Fleiri fréttir

Brýnt að bæta samskipti við Rússa

Viktor Júsjenko, sigurvegari forsetakosninganna í Úkraínu, segir að sitt fyrsta verk sem forseti landsins verði að fara til Moskvu og reyna að bæta samskipti Úkraínu og Rússlands. Júsjenko segir að samskipti ríkjanna hafi verið "afmynduð" af úkraínskum viðskiptaklíkum.

Flóðið rótaði upp jarðsprengjum

Flóðbylgjan sem skall á Sri Lanka hefur rótað upp jarðsprengjum og dreift um víðfeðmt svæði og ógnar öryggi þeirra sem lifðu hörmungarnar af og reyna að komast aftur til síns heima sem og hjálparstarfsmönnum á svæðinu.

Búsifjar mestar á Sri Lanka

Efnahagslegar búsifjar af völdum flóðbylgjunnar á Indlandshafi verða mestar á Sri Lanka og á Maldíveyjum að mati hagfræðinga í Asíu. Þeir segja að flóðbylgjan muni ekki hafa varanlegar efnahagslegar afleiðingar í Indónesíu, Indlandi, Taílandi og Malasíu, því skemmdirnar séu ekki miklar í ljósi stærðar landanna.

24 Norðurlandabúar látnir

Að minnsta kosti 24 Norðurlandabúar hafa látist í flóðbylgjunum í Suðaustur-Asíu og óttast er um afdrif fjölda annarra sem er saknað. Af hinum látnu eru tíu Norðmenn, níu Svíar, þrír Danir og tveir Finnar.

Bylgjan hreif lest af teinum sínum

Rúmlega þúsund farþegar í lest meðfram strönd Indónesíu fórust þegar flóðbylgjan skall á land og hreif lestarvagnana með sér af teinunum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Indónesíu var lestin stöðvuð á sunnudagsmorgun skömmu áður en bylgjan gekk á land

Hættuviðvörun slegið á frest

Veðurstofa Taílands er borin þungum sökum af embættismönnum. Taílensk yfirvöld munu skipa óháða nefnd sem á að rannsaka hvort veðurstofa landsins hafi frestað viðvörun vegna flóða. </font /></b />

Flóð stutt frá ABC heimili

Um 2.500 manns létust af völdum flóðbylgjunnar um 1.600 metrum frá Heimili litlu ljósanna sem ABC hjálparstarf rekur. Heimilið er 50 kílómetrum utan Channai, sem áður hét Madras, á Indlandi.

54 Kínverjar á Kárahnjúka

Stjórnvöld hafa ákveðið að veita Impregilo atvinnuleyfi fyrir 54 kínverska verkamenn til starfa við Kárahnjúka. Alþýðusamband Íslands telur lög brotin og segir að tekin hafi verið ákvörðun sem eigi sér engin fordæmi á íslenskum vinnumarkaði. ASÍ hefur óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra um málið.

Íslendinga leitað á sjúkrahúsum

Íslendinga á ferð um Taíland hefur verið leitað á sjúkrahúsum í Phuket í Taílandi. Utanríkisráðuneytið hefur ekki haft upp á tólf manns sem ættingjar sakna. Nöfnum og kennitölum þeirra hefur verið komið til taílenskra stjórnvalda og danskra, segir Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri almennrar skrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Vara við ferðum til Asíu

Utanríkisráðuneytið varar við ferðalögum til suðvesturhluta Taílands, Norður-Súmötru í Indónesíu, suðausturstrandar Indlands, Srí Lanka og Maldíveyja.

Bíða þess að komast til Bangkok

Hópur átta Íslendinga á Patong-strönd á Phuket eyju í Taílandi heldur enn til á hóteli sínu. Þar sat fólkið að snæðingi morgunverðs þegar flóðbylgjan skall á ströndinni.

Tólf Íslendinga enn saknað

Tólf Íslendingar, þar af þrjú börn, á ferðalagi í Taílandi og á Bali hafa ekki gert vart við sig eftir hamfarirnar í Asíu. Tuttugu og þrír nýstúdentar frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja eru á leið til Taílands á föstudag. Ekki er ljóst hvort ferðin fæst endurgreidd hætti stúdentarnir við segir talsmaður ferðaskrifstofunnar.

Sjálfstæði Gæslunnar varðveitt

Georg Lárusson, nýráðinn forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikilvægt að varðveita sjálfstæði hennar og telur ekki koma til greina að fella hana undir embætti Ríkislögreglustjóra eins og raunin varð með Almannavarnir.

Stærsta innisundlaug landsins

Stærsta innisundlaug landsins verður opnuð í Laugardal í næstu viku. Hún stórbætir aðstöðu til sundkeppni, æfinga og kennslu. 

Vaxandi klámvæðing dægurmenningar

Besti vinurinn hjálpar ungum karlmönnum að færa vinkonur þeirra úr fötunum í nýrri bjórauglýsingu sem birtist í íslenskum dagblöðum. Talskona Femínistafélagsins, Katrín Anna Guðmundsdóttir, segir þetta hluta af stöðugt vaxandi klámvæðingu íslenskrar dægurmenningar.

Margar leiðir til að finna fólk

Smári Sigurðsson, hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, segir beiðni ekki hafa borist frá utanríkisráðuneytinu um aðstoð við að reyna að hafa uppi á þeim Íslendingum sem hugsanlega gætu verið á hættusvæðum í Asíu. Ekki er vitað hvar tólf Íslendingar eru niðurkomnir í Asíu. Fjórir eru taldir hafa getað verið á hættusvæðunum.

Sækja sænska ríkisborgara

Flugvél frá Loftleiðum, leiguflugsfyrirtæki Flugleiða, fór frá Keflavíkurflugvelli í gær til að sækja sænska ríkisborgara til eyjarinnar Phuket í Taílandi að beiðni sænskra stjórnvalda.

Biðu í hríðarbyl en fengu ekki mat

Á annan tug manna beið fyrir utan Fjölskylduhjálpina í Eskihlíð í gær í von um að fá úthlutað matvælum fyrir gamlárskvöld. Að sögn eins viðmælenda blaðsins kom ekki í ljós fyrr en klukkan þrjú að það væri lokað. Hann sagði að þá hefðu flestir verið búnir að bíða í klukkutíma í hríðarbyl.

Ellefu Íslendingar enn ófundnir

Utanríkisráðuneytinu hefur ekki tekist að hafa uppi á ellefu Íslendingum sem leitað er að í Asíu. Talið er að ríflega 50 þúsund hafi farist í náttúruhamförunum. Umfangsmestu neyðaraðstoð allra tíma hrint í framkvæmd.

Flestir hafa látist í Kína

Jarðskjálftinn í Indónesíu á sunnudaginn sem varð að minnsta kosti 55 þúsund manns að bana í Asíu og Afríku er eins og staðan er í dag níundi mannskæðasti jarðskjálftinn frá því árið 1900. Mannskæðasti skjálftinn á síðustu öld var sumarið 1976 í borginni Tangshan í norðausturhluta Kína. Þá létust um 255 þúsund manns.

Níu látnir og 40 særðir í Bagdad

Að minnsta kosti níu menn fórust og fjörutíu særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan höfuðstöðvar helsta stjórnmálaflokks sjíta í Bagdad í Írak í morgun. Flokkurinn var stofnaður í stjórnartíð Saddams Husseins og voru leiðtogar hans í útlegð þar til Saddam var steypt af stóli.

17 þúsund látnir og fer fjölgandi

Yfir sautján þúsund manns hafa látist í kjölfar jarðskjálftans í Suðaustur-Asíu í gær. Skjálftinn og flóðbylgjurnar sem hann olli eru mesta náttúruhamfarir á þessari öld. Búast má við því að tala látinna haldi áfram að hækka. Hundruð þúsundir manna hafa misst heimili sín og óttast menn nú að hungursneyð og farsóttir kunni að brjótast út á svæðinu.

Enn óvissa um afdrif Íslendinga

Enn er lítið eða ekkert vitað um afdrif fjörutíu til fimmtíu Íslendinga sem eru á hörmungarsvæðunum í Suðaustur-Asíu. Neyðarvakt var hjá utanríkisráðuneytinu fram yfir miðnætti en þá dró verulega úr hringingum.

Júsjenko lýsir yfir sigri

Stjórnarandstæðingurinn Viktor Júsjenko lýsti í nótt yfir sigri í forsetakosningunum í Úkraínu. Júsenkó sagði að með sigri sínum væri hafið nýtt skeið í stjórnmálasögu landsins. Búið er að telja um níutíu prósent atkvæða og segja embættismenn að Júsenkó hafi óvinnandi forskot á andstæðing sinn, Viktor Janúkovítsj.

Tveir fluttir á slysadeild

Talsverð ölvun var víða um land í nótt sem er harla óvenjulegt á aðfararnótt mánudags en margir skemmtistaðir voru með opið fram eftir nóttu eins og gjarnan á annan í jólum. Tveir menn voru slegnir niður í miðborg Reykjavíkur með skömmu millibili á sjötta tímanum og þurfti að flytja þá báða á slysadeild til aðhlynningar.

Ísraelar byrjaðir að sleppa föngum

Ísraelsmenn byrjuðu í morgun að láta lausa þá hundrað fimmtíu og níu fanga sem þeir ætla að sleppa til þess að sýna samningsvilja við nýja stjórnendur í Palestínu. Hundrað og þrettán af föngunum voru að afplána sakir fyrir að ógna öryggi Ísraels að mati Ísraelsmanna og fjörutíu og sex fyrir að hafa komið ólöglega til landsins.

Ekki flogið vegna óveðurs

Flugvél Flugleiða, sem átti að fara frá Boston áleiðis til Keflavíkur í gærkvöldi, komst ekki í loftið vegna óveðurs og ísingar í Boston. Flugið var fellt niður og kemur vélin ekki til landsins fyrr en í fyrramálið.

Fá fiskiskip á miðunum

Aðeins fjörutíu fiskiskip voru komin á sjó í morgun en jólaleyfi sjómanna lauk yfirleitt á miðnætti. Dagróðrabátar á Suðvesturlandi eru enn í landi þar sem spáin er slæm á miðunum þannig að fisksalar á höfuðborgarsvæðinu verða að leita út um land eftir nýjum fiski í dag en margir sækjast í fisk eftir þungar kjötmáltíðir jólanna.

23.500 látnir á hamfarasvæðunum

23.500 manns hafa látist í kjölfar jarðskjálftans í Suðaustur-Asíu í gær samkvæmt Sky-sjónvarpsstöðinni. Mannfallið er mest á Sri Lanka en þar eru rúmlega 10 þúsund manns taldir af. Vitað er um a.m.k. fimm Norðmenn, þrjá Dani og tvo Svía sem létust í hamförunum. </font /></font /> 

Banvæn gassprenging í Frakklandi

Tíu fórust og fjórtán slösuðust þegar öflug gassprenging varð í húsi í borginni Mulhouse í Frakklandi í gær. Níu er saknað eftir sprenginguna og er enn leitað í rústum hússins sem hrundi eftir að sprengingin varð.

Stærsti flokkur súnníta hættur við

Stærsti flokkur súnníta í Írak hefur hætt við þátttöku í kosningunum sem fram eiga að fara þann 30. janúar næstkomandi. Talsmenn flokksins segja að ekki hafi verið orðið við kröfum sem flokkurinn setti fram og setti sem skilyrði fyrir þátttöku. Flokksmenn eru þrátt fyrir þetta ekki hvattir til að sniðganga kosningarnar. 

Fischer kemur varla fyrir áramót

Það virðist útséð með að Bobby Fischer komist hingað til lands fyrir áramót því lögmaður hans hefur ekki fengið nein viðbrögð frá utanríkisráðuneytinu þar við erindi sínu fyrir jól. Þá hefur ráðuneytið ekkert samband haft við sendiráð Íslands í Tókýó að sögn Benedikts Höskuldssonar sendifulltrúa.

Óttast að farsóttir breiðist út

Yfir tuttugu og eitt þúsund manns eru taldir af eftir flóðin og jarðskjálftana í Suðaustur-Asíu í gær. Óttast er að farsóttir breiðist nú út en flóðavatn mengar vatnsból og lík þeirra sem fórust rotna á víðavangi. Þúsundir hafa verið grafnar í fjöldagröfum og með öllu er óljóst hverjir þar liggja.

Óljóst um afdrif 39 Íslendinga

Enn er óljóst um afdrif 39 Íslendinga sem taldir eru vera á hamfarasvæðunum en engar vísbendingar eru um að þeir hafi slasast eða farist. Að sögn Péturs Ásgeirssonar í utanríkisráðuneytinu eru langflestir þeirra sem ekki hefur náðst samband við á Taílandi.

Tvö fíkniefnamál í Hafnarfirði

Lögreglan í Hafnarfirði rannsakar nú tvö fíkniefnamál sem komu upp í fyrrinótt og á jóladag. Í öðru tilvikinu voru viðkomandi með hass í fórum sínum en í hinu fundust tuttugu grömm af hvítu efni sem talið er vera annað hvort amfetamín eða kókaín. Þrír menn voru handteknir í tengslum við það mál.

Júsjenko sigurvegari kosninganna

Viktor Júsjenko bar sigurorð af keppinaut sínum, forsætisráðherranum Viktor Janúkovítsj, í forsetakosningum í Úkraínu í gær. Svo virðist sem þessi umferð hafi farið fram án kosningasvindls.

Snjóruðningur hafinn fyrir norðan

Snjóruðningur hófst fyrir alvöru í þéttbýlisstöðum á Norður- og Norðausturlandi í morgun eftir jólaáhlaupið. Húsagötur hafa víða verið alveg ófærar síðan á aðfangadag og er mikið verk framundan hjá bæjarstarfsmönnum í þessum landshlutum. Allir helstu þjóðvegir eru þó orðnir færir eftir mokstur í morgun en fljúgandi hálka er víða á landinu.

21 þúsund börn fá flugeldagleraugu

Flugeldasalan fyrir áramótin er að hefjast en líklega má búast við mikilli sölu. 21 þúsund börnum verða gefin flugeldagleraugu fyrir áramótin.

Nægur snjór í Bláfjöllum

Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag. Þar er nægur snjór og undirlag gott þannig að það lítur vel út með skíðaiðkun íbúa höfuðborgarsvæðisins í vetur.

Alnæmissmituðum fjölgar í Danmörku

Fleiri karlar hafa greinst með alnæmissmit í Danmörku í ár en greinst hafa á ári síðustu tólf árin. Sérfræðingar í heilbrigðismálum telja að þetta megi rekja til þess að menn séu orðnir kærulausari en áður, ekki síst vegna þess árangurs sem náðst hefur í baráttunni við sjúkdóminn með lyfjagjöfum.

3 sóttu um starf skrifstofustjóra

Þrír sóttu um starf skrifstofustjóra Alþingis en það var auglýst laust til umsóknar 8. desember sl. og rann umsóknarfrestur um embættið út 22. desember. Þeir sem sóttu um voru Einar Farestveit, lögfræðingur á skrifstofu Alþingis, Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis og Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna.

Samúðarkveðjur sendar til 9 landa

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í dag samúðarkveðjur til stjórnvalda þeirra ríkja sem verst urðu úti vegna jarðskjálftanna í fyrrinótt. Samúðarkveðjur voru sendar til Indlands, Sri Lanka, Indónesíu, Taílands, Maldíveyja, Malasíu, Bangladesh, Myanmar og Sómalíu.

Landsbjörg var í viðbragðsstöðu

Hugsanlegt var að alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar yrði beðin um að fara á hamfarasvæðið í Suðaustur-Asíu  en fljótlega kom í ljós að ekki var þörf fyrir tæknilega rústabjörgunarsveit eins og Landsbjörg hefur á að skipa. Einn Íslendingur til viðbótar á hamfarasvæðunum hefur látið vita af sér en engar fregnir hafa enn borist af 38 Íslendingum.

Blikkljós þyrluáhafna reynast vel

Rauðu blikkljósin, sem starfsmenn þyrluáhafna Landhelgisgæslunnar fengu í bíla sína í haust til að auðvelda þeim að komast áfram í umferðinni þegar þeir eru á leið í bráðaútkall, hafa gefið mjög góða raun að sögn Friðriks Höskuldssonar, stýrimanns í þyrluáhöfn gæslunnar.

Yfirmanni í lögreglunni vikið frá

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóranum hefur verið leystur frá störfum vegna gruns um brot í starfi. Maðurinn er grunaður um að hafa árið 2001 skráð bíl í eigu embættisins á nafn sambýliskonu sinnar og að hafa á þessu ári notað bíl embættisins í eigin þágu. Rökstuddur grunur um meint brot mannsins vaknaði við innra eftirlit embættisins.

Sjá næstu 50 fréttir