Fleiri fréttir

Máttur viljans ótrúlegur

"Uppbyggingin verður hæg, peningar sem hefur verið lofað munu ekki alltaf skila sér og sorgin mun vofa yfir, en máttur viljans getur verið ótrúlegur," segir Ali Jewshai, embættismaður í írönsku borginni Bam, um þá tíma sem eru í vændum í Suðaustur-Asíu.

Fangar smíða líkkistur

Taílendingar leggja nótt sem dag við að finna lík fórnarlamba flóðbylgjunnar og jarðsetja þau. Sjálfboðaliðar flykkjast af hamfarasvæðunum og fangelsi hafa verið rýmd svo fangar geti aðstoðað við að telja líkin og smíða líkkistur.

Alvarlega slösuðum fækkar mest

Banaslysum hefur ekki fjölgað þrátt fyrir aukna umferð síðustu tuttugu ár. 23 hafa látist í umferðinni það sem af er árinu, jafnmargir og í fyrra. Mestur árangur er að fækka þeim slasast alvarlega en þeir voru 419 fyrir tuttugu árum. </font /></b />

Bandaríkjamenn gefa ekkert upp

Dómsmálaráðuneytið bandaríska gefur ekki upp rökstuðning eða bakgrunn ákvarðana sinna og lætur ekkert uppi um mögulegar fyrirætlanir sínar, segir Michael Kulstad, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Skýt enn upp flugeldum

Á hverju ári verða slys vegna flugelda. Þorsteinn Haraldsson fékk brot frá flugeldi í augað þegar hann var þrettán ára og hefur ekki haft sjón á því síðan.

Endurskin til útivistarfólks

Sýslumannsembættin á Seyðisfirði og Eskifirði hafa hafið átak í notkun endurskinsmerkja. Reynt verður að ná til þeirra sem stunda útivist í skammdeginu.

Mislæg gatnamót rísa

Mislæg gatnamót munu rísa á Hellisheiði við Þrengslavegamót á næsta ári. Til stendur að færa hringveginn á heiðinni og bæta við einni akrein frá Litlu kaffistofunni að Hveradalabrekku að sögn Svans Bjarnasonar.

Æ fleiri selja flugelda

Flugeldasala nær hámarki í dag en sölustaðir flugelda eru tæplega fimmtíu í ár. Sölustöðum hefur fjölgað um fimmtung frá því í fyrra og ber æ meira á því að einkafyrirtæki keppi við björgunarsveitir og íþróttafélög um hituna.

Hætt við kóleru og malaríu

Hjálp vegna hörmunganna í Asíu berst víða að og er að mörgu að hyggja. Hætta á smitsjúkdómum í kjölfar jarðskjálftanna eykst gífurlega vegna ástandsins á hörmungarsvæðunum.

Ár fjölmiðlafrumvarpsins

Stjórnmálaspekingar fjölmiðlanna eru á einu máli um að fjölmiðlafrumvarpið hafi verið helsta málið í íslenskri pólitík á árinu. Sínum augum lítur þó hver silfrið. </font /></b />

Dramatískt ár Davíðs

Langflestir stjórnmálaspekinganna sem Fréttablaðið ræddi við nefndu Davíð Oddsson þegar spurt var um hver stæði upp úr í íslenskum stjórnmálum á árinu. Ólafur Teitur Guðnason segir: "Davíð Oddsson, sem mætti gífurlegu andstreymi vegna fjölmiðlalaganna og einnig vegna Íraksmálsins en hefur þrátt fyrir það sterka stöðu nú í árslok. Þetta hefðu fáir leikið eftir."

Fylgislaus á hátindi ferilsins

Halldór Ásgrímsson er á hátindi ferils síns, orðinn forsætisráðherra þrjátíu árum eftir að hann settist á þing og rúmum tuttugu árum eftir að hann settist fyrst í ríkisstjórn. "Halldór er fylgislaus forsætisráðherra. Hefur átt í miklum vandræðum með Íraksmálið og hrakist úr einu horni í annað með það" segir Egill Helgason.

Tapað fundið

Guðjón A. Kristjánsson og Frjálslyndi flokkurinn ganga sífellt betur í takt við vinstri flokkana í stjórnarandstöðu. "Maður hefur stundum þurft að klípa sig í kinnina til að muna að Addi Kidda Gau hafi einhvern tímann verið í Sjálfstæðisflokknum.

Gungu og drusluárið

Stjórnmálaskýrendur virðast almennt sammála um að Steingrímur J. Sigfússon hafi spólað í sömu förunum 2004 og áður.

Spurt um trúverðugleika

Össur Skarphéðinsson þykir koma frekar vel út úr árinu 2004 - innan Samfylkingarinnar að minnsta kosti: "Össur hefur frekar styrkt stöðu sína en hitt, það er að segja í valdabaráttu við Ingibjörgu Sólrúnu. Út á við er alltaf spurning um trúverðugleika hans.

Gamalmenni í peysufötum

Árið 2004 var ekki ár nýliða í íslenskum stjórnmálum: "Athyglisverðustu nýliðarnir í pólitík eru kannski öll þessi kinnarjóðu, gagnrýnislausu, bústnu gamalmenni úr öllum flokkum sem hafa sest á þing, í peysufötunum sínum, í krafti þess að þau séu fulltrúar ungu kynslóðarinnar", segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.

Axarskaft ársins: Dijon-sinnep

Fjölmiðlafrumvarpið nefna flestir sem axarskaft ársins en fast á hæla þess koma mál friðargæslunnar.

Höfuðkúpubrotnaði á veitingastað

Kalrmaður liggur höfuðkúpubrotinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann, ásamt konu, féll niður stiga á veitingastað í miðborginni í nótt. Hann er þungt haldinn en ekki er vitað hvernig slysið varð. Konan slapp lítið meidd.

169 létust í eldsvoða í Argentínu

Að minnsta kosti 169 ungmenni létust og 375 slösuðust í bruna í næturklúbbi í Buenos Aires í Argentínu í nótt. Mikill ótti greip um sig á staðnum með þeim afleiðingum að fólk kramdist við neyðarútganga sem höfðu í sumum tilfellum verið bundnir fastir.

Búist við ofsaveðri

Gert er ráð fyrir suðvestan og vestan ofsaveðri, eða 23-28 metrum á sekúndu, á Suður- og Vesturlandi um tíma síðdegis að sögn Veðurstofunnar. Búist er við að veðrið bresti á á tímabilinu frá klukkan 16 til 18 og að það muni vara í eina til tvær klukkustundir með ofankomu og slæmu skyggni.

Skoteldar tendraðir með varúð

Búist er við stormi á Suður- og Vesturlandi síðdegis. Óskar Bjartmarz, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, biður fólk að fara að reglum um meðferð skotelda og hafa aðstæður í huga. Uppgötvast hefur að Landsbjörg hefur selt eitthvað af gölluðum flugeldum sem fólk er beðið að skila sem fyrst.

Nýr kjarasamningur undirritaður

Félag tónlistarskólakennara og Félag íslenskra hljómlistarmanna og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi. Kjarasamningurinn hefur gildistíma til 30. september 2006.

Sjúkraflugi fjölgar mjög

Farin hafa verið 300 sjúkraflug frá Akureyri í ár sem er tuttugu og níu fleiri sjúkraflug en í fyrra og 112 fleiri en árið þar áður. Flugfélag Íslands annast sjúkraflug frá Akureyri en slökkviliðið leggur til sjúkraflutningamenn og læknar koma frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þjónustusvæðið nær yfir allt norðanvert landið og allt til Grænlands.

75% sátt við utanríkisráðherrann

Sjötíu og fimm prósent Svía eru sátt við frammistöðu Leilu Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, vegna hamfaranna við Indlandshaf.  Freivalds hafði verið gagnrýnd fyrir langan viðbragðstíma eftir að flóðbylgjurnar dundu yfir og fyrir að hafa farið í leikhús áður en hún mætti í utanríkisráðuneytið vegna málsins.

Flytja Svía og Norðmenn frá Asíu

Íslensk stjórnvöld hafa boðist til að aðstoða við að koma slösuðum Svíum og Norðmönnum frá Asíu til síns heima eða á sjúkrahús. Íslenskt hjálparlið er í viðbragðsstöðu til að halda utan. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræddi í gær við Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, vegna náttúruhamfaranna í Asíu.

Ný úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Forsætisráðherra hefur skipað í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til næstu fjögurra ára. Nefndarmenn verða Páll S. Hreinsson prófessor sem jafnframt verður formaður nefndarinnar, Friðgeir Björnsson héraðsdómari og Sigurveig Jónsdóttir blaðamaður.

Geymdi þýfið í kjallaranum

Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöldi og þaðan stolið ýmsum raftækjum og skartgripum. Við nánari athugun lögreglu fannst þýfið falið í kjallara í stigagangi hússins og er talið að þjófurinn hafi ætlað að vitja þess síðar. Hann gerði það hins vegar ekki í nótt og er því ófundinn.

Hjálparstarfið komið í fullan gang

Hátt í 130 þúsund manns eru nú taldir af eftir hamfarirnar við Indlandshaf á annan í jólum og er talið víst að sú tala eigi eftir að hækka töluvert. Fjöldi flutningabifreiða með matvæli, lyf og líkpoka er nú kominn á hamfarasvæðin og birgðum er kastað úr flugvélum til afskekktra þorpa.

Gæsluvarðhald vegna smygls á fólki

Karl og kona, bæði ættuð frá Eþíópíu, og Eþíópíumaður sem var fylgdarmaður þeirra með fullgilt sænskt vegabréf, voru í gær úrskurðuð í gæsluvarðhand vegna gruns um að fylgdarmaðurinn hafi ætlað að smygla hinum tveimur til Bandaríkjanna. Þau voru bæði með sænsk vegabréf sem að öllum líkindum eru stolin eða fölsuð.

Aðeins tveir togarar á veiðum

Nokkur flutningaskip verða á sjó eða í erlendum höfnum um áramótin og aðeins tveir togarar verða að veiðum. Áhafnir þeirra ætla að selja aflann í Bretlandi og Þýskalandi fljótlega upp úr áramótum en á þeim tíma fæst jafnan hátt verð því þarlendir eru sólgnir í fisk eftir kjötmáltíðir jólanna.

Kraftaverk að barnið bjargaðist

Fjölskylda tuttugu daga gamla stúlkubarnsins sem bjargaðist í flóðunum fljótandi á dýnu segir lífsbjörg hennar alvöru kraftaverk. Suppiah Tulasi var sofandi í bakherbergi veitinghúss í Penang í Malasíu þegar flóðbylgjan skall á og hrifsaði foreldra hennar og flesta gesti staðarins með sér.

Engar brennur í kvöld

Það verður ekki leyft að kveikja í neinum áramótabrennum í Reykjavík, Kópavogi eða Hafnarfirði í kvöld og er sú ákvörðun endanleg. Miðað við þessa ákvörðun verður kveikt í áramótabálköstunum á morgun.

Gleðilegt ár 2005

Starfsfólk Vísis óskar landsmönnum öllum árs og friðar.

Ekkert ákveðið um frekari aðstoð

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ákvörðun um frekari fjárhagsaðstoð íslenskra stjórnvalda vegna flóðanna við Indlandshaf verði tekin í byrjun nýs árs. Þegar hefur verið safnað tugum milljóna hér á landi. Ríkisstjórnin hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að flytja slasaða frá hamfarasvæðunum.

Engin brenna á Seyðisfirði

Búið er aflýsa brennu og flugeldasýningu sem vera átti á Seyðisfirði í kvöld. Að sögn Tryggva Harðarsonar bæjarstjóra var sú ákvörðun tekin vegna þess afleita veðurs sem spáð er að verði á Seyðisfirði og víðar á Austurlandi í kvöld.

Engin brenna við Eyjafjörð

Öll leyfi fyrir brennum á Eyjafjarðarsvæðinu í kvöld hafa verið afturkölluð vegna veðurs að sögn lögreglunnar á Akureyri. Brennan og flugeldasýningin sem vera áttu við Réttarhvamm verða haldnar á morgun klukkan 20.30. Engar áramótabrennur verða heldur í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði eða Seyðisfirði.

Ósmekklegt af Vinstri - grænum

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir það ósmekklegt af Vinstri - grænum að gera hörmungarnar við Indlandshaf að pólitísku máli. Davíð segir fjárframlag Íslands til hjálparstarfsins ekki skipta sköpum.

Gölluð flugeldategund innkölluð

Landsbjörg og lögreglan hafa innkallað eina tegund flugelda vegna galla. Mikil sala hefur verið á skoteldum en lögreglan biður forráðamenn barna og unglinga að gæta vel að því að þeir séu ekki að nota flugeldana á annan hátt en ætlast er til. Tvö alvarleg slys urðu í gær þegar skoteldar voru teknir í sundur. 

Tala látinna hækkar enn

Hátt í hundrað og þrjátíu þúsund manns eru nú taldir af eftir hamfarirnar við Indlandshaf á annan í jólum og er talið víst að sú tala eigi eftir að hækka töluvert. Heilbrigðisráðherra Indónesíu segir að líklega séu fleiri en hundrað þúsund látnir í landinu.

Ofsaveður um tíma á landinu

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur spáir ofsaveðri, eða 23-28 metrum á sekúndu, suðvestanlands síðdegis og um norðaustanvert landið í kvöld. Í slíku veðri getur verið hættulegt að vera úti við, lausir hlutir taka að fjúka og skemmdir geta orðið á föstum hlutum.

Líklega yfir 100 þúsund látnir

Æ fleiri lík finnast á flóðasvæðunum við Indlandshaf og útlitið er svart. Rauði krossinn býst við að rúmlega hundrað þúsund manns hafi dáið og kappkostar að koma vistum til eftirlifenda og sporna við farsóttum. </font /></b />

Bush lofar dyggum stuðningi

George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði á þriðjudag að Bandaríkin, Indland, Ástralía og Japan hefðu myndað alþjóðlegt bandalag sem myndi hafa umsjón með neyðaraðstoð og uppbyggingarstarfi á hamfarasvæðinu við Indlandshaf.

Bólusetning engin trygging

Mjög skæð inflúensa herjar nú á landsmenn og er víst að margir liggja í bælinu á milli jóla og nýárs. Þúsundir Íslendinga létu bólusetja sig í haust en í mörgum tilvikum dugar það ekki til, bólusettir leggjast samt í flensu.

Metár í fjölda fíkniefnabrota

Lögregla og tollayfirvöld tóku mun meira magn af amfetamíni og kókaíni heldur en í fyrra og síðustu ár þar á undan. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir