Ekki vitað um 40 Íslendinga 26. desember 2004 00:01
Ekki er vitað um afdrif um fjörtíu Íslendinga sem voru á hamfarasvæðinu, af þeim sextíu og fimm sem staðfest er að eru þar um þessar mundir. Utanríkisráðuneytið hefur starfrækt neyðarvakt í dag þar sem upplýsingum er safnað og Íslendingum komið til aðstoðar ef með þarf. Flóðbylgjurnar fóru yfir marga vinsæla ferðamannastaði í Asíu, þar sem gera má ráð fyrir að fjöldi Íslendinga hafist við. Ungt par á flóðasvæðinu við Phuket eyju í Tælandi var statt á ströndinni og horfði á flóðbylgjurnar nálgast með ógnarhraða. Voru þau í bráðri lífshættu og hlupu upp á hæsta punkt eyjunnar. Ekki hefur náðst símasamband við þau síðan fyrir hádegi, en þá töldu þau sig úr hættu. Margrét Þorvaldsdóttir er stödd ásamt fjölskyldu sinni á sömu slóðum. Af hreinni tilviljun voru þau ekki niðri á strönd þegar flóðbylgjan reið yfir, en dvelja nú á hóteli sínu þar sem vatnið fyllir nánast fyrstu hæðina. Margrét segir fólk mjög hrætt og vatn sé út um allt. Varað hafi verið við að meira gæti fylgt í kjölfarið. Margrét segir að ágætlega fari um fjölskylduna. Starfsfólk Atlanta og Flugleiða á Maldvieyjum, Indónesíu og Malasíu er heilt á húfi. Staðfest hefur verið að ekkert amar að íslenskum starfsmönnum utanríkisþjónustunnar á Sri Lanka, þar sem þúsundir hafa látist. Strax í morgun var sett upp neyðarvakt í utanríkisráðuneytinu vegna flóðanna, til að safna upplýsingum um Íslendinga á hamfarasvæðinu og koma þeim til aðstoðar. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, segist ekki vita nákvæmlega hve margir Íslendingar séu á svæðinu, en ljóst sé að engar skipulagðar ferðir hafi verið farnar á þetta svæði undanfarið, en hins vegar séu þarna einhverjir á eigin vegum og verið sé að reyna að finna út hve margir þeir séu. Pétur segir markmiðið fyrst og fremst að ræðismenn Íslands geti stuðlað að því að hjálp berist.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira