Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sum þorp enn án hjálpar Neyðarhjálp nær ekki til afskekktra þorpa á Srí Lanka þar sem stjórnvöld og hjálparstofnanir forgangsraða aðstoðinni. Nálykt liggur enn í loftinu í þorpi nálægt höfuðborginni þar sem 1400 manns fórust í járnbrautarlest sem fór á kaf í flóðunum annan í jólum. 16.1.2005 00:01
Yfirlýsingin bíður birtingar Yfirlýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem framgöngu íslenskra stjórnvalda í Íraksmálinu er mótmælt mun birtast í vikunni í bandaríska dagblaðinu New York Times. 16.1.2005 00:01
Heimsmeistarar í dýrauppstoppun? Íslendingar gætu eignast heimsmeistara í uppstoppun dýra á næstunni. Tveir hamskerar halda utan bráðlega með glæsilegan smyril og toppskarf í farteskinu í þeirri von að sigra heiminn. Stöð 2 tók hús á öðrum þeirra og kynntist undraveröld uppstoppaðra dýra. 16.1.2005 00:01
Samhugur sem á vart sinn líka Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri gekk vonum framar en alls voru gefnar um 110 milljónir króna. Aldrei hefur jafn mikið fé safnast hérlendis ef safnanir vegna snjóflóðanna á Vestfjörðum eru undanskildar. 16.1.2005 00:01
Bandaríkin láti af pyntingum Forystumaður kúvæsks þrýstihóps um lausn fanga Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu hvatti í gær Bandaríkjamenn til að láta af pyntingum fanga. Ummælin koma í kjölfar þess að 11 Kúveitar sem þar voru í haldi voru sendir heim. 16.1.2005 00:01
Fangar látnir lausir Bandaríkjaher lét í gær lausa um 80 fanga sem haldið hafði verið í Afganistan. Lausn fanganna er talin geta liðkað til í samskiptum við Talíbana í landinu, en bæði Hamid Karzai, forseta landsins, og Bandaríkjaher er mikið í mun að draga úr óeirðum í landinu. 16.1.2005 00:01
Látinna minnst í gær Guðsþjónustur voru haldnar í íþróttahúsinu í Súðavík og í Lágafellskirkju í gær til minningar um þá sem létust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. 16.1.2005 00:01
10 ár fyrir pyntingar Herdómstóll í Texas í Bandaríkjunum dæmdi um helgina Charles Graner, liðþjálfa í Bandaríkjaher, í 10 ára fangelsi fyrir að hafa staðið fyrir pyntingum fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. 16.1.2005 00:01
Elsta konan sem eignast hefur barn Adriana Iliescu, 66 ára gömul rúmensk kona, eignaðist í gær stúlkubarn og er þar með elsta konan til að ganga með og eignast lifandi barn. Tvíburasystir stúlkunnar var andvana fædd, að sögn lækna á Giulesti-fæðingarsjúkrahúsinu í Búkarest. 16.1.2005 00:01
Tannhirða ungs fólks misjöfn Rúmur þriðjungur fólks á aldrinum 19 til 24 ára fer sjaldan til tannlæknis, meðan 60,8 prósent fara árlega, að því er fram kemur í könnun Tannlækningastofnunar Háskólans. 2,1 prósent segjast hins vegar aldrei heimsækja tannlækninn. 16.1.2005 00:01
Gamalt gen ræður frjósemi fólks Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar lýsa uppgötvun á 3 milljóna ára gamalli umhverfu á litningi 17 í grein sem birtist í gær á vef virts erfðafræðitímarits, Nature genetics. Þeir sem umhverfuna bera í erfðamengi sínu eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir. 16.1.2005 00:01
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. 16.1.2005 00:01
Bílvelta í Ásahreppi Ökumaður jeppa meiddist lítillega í fyrrinótt í bílveltu á Suðurlandsvegi, rétt austan við afleggarann að Ásmundarstöðum í Ásahreppi. 16.1.2005 00:01
Óperuhús vígt í Kaupmannahöfn Óperuhúsið í Kaupmannahöfn var opnað við hátíðlega athöfn í gærkvöld að viðstöddum fjórtán hundruð gestum. Bygging hússins tók þrjú ár og kostaði sem nemur þrjátíu milljörðum íslenskra króna. 16.1.2005 00:01
Hnúfubakur á miðunum Loðnuveiðar hafa gengið vel síðustu sólarhringa, þrátt fyrir að leiðindaveður hafi verið á miðunum austur af Langanesi, og er loðnu nú landað allt frá Siglufirði, austur um land og suður til Vestmannaeyja. 15.1.2005 00:01
Keyrði næstum undir flutningavagn Litlu mátti muna að alvarlegt umferðarslys yrði á Selfossi á hádegi í gær þegar malarflutningavagn rann þvert á móti umferð. 15.1.2005 00:01
Lög flokksins heimila vorþing Vaxandi líkur eru á vorþingi Samfylkingar. Össur og Ingibjörg sætta sig bæði við að landsfundi verði flýtt. Tímasetningin var rædd í framkvæmdastjórn flokksins. Formaður er kosinn í póstkosningu og úrslit tilkynnt á landsfundi. 15.1.2005 00:01
Ný þjónusta við börn í vanda Tekin hefur verið ákvörðun af Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu um að ný þjónusta við börn sem stríða við geðrænan vanda verði hluti af heilsugæslunni í Grafarvogi sem er fjölmennasta barnahverfi landsins. 15.1.2005 00:01
Þrautaganga Abbas hafin Sex ísraelskir verkamenn og þrír palestínskir vígamenn féllu í árás þeirra síðarnefndu í fyrrinótt. Árásin var gerð fáeinum klukkustundum eftir að Mahmoud Abbas sagðist ætla að uppfylla öryggisskuldbindingar vegvísisins til friðar. </font /></b /> 15.1.2005 00:01
Lenti á stærsta tungli Satúrnusar Evrópskum geimvísindamönnum tókst í gær að lenda geimfari á yfirborði Títans, stærsta tunglsins sem gengur á sporbraut um Satúrnus og þykir það mikið verkfræðilegt afrek. Vonir eru bundnar við að geimfarið sendi frá sér upplýsingar um efni og andrúmsloft tunglsins sem geti varpað ljósi á uppruna lífs á jörðu. 15.1.2005 00:01
Svamla í söltum sjó fyrir söfnun Félagar í Sjósundfélagi Íslands efna í dag til sjósundsmaraþons en framtakið er liður í landssöfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. Að sögn Benedikts Lafleur, formanns Sjósundfélagsins, ætla sundmennirnir að skiptast á að vera í sjónum í stutta stund í einu þar sem sjávarhiti er afar lágur á þessum árstíma, aðeins um tvær gráður. 15.1.2005 00:01
Brýnt að takast á við sálræna áfallið "Við stöndum frammi fyrir stöðu sem gerir mjög miklar kröfur til okkar og ég er ekki viss um að við ráðum við þær að svo stöddu. En við gerum okkar besta," sagði Marc Danzon, svæðisstjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu, um þau sálrænu áföll sem fólk í ríkjunum þar sem flóðbylgjan gekk yfir varð fyrir. 15.1.2005 00:01
Sjónvarpssafnanir víða um heim Belgar luku í gær þriggja vikna söfnunarátaki til hjálpar þeim sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Asíu og á austurströnd Afríku. Í gærmorgun höfðu safnast 1,7 milljarðar króna og sú tala hækkaði jafnt og þétt eftir því sem leið á daginn og fór yfir tvo milljarða. 15.1.2005 00:01
Hvítasunnumenn gegn R-listanum Ásakanir Alfreðs Þorsteinssonar á hendur hvítasunnumönnum vekja spurningar hvort fámennir hópar geti náð tangarhaldi á stjórnmálaflokkum. </font /></b /> 15.1.2005 00:01
Og fjallið það öskrar Það var dimmt yfir Álftafirði fyrri part viku. Kalt í veðri og strekkingsvindur. Alhvítur snjórinn hafði ekki aðeins lagst af þunga yfir byggðina heldur líka á sálir fólksins. Það minntist hamfaranna ógurlegu 1995. Hafði ekki séð annan eins snjó síðan þá. 15.1.2005 00:01
Allir gerðu miklu meira en þeir gátu Sigríður Hrönn Elíasdóttir var sveitarstjóri í Súðavík þegar snjóflóðin féllu 1995. Áður hafði hún, í samráði við sýslumann og sérfræðinga Veðurstofunnar, látið rýma nokkur hús í þorpinu enda vofði snjóflóðahættan yfir. Það dugði ekki til. Flóðið féll annars staðar en reiknað var með og varð stærra og ógurlegra en áður hafði sést í Álftafirði. </font /></b /> 15.1.2005 00:01
Tíminn læknar ekki öll sár Súðvíkingurinn Ómar Már Jónsson hefur verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í rúm tvö ár. Hann var skipverji á Bessanum þegar flóðin féllu fyrir áratug. Ómar er bjartsýnn á framtíð Súðavíkur og segir stemninguna einstaka, sérstaklega yfir sumartímann, þegar íbúafjöldinn margfaldast. Gamla byggðin iðar þá af lífi og fjöri. 15.1.2005 00:01
Svíunum fækkar um helming Nú hefur sænska lögreglan fækkað um helming því fólki sem er á lista yfir þá sem saknað er eftir hamfarirnar í Asíu. Nú eru 893 á listanum en voru áður rúmlega 1700. Með rannsókn og fyrirspurnum tókst að hafa uppi á fólkinu en allar líkur eru á að þeir sem eftir eru á listanum séu látnir. 15.1.2005 00:01
Enn hungurdauði svartfugla Hungurdauði svartfugla er farinn að gera vart við sig fjórða veturinn í röð segir í Morgunblaðinu. Hafa veiðimenn tilkynnt um dauðan eða deyjandi svartfugl við Þórshöfn á Langanesi, í Eyjafirði, Skagafirði og Vestmannaeyjum og úti fyrir Hofsósi hafa sjómenn séð svartfugl á reki. 15.1.2005 00:01
Á slysadeild með reykeitrun Slökkvilið á Akureyri var kallað út í bruna í íbúðarhúsi við Hafnarstræti laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöld. Íbúi á efri hæð hússins hafði orðið var við eld á neðstu hæðinni þar sem áður var skemmtistaðurinn H-100. Ung stúlka var flutt á slysadeild með reykeitrun. 15.1.2005 00:01
Flughálka í uppsveitum Árnessýslu Flughálka er víða í uppsveitum Árnessýslu. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og snjóþekja og éljagangur á Vatnsskarði. Hálka er á Öxnadalsheiði og snjóþekja á Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum og Fjarðarheiði. Verið er að moka Vatnsskarð eystra og Breiðdalsheiði. Öxi er ófær. 15.1.2005 00:01
Krefur Impregilo um 3 milljónir Viðskiptafræðingur sem starfaði fyrir Impregilo hefur stefnt fyrirtækinu og krafist rúmra þriggja milljóna króna vegna vangoldinna laun og uppsagnarfrests. Fleiri dómsmál kunna að vera í undirbúningi vegna skrifstofustarfa fyrir fyrirtækið. 15.1.2005 00:01
Sakfelldur fyrir pyntingar í Írak Herlögreglumaðurinn Charles Graner var sakfelldur við herdómstól í Texas í gær um að hafa misþyrmt föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Hann er fyrsti bandaríski hermaðurinn sem fundinn er sekur um að hafa misþyrmt föngum í Írak en hann mun hafa barið þá og neytt þá til að leggjast nakta ofan á hvern annan. 15.1.2005 00:01
Skíðasvæði opin víða um land Opið er á skíðasvæðum víða um land, þ.á m. á Akureyri, Siglufirði, við Sauðárkrók, í Bláfjöllum, Skálafelli og í Hengli. Færið er víðast hvar mjög gott. 15.1.2005 00:01
Abbas kallar eftir vopnahléi Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínumanna, kallaði eftir vopnahléi þegar hann var settur inn í forsetaembættið í morgun. Hann fordæmdi drápin og ofbeldið sem viðgengist hefur í deilu Ísralesmanna og Palestínumanna undanfarin ár og sagði að því yrði að linna ef nokkur möguleiki ætti að vera á friðarviðræðum. 15.1.2005 00:01
Leyfa sportveiðar á ísbjörnum Grænlenska landstjórnin vill leyfa sportveiðar á ísbjörnum til að skapa atvinnu fyrir Grænlendinga í norðvesturhluta landsins. Þetta myndi þýða að ferðamenn með fulla vasa af peningum fengju leyfi til að fella ísbirni og taka húð dýrsins með sér heim en gjaldið fyrir þetta myndi hlaupa á milljónum íslenskra króna. 15.1.2005 00:01
Heilbrigðisþjónusta við börn bætt Heilbrigðisráðherra segir áríðandi að bæta heilbrigðisþjónustu við börn sem stríða við þunglyndi og aðrar geðraskanir. Vandamálið stafar að hluta til af örum samfélagsbreytingum, að mati heilsugæslulæknis, sem segir að of fá börn séu meðhöndluð. 15.1.2005 00:01
60 milljóna skaðabótakrafa Hæstiréttur fyrirskipaði í gær Héraðsdómi Vesturlands að taka til meðferðar sextíu milljóna króna skaðabótakröfu Sigurjóns Sighvatssonar á hendur Hótel Búðum og fleirum. 15.1.2005 00:01
Söfnunin í fullum gangi Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar í Asíu er í fullum gangi og nær hámarki með sameiginlegri útsendingu þriggja sjónvarpsstöðva í kvöld. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri söfnunarinnar, segir dagskrá verða í Kringlunni, Smáralindinni og á Glerártorgi á Akureyri í dag þar sem landsþekkt fólk mun koma fram. 15.1.2005 00:01
Úrræði vegna heimilisofbeldis fá Úrræði vegna heimilisofbeldis eru af skornum skammti úti á landi samanborið við höfuðborgarsvæðið. Á þetta bendir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður í tengslum við fréttir Stöðvar 2 um að nálgunarbann, sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu í Vestmannaeyjum, hafði lítið að segja. 15.1.2005 00:01
Skemmdarverk unnin á níu bílum Unnin voru skemmdarverk á níu bifreiðum í Keflavík í nótt. Brotnir voru speglar á þremur þeirra, hægra afturljós var brotið á tveimur, hliðarrúða brotin í einum bíl, framrúða í einum og afturrúður voru brotnar í tveimur bílum. Bílarnir stóðu allir við Hátún og Sóltún í Keflavík. 15.1.2005 00:01
Annað útkallið á hálfum sólarhring Slökkviliðið á Akureyri var kallað út rétt fyrir hádegi í dag vegna elds sem logaði í húsi við Svalbarðseyri. Húsið er stórt gamalt steinhús sem ekki er búið í að staðaldri og var mannlaust þegar eldurinn kviknaði. Þetta var annað útkallið hjá slökkviliðinu á Akureyri á hálfum sólarhring. 15.1.2005 00:01
Jarðskjálftahrina við Reykjanes Jarðskjálftahrina varð í morgun um 5-10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi. Stærsti skjálftinn var 3,7 á richter og sá næsti 3,3 stig. Þá var einn 2,9 en aðrir til mun minni. Nú hefur dregið úr hrinunni en um tuttugu skjálftar hafa mælst. 15.1.2005 00:01
Tíu ár liðin frá snjóflóðinu Á morgun verða tíu ár liðin frá því snjóflóð féll á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að fjórtán manns fórust. Í tilefni þess verður haldin minningarguðsþjónusta í íþróttahúsinu í Súðavík og hefst hún klukkan 14. Kirkjugestum er boðið að tendra á kertum við athöfnina til minningar um hina látnu. 15.1.2005 00:01
Þyrla sækir mann á Esjuna Þyrla Landhelgisgæslunnar var að leggja af stað til að ná í slasaðan mann á Esjunni. Maðurinn féll ofarlega í fjallinu og slasaðist en ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru. 15.1.2005 00:01