Óperuhús vígt í Kaupmannahöfn 16. janúar 2005 00:01
Óperuhúsið í Kaupmannahöfn var opnað við hátíðlega athöfn í gærkvöld að viðstöddum fjórtán hundruð gestum. Bygging hússins tók þrjú ár og kostaði sem nemur þrjátíu milljörðum íslenskra króna. Loks lágu Danir í sínu eigin óperuhúsi. Minnimáttarkennd gagnvart óperuhúsum nágrannanna í Helsinki og Gautaborg hverfur, enda er danska Óperan fjórtán hæða og þar af eru fimm neðanjarðar. Það var svo til fullt hús við vígsluathöfnina í gær þegar fjórtán hundruð gestir fylgdust með fjögur hundruð listamönnum konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn í tæplega fjóra tíma. Ópera, ballet og tónlist var kokteill kvöldsins og meðal gesta voru Margrét Danadrottning og konungsfjölskyldan, ásamt því sem danska þjóðin fylgdist með beinni útsendingu ríkissjónvarpsins. Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra sagði í vígsluræðu að Óperuhúsið myndi auka virðingu Danmerkur. Hann þakkaði auðmanninum Maersk McKinney Møller fyrir gjöfina til dönsku þjóðarinnar en bygging hússins var kostuð af sjóði sem Møller er í forsvari fyrir. Hann er einn af ríkustu mönnum Danmerkur og rekur flutningafyrirtækið Maersk en gáma merkta því fyrirtæki má m.a. sjá á Íslandi. Gjöf sjóðsins er stærsta gjöf einkaaðila til framkvæmda við menningarbyggingu í Danmörku. Arkitekt verksins, Henning Larsen, var þó ekki alltaf sammála Møller og sagði Larsen í viðtali á ríkisstöðinni DR2 á dögunum að oft hefði þurft að grípa til málamiðlana. Arkitektinn sagðist hafa íhugaði að segja sig frá verkinu en að hann hafi ekki getað það vegna samnings síns við Møller. Fyrir þá sem eiga leið til Danmerkur á næstunni má geta þess að frumsýning fyrstu óperunnar, Aidu eftir Verdí, verður 26. janúar. Almennt miðaverð í dönsku Óperuna verður frá 2200 íslenskum krónum upp í 5300. Miðaverð verður hins vegar 75% hærra á Aídu og 200% hærra á fyrstu tvær sýningarnar sem þýðir að þá gæti miðinn farið rétt yfir tíu þúsund kallinn. Sá sem er heppinn getur krækt í ósóttar pantanir en miðar eru löngu uppseldir. Því er svo við þetta að bæta að Kolbeinn Jón Ketilsson tenórsöngvari fer með aðalkarlhlutverkið, Radames, í Óperunni í febrúar.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira