Fleiri fréttir

Fyrsti dagur Abbas blóðugur

Fyrsti dagur nýkjörins forseta Palestínu, Mahmoud Abbas í embætti hófst með drápum og átökum á Gaza-svæðinu. Við embættistökuna kallaði Abbas eftir vopnahléi og friðarviðræðum fyrir alvöru.

Eldur í Mosfellsbæ

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds að Tröllateigi í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Þar logaði eldur í nýbyggingu. Ekki var um mikinn eld að ræða og ekki urðu miklar skemmdir. Eldurinn náði að læsa sig í einangrun þannig að hætta var á eitruðum reyk en vel gekk að slökkva eldinn og varð engum meint af.

Ferðamenn aftur til Taílands

Ferðamenn eru farnir að tínast aftur til Taílands. Sumir þeirra voru hikandi en þeir hafa verið boðnir hjartanlega velkomnir.

Íslensk kennslanefnd til Taílands

Tveir íslenskir tannlæknar og rannsóknarlögreglumaður halda til Phuket-eyju snemma í fyrramálið í því skyni að bera kennsl á lík vestrænna fórnarlamba flóðbylgnanna. Þeir fara á vegum íslenskra stjórnvalda eftir hjálparbeiðni frá Noregi.

Kosningin styrkir Samfylkinguna

Formaður Ungra jafnaðarmanna segir að formannskosning milli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar styrki Samfylkinguna þegar fram í sækir. Flokkurinn sé stærri en þau bæði en uppgjör sé óumflýjanlegt. Hann vill að næsti varaformaður komi úr hópi unga fólksins.

Þriggja daga spáin var vitlaus

Þriggja daga veðurspá fyrir Norðurlöndin, áður en óveðrið mikla skall á fyrir rúmri viku, var arfavitlaus. Veðurskilyrðin suðvestur af Íslandi voru önnur en komu fram á reiknilíkani Evrópsku veðurstofunnar, sem staðsett er í Englandi.

Eðlilegt að spár breytist

"Veðurspáin fyrir illviðrið í Skandinavíu stóðst ótrúlega vel og allar viðvaranir í sambandi við það voru góðar. Mér finnst það ekki frétt þó að þriggja daga spáin hafi ekki skilað sér," segir Magnús Jónsson veðurstofustjóri og segir spár oft breytast ótrúlega mikið frá degi til dags.

Þyrla kom til hjálpar

55 ára karlmaður hlaut skurði á höfði og brotið hné er honum varð fótaskortur í klettabelti í Esjunni í gær og hrapaði um 20 metra. Hann var sóttur á þyrlu.

Jakkaföt Björgólfs á 10 milljónir

Jóhannes Jónsson í Bónus greiddi nú rétt áðan 10 milljónir króna fyrir teinótt jakkaföt í eigu Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbankans. Teinóttu jakkafötin voru boðin upp í beinni útsendingu allra sjónvarpsstöðvanna en til hennar var efnt til að safna fé til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu.

Íþróttamannvirki vígð

Glæsileg íþróttamannvirki voru vígð á Hólmavík við hátíðlega athöfn í gær. Annars vegar er um að ræða 25 metra útisundlaug og hins vegar fullkomið íþróttahús. Hvort tveggja var tekið í notkun á síðasta ári.

Eldur í eldgömlu húsi

Elds varð vart í eldgömlu húsi á Svalbarðseyri um hádegisbil í gær, laugardag, en greiðlega gekk að ráða niðurlögum hans.

Bjargaði stúlku úr brennandi íbúð

Hinrik Ingi Guðbjargarson á Akureyri sýndi snarræði er hann bjargaði stúlku út úr brennandi íbúð í kjallaranum að Hafnarstræti 100 kl. 20.30 á föstudagskvöldið. </font />

Reykskynjari bjargaði

Reykskemmdir urðu í íbúð í fjölbýlishúsi á Höfn á laugardagsmorgun er gleymdist að slökkva undir potti áður en íbúar lögðust til svefns.

Tíu ár frá snjóflóðinu í Súðavík

Á morgun eru tíu ár liðin frá snjóflóðunum í Súðavík sem hrifu með sér fjórtán mannslíf. Tólf slösuðust en þrjátíu og fjórir björguðust.

Margir brutu bein

Mikið var um beinbrot og önnur meiðsl vegna hálku í gær, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítala.

