra af snjó. Í stórum hluta Norðausturríkjanna var allt í lamasessi og í Miðvesturríkjunum var ástandið litlu skárra. Þó að þetta veður kunni að virðast meinlaust í augum Íslendinga var flug Icelandair til Boston fellt niður síðdegis vegna veðurofsans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×