Erlent

Óvissa í Úkraínu

Óvissa ríkir í Úkraínu vegna forsetakosninganna sem verða endurteknar í landinu á morgun. Stjórnlagadómstóll Úkraínu úrskurðaði í dag að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögunum, brytu gegn stjórnarskrá landsins. Ákveðið var að endurtaka forsetakosningarnar í Úkraínu eftir að úrslit kosninganna, sem haldnar voru 21. nóvember síðastliðinn, voru ógilt af hæstarétti landsins, vegna ásakana um víðtæk kosningasvik af hálfu stjórnvalda, en þar bar Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra, sigurorð af Viktor Júsjenkó, helsta keppinaut sínum og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Kosningasvikin í síðasta mánuði virtust einkum tengjast utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. Fyrir skemmstu gerðu stjórnvöld í Úkraínu breytingar á kosningalögunum, sem takmörkuðu kosningar á heimilum fólks, og gerðu ráð fyrir að aðeins alvarlega fatlaðir einstaklingar gætu greitt atkvæði heima. Stjórnlagadómstóll taldi hins vegar að breytingarnar brytu gegn réttindum kjósenda og ógilti þær. Skoðanakannanir benda til þess að Júsjenkó fari með sigur af hólmi að þessu sinni. Þrátt fyrir óvissu um framkvæmd og lögmæti kosninganna, eru fulltrúar yfirkjörstjórnar bjartsýnir. Þeir telja útilokað að nokkur maður reyni að svindla að þessu sinni, eftir það sem á undan er gengið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×