Líkamshitinn kominn niður í 34°

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mann sem hrapaði í hlíðum Esjunnar í dag. Maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn og líkamshiti hans kominn niður í 34 gráður þegar vegfarendur komu að honum.</font />

Sharon skar á tengsl við Abbas

Mahmoud Abbas tók við embætti forseta palestínsku heimastjórnarinnar í skugga ofbeldisverka Ísraela og Palestínumanna. Ísraelar klipptu á tengsl við stjórn hans og sjö Palestínumenn féllu fyrir hendi ísraelskra hermanna. Þá varð hann fyrir áfalli þegar tugir kjörstjórnarmanna sögðu af sér.</font /></b />

Vilja rannsaka blóðbaðið

Rúmum fimmtán árum eftir að meira en þúsund manns létust í uppreisn gegn kommúnistastjórn Nicolae Ceasescu árið 1989 hafa alltof fáir verið dregnir til ábyrgðar segja forystumenn samtaka þeirra sem fylktu sér út á götur rúmenskra borga til að losna undan alræði kommúnista.

110 milljónir króna söfnuðust

Nú fyrir stundu höfðu safnast 110 milljónir króna í landssöfnuninni "Neyðarhjálp úr norðri". Beinni útsendingu Stöðvar 2, Sjónvarpsins og Skjás eins lauk fyrir stundu og sátu tugir manna við símann og tóku á móti framlögum. <strong>Síminn er 755 -5000</strong> og er enn hægt að hringja inn framlög. Einnig er hægt að hringja í síma <strong>901- 1000, 3000 og 5000</strong> og skuldfærist þá samsvarandi upphæð af símreikningi.

Flogið beint eftir 55 ára bann

Eftir meira en hálfrar aldar bann við beinu flugi milli Kína og Taívan geta ferðalangar loks flogið beint milli landanna í stað þess að þurfa að fljúga í gegnum þriðja land.

Vísindamenn í skýjunum

Yfirborð Títans, tungls Satúrnusar, er ljósappelsínugult og þakið þunnu lagi metans. Þetta blasti við vísindamönnum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar þegar þeir sökktu sér niður í myndir og önnur gögn sem geimfarið Huygens sendi frá Títan, gögn sem það safnaði þegar það sveif til jarðar og eins þegar það var lent á tunglinu.

Fá að skrá sig á kjördag

Kjósendur í tveimur órólegustu héruðum Íraks fá að skrá sig á kjörskrá á kjördag, 30. janúar. Þessi ákvörðun kjörstjórnarinnar á að gefa kjósendum í Anbar og Ninevah aukin tækifæri á að taka þátt þrátt fyrir ótta um árásir á kjörstaði og gegn undirbúningi kosninganna.

Þúsundir flýðu heimili sín

Þúsundir íbúa í Anderson í Indiana þurftu að flýja heimili sín þegar eiturefni losnuðu út í andrúmsloftið í eldsvoða sem braust út í endurvinnsluverksmiðju.

Aldrei safnast meira

"Þetta er fram úr okkar björtustu vonum," segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri um viðbrögð almennings við söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. "Ég held að þetta séu þau bestu viðbrögð sem við höfum upplifað í söfnun."

Ríkið niðurgreiðir rafmagnið

Garðyrkjubændur og fiskvinnslufyrirtæki eru uggandi vegna hækkunar á raforkuverði til þeirra. Ný raforkulög heimila ekki að dreifingarkostnaði til þerra sé velt yfir á aðra notendur. Útlit er fyrir að ríkið taki á sig niðurgreiðsluna.

Meiri sala eftir erlenda umfjöllun

Mikil umfjöllun um Ísland erlendis gerir ferðaskrifstofum auðveldara fyrir að selja ferðir til landsins, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða. Hann segir stöðugt fjölga erlendu ferðafólki sem kjósi að sækja landið heim að vetri til.

Stærsti skjálftinn 3,7

Snörp jarðskjálftahrina varð 5 til 10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi í gærmorgun. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,7 á Richter-kvarða og sá næststærsti 3,3 stig. Þá varð einn skjálfti sem mældist 2,9 á Richter. Hrinunni fylgdi fjöldi eftirskjálfta, en til muna hefur dregið úr virkni að sögn Veðurstofunnar.

Guðni segir slag óheppilegan

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að átök um embættið á flokksþingi í næsta mánuði væru óheppileg. Hann segist þó ekki óttast mótframboð.

9 létust á Gasa í nótt

Að minnsta kosti níu létu lífið þegar palestínskir uppreisnarmenn réðust að herstöð Ísraelsmanna við landamæri Gaza í gærkvöldi. Uppreisnarmennirnir réðust inn í herstöðina rétt fyrir lokun hennar á bíl hlöðnum sprengiefni og skutu á allt sem fyrir varð. Sex hinna látnu eru ísraelskir hermenn, en einnig létu þrír uppreisnarmannanna lífið.

Fljúgandi hálka víða um land

Fljúgandi hálka er víða um land eftir að rigna tók á svellbunka og hafa nokkur umferðaróhöpp þegar orðið en hvergi alvarleg slys. Bíll valt í gærkvöldi á þjóðveginum austan við Selfoss og annar í Þrengslum án þess að nokkurn sakaði alvarlega.

Hermönnum fjölgað í Aceh-héraði

Hernaðaryfirvöld í Indónesíu ætla að fjölga hermönnum í hjálparstarfsemi í Aceh-héraði um mörg þúsund. Eftir fjölgunina verða meira en 50 þúsund hermenn frá Indónesíu við störf á Aceh. Hermennirnir munu eingöngu vinna að hjálparstarfi og yfirvöld þvertaka fyrir það að hermönnunum sé ætlað að berja niður andstöðu uppreisnarmanna.

ÍÚ og Frétt heita nú 365

Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa fengið ný nöfn, 365 - ljósvakamiðlar og 365 - prentmiðlar. Nýju nöfnin eru liður í samþættingu rekstrar félaganna. Nýtt skipurit var kynnt á starfsmannafundi í morgun og er því ætlað að tryggja sjálfstæði og fjölbreytileika fjölmiðla en sækja styrk í samþættingu rekstrar, markaðs- og sölustarfs.

Veðurofsi í Bandaríkjunum

Um gervöll Bandaríkin setur mikill veðurhamur nú mark sitt á líf fólks. Áin Santa Clara í Utah óx í gær gríðarlega vegna mikilla rigninga og snjóbráðnunar og þreif hún með sér að minnsta kosti tuttugu hús sem liggja meðfram bökkum hennar.

Fok víða um land

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Grindavík í nótt til að hemja fok af þaki fjárhúss í svonefndu Bakkalá fjárhúsahverfi. Þeir náðu að hefta frekara fok, eftir því sem best er vitað, og mun enga kind hafa sakað.

Ekið á hross og hreindýr

Fjögur hross drápust en ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir þegar stórum sendibíl var ekið á hrossahóp á þjóðveginum í Víðidal í Austur-Húnavatnssýslu í gær. Bíllinn skemmdist mikið.

Snjóflóðahætta á Patreksfirði

Sex íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði nú fyrir hádegið vegna snjóflóðahættu en flóð féll úr hlíðinni fyrir ofan bæinn í morgun og niður á götuna Mýrar. Engin hús eða mannvirki eru þar sem flóðið féll þótt það sé innan byggðarinnar.

Sjúkrarúmum fjölgað vegna flensu

Starfsfólk Landspítalans vinnur nú hörðum höndum að því að fylla hvern krók og kima í húsnæði spítalans af sjúkrarúmum til að geta hýst þá sjúklinga sem streyma inn vegna flensu og annarra pesta.

Tala látinna komin yfir 160 þúsund

Fjögur þúsund lík til viðbótar hafa fundist í Indónesíu og eru þá látnir komnir yfir 160 þúsund. Læknar segja að börn séu farin að deyja úr lungnabólgu.

Engin beiðni frá þýsku lögreglunni

Engin beiðni hefur enn borist frá þýsku fíkniefnalögreglunni um aðstoð starfsbræðra hennar á Íslandi við að upplýsa smyglmálið sem tengist togaranum Hauki. Fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík hefst því ekkert sérstakt að í málinu að svo komnu.

Álagningarhlutfall verði lækkað

F-listinn í borgarstjórn vill að álagningarhlutfall fasteignagjalda í Reykjavík verði lækkað þannig að raunhækkun fasteignagjalda verði ekki umfram hækkun launavísitölu. Fasteignamat á sérbýli hækkaði um áramót um 20% og um 14% í fjölbýli og ákvað borgarstjórnarmeirihlutinn í ljósi þess að hækka ekki sjálft álagningarhlutfall fasteignagjalda.

12% íbúa fyrir dómstóla

Búist er við að rúmlega tólf prósent íbúa Rúanda verði leidd fyrir héraðsdómstóla í landinu vegna þátttöku í þjóðarmorðinu árið 1994. Þetta er um ein milljón manna.

Andvirði æfingagjalda í söfnun

Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æfingagjalda renna til landssöfnunarinnar “Neyðarhjálp úr Norðri” vegna hamfaranna í Asíu.

Impregilo vildi ekki funda með ASÍ

Fundur var haldinn í félagsmálanefnd Alþingis í morgun til þess m.a. að fjalla um ágreining ASÍ og Impregilo. Gert var ráð fyrir að fulltrúar ASÍ og Impregilo yrðu samtímis á fundinum en þegar til kastanna kom neituðu fulltrúar Impregilo með öllu að sá háttur yrði hafður á og fengu það í gegn.

Nær til átta milljón heimila

Tveir íslenskir athafnamenn hafa tryggt sér dreifingarrétt á nýrri sjónvarpsstöð sem áformað er að muni ná til átta milljóna heimila í Skandinavíu fyrir árslok 2006. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er 750 milljónir króna á fimm árum. 

Sjá næstu 50 fréttir