Breytingar standast ekki 25. desember 2004 00:01
Stjórnlagadómstóll Úkraínu komst að því í morgun að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögum landsins, brytu í bága við stjórnarskrána. Önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu verður endurtekin á morgun. Mikil spenna ríkir í Úkraínu fyrir forsetakosningarnar á morgun, og er búist við góðri kosningaþátttöku landsmanna. Kosningarnar fara fram í kjölfar þess að önnur umferð kosninganna, sem fram fór 21. nóvember síðastliðinn, var ógilt af hæstarétti landsins, vegna ásakana um víðtæk kosningasvik af hálfu stjórnvalda, en þar bar Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra, sigurorð af Viktor Júsjenkó, helsta keppinaut sínum og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hörð mótmæli urðu í landinu eftir að Janúkóvits var lýstur sigurvegari og kröfðust hundruð þúsunda Úkraínumanna þess að kosningarnar yrðu ógiltar og að Júsjenkó yrði lýstur sigurvegari. Stjórnlagadómstóll Úkraínu komst að því í morgun að breytingar sem gerðar voru nýlega á kosningalögum landsins, brytu í bága við stjórnarskrána, en forsetakosningarnar verða engu að síður látnar fara fram eins og áformað er. Breytingar sem takmörkuðu kosningar á heimilum fólks, og gerðu ráð fyrir að aðeins alvarlega fatlaðir einstaklingar gætu greitt atkvæði heima, voru gerðar nýlega á kosningalögunum og taldi stjórnlagadómstóll það brjóta gegn réttindum kjósenda. Kosningasvikin í síðasta mánuði virtust einkum tengjast utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. Forseti réttarins segir markmið nýrra laga að tryggja lögmætar forsetakosningar, í samræmi við stjórnarskrá landsins. Kannanir benda til þess að Júsjenkó fari með sigur af hólmi í kosningunum að þessu sinni. Báðir frambjóðendurnir notuðu tækifærið og hvöttu stuðningsmenn sína í gærkvöldi. Júsjenkó ávarpaði mannfjölda í Kænugarði og sagði framtíð landsins ráðast á morgun. Janúkóvits, forsætisráðherra, kom fram á baráttufundi í bænum Beregovo, í vesturhluta landsins, en hann sagðist ætla að tryggja einingu Úkraínu. Kútsma, fráfarandi forseti, hefur gagnrýnt kosningabaráttu beggja frambjóðenda og segir þá hafa stuðlað að einhverri mestu óeiningu sem dunið hafi yfir landið.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira