Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Innanlandsflug í lagi Innanlandsflug hefur gengið nokkuð vel í morgun, þó að á tímabili hafi litið út fyrir að akureyrarflug væri í hættu vegna veðurs. En allar vélar hafa komist í loftið og er von á síðustu vél Flugfélags Íslands aftur til Reykjavíkur um klukkan þrjú í dag. 24.12.2004 00:01
Tættu utan af pökkunum Þeim var ekkert heilagt, þjófunum sem brutust inn í íbúðarhús í Garðabæ í gær, því auk þess að láta greipar sópa um verðmæti í húsinu, réðust þeir á jólapakkana undir jólatrénu og tættu utan af þeim. Höfðu þeir sitthvað á brott með sér. Eins og gefur að skilja voru heimilismenn harmi slegnir, en betur fór en á horfðist. 24.12.2004 00:01
Fjöldi í kuldanum í miðbænum Hátt í tuttugu þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur þegar mest var í gærkvöldi, þrátt fyrir talsvert frost, en veður var kyrrt þannig að kuldinn varð ekki bítandi. Lítið bar á ölvun og aðeins tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvunarakstur í gærkvöldi og í nótt, þrátt fyrir gríðarlega umferð. 24.12.2004 00:01
Saltfiskurinn kemst til skila Minnstu mátti muna að þrálát óveður á Íslandsmiðum í oktober og nóvember hefðu áhrif á jólahald í Portúgal, Grikklandi og á Spáni, því fjöldinn allur í þessum löndum hefur saltfisk í jólamatinn og er íslenskur saltfiskur jafnan hæst skrifaður. 24.12.2004 00:01
Hátt í 3 milljónir jólakorta Íslandspóstur hefur dreift hátt í þremur milljónum jólakorta undanfarna daga, sem lætur nærri að séu um það bil tíu jólakort á hvert mannsbarn í landinu. Jólakortið virðist því halda velli þrátt fyrir möguleikann á að senda jólakveðju á netinu eða með símaskilaboðum. 24.12.2004 00:01
Víða ófært vegna veðurs Stórhríð geysar nú víða á Norður- og Norðausturlandi og er orðið ófært á þessum slóðum. Hátt í tíu manns í nokkrum bílum urðu að hafast við í stórhríð á Siglufjarðarvegi í alla nótt eftir að tvö snjóflóð féllu á veginn með stuttu millibili og ekki var hægt að snúa við vegna ófærðar. 24.12.2004 00:01
Fer líklega ekki í bráð Lögmaður Bobbys Fischers er vondaufur um að japönsk stjórnvöld muni leyfa skákmeistaranum að fara úr landi á næstunni. Skákmeistarinn hefur handskrifað bréf til japanskra stjórnvalda með beiðni um að fá að fara til Íslands. 24.12.2004 00:01
Bandaríkjamenn sækja á Evrópumið Bandarískir útvegsmenn sækja nú mjög inn í Evrópusambandið með bandarískar sjávarafurðir í beinni samkeppni við íslenskar sjávarafurðir, vegna þess hve Evran er sterk gagnvart dollarnum. Þeir juku útflutning til sambandsins um fjórðung fyrstu níu mánuði ársins og er ekkert lát á sókninni síðan. 24.12.2004 00:01
Nóg eftir af jólatrjám Nóg er eftir af jólatrjám hjá helstu jólatrjáasölum í höfuðborginni. Fregnir bárust í gær um að skortur væri á trjám, og að verð hefði í kjölfarið hækkað hjá einhverjum söluaðilum. Stærstu söluaðilarnir í Reykjavík sögðu þó engan skort, þó að lítið eitt minna hefði víða verið keypt inn af trjám en í fyrra. 24.12.2004 00:01
Mikil fátækt í Mongólíu Meðan jólin nálgast bíður hundruða heimilislausra barna í höfuðborg Mongólíu harður vetur og svelti. Þriðjungur af íbúum landsins býr við sára fátækt. Fátækt hefur aukist mjög í Mongólíu síðan valdatíma kommúnista lauk og stuðningur frá Rússlandi hætti. Heimilislausum börnum hefur fjölgað mjög, og er talið að um tíu þúsund séu heimilislausir í höfuðborginni. 24.12.2004 00:01
Messufall vegna ófærðar Vegna ófærðar og stórhríðar verður víða messufall á norður- og norðausturlandi. Í Hólaneskirkju falla niður messur sem áttu að vera klukkan fjögur og ellefu í kvöld. Á Svalbarðsströnd fellur einnig niður messa í dag, sem og á Raufarhöfn og Grenivík. Þá hefur bænastund í Vestmannaeyjum verið frestað til morguns vegna hvassviðris. 24.12.2004 00:01
Mikil umferð við kirkjugarða Þúsundir Íslendinga vitja látinna ástvina í kirkjugörðum landsins í dag. Mikil umferð er við garðana í höfuðborginni og þá sérstaklega Fossvogs- og Gufuneskirkjugarð. Umferðarstofa hefur gert ráðstafanir til að greiða sem mest fyrir umferð þannig að ein leið sé virk að görðunum og önnur leið frá þeim. 24.12.2004 00:01
Vonskuveður fyrir norðan og austan Vonskuveður er um norðan- og austanvert landið. Þar er víða ófært og ekkert ferðaveður. Illa hefur gengið að koma pósti til skila. Veðurspáin er ekki girnileg fyrir daginn. Búist er við stormi á norðan- og austanverðu landinu, og þar er víða vonskuveður, hríðarbylur og ekkert ferðaveður. 24.12.2004 00:01
Lögregla leitar ofbeldismanns Lögreglan í Keflavík leitar manns sem veitti manni áverka í heimahúsi í Keflavík undir morgun. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og mun meðal annars vera nefbrotinn. Vitni voru að átökunum og er vitað hver árásarmaðurinn er en hann hefur áður gerst brotlegur við lög. 23.12.2004 00:01
Breyttu landinu án blóðsúthellinga Kosningabaráttan í Úkraínu stendur nú sem hæst - aftur. Frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, Viktor Júsjenko, hrósaði stuðningsmönnum sínum á útifundi í gær og sagði þá hafa breytt landinu án blóðsúthellinga. 23.12.2004 00:01
Vörubíll festist undir þakskyggni Háum vöruflutningabíl var ekið undir skyggni yfir plani við Veganesti við Hörgárbraut á Akureyri í nótt þannig að flutningakassinn rakst upp undir skyggnið. Þar sat bíllinn klossfastur og tók hálfa aðra klukkustund, með aðstoð tveggja stórra krana, að losa hann undan skyggninu sem er stórskemmt. 23.12.2004 00:01
Ætluðu að myrða krónprinsinn Sádi-Arabar hafa kallað sendiherra sinn í Líbíu heim þar sem þeir þykjast hafa heimildir fyrir því að Líbíumenn hafi lagt á ráðin um að ráða Abdullah, krónprins Sádi-Arabíu, af dögum. Krónprinsinn er sá sem í raun og veru hefur völdin í landinu. 23.12.2004 00:01
Hlupu þjófana uppi Lögreglumenn á Akureyri hlupu í nótt uppi tvo menn, grunaða um að hafa brotist inn í verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð. Tilkynnt var um innbrot þar og sáust mennirnir í grennd. Þegar lögregla ætlaði að hafa tal af þeim tóku þeir til fótanna en höfðu ekkert að gera í sprettharða lögreglumennina sem handtóku þá. 23.12.2004 00:01
Annan vill ekki fara til Darfur Tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að stilla til friðar í Darfur-héraði í Súdan hafa ekki skilað neinum árangri, segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna. Hann telur rétt að hugsa upp á nýtt hvernig taka beri á málum. Annan neitar að fara til Darfur. 23.12.2004 00:01
Stálu ísskáp úr íbúð á 3. hæð Bíræfnir þjófar stálu stórum tvöföldum ísskáp með ísmolavél úr íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærdag. Þeir slitu ísskápinn úr sambandi, og þar með vatnslögnina til ísmolavélarinnar, með þeim afleiðingum að vatn fór að leka úr leiðslunni. Þegar flætt hafði um alla íbúðina tók vatnið að leka niður í tvær íbúðir fyrir neðan. 23.12.2004 00:01
Dularfull viðskipti með Yukos Það vakti furðu fyrr í vikunni þegar dularfullt, áður óþekkt fyrirtæki, með höfuðstöðvar sínar í farsímaverslun úti í sveit, keypti stærstu eignir rússneska olíufyrirtækisins Yukos á uppboði. Atburðir næturinnar eru ekki síður dularfullir en þó ekki óviðbúnir. Rússneska ríkisolíufyrirtækið Rosneft hefur keypt Baikal Finance Group, fyrirtækið sem keypti eignir Yukos. 23.12.2004 00:01
Skíðasvæðið í Tungudal opið Skíðasvæðið í Tungudal verður opið frá 11-15 í dag og göngusvæðið í Seljalandsdal opnar klukkan 13. Stillt veður á svæðinu en mikið frost, -15 gráður. Skíðasvæðin í Bláfjöllum og í Skálafelli eru hins vegar lokuð fram yfir jól í það minnsta. 23.12.2004 00:01
Kosningar í Palestínu í dag Fyrstu borgar- og sveitarstjórnarkosningar í þrjá áratugi á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna fara fram í dag en litið er á þær sem einskonar æfingu fyrir forsetakosningar í landinu í janúar. Mikill fjöldi kjósenda virðist hafa tekið þátt í kosningunni sem ætti einnig að gefa nokkra mynd af fylgi megin stjórnmálahreyfinga á sjálfsstjórnarsvæðunum. 23.12.2004 00:01
Fuglaflensa víða í Víetnam Fuglaflensa hefur fundist í sex umdæmum í Víetnam undanfarnar þrjár vikur og hefur yfir tíuþúsund fuglum verið fargað til að koma í veg fyrir faraldur. Í Kína búa stjórnvöld sig jafnframt undir fuglaflensu í vetur og í því augnamiði að hefta útbreiðslu er nú unnið að því að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í að greina flensuna og meðhöndla. 23.12.2004 00:01
Leikskólakennarar skrifuðu undir Samningamenn leikskólakennara og sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi hjá Ríkissáttasemjara en leikskólakennarar voru búnir að vera með lausa samninga síðan í sumar. Samningurinn gildir til 30. september árið 2006 eða nokkuð skemur en samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu. 23.12.2004 00:01
Hnífstunguárásir í Lundúnum Einn maður er látinn og í það minnsta fimm eru alvarlega slasaðir eftir að maður eða menn réðust á fólk í Norður-Lundúnum í morgun og stungu það. Einn maður hefur verið handtekinn og svo virðist sem hann hafi ráðist á fólkið handahófskennt í æðiskasti. Hvorki hefur þó verið útilokað að fleiri eigi hlut að máli né að árásirnar hafi verið fleiri. 23.12.2004 00:01
Læknar skrifuðu undir í gær Samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og fulltrúar Læknafélags Reykjavíkur undirrituðu í gær samninga um lækningar utan sjúkrahúsa fyrir sjúkratryggða. Samningurinn er til tæplega fjögurra ára og tekur til allra sérfræðilækna annarra en bæklunarlækna. 23.12.2004 00:01
Sjúkragögnum drengs stolið Mikilvæg sjúkragögn um ungan dreng, sem er á förum til Bandaríkjanna til að gangast undir læknismeðferð, eru meðal þess sem er í svartri leðurtösku sem stolið var af konu í Bónus í Hafnarfirði í gær. Rannsóknalögreglan í Hafnarfirði skorar á þjófinn að skila gögnunum sem eru drengnum afar mikilvæg. 23.12.2004 00:01
Yfirheyrður vegna málverkaránsins Norska lögreglan hefur yfirheyrt mann sem grunaður er um aðild að ráninu á málverkum Munchs, <em>Ópinu</em> og <em>Madonnu</em>, af safni í Ósló í sumar. Fram að þessu hafði lögreglu ekkert orðið ágengt við rannsóknina og hafði enga hugmynd um hver kynni að hafa verið að verki. Maðurinn neitar sök og var sleppt að loknum yfirheyrslum. 23.12.2004 00:01
Fegin að málinu sé lokið Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Patreksfirði, segir að fórnarlömb mannsins sem fékk fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfjarða í gær hafi öll fengið aðstoð vegna áfallsins. Yfirheyrslur og rannsókn málsins hafi reynt mikið á og hann sé feginn að málinu sé lokið. Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skólastjóri grunnskólans þar, tekur í sama streng. 23.12.2004 00:01
Olíuauðlindir landsins þjóðnýttar Pútín Rússlandsforseti telur sanngjarnt að þjóðnýta olíuauðlindir landsins. Þannig megi verja hagsmuni ríkisins gegn áhrifum ósanngjarnrar og ólöglegrar einkavæðingar undanfarinn áratug. Þetta sagði hann nú þegar ríkið hefur náð tökum á helstu eignum olíufyrirtækisins Yukos. 23.12.2004 00:01
Búist við miklum kulda í kvöld Ástæða er til að vara fólk við því að víða í þéttbýli á láglendi má búast við tíu stiga frosti í kvöld og vindhraða upp á fimmtán metra á sekúndu. Við þær aðstæður svarar kuldinn til allt að þrjátíu stiga frosti í logni, segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur. 23.12.2004 00:01
Friðargöngur víða um land Gengið er til friðar víða um land í dag eins og venja er á Þorláksmessu. Samstarfshópur friðarhreyfinga efnir til blysfarar niður Laugaveginn sem hefst á Hlemmi klukkan sex. Gengið verður niður á Ingólfstorg þar sem flutt verða ávörp og Hamrahlíðarkórinn syngur. 23.12.2004 00:01
Óþefurinn úr eldhúsinu er svo ... Skötuilm, eða -óþef, leggur nú úr eldhúsum og frá veitingastöðum samkvæmt vestfirskum sið. Helgi Hafliðason, fyrrverandi fisksali í Fiskbúð Hafliða, á ættir að rekja til Vestfjarða. Hann vill hafa skötuna vel kæsta. Að sögn Sigurðar eru sögusagnir um að Vestfirðingar migi á skötuna, og grafi hana síðan til að hafa hana vel kæsta, tóma þvælu. 23.12.2004 00:01
Velflestir misstu velflest Á annan í jólum í fyrra reið jarðskjálfti yfir Bam í Íran með þeim afleiðingum að 27.000 manns létu lífið. Ári síðar reyna eftirlifendurnir að færa samfélagið í samt horf eins og frekast er kostur 23.12.2004 00:01
Kostnaðarhækkun upp á milljarð Kostnaðarhækkun sveitarfélaganna í landinu vegna kjarasamnings við leikskólakennara nemur rétt rúmum milljarði króna í heildina. 23.12.2004 00:01
24 féllu í Nepal Að minnsta kosti tuttugu og fjórir eru sagðir hafa fallið í bardögum nepalska hersins og skæruliða úr röðum maóista í Nepal í dag. 22 hinna látnu voru skæruliðar. Yfir hundrað manns hafa þar með látist í átökum deiluaðilanna síðastliðna viku. 23.12.2004 00:01
Þagnarskyldan mismunandi Þagnarskylda lögreglumanna er mismunandi eftir málefnum og aðstæðu hverju sinni og metin í samræmi við það. 23.12.2004 00:01
Danir blekktu ekki Grænlendinga Danski forsætisráðherrann, Anders Fogh Rassmussen, vísar því á bug að danska ríkisstjórnin hafi afvegaleitt Grænlendinga þegar Grænland var innlimað í Danmörku fyrir hálfri öld. 23.12.2004 00:01
14 létust og 33 særðust í Írak Fjórtán létust og þrjátíu og þrír særðust þegar tvær sprengjur sprungu í tveimur árásum suður af Bagdad í gærkvöld. Níu létust og þrettán særðust í sjálfsmorðsárás þegar bifreið hlaðin sprengiefnum ók inn í vegatálma. Þeir sem létust voru úr þjóðvarðliðinu og lögreglunni, auk nokkurra óbreyttra borgara. 23.12.2004 00:01
Ánægð með kjarasamningi leikskóla Enn vantar upp á að jafna laun leikskólakennara að kjörum grunnskólakennara, segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara. Á það verði stefnt með næstu samningum árið 2006. 23.12.2004 00:01
Qureia gagnrýnir fyrirhugaðan fund Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, gagnrýndi í dag harðlega fyrirhugaðan fund í Lundúnum um umbætur í Palestínu. Hann sagði að það sem þyrfti til væri friðarráðstefna. Hann er ekki í aðstöðu til að ákveða hvort Palestínumenn sæki fundinn en afstaða hans er engu að síður merki um ágreining meðal leiðtoga Palestínumanna eftir dauða Jassirs Arafats. 23.12.2004 00:01
Í skóinn fyrir 200 milljónir Fjármálaráðuneytið áætlar að sextíu og fimm þúsund börn yngri en fjórtán ára fái í skóinn fyrir þessi jól. Verðmæti gjafanna sé að meðaltali um 250 krónur og alls þurfi jólasveinarnir því að kaupa gjafir fyrir hátt í 200 milljónir. Ráðuneytið hefur fyrir satt í þessari hávísindalegu könnun að Kertasníkir sé gjafmildastur bræðranna. 23.12.2004 00:01
Nefndin hættir skrifstofurekstri Kjararannsóknarnefnd og Hagstofa Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um launakannanir og aðrar vinnumarkaðsrannsóknir. Frá og með 1. janúar 2005 verður launakönnun Kjararannsóknarnefndar framkvæmd af Hagstofunni og hættir nefndin skrifstofurekstri frá þeim tíma. 23.12.2004 00:01
Landspítalinn tekur við rekstrinum Landspítalinn hefur tekið við rekstri sjúkrahótels af Rauða krossinum sem hefur staðið fyrir rekstri þess í þrjá áratugi, nú síðast í samvinnu við Landspítalann og Fosshótel. Landspítalinn hefur samið við Fosshótel til næstu fimm ára um áframhaldandi samstarf um rekstur sjúkrahótels. 23.12.2004 00:01