Óljóst um afdrif 39 Íslendinga 27. desember 2004 00:01
Enn er óljóst um afdrif 39 Íslendinga sem taldir eru vera á hamfarasvæðunum en engar vísbendingar eru um að þeir hafi slasast eða farist. Að sögn Péturs Ásgeirssonar í utanríkisráðuneytinu eru langflestir þeirra sem ekki hefur náðst samband við á Taílandi. Utanríkisþjónusta Dana þar í landi hefur boðist til að grennslast fyrir um Íslendingana líkt og um Dani væri að ræða og greiða götu þeirra ef á þarf að halda. Þá hefur utanríkisþjónustan haft samaband við ræðismenn sína á öllu svæðinu og beðið þá um að grennslast fyrir um hugsanlegar ferðir Íslendinga. Engar skipulagðar ferðir voru farnar héðan til svæðisins fyrir jól en Íslendingar gætu hafa farið þangað með erlendum ferðaskrifstofum. Víða er símasamband rofið eða lélegt þannig að erfitt getur verið um vik fyrir Íslendingana að láta vita af sér. Svo getur þeim sem allt er í lagi hjá láðst að láta vita af því. Fréttastofa Bylgjunnar náði fyrir stundu tali af Konráð Magnússyni sem var ásamt konu sinni og yfir 200 manns kominn um borð í flugvél á Maldíveyjum þegar ósköpin dundu yfir. Farþegum var skipað að yfirgefa vélina í skyndingu og halda inn í flugstöðina og síðan varð allt um flotið og hálfs metra djúpt vatn varð á flugbrautinni. Þegar vatnið sjatnaði tók það stórvirkar vinnuvélar átta klukkustundir að hreinsa eina flugbraut þannig að vélar á vellinum kæmust á brott. Konráð er nú á Sri Lanka á svæði sem ekki varð fyrir barðinu á hamförunum en í næsta nágrenni fórust nokkur þúsund manns. Eins og áður sagði varð Sri Lanka verst úti í hörmungunum.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira