17 þúsund látnir og fer fjölgandi 27. desember 2004 00:01
Yfir sautján þúsund manns hafa látist í kjölfar jarðskjálftans í Suðaustur-Asíu í gær. Skjálftinn og flóðbylgjurnar sem hann olli eru mesta náttúruhamfarir á þessari öld. Búast má við því að tala látinna haldi áfram að hækka. Hundruð þúsundir manna hafa misst heimili sín og óttast menn nú að hungursneyð og farsóttir kunni að brjótast út á svæðinu. Alþjóðlegt hjálparstarf hófst strax í gær á hamfarasvæðinum en svæðin eru mjög fjölmenn. Hermenn og hjálparstarfsmenn vinna hörðum höndum að því að hlúa að slösuðum á svæðunum og eru spítalar yfirfullir af fólki. Skjálftinn átti upptök sín skammt vestur af eyjunni Súmötru í Indónesíu. Á þeim slóðum mætast jarðflekar þar sem svonefndur Indó-Ástralíufleki gengur undir Evrasíuflekann með tilheyrandi umbrotum. Skjálftinn var 8,9 stig á Richter-kvarða og námu jarðskjálftamælar hann um allan heim, meðal annars hér á landi. Við jarðskjálftann lyftist sjávarbotninn þannig að gífurlegar flóðbylgjur mynduðust og fóru um sex metra háar, sumar allt að tíu metrar, á ógnarhraða yfir Indlandshaf. Þær brotnuðu svo á strandlengjum landanna beggja vegna Bengalflóa. Í Indónesíu, Sri Lanka og á Indlandi skoluðust heilu þorpin á braut, sóldýrkendur bárust á haf út og snorkkafarar lömdust yfir kóralrif í túristalendum Taílands. Á Maldíveyjum, eyjaklasa suður af Indlandi sem er um 2.500 kílómetra frá upptökum skjálftans, varð mikið tjón en eyjarnar rísa hvergi hærra en 1,8 metra yfir sjávarmál. Neyðarvakt var komið á í utanríkisráðuneytinu í gær vegna íslensks ferðafólks sem er á ferð í Asíu og setti fjöldi ættingja sig í samband við ráðuneytið til þess að spyrjast fyrir um afdrif Íslendinga sem staddir eru á hamfarasvæðunum. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi skaðast í flóðunum, en í gærkvöld hafði þó ekki náðst í nokkurn hóp fólks ennþá. Á lista ráðuneytisins yfir Íslendinga á þessum slóðum voru um 65 manns. Símasamband við hamfarasvæðin var stopult, en í utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að reynt yrði að aðstoða fólk eftir megni í gegnum ræðismenn á viðkomandi stöðum eða norrænu utanríkisþjónustuna. Fregnir bárust þó af því að stöku ferðamenn hafi verið hætt komnir og mörgum var mjög brugðið. Talsvert er af erlendum ferðamönnum á skjálftasvæðunum og er fjölmargra saknað.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira