Flytja Svía og Norðmenn frá Asíu 31. desember 2004 00:01
Íslensk stjórnvöld hafa boðist til að aðstoða við að koma slösuðum Svíum og Norðmönnum frá Asíu til síns heima eða á sjúkrahús. Íslenskt hjálparlið er í viðbragðsstöðu til að halda utan. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræddi í gær við Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, vegna náttúruhamfaranna í Asíu. Hann kom á framfæri samúðarkveðjum frá íslensku þjóðinni og sagði hug Íslendinga hjá frændum sínum á stundu sem þessari. Forsætisráðherrarnir ræddu ástandið á hamfarasvæðunum. Þá bauð Halldór fram aðstoð Íslendinga við að koma slösuðum Norðmönnum og Svíum frá Asíu til heimaslóða eða á sjúkrahús á Íslandi. Búið er að tryggja flugvél frá Icelandair sem er til taks á Keflavíkurflugvelli, ásamt því sem íslenskt heilbrigðisstarfsfólk er reiðubúið til að bregðast við kallinu og hlynna að þeim slösuðu meðan á fluginu stendur. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Bondevik og Persson hafi þakkað innilega fyrir þetta boð og að aðstoð Íslendinga sé til skoðunar hjá yfirvöldum í Svíþjóð og Noregi. Átta manna lið íslensku alþjóðasveitarinnar, ásamt tuttugu og fimm manna starfsliði frá Landspítala - háskólasjúkrahúsi, hefur verið í viðbragðsstöðu frá því á miðnætti í gær og er undirbúningur vegna utanfarar í fullum gangi. Fest hefur verið kaup á matvælum og verið er að útvega súrefni og nauðsynleg björgunargögn. Þau skilaboð hafa borist frá Svíþjóð, að sögn Víðis Reynissonar hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, að boðið verði ekki þegið í dag en hugsanlega á morgun.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira