Olíuauðlindir landsins þjóðnýttar 23. desember 2004 00:01
Pútín Rússlandsforseti telur sanngjarnt að þjóðnýta olíuauðlindir landsins. Þannig megi verja hagsmuni ríkisins gegn áhrifum ósanngjarnrar og ólöglegrar einkavæðingar undanfarinn áratug. Þetta sagði hann nú þegar ríkið hefur náð tökum á helstu eignum olíufyrirtækisins Yukos. Á sunnudaginn var keypti áður óþekkt fyrirtæki, Baikal Finance Group, meirihluta eigna Yukos á uppboði. Sérfræðingar töldu þegar í stað að stjórnvöld í Kreml ættu hlut að máli og ættu eftir að láta til sín taka. Fréttamenn þýska fréttatímaritsins Spiegel komust einnig fljótlega að því að Baikal, sem skráð er í farsímaverslun úti í sveit, var hvorki með skrifstofu, vefsíðu né símanúmar - aðeins þáttur í dularfullum feluleik. Atburðir næturinnar eru ekki síður dularfullir en þó ekki óviðbúnir. Rússneska ríkisolíufyrirtækið Rosneft hefur keypt Baikal Finance Group fyrir ótilgreinda upphæð. Rosneft, og þar með ríkið, ræður þannig yfir því sem áður voru eigur Yukos. Það sýnir hversu bein aðkoma hæstráðenda í Kreml er að stjórnarformaður Rosneft er aðstoðarstarfsmannastjóri í Kreml, Igor Setschin. Skammt er síðan Vladímír Pútín, forseti Rússlands, ákvað að annað fyrirtæki í ríkiseigu, Gazprom, stærsta náttúrugasfyrirtæki Rússlands, myndi kaupa Rosneft og sameina fyrirtækin. Þar með ætti rússneska ríkið stærsta orkuframleiðanda Rússlands sem gæti látið til sín taka á alþjóðavettvangi. Stjórnmálaskýrendur segja þetta eitt útspil Pútíns, ætlað til þess að auka vigt Rússlands á alþjóðavettvangi. Það er ekkert leyndarmál að Pútín gremst að Rússland skuli vera eins og skugginn af Sovétríkjunum, ríki sem er áhrifalítið bæði efnahagslega, hernaðarlega og pólitískt séð. Talið er að hann sjái sér leik á borði þegar olía og gas eru annars vegar og telji sig með þessu móti getað látið frekar til sín taka á alþjóðavettvangi. Sjálfur sagði hann í morgun að kaupin væru eðlileg og samkvæmt markaðslögmálum. Þjóðnýting olíuauðlinda Rússlands væri nauðsynleg til að vega á móti neikvæðum áhrifum ólöglegrar og ósanngjarnrar einkavæðingar undanfarinn áratug. Olíusérfræðingar hafa áhyggjur af þessari þróun á öðrum forsendum: starfsemi Yukos og vinnsluaðferðir þóttu til fyrirmyndar og sambærilegar því sem þekktist á Vesturlöndum en starfsaðferðir Rosneft eru heldur óskilvirkar og úreltar. Sérfræðingarnir óttast að þetta leiði til þess að olíuiðnaðurinn í Rússlandi verði jafn afkastalítill og óskilvirkur og forðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira