Innlent

Læknar skrifuðu undir í gær

Samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og fulltrúar Læknafélags Reykjavíkur undirrituðu í gær samninga um lækningar utan sjúkrahúsa fyrir sjúkratryggða. Samningurinn er til tæplega fjögurra ára og tekur til allra sérfræðilækna annarra en bæklunarlækna. Hann er gerður með hefðbundnum fyrirvara um samþykki ráðherra og félagsfundar lækna. Í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að hann sé efnislega í samræmi við samninga sem gerðir hafa verið á hinum almenna vinnumarkaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